Morgunblaðið - 17.09.1997, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.09.1997, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Til sölu raðhús á Spáni 3ja herb. fallegt 43 fm raöhús af gerðinni Rosita í byggðinni La-Marina sem er um 30 km frá flugvellinum við Alicante. Verð kr. 2,6 millj. Innbú fylgir. Arni Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10, sími 555 0764. Fasteignasalan Suðurveri ehf. Stigahlíð 45-47, 105 Reykjavík Sími 581 2040 Fax 581 4755 Fersk fasteignasala Einar Örn Reynisson, Reynir Þorgrímsson, Helgi Hákon Jónsson, viðskiptafr. og löggiltur fasteignasali. Höfum kaupanda að lítilli ósamþykktri íbúð á verðb. 1-2 millj. Stórri sérhæð í Þingholtunum með bílskúr. Skoðum og verðmetum eignir samdægurs ekkert skoðunargjald. jf I SJÓÐHEITAR EIGIXIIR Miðstræti. Eign í sérflokki. Um er að ræða 2ja herbergja risíbúð á 3. hæð ca 50 fm. sérstigagangur er fyrir þessa einu íbúð alla leið upp. Eldhúsið er sérlega skemmtilegt í kvisti. Vestursvalir með góðu útsýni yfir vestur- bæinn. Sjón er sögu ríkari. Bergstaðastræti. Efri hæð og ris í virðulegu timburhúsi, íbúðin er öll nýlega gegnumtekin. Tvöfalt gler og nýtt þak. Á hæðinni eru tvær stofur, eldhús og bað ásamt sjónvarpsholi með stiga upp í risið þar sem eru tvö svefnherbergi. Verð 6,9 millj. áhv. 3.2 millj. byggingarsj. Fleiri lán geta fylgt. Sólheimar. Þriggja herbergja íbúð á 4 hæð í lyftuhúsi. íbúðln er öll mjög falleg og snyrtileg, svo og öll sameign. Góðar suðursvalir. Æskileg skipti á góðri tvegg- ja herbergja íbúð í austurbæ, má vera í Breiðholti. Verð 6,8 millj. Reykjavíkurvegur, Heii húseign sem skiptist í tvö ver- slunarpláss, tvær íbúðir og stórt vinnupláss sem nú er nýtt sem trésmiðja. Eignin selst í heilu lagi eða skipt. Hugsanleg skipti á minni eign eða eignum. FRÉTTIR Fyrirhugaðar uppsagnir ungra lækna á yfirvinnu Mikil áhrif á starf- semi siúkrahúsanna LJOST er að uppsagnir ungra lækna á yfirvinnu munu hafi mjög mikil áhrif á starfsemi sjúkrahúsanna ef þær koma til framkvæmda, þar sem vinnufyrirkomulag á stóru sjúkra- húsunum miðast við að vinnutími þeirra sé lengri en nemur 40 stunda vinnuviku. Helgi H. Helgason formaður Fé- lags ungra lækna sagði í Morgun- blaðinu í gær að kandidatar og deild- arlæknar séu með í undirbúningi uppsagnir á yfirvinnu á sjúkrahús- unum til að þrýsta á um gerð kjara- samninga en þeir hafa verið með lausa samninga í níu mánuði. Um 150 læknar eru í Félagi ungra lækna og mun hver og einn læknir segja upp samningi um yfirvinnu sína. Um uppsagnirnar gildir almennur upp- sagnarfrestur samkvæmt samning- um lækna, sem er tveir mánuðir, og er við það miðað að uppsagnirnar taki gildi 1. desember næstkomandi. Víðtæk áhrif Jóhannes Pálmason, fram- kvæmdastjóri Sjúkrahúss Reykja- víkur, sagði að það myndi hafa víð- tæk áhrif á starfsemi sjúkrahússins ef ungir læknar hættu að vinna yfir- vinnu með sama hætti og vinnutíma- tilskipun Evrópusambandsins hefði áhrif í þessum efnum, enda væri hún og þau áhrif sem hún hefði á vinnu- fyrirkomulag og vinnutíma lækna til umræðu í þeim kjarasamningavið- ræðum sem stæðu yfir við lækna. Jóhannes sagði að ungir læknar ynnu gríðarlega mikla aukavinnu. Vinnufyrirkomulag lækna væri þannig að yfirvinna væri öll vinna sem unnin væri utan hefðbundinna dagvinnumarka. Ljóst væri að mikið vandamál myndi skapast ef ungir læknar segðu þessari yfírvinnu upp og ekki væri búið að semja um ann- að kerfi sem gæti leyst núverandi fyrirkomulag af hólmi og væri innan þess ramma sem tilskipun Evrópu- sambandsins segði fyrir um. Jóhannes sagði að það væri eink- um á stórum bráðadeildum sjúkra- húsanna sem unnin væri mikil yfir- vinna af læknum, enda væru þeir uppi allar nætur og allar helgar. Hann