Morgunblaðið - 17.09.1997, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Félag1 frímerkja-
safnara 40 ára
FRIMERKI
Afmælissýning
í SAFNAÐARHEIMILI
HÁTEIGSKIRKJU
20. OG 21. Þ.M.
Ýmislegt áhugavert til skoðunar
annað en frímerki.
FÉLA.G frímerkjasafnara var
stofnað 11. júní 1957 og varð því
fertugt á þessu sumri. Olli stofnun
FF þáttaskilum með íslenzkum
söfnurum. Kom þegar í ljós, að
þörf fyrir þess konar félag var
brýn. Helztu frímerkjasafnarar hér
á landi um miðja öldina beittu sér
fyrir stofnuninni, og
þeir voru bæði dug-
legir og ráðagóðir.
Þetta sást m.a. á því,
að fyrsta frímerkja-
sýning hérlendis, FRÍ-
MEX 58, var haldin
strax á öðru ári fé-
lagsins í Bogasal
Þjóðminjasafnsins.
Var ljóst á opnunar-
degi hennar, að bæði
frímerkjasafnarar og
aðrir áhugamenn um frímerki voru
fleiri en ætla hefði mátt. Félagat-
ala FF óx líka mjög við þessa sýn-
ingu, og svo hélzt um allmörg ár.
Síðan fóru ýmis önnur safnarafé-
lög að skjóta upp kollinum hér á
höfuðborgarsvæðinu. Var slíkt
áreiðanlega ekki að öliu leyti
heppilegt fyrir samtakamáttinn.
Er nú svo komið á 40 ára afmæli
FF, að mér virðist starfsemi frí-
merkjasafnara hafa dofnað nokk-
uð frá því, sem áður var. En hvað
veldur?
Því er ekki auðsvarað, enda virð-
ist mér eftir því, sem lesa má í
frímerkjablöðum á öðrum Norður-
löndum, að „kollegar" okkar þar
eigi við enn meiri erfiðleika að
glíma en við í þessum efnum.
Menn eru annars yfirleitt sammála
um það, að alls kyns dægrastytt-
ing, sem upp hefur komið á liðnum
árum og áratugum og var t. d.
ekki eða tæplega til, þegar FF leit
dagsins ljós, og þá ekki sízt tölvur
og margs konar leiktæki önnur,
hafi dregið úr áhuga unglinga á
frímerkjum, en það eru einmitt
þeir, sem eiga að taka við af hinum
eldri. Þá hefur það orðið erfitt fyr-
ir íslenzka frímerkjasöfnun, hversu
margir góðir frumheijar innan
samtaka okkar og miklir safnarar
hafa fallið frá á síðustu árum og
nýliðun orðið lítil
_Nú er afmælissýning FF, FRÍM-
SÝN 97, í uppsiglingu, og standa
vonir til, að hún veki verulega at-
hygli meðal félagsmanna og þá
ekki síður meðal þeirra mörgu
safnara, sem vitað er að enn
standa utan samtaka okkar. Þeir
ættu einmitt að sjá sér hag í því
að ganga í þau og styrkja um leið
og feta þannig í fótspor þeirra
mörgu, sem flykktust í FF eftir
FRÍMEX 58.
FRÍMSÝN 97 hefst laugardag-
inn 20. þ.m. í Safnaðarheimili
Háteigskirkju og stendur aðeins í
tvo daga. Fyrri daginn verður sýn-
ingin opin frá kl. 9 til 22, en seinni
daginn frá kl. 9 til 18. Tveir dagar
eru að mínum dómi of stuttur tími,
ekki sízt fyrir afmælissýningu. En
þvi verður ekki breytt, og það
skyldu þeir athuga vel, sem ætla
að skoða sýninguna.
í kynningardeild verður saga
FF rakin í fímm römmum og jafn-
framt sýnd öll þau fyrstadagsums-
lög, sem félagið gaf út um langt
skeið. Þar sýnir einnig ágætur fé-
lagi, Don Brandt, færeyska brú-
arstimpla.
I samkeppnisdeild verða söfn
fjögurra félaga í FF. Þar verður
safn danskra tvílitra frímerkja,
sern undirritaður á, en það hlaut
stórt gyllt silfur á alheimssýning-
unni PACIFIC 97 í San Francisco
á liðnu vori. Þá sýnir Hjalti Jó-
hannesson safn sitt af elztu ís-
lenzku póststimplunum, sem hann
fékk fyrir stórt silfur á NORWEX
97 fyrr á þessu ári. Jón Egilsson
sýnir svo átthagasafn sitt, Hafnar-
ijörður. Þessi þijú söfn eru hvert
um sig í fimm römmum. Loks á
Þórhallur Ottesen í sjö römmum
safn af sérstimplum á íslandi frá
1930 til 1997. Ónnur söfn í þess-
ari deild eru eign eriendra safnara,
einkum þýzkra og hollenzkra. Ekki
kannast ég við þau, en eftir heitum
þeirra að dæma virðast þau mörg
hver áhugaverð.
