Morgunblaðið - 17.09.1997, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.09.1997, Blaðsíða 28
,28 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR + Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur okkar, bróðir, tengdasonur og mágur, JÓN FREYR SNORRASON, Skóqarás 2, Reykjavík, lést af slysförum þann 15. september. Útförin fer fram mánudaginn 22. september kl. 14.00 frá Akranesskirkju. Þeir, sem vildu minnast hans, er bent á björgunarsveitirnar. Svava Huld Þórðardóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Snorri Ólafsson, Nikolína Th. Snorradóttir, Sigurvin Ó. Snorrason, Þorbjörg Snorradóttir, Þórður Magnússon, Jón Þór Þórðarson, Berglind Þórðardóttir. Elínborg Einarsdóttir, Smári H. Kristjánsson, Halldóra Böðvarsdóttir, Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, DAGBJARTUR SIGURÐSSON, Álftagerði, Mývatnssveit, lést á Sjúkrahúsinu Húsavík 14. september. Útför hans verður gerö frá Skútustaðakirkju föstudaginn 19. september kl. 14.00. Björn Dagbjartsson, Sigurður Dagbjartsson, Atli Dagbjartsson, Björg Dagbjartsdóttir, Páll Dagbjartsson, Ásbjörn Dagbjartsson, Sigrún Valdimarsdóttir, Ute Bessler, Ingibjörg Sfmonardóttir, Halldór Gunnarsson, Hetga Friðbjörnsdóttir, Þóra Björg Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. JÞ + Bróðir okkar BJARNI KRISTINN HELGASON Suðurgötu 78, Hafnarfirði lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði þriðju- daginn 16. september. Guðrún Helgadóttir, Ingólfur Helgason, Jóhanna Helgadóttir, Gísli Helgason, Unnur Helgadóttir, Arnar Helgason, Viðar Helgason, Gerður Helgadóttir, Leifur Helgason. + Eiginmaður minn og faðir okkar, KARLJÓHANNSSON, er látinn. Aldís Hafliðadóttir, Ragna Karlsdóttir, Guðmundur Karlsson, Hafliði Karlsson, Ragnar Karlsson, Magnús Karlsson, Þorsteinn Karlsson og fjölskyldur þeirra. + Ástkær sonur okkar, PÁLMIPÁLMASON, sem fæddist andvana þriðjudaginn 9. september sl. á Landspítalanum, verður jarðsunginn í Fossvogskapellu fimmtudaginn 18. september nk. kl. 14.00 Pálmi Guðmundsson, Ástríður Elín Ásgeirsdóttir. Maðurinn minn, HELGIJÓNASSON frá Völlum, Stigahlíð 14, Reykjavík, lést í Landspítalanum 15. september. Eyrún Guðmundsdóttir. + Hafdís Kristj- ánsdóttir var fædd i Keflavík 28. janúar 1956. Hún lést 7. september síðastliðinn á Land- spítalanum. For- eldrar hennar eru Kristján Júlíusson, verkstjóri í Kefla- vík, f. 11. ág;úst 1933, og Sigríður Brynjólfsdóttir, f. 12. apríl 1932. Systkini Hafdísar eru Brynja, f. 12. nóvember 1954, gift Gunnari H. Hasler, búsett í Garði, Sigrún, f. 12. nóvember 1954, gift Guðmundi Ragnars- syni, búsett í Hafnarfirði, Július f. 5. janúar 1957, kvæntur Guð- rúnu Jakobsdóttur, búsett í Hafnarfirði og Hildur, f. 17. febrúar 1963, búsett í Garði. Hafdís giftist 7. júní 1980 eftirlifandi eiginmanni sínum, Matthíasi Loftssyni, jarðverk- fræðingi, f. 30. mars 1955. Þeirra börn eru Kristján, f. 22. Elsku Dísa. Nú er þú hefur kvatt okkur hér í þessu lífi, minnist ég þín með þakklæti og gleði í huga. Þakklæti fyrir að fá að vera systir þín og gleði yfir öllum góðu og skemmtilegu stundunum er við fengum að vera saman. Mín fyrsta minning um þig frá því ég var lítil er hve gott var að skríða upp í rúm til þín. Nú síðustu árin áttum við margar ánægjulegar stundir liggj- andi í leti, eins og við kölluðum það, uppi í rúminu þínu, talandi um lífið og tilgang þess eða hlæj- andi að einhveiju sem hafði hent okkur. Gerðir þú oft góðlátlegt grín að því að ég væri enn að skríða upp í rúm til þín. Þegar ég var fjórt- án ára sýndir þú mér stolt mynd af Matta kærasta þínum, við höfum oft hlegið mikið, hvað okkur fór á milli þá. Já, elsku Dísa, þú varst alla tíð mjög stolt af Matta þínum, reyndist hann þér mikill styrkur í gegnum veikindi þín. Mestu