Morgunblaðið - 17.09.1997, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Grétar Óskarsson flugmálastjóri Namibíu um flugöryggi í Mið-Afríku
Flugmenn stjóma umferð-
inní sjálfir í háloftunum
HERFLUGVELAR SKELLA SAMAN
Brak hefur fundist um 120 km undan strönd
Namibíu úr bandarískum og þýskum her-
flutningaflugvélum sem skullu þar saman
á flugi í 35.000 feta hæð á laugardag.
í gær hafði aðeins fundist eitt lík
þeirra 33 sem er saknað.
. ( ^ 4. 1,500 km
sJ~)i ÍÞÝSKALAND
Wi
„Dauða svæðið"
frá Túnls til Namibíu \
(engin flugumferðarstjórn)
ANGÓLA
££ \Cape Fria
Brak finnstV
ámánudag \ Wlndhoek
' NAMIBlA
V.
ATLANTSHAF \ '---
Hófðaborg ©
SUÐUR
AFRlKA
ASCENSION-
EYJA
Höfðaborg
SUÐUR
AFRÍKA
KASTLJÓSI hefur verið beint að
ástandi flugöryggismála í Mið-Afr-
íku í framhaldi af flugslysinu undan
ströndum Namibíu sl. laugardag.
Grétar Óskarsson, flugmálastjóri
Namibíu, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að frá Túnis
og til Namibíu væri engin flugstjóm
og flugmenn reyndu að stjóma
umferðinni sjálfir er þeir flygju um
háloftin. Volker Riihe, varnarmála-
ráðherra Þýskalands, vísaði á bug
ásökunum þýskra fjölmiðla um að
flutningaflugvél þýska hersins sem
lenti þar í árekstri við bandaríska
herflutningaflugvél, hefði verið illa
tækjum búin. Hann staðfesti að
vísu að í hana hefði vantað árekstr-
arvara en fullyrti að búnað af því
tagi væri ekki að fínna í einni ein-
ustu hervél í heiminum. í gær
fannst loks brak úr bandarísku her-
flutningaflugvélinni en fýrsta lík
þeirra 33 sem fórust með flugvélun-
um fannst í gærmorgun og er talið
vera af Þjóðveija. Vom níu manns
í C-141 flugvélinni en 24 í þýsku
vélinni, sem var af gerðinni Tupolev
Tu-154.
„Við höfum stjómað leitar- og
björgunarstörfum og er þeim haldið
áfram á fullu. í því sambandi eru
hingað komnir um eitt hundrað
Bandaríkjamenn, 50-60 Þjóvðeijar,
um 30 þýskar, bandarískar, suður-
afrískar og franskar flugvélar sem
taka þátt í leitarstörfum með okk-
ur,“ sagði Grétar.
Grétar sagði að þýska vélin hefði
verið á leið frá Þýskalandi til Höfða-
borgar með millilendingu í Wind-
hoek. Hefði hún flogið niður með
strönd Angóla, niður 10. gráðu
austur svo sem algengt væri, og
þegar hún hefði komið inn í nami-
bískt svæði hefði hún sveigt i átt
til Windhoek. Á sama stað og beint
á móti henni hefði verið bandarísk
herflutningaflugvél af gerðinni C-
141 að fara frá Namibíu til Ascensi-
on. Aðspurður um hvort rekja
mætti slysið til örðugleika í flugfjar-
skiptum á þessum slóðum svaraði
Grétar:
„Við vissum ekkert um þýsku
vélina, reyndar ekki fyrr en daginn
eftir þegar farið var að leita að
henni. Hún gerir sína flugáætlun
uppi í Niamey í Níger, þar sem hún
millilenti, en þar situr áætlunin föst;
skilar sér aldrei til okkar. Og jafn-
vel þótt flugstjórinn hafi viljað
koma flugáætluninni hingað niður
eftir þá spyr maður hvernig í ósköp-
unum hann hafí átt að fara að því.
Það eru engar símalínur sem virka
hér á milli, ófriður víða í Mið-Afr-
íkulöndunum gerir það að símalínur
og fjarskiptabúnaður er sprengdur
í loft upp jafnóðum."
- Hvernig má það vera að mis-
brestur verði á því að koma flug-
áætlun til áfangastaðar? Er við
flugmálayfirvöld á viðkomandi stað
að sakast eða flugstjórann?
„Þetta er nú algengt héma, nán-
ast regla. Þegar flogið er frá Evr-
ópu til Suður-Afríku þá eru menn
á eigin ábyrgð og einir á báti þegar
flogið er yfir svörtustu Afríku.