í unglingadeild er tvö þekkt
söfn FF-félaga, Gísla Geirs Harð-
arsonar, Tónskáld tveggja tíma-
bila, og Guðna Friðriks Arnason-
ar, Kristófer Kólumbus og fundur
Ameríku. Að auki eru í þessari
deild söfn systkina, þeirra Bryndís-
ar Vigfúsdóttur og Baldvins Vig-
fússonar, Afmælisdagurinn minn
og Bílar. Þau söfn voru einnig á
FRÍMSÝN 95, en vafalítið hafa
þau bætt einhveiju við söfn sín
síðan þá.
Svo sem nú er orðin venja, verð-
ur hér ýmislegt annað til sýnis en
frímerki. Er enginn vafí á því, að
það efni getur létt lund þeirra
gesta, sem sumir hveijir verða
kannski orðnir þreyttir á litlu burð-
argjaldsmiðunum.
Halldór Ólafsson, fyrrum úti-
bússtjóri Búnaðarbankans, verður
með sjálfblekúngasafn sitt, sem
er vel þekkt. Vafalítið munu menn
staldra þar við og virða fyrir sér
marga fágæta sjálfblekunga nú á
kúlupennaöld. Þá er ég sannfærður
um, að safn Þorvalds Guðmunds-
sonar, hins mikla athafnamanns
og svínabónda, af ýmsum styttum,
tengdum svínum, muni einnig
vekja athygli sýningargesta. Þá
verður Þorsteinn Pálsson enn á
ferðinni með hið þekkta barm-
merkjasafn sitt, sem margur hefur
haft ánægju af að skoða. Loks
sýnir Sigurbjörg Sigvaldadóttir
safn sitt um Díönu prinsessu af
Wales.
Mörg söfn á sýningunni eiga að
gleðja ungu kynsióðina. Má þar
telja söfnin Mikki mús, Plútó og
vinir hans, Disney-frímerki og fal-
leg dýrafrímerki.
Sýningarnefndin, sem þeir skipa
Garðar Schiöth formaður, Sveinn
Ingi Sveinsson og Steinar Örn
Friðþórsson, segir, að sýningin eigi
að höfða til allra aldurshópa. Sú
er og von hennar, að allir finni þar
eitthvað við sitt hæfí, jafnt byij-
endur í frímerkjasöfnun sem aðrir.
Þá sakar ekki að geta þess, að
aðgangur er ókeypis á FRÍMSÝN
97, svo sem verið hefur á sýning-
um undanfarinna ára.
í tilefni sýningarinnar og fer-
tugsafmælis FF verður gefin út
smáörk í takmörkuðu upplagi.
Arkirnar eru númeraðar, en mynd-
efnið er 2ja krónu frímerkið í Al-
þingishátíðarseríunni 1930.
Dómnefnd FRÍMSÝN 97 skipa
þeir Hálfdan Helgason, Ólafur N.
Elíasson og Sigurður R. Pétursson.
Pósthús verður opið á sýningar-
tímanum. Þar geta menn fengið
frímerki stimpluð með sérstimpli,
sem minnir á 40 ára afmæli Fé-
lags frímerkjasafnara.
Þess skal að lokum getið, að
stjórn FF býður félagsmönnum og
öðrum velvildarmönnum félagsins
í afmæliskaffi í Safnaðarheimil
Háteigskirkju föstudaginn 19.
sept. kl. 20.30.
Jón Aðalsteinn Jónsson
SÉRSTIMPILL FRÍM 97.