gleði- stundirnar í lífi þínu voru þegar þið eignuðust Kristján og Ernu. Kristján meðan þið bjugguð á Krummahólum og Ernu eftir að þið fluttuð til Kanada, meðan Matti var við nám þar. Þú stóðst þig eins og hetja, ein með tvö lítil börn langt í burtu frá ættingjum og vinum. Matti í skólanum allan daginn, en aldrei kvartaðir þú. Ég heimsótti ykkur tvö sumur, annað sumarið með Siggu, eigum við góðar minn- ingar frá þeim tíma. Bréfin sem þú skrifaðir mér frá Kanada geymi ég og veit að þau eiga eftir að gleðja mig og fleiri í náinni fram- tíð. Þú hafðir mikla frásagnarhæfi- leika, skrifaðir skemmtilegar sögur af Kristjáni og Ernu, sem alla tíð voru þér allt. Þú ólst þau upp af miklum kærleik. Elsku systir, sjúkdómur þinn var erfiður en alltaf varstu jákvæð og lifðir lífinu lifandi eins og þú orðað- ir það sjálf. Að ferðast var ekkert mál hjá þér þrátt fyrir að þú værir bundin við hjólastól. Hafðir þú yndi af öllum þeim ferðum sem þú fórst með fjölskyldu þinni, vinkonum sem reyndust þér góðar vinkonur, eða systkinum og foreldrum þínum og Matta. í júní sl. fórstu með mér og kvenfélagskonum úr Garði til Barcelona (Sigtes). Er ég mjög þakklát að hafa fengið tækifæri til að vera með þér þennan tíma á eins yndislegum stað og Sigtes er. Þú naust þín svo vel. Ströndin varð okkur kær og hlóst þú oft að því að við hefðum verið kallaðar strandlægjur. Þú lést sjúkdóm þinn ekki hafa áhrif á lífslgeði þína, var oft mikið að gera hjá okkur við að komast yfir allt sem okkur langaði að gera, þá komu allar þær góðu konur sem þú kynntist svo vel til ágúst 1979, og Erna, f. 21. júní 1982. Foreldrar Matthíasar eru Loftur Þorsteins- son, verkfræðingur í Reykjavík, f. 23. apríl 1925, og Erna Matthíasdóttir, f. 26. nóvember 1925. Hafdís ólst upp í Keflavík og lauk 4. bekk gagnfræða- prófs frá Gagn- fræðaskóla Kefla- víkur 1973. Eftir það vann hún við ýmis skrifstofu- og sjúkrahús- störf, svo sem á Vífilsstaðaspít- ala og við meðferðarheimili fyrir þroskaheft börn á Sólborg á Akureyri og í Huddinge í Svíþjóð, enda lét Hafdís sér annt um þá sem minna máttu sín. Hafdís var að mestu heima- vinnandi eftir að börn hennar fæddust. Utför Hafdísar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. hjálpar. AUar heilluðust þær af já- kvæði og léttleika þínum. Fjöl- skyldutengslin voru þér mikilvæg, ræktaðir þú samband þitt við fjöl- skyldu þína og Matta af mikilli hjartahlýju. Við systurnar eigum eftir að sakna þín mikið, þú samein- aðir og kenndir okkur svo margt með kærleika þínum, m.a. að gott er að eiga góða að. Sýndir þú okk- ur það með orðum þínum og í verki. Þá koma systur á vettvang, endað- ir þú bréf er þú sendir mér sl. sum- ar er ég lá veik. Ekki lést þú þitt eftir liggja, þó þú værir sjálf með þunga byrði, bundin við hjólastól, heldur komst þú til að vera hjá mér í nokkra daga svo ég yrði ekki ein eins og þú sagðir og elsku Erna fylgdi þér eins og alltaf til að hjálpa. Já, kærleikur þinn var óend- anlegur enda varst þú mikill áhrifa- valdur í lífi mínu og margra ann- arra. Elsku Dísa, þú varst ætíð létt og skemmtileg, gast fengið okkur til að hlæja hvenær sem var. í veik- indabaráttu þinni síðustu vikurnar tókst þér oft að láta okkur systurn- ar og mömmu hlæja, vildir ekki hafa okkur svona alvarlegar, þú varst ótrúleg. Barngóð varstu, tókst þér alltaf að breyta tárum í bros hjá þeim. Bigga Júlla og Siggu Dís, sem ber hluta af nafni þínu, varstu mjög kær, enda sýndir þú þeim mikinn áhuga og hlýju. Eiga þau margar fallegar og skemmtilegar minningar um þig, flottu afmæli- skökurnar sem þú og Ema skreytt- uð, englana sem þú lagðir svo mik- ið á þig að mála og gafst þeim og fleirum sl. jól og allar þær stundir sem þú gafst þeim til að spjalla. Gjafmildi þín var mikil og hafðir þú oft mikið fyrir því að finna það sem þörf var á og gafst af svo mik- illi einlægni. Heimili ykkar skipti þig miklu máli, þú hlúðir að því af mikilli innlifun, vildir hafa fallegt og snyrtilegt í kringum þig. Þú hafðir gaman af að laga og skreyta heimili ykkar. Voru jólin þinn besti tími, fylltist þá heimili ykkar af jóla- skrauti sem þú hafðir föndrað í gegnum árin. Þrátt fyrir veikindi þín sást aldrei neitt á neinu enda hafðir þú kennt bömum þínum góða umgengni og snyrtimennsku. Elsku Matti, Kristján, Erna, mamma og pabbi, missir ykkar er mikill. Ég bið góðan Guð að vera ykkur styrkur á þessum erfiða tíma. Ég vona að minningin um yndislega eiginkonu, móður og dóttur geti huggað ykkur. Fyrir hönd Dísu og fjölskyldu hennar langar mig að þakka hjúkr- unarfræðingum og starfsfólki deildar 32A, Landspítalanum, fyrir alla þá hlýju og góðu umönnun er þið sýnduð henni og okkur á erfið- um stundum. Elsku besta systir, með þessu ljóði kveð ég þig með söknuði en þakklæti í huga. Um ljós, um ljós og ljós mitt varstu systir 9g líkust mér. í guði lifðu góða hreina systir og guð í þér. (Matthías Jochumsson) Þín systir Hildur. Þú komst og fórst með ást til alls, sem grætur á öllu slíku kunnir nákvæm skil. Þín saga er ljós í lífi einnar nætur, eitt ljós, sem þráði bara að vera til. (Vilhjálmur frá Skáholti.) Ég horfi út um gluggann, það er snjór í fjallatoppum, birki- kvisturinn er farinn að roðna, - það er komið haust, fyrsta laufið féll 7. september, þegar ástkær vinkona mín lést. Ég hef áður upp- lifað að fyrsta lauf haustsins félli 7. september, þegar tengdafaðir minn lést 1994. Hví fölnar jurtin friða, og fellir blóm svo skjótt? „Því ertu svona dapur, kæri vin- ur minn,“ hljómar í útvarpinu, þetta lag sungum við Dísa oft saman, þegar við vorum ungar og ólofaðar. Eg kynntist Dísu fyrst þegar við vorum fimm ára, ég átti heima á Asabrautinni, hún á Sólvallagöt- unni í stóru blokkinni. Síðan flutt- um við báðar í sömu götu í hús hlið við hlið. Æskuárin liðu áhyggjulaus, það var eiginlega allt- af sumar. Bestu vinkonur sögðu hvor annarri allt, voru saman alla daga. Dísa var mikill dýravinur, hún átti alltaf kött og eða kettl- inga, sumir dagar voru sorglegir, þegar lítill kettlingur dó, var hann jarðaður bak við hús heima hjá Dísu og bjuggum við til kross og blómaskraut sem við fundum uppi í móa og settum á leiðið. Þegar við byijuðum í Gaggó, vorum við alltaf samferða í skólann. Fjórtán ára gamlar fórum við um sumarið að vinna í fiski í Kot- húsum í Garði. Bjuggum við saman í kommúnu með fieirum, það var nú meira fjörið, þar var unnið langt fram á kvöld, alla daga. Það væri nú flokkað undir barnaþrælkun, en við vorum að vinna okkur fyrir flottum fötum, snyrtivörum og vasapeningum fyrir næsta skólaár. Næstu sumur liðu eins. Ég man eftir okkur hlaupandi heim, við höfðum verið hjá vinkonu okkar, þegar mjög öflugur jarðskjálfti reið yfir, og vildum við komast sem fyrst heim, það var myrkur og við hræddastar um að stór sprunga í jörðinni yrði á vegi okkar. Það er gott að minnast bernsk- unnar á svona sorgarstundu - því góð vinátta og kærleikur á æsku- árum hefur enst okkur, og ég man ekki eftir neinum skugga á lífsleið okkar. Hafðu þökk fyrir allt, elsku Dísa mín, við hittumst allar að lokum. Ástvinum DIsu vil ég votta sam- úð mína og megi góður Guð hugga þau og styrkja. Nú ertu leidd, mín ljúfa, lystigarð Drottins í, þar áttu hvíld að hafa hörmunga og rauna frí, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól. Dóttir, í dýrðar hendi Drottins, mín, sofðu vært, hann sem þér huggun sendi, hann elskar þig svo kært. Þú lifðir góðum Guði, í Guði sofnaðir þú, í eilífum andarfriði ætíð sæl lifðu nú. (H.P.) Þín vinkona, HAFDIS KRISTJÁNSDÓTTIR Rannveig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.