Ástandið lagast ekki fyrr en komið
er hingað suðureftir til Namibíu,
Botswana, Zimbabwe og Suður-
Afríku. Þar fyrir norðan og allt til
Túnis er eins gott að Guð hjálpi
mönnum."
Engin flugumferðarþjónusta
frá Túnis til Namibíu
- Er það ekki til marks um að
flugöryggi sé ábótavant á þessum
slóðum?
„Því er ekki bara ábótavant, því
það er engin flugstjórn yfír allri
Afríku, frá Túnis þar til komið er
niður til Namibíu. Það er engin flug-
stjórn fyrir norðan okkur. Flugvél-
ar, hvort sem þær eru frá British
Airways, Lufthansa, Namibian
Airways eða South African Air-
ways, eru einar á báti á þessu
svæði, frá því þær kveðja Túnis og
þar til þær koma suður fýrir An-
góla I okkar svæði en þær em 4-6
stundir að fljúga þarna milli."
- Fljúga menn þá bara sjónflug
á þessu svæði og eru á stöðugu
útkikki?
„Nei, nei. Þeir hafa sínar eigin
aðferðir, aðstoðarflugmaðurinn er
allan tímann í talstöðinni á þessu
svæði talandi við hinar flugvélarn-
ar, spyijandi um flughæðir, hraða,
stefnur og staðsetningu. Flug-
mennirnir stjórna sér því alveg
sjálfir."
Sást á njósnahnetti
- Hefði þýski flugstjórinn ekki
getað látið vita af sér fyrr?
„Nei, við náum ekki talstöðvar-
sambandi við flugvélar fyrr en þær
eiga eftir um klukkustundar flug
hingað og á því stigi sjáum við þær
ekki enn í ratsjám."
- Það hljómar ótrúlega að á öllu
þessu víðfeðma svæði þar sem flug-
umferð er margfalt minni en kring-
um þéttbýli í Bandaríkjunum eða
Evrópu að árekstur af þessu tagi
skuli geta átt sér stað?
„Möguleikarnir eru einn á móti
milljónum. Jafnvel þótt leiðir
tveggja flugvéla skerist í sömu flug-
hæð eru ferlarnir venjulega ekki
það nákvæmir að munað getur
nokkrum tugum metra til beggja
hliða og 100-200 fetum á hæðina
þannig að þær mætast í stað þess
að skella saman. Líkurnar á árekstri
em svo litlar því atvikið á sér stað
í fjórvíðu rúmi þar sem orsakaþætt-
irnir fjórir eru hæð, lengd, breidd
og tími. Tíminn er fjórða víddin og
muni ekki nema 5-10 sekúndum
þá mætast flugvélarnar en rekast
ekki saman. Þarna þurfa þessir fjór-
ir þættir einhverra hluta vegna að
smella saman og að það skuli eiga
sér stað á agnarlitlum bletti er al-
veg með ólíkindum. Flugvélarnar
voru báðar í 35 þúsund feta hæð.
Áreksturinn kom fram sem spreng-
ing á mynd frá bandarískum
njósnahnetti og bandarískir aðilar
létu okkur strax vita svo við vissum
hvar við áttum að Ieita,“ sagði Grét-
ar Óskarsson.
Fjármálaráðherrar ESB
Rætt um sam-
ræmingu skatta
Mondorf-les-Bains. Reuter.
FJÁRMÁLARÁÐHERRAR aðildar-
ríkja Evrópusambandsins áttu við-
ræður í Lúxemborg síðastliðinn
laugardag um viðkvæmt efni, þ.e.
samræmingu skattlagningar innan
sambandsins.
Framkvæmdastjóm ESB hefur
lagt fram drög að „siðareglum" um
skattamál, sem eiga að hindra að
aðildarríkin keppi hvert við annað
um fjárfestingu og skatttekjur.
Mario Monti, sem fer með skatta-
mál í framkvæmdastjórn ESB, seg-
ir að það geti spillt bæði fyrir innri
markaði sambandsins og áformum
um Efnahags- og myntbandalag
(EMU), nái aðildarríkin ekki sam-
komulagi um samræmingu skatt-
lagningar.
Ásakanir um
„skattaundirboð“
„Ef enginn árangur næst í þessu
máli getur það sáð fræi pólitískrar
misklíðar, sem mun spilla fyrir
samrunaþróuninni. Við sjáum nú
þegar merki um að allt geti farið í
háaloft,“ sagði Monti.
