Morgunblaðið - 17.09.1997, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 17.09.1997, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM 20 ár frá andláti Callas ► ÓPERUUNNENDUR söfnuð- ust víðsvegar að úr heiminum til Grikklands til þess að minnast þess að tuttugu ár eru liðin síðan óperusöngkonan Maria Callas lést. Söngvarar, hljómsveitarstjór- ar, ævisagnaritarar og vinir sem kynnst höfðu söngkonunni á lit- ríkum ferli hennar fylgdust með þegar blómsveigum var kastað út í Eyjahafíð við sögustaðinn fornfræga Epi- daurus þar sem ösku hennar var dreift. Meðan á athöfn- inni stóð endurómuðu gaml- ar upptökur með Callas yfír hafflötinn. Söngkonan Christa Lud- wig, hljómsveitarstjórinn Nicola Resc'igno og leikrita- skáldið Marcel Prawy riljuðu upp kynni sín við söngkonuna. Lýstu þau henni sem veiklund- aðri og feiminni í einkalífí sínu, en sem Ijónynju á sviði og sögðu að hún hefði fórnað einkalífí sínu fyrir söngferil sinn. Skírnarnafn Callas var Maria Kalogeropoulos og var hún dóttir BORGARSTJÓRI Aþenu, Dimitris Avramaopoulos, tendraði loga til minning- ar um Callas. grískra innflytjenda í New York. Hún fæddist árið 1923 og 13 ára flutti hún til Grikklands, þar sem hún hóf litríkan söngferil sinn. Hún átti í ástarsambandi við gríska auðjöfurinn Aris- toteles Onassis og jafnaði sig aldrei á því þegar hann yfírgaf hana og gift- ist Jackie Kennedy, ekkju Johns F. Kennedy, forseta Bandaríkjanna. ALLIR óperuunnendur þekkja til Mariu Callas. fBSmir 8 Ljósmyndasýning Morgunblaðsins á Höfn í Hornafirði Okkar menn, félag fréttaritata Morgunblaðsins, og Morgunblaðið efndu til samkeppni um bestu Ijósmyndir fréttaritara frá árunum 1995 og 1996. f Landsbanka íslands á Höfn í Hornafirði hefur verið komið upp sýningu á þeim myndum sem dómnefnd taldi bestar. Myndefnið er fjölbreytt og gefst því fólki kostur á að sjá brot af viðfangsefnum fréttaritara Morgunblaðsins sem eru um 100 talsins og gegna mikilvægu hlutverki í fréttaöflun blaðsins á landsbyggðinni. Sýningin stendur til föstudagsins 26. september og er opin á afgreiðslutíma Landsbanka íslands. Myndirnar á sýningunni eru til sölu. Bók um bresku konungsfjöiskylduna Niðrandi og óvægin lýsing NY bók um bresku kon- ungsfjölskylduna kemur út í Bandaríkjunum í vik- unni en útgáfunni var flýtt vegna fráfalls Díönu prinsessu. Bókin ku vera full af slúðri um konungs- fjölskylduna en höfund- urinn, Kitty Kelly, eyddi fjórum árum í að taka viðtöl við um 800 manns, þar á meðal fyrrverandi og núverandi starfsfólk fjölskyidunnar. Kitty Kelly segist ósátt við ákvörðun Warner Books um að flýta útgáfu bókarinnar, sem nefnist „The Royals“ og spannar 502 blaðsíður af meintu framhjáhaldi, samkyn- hneigð, heimilisofbeldi, vímuefnamisnotkun og smekklausri kímnigáfu svo eitthvað sé nefnt. Að sögn Kelly hefði hún sjálf kosið að fresta útgáfunni um nokkra mánuði. „Mér líður afar illa yfír tímasetningu bókarinnar. Ég vil alls ekki ónáða þau í sorginni," sagði Kelly sem hyggst þó ekld biðjast afsökunar á bókinni. Dregin er upp niðrandi mynd af óhamingjusamri kon- ungsfjölskyldu sem að sögn er klofin af smá- sálarhætti, nísku og afbrýðisemi. „Bókin er skrifuð af utanaðkomandi aðila sem lætur sig engu skipta hvort hann er boðinn til Ascot eða ekM,“ sagði Kelly sem hefur áður skrifað ævisögu Frank Sinatra, Nancy Reagan og Jaqueline Kennedy Onassis í miMlli óþökk þeirra. Sinatra var svo misboðið vegna innihalds ævisögu hans að hann höfðaði mál gegn Kelly árið 1983 en dró það síðar til baka. „The Royals" verður ekki gefin út í Bretlandi vegna strangrar meiðyrðalöggjafar og er það alfarið ákvörð- un Wamer Books-útgáfufyrirtækisins. „Ég hefði mjög gjarnan viljað að bóMn væri gefin út þar. Ég stend al- gerlega við það sem ég hef skrifað," sagði Kelly. Fregnir herma að Warner Books hafi greitt Kelly um 280 milijónir króna fyrirfram fyrir bóMna um konungs- fjölskylduna. Kvikmyndahátíðin í í Toronto »Byggð á viðtölum við um 800 manns“ KITTY Kelly höfundur bókarinnar „The Royals“ heldur hér á eintaki af bókinni, en hún verður sett á markað í Bandaríkjunum 1 vikunni. Sjö ár Brad Pitts í Tíbet Kvikmyndahátíðinni í BRAD Pitt var lettlyndur þegar hann Toronto lauk með koma fram á blaðamannafundi í Toronto heimsfrumsýningu á nýj- og henti brotnum blýanti í átt að blaða- ustu mynd Brad Pitts mönnum og ljósmyndurum. „Seven Years in Tibet“, sem búist er við að fái blendnar við- tökur af tveimur ástæðum. Annars vegar eru það tengsl söguhetjunnar við nasista og hins vegar umfjöllun um innrás Kínverja inn í Tíbet. Nú þegar hefur Brad Pitt og leikstjór- anum Jean-Jacques Annaud verið bannað að koma til Kína vegna myndarinnar og að sögn Annaud þurfti að hætta við tökur í Indlandi og fara til Argentínu vegna þrýst- ings frá Mnverskum stjórnvöldum. Myndin fjallar um austurríska fjallgöngumanninn Heinrich Har- rer, sem Brad Pitt leikur. Harrer varð einkakennari hjá Dalai Lama eftir seinni heimsstyrjöldina en Harrer þurfti að flýja til Tíbet. í myndinni er fylgst með breyting- unni á Harrer sem í upphafi er hrokafullur og sjálfselskur ævin- týramaður en verður að upplýstari einstaklingi á meðan hann dvelur í Tíbet. Breytingar voru gerðar á mynd- inni þegar þýsMr fjölmiðlar sýndu fram á að Harrer var meðlimur í nasistaflokknum og þáði boð um að verða íþróttaþjálfari hjá SS-sveitum flokksins. Að sögn leikstjóra myndarinnar, Jean-Jacques Annaud, var alltaf vit- að um tengsl Harrers við nasista en ekM vitað hver þau voru nákvæm- lega. „Þetta atriði bætir eiginlega bara við söguna. Þetta er alls ekk- ert sem angrar mig. Ég held að þetta hafi komið fram í handritinu eins og það var,“ sagði Brad Pitt um nasistatengsl Harrer.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.