BRIPS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
SVEIT Sveins Aðalgeirsson-
ar frá Húsavík varð bikar-
meistari BSÍ um síðustu helgi
eftir sannfærandi sigur á
sveit Samvinnuferða/Land-
sýnar í úrslitaleik. Áður hafði
Sveinn lagt að velli lið
Dags/Tímans í undanúrslit-
um. í sigurliðinu spiluðu,
ásamt Sveini, þeir Guðmund-
ur Halldórsson, Hlynur Ang-
antýsson og Hermann Frið-
riksson. Úrslitaleikurinn var
64 spil, eða fjórar 16 spila
lotur. Sveinn tók strax for-
ystu og hafði yfir 94-52 eftir
tvær lotur. Samvinnuferðir
náðu 10 stigum til baka í
þriðju lotunni, svo munurinn
var 32 stig fyrir síðustu 16
spilin. í upphafi fjórðu lotu
náðu liðsmenn Samvinnu-
ferða að minnka forskotið í
7 stig, en lengra komust þeir
ekki, og lokatölur urðu 154
gegn 115. Hér er spil úr síð-
ustu lotunni:
Spil 57. Norður gefur; AV
á hættu.
Norður
♦ G863
¥ 1087
♦ ÁDG53
♦ D Austur
♦ 754
II *G32
111111 ♦ 9742
Suður + 1085
♦ 109
¥ ÁD9654
♦ 6
♦ K643
í opna salnum voru Her-
mann og Hlynur í AV gegn
Þorláki Jónssyni og Guðm.
P. Amarsyni í NS. Sagnir
gengu:
Vestur Norður Austur Suður
Hlynur Þorl. Hermann Guðm.
Pass Pass 1 hjarta
Dobl 2 tíglar* Pass 4 hjörtu
Dobl Redobl Allir pass
* Góð hækkun í tvö hjörtu.
Sagnir geta varla talist
mjög agaðar, en fjögur hjörtu
er þó ekki vonlaust spil. Hlyn-
ur tók tvo slagi á ÁK í spaða
og laufás, en skipti síðan yfir
í tígul. Vinningsleiðin er nokk-
uð augljós á opnu borði: Tígul-
drottningu svínað, hjarta spil-
að á ás (!), lauf trompað, laufi
hent í tígulás og loks svínað
fyrir hjartagosa. Einfalt! En
greinarhöfundur sá ekki allar
hendur og ákvað að spila aust-
ur upp á KGx í hjarta: Tígli
svínað og hjarta djúpsvínað.
Einn niður og 200 til AV.
í lokaða salnum lentu AV
í ógöngum eftir Multi-opnun
suðurs. Þar voru Sveinn og
Guðmundur í NS gegn Helga
Jóhannssyni og Karli Sigur-
hjartarsyni:
Vestur Norður Austur Suður
Karl Sveinn Helgi Guta.
- Pass Pass 2 tlglar*
Dobl 2 hjörtu Pass Pass
Dobl Pass 2 spaðar Pass
4 spaðar Allir pass
* Veikir tveir í hálit.
Fimm niður, 500.í NS, og
12 IMPar til Sveins.
Vestur
♦ ÁKD2
¥ K
♦ K108
♦ ÁG972
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Góð þjónusta hjá
Tollpóststofunni
ÓLAFUR hafði samband
við Velvakanda og var
hann ekki sammála Vík-
veija sem skrifar um þjón-
ustuna hjá Tollpóststof-
unni. Hann segist vera
undrandi að heyra kvart-
anir Víkveija því hann
segist þurfa að sækja
þjónustu til þeirra allt að
því daglega þar sem hann
hafi verið með innflutning
í áratugi og honum mæti
ekkert annað en gott við-
mót og liðlegheit starfs-
fólksins. Hann segir að
fólk geri sér kannski ekki
grein fyrir í hveiju starf
þeirra sem þar vinna fel-
ist. Hann segir að viðmót
starfsfólks þar hafi batnað
mikið undanfarin ár og sé
mikill munur á því eða
hvemig var fyrir nokkrum
árum.
Spamaðurinn
hneyksli
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi hún
koma þeirri skoðun sinni
á framfæri að hún væri
hneyksluð á orðum heil-
brigðisráðherra þar sem
hún talaði í sjónvarpi um
spamað og með viðtalinu
var sýnd mynd af sjúkl-
ingum sem lágu á göngum
spítalanna því búið væri
að loka heilu deildunum.
Tapað/fundið
Svartur pakpoki
týndist
SVARTUR bakpoki með
brúnum botni, sem á
stendur east-pac, týndist
við Menntaskólann í
Reykjavík. í honum voru
bækur ásamt gleraugum
í brúnu hulstri. Þeir sem
hafa orðið varir við pok-
ann vinsamlega hringið í
síma 562 7007.
Dýrahald
Læða óskar
eftir heimili
FALLEG, svört og hvít 6
mánaða læða, óskar eftir
góðu heimili. Uppl. í síma
567 0824.