Þýzkaland hefur í sumar ásakað
nágrannaríkin Belgíu og Holland
um „skattaundirboð“ til þess að
laða að sér fjárfestingu erlendra
fyrirtækja.
Jean-Claude Juncker, forsætis-
ráðherra Lúxemborgar, sem situr
nú í forsæti ráðherraráðs ESB,
leggur áherzlu á að samkomulag
náist um skattamálin fyrir leiðtoga-
fund ESB í desember.
Norðurlöndin
greinir á um
ESB-stækkun
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Á ÁÐ hefja viðræður um aðild
að Evrópusambandinu, ESB, við
alla umsækjendur á sama tíma
eða aðeins við þá sem uppfylla
eða eru nálægt því að uppfylla
aðildarskilyrði? Um þetta eru
ESB-löndin ekki sammála og
norrænu aðildarlöndin þrjú
greinir einnig á um hvernig að
þessu skuli staðið, sérstaklega
þar sem í völdum hópi aðildarum-
sækjenda myndu leiðir Eystra-
saltslandanna skiljast. Danska og
sænska stjórnin eru sammála um
að allir eigi að fá að byrjajafnt
en fínnska stjórnin álítur að að-
eins eigi að hefja viðræður við
lönd, sem uppfylli skilyrðin.
Framkvæmdastjórn ESB lagði
til í sumar að viðræður yrðu hafn-
ar við fimm af þeim tíu löndum,
sem sótt hafa um aðild, auk Kýp-
ur, sem þegar hefur verið heitið
viðræðum. Löndin tíu eru Tékk-
land, Ungverjaland, Pólland, Sló-
venía, Eistland, Rúmenía, Lett-
land, Litháen, Búlgaría og Sló-
vakía og það eru fimm fyrstu
löndin, sem nefndin vill kalla til
viðræðna. Það er einkum aðskiln-
aður Eystrasaltslandanna, sem
fer fyrir brjóstið á sænsku og
dönsku stjóminni ogþær leggja
mikla áherslu á að löndin fái að
hefja viðræður saman.
Finnska stjórnin er aftur á
móti andvíg þessu þar sem það
gæti orðið til, að Eistland yrði
látið bíða. Betra sé að eitt kom-
ist að en ekkert. Óformlega hef-
ur Paavo Lipponen forsætisráð-
herra sagt dönsku og sænsku
stefnuna óraunsæja og henni
fylgi orðin ein. Undir þetta tekur
einnig Carl Bildt, formaður
sænska Hægriflokksins, og Uffe
Ellemann-Jensen, formaður
danska Venstre.
Atkvæða-
greiðslu
frestað
AÐ BEIÐNI Bandaríkja-
manna var í gær ákveðið að
fresta um sólarhring atkvæða-
greiðslu um tillögu að banni
um notkun jarðsprengna á
ráðstefnu er stendur í Ósló.
Fresturinn gefur Bandaríkja-
mönnum færi á að leggja fram
nýja tillögu, sem felur I sér
málamiðlun. Fulltrúar rúm-
lega 100 ríkja sitja ráðstefn-
una og var samþykkt að at-
kvæðagreiðslunni skyldi frest-
að til hádegis í dag að íslensk-
um tíma.
Lífvörður til
meðvitundar
LÍFVÖRÐURINN er komst
lífs af úr bílslysinu er varð
Díönu prinsessu, Dodi Fayed
og bílstjóra þeirra, Henri Paul,
að bana í París er nú með
meðvitund og fær um tjá-
skipti, að sögn fulltrúa fran-
skra sjúkrahússyfírvalda. Líf-
vörðurinn, Trevor Rees-Jones,
hefur verið í gjörgæslu á
sjúkrahúsi í París frá því slys-
ið varð, og hans vandlega
gætt. Hann hefur hingað til
verið of veikburða til að hægt
væri að yfírheyra hann um
slysið.
Tóbaksaug-
lýsingar verði
bannaðar
HEILBRIGÐISSTOFNUN
Sameinuðu þjóðanna (WHO)
kynnti í gær tillögu að herferð
gegn reykingum þar sem
stefnt er að því að tóbaksaug-
lýsingar verði bannaðar í Evr-
ópu árið 2000. Tillagan var
lögð fram á fundi svæðis-
nefndár WHO í Istanbúl í
Tyrklandi, og er þáttur í áætl-
un um að dragi úr reykingum
fullorðinna í Evrópu niður fyr-
ir 20 af hundraði fyrir 2000,
en hlutfallið nú er 36%
Mír nýtir
sólarljós