ætti von á því að á þessum deildum væri farið langt umfram þá 90 yfirvinnutíma á mánuði sem mið- að væri við í kjarasamningi. Það kæmi honum ekki á óvart að ungir læknar þar væru með 150-200 tíma yfirvinnu í mánuði vegna þess að ekki væri unnin vaktavinna í hefð- bundnum skilningi. „Þetta mun hafa víðtæk áhrif komi það til framkvæmda. Ég vona auðvitað að menn finni viðunandi lausn í þessum kjarasamningsvið- ræðum,“ sagði Jóhannes ennfremur. Mikilvægnr þáttur Þorvaldur Veigar Guðmundsson, lækningaforstjóri á Ríkisspítölunum, dró í efa að ungir læknar gætu sagt upp hluta starfssamnings síns. Á hinn bóginn yrði það stórt vandamál fyrir spítalann ef aðstoðarlæknar ein- hverra hluta vegna drægju verulega úr yfirvinnu sinni. „Þeir vinna mjög mikla yfirvinnu og eru mjög mikil- vægur þáttur í starfsemi spítalans, svoleiðis að starfsemin riðlast öll. Það er ekki hægt að halda uppi venju- legri spítalastarfsemi eins og við sjáum hana, ef þeir vinna ekki sína yfirvinnu," sagði Þorvaldur Veigar. Skortur á járniðnaðarmönnum í Eyjum Sótt um atvinnuleyfi fyrir 10 Pólverja SKIPALYFTAN hf. í Vestmannaeyj- um hefur sótt um atvinnuleyfi fyrir allt að tíu járniðnaðarmenn frá Pól- landi vegna skorts á vinnuafli í fag- inu í Eyjum. Er nú svo komið að fyrirtækið verður af einföldum við- haldsverkefnum vegna þess að það annar þeim ekki. Hjá Skipalyftunni starfar nú á fjórða tug jámiðnaðarmanna og vantar um tíu. Ekki hefur gengið að fá starfsmenn í Eyjum og hefur því verið gripið til þess ráðs að fá Pól- veija til starfa. „Við höfum verið með Pólverja í vinnu hér áður, síðast sex menn nú í sumar,“ segir Ólafur Friðriksson, framkvæmdastjóri Skipalyftunnar. Sótt hefur verið um atvinnuleyfi fyrir allt að tíu járniðnaðarmenn frá Póllandi, þá sex sem störfuðu hjá Skipalyftunni á liðnu sumri og allt að fjóra til viðbótar til allt að sex mánaða. Umsóknirnar hafa nú þegar feng- ið jákvæða umsögn hjá Sveinafélagi járniðnaðarmanna í Vestmannaeyj- um, og eru nú til skoðunar hjá fé- lagsmálaráðuneyti og útlendinga- eftirliti. * Rúmgóðar 3ja herb. íbúðir til sölu. íbúðin er stór stofa, við hliðina á rúmgóðu eldhúsi, baðherbergið er stórt með sturtu og baðkeri, svefnherbergi eru vel útaf fyrir sig með góðum skápum. 20 fm svalir á mót suðri og bílskúr. Inngangur í húsið er upphitaður, forstofa er flísalögð og stigi teppalagður. Einnig eru til sölu 2ja, 4ra og 5 herbergja íbúðir. Gott er að hafa í huga við kaup á íbúð í dag, mun vandaðri en þær íbúðir, sem byggðar voru fyrir u.þ.b. 20 árum. Það er góður kostur að eiga íbúð í Reykjavík. í Reykjavík eru skattar og fasteignagjöld lægri en víðast annarsstaðar. Um langt árabil hafa stjórnendur borgarinnar verið þekktir fyrir að ganga fljótt og vel frá götum, gangstéttum, opnum svæðum og allri þeirri þjónustu sem bæjarfélög veita. Byggingaraðiii: Örn ísebarn, sími 896 1606 ' 40 ára reynsla við húsbyggingar FASTEIGNA MARKAÐURINN ehf % ÓÐINSQÖTU 4. SlMAR 651-1540, 552-1700 SÖLUSÝNING Til sýnis eru frá miðvikudegi—föstudags, milli kl. 15.00 og 17.00. Nýjar, vandaðar 3ja og 4ra herbergja íbúðir við Garðatorg í Garðabæ. íbúðirnar eru allt frá 100 til 140 fm að stærð. % Bílastæði eru í bílgeymslu. Sölumenn okkar á staðnum. Verið velkomin. FASTEIGNAMARKAÐURINN ehf. | ®ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700 Hrísrimi 22 - eign í sérflokki - Opið hús kl. 17 - 21 í kvöld - Til sölu eitt glæsil. húsið í Grafarvogi. Húsið er 190 fm með innb. bílskúr. Sérsmíðaðar innrétt. Glæsil. gegnheilt parket á gólfum. Glæsil. baðherb. m. hornbaðkari. Glæsil. garður. Áhv. hagst. lán. Allir velkomnir. V. 14,9 m. Sjón er sögu ríkari. 2195 Valhöll fasteignasala, sími 588 4477

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.