Bubba er týnd
SVÖRT og hvít 5 mánaða
læða með rauðköflótta ól,
týndist frá heimili sínu að
Stórholti 30, laugardaginn
13. september. Hún er
ómerkt og ratar eflaust
ekki heim. Þeir sem hafa
orðið varir við ferðir henn-
ar eru vinsamlegast beðn-
ir að hafa samband í síma
561 2406 eða í Kattholt í
síma 567 2909. Hún gæti
verið læst inni í kjallara
eða bílskúr því hún er
mjög forvitin.
Læða óskar
eftir heimili
SVÖRT læða, 4ra ára
gömul, óskar eftir góðu
heimili. Uppl. í síma
553 1716.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Staðan kom upp í einvígi
yngsta stórmeistara heims,
Frakkans Etienne Bacrot
(2.545), 14 ára, og Viktor
Kortsnoj (2.610), 66 ára.
Þrátt fyrir hálfrar aldar ald-
ursmun á keppendum mátti
ekki á milli sjá hvor tefldi
frísklegar. Kortsnoj hafði
t.d. hvítt og átti leik í þess-
ari stöðu í ijórðu skákinni:
13. Hxd5! (En alls ekki 13.
Rxd5? - Da5+ 14. Hd2 -
- 0-0 16. Bxd6 -
Dxd6 17. Dxc6 -
Dxc6 18. Re7+ -
Kh8 19. Rxc6 -
exf3 20. Kf2.
Hvítur hefur unn-
ið tvo menn fyrir
hrók og í endatafl-
inu naut reynsla
Kortsnojs sín vel
og hann knúði
fram sigur í 46
leikjum.
Kortsnoj sigr-
aði 4-2 í einvíg-
HVÍTUR leikur og vinnur >nu. Hann vann
fyrstu, fjórðu og
Bb4! og möguleikarnir eru sjöttu skákirnar, Bacrot
svarts megin) 13. - Bxd5 vann þá þriðju, en tveimur
14. Rxd5 - Bd6 15. Dxb7! lyktaði með jafntefli.
SIGGA fínnst heimskulegt að eyða miklum peningum í tómstundir og skemmtanir.
Yíkveiji skrifar...
VINUR Víkveija átti leið um
Blönduós fyrir skömmu og
gerði þar stuttan stans við bensín-
stöð Olís. Bílstjóri Norðurleiðarrút-
unnar á leið frá Akureyri til
Reykjavíkur var að afferma bílinn
og tína fram sendingar og meðal
þess sem tínt var til var póstpoki,
sem hann lagði frá sér utan við
bensínafgreiðsluna. Á meðan bíl-
stjórinn brá sér inn sást til konu á
ferð með póstpoka og böggla og
af klæðaburði hennar mátti ráða
að þar var starfsmaður Póstsins á
ferð. Vatt hún sér að rútunni,
skellti frá sér bögglunum og póst-
pokanum og hvarf á braut án þess
að gera vart við sig með pokann
sem bílstjórinn hafði skilið eftir.
Heldur fannst vininum þetta vera
undarleg afgreiðsla. Engin orða-
skipti virtust eiga sér stað hvað
þá að kvittað væri fyrir móttöku
og afhendingu á pósti. Bílstjórinn
virtist enga ábyrgð bera á póstinum
né heldur starfsmaður póstsins sem
skildi eftir sendingu við bílinn. í
raun hefði hver sem er getað hirt
póstpokana.
xxx
FYRIR nokkru hitti Víkvetji ís-
lenska konu, sem nú er búsett
í Englandi. Þar kom í samtalinu,
að konan kvaðst fyrir nokkru hafa
fengið gest frá Ástralíu og sem þær
óku fram hjá East Greenstead lest-
arstöðinni hrópaði sú ástralska: Er
East Greenstead þá til!
Siðan sagði hún gestgjafa sínum,
að í Ástralíu væri til orðtækið
„Farðu í East Greenstead", sem
menn nota, þegar þeir óska ein-
hveijum þangað sem verst er vist-
in. Ekkert hafði hún hugleitt, hvem-
ig orðtækið væri til komið, hvað þá
að henni hefði flogið í hug að hún
ætti eftir að lenda á þessum stað
og það í Englandi og hreint ekki
þeim versta sem hugsast getur.
Forvitnin rak svo vinkonurnar
til að kanna söguna. Kom þá í ljós,
að til forna var East Greenstead
aftökustaður þeirra, sem ekki voru
sendir til Ástralíu til að taka út
refsingu þar. East Greenstead var
því enn verri staður en Ástralía og
þannig varð máltækið til og lifir
enn góðu lífi, þótt fæstir viti ef til
vill, hvernig það er til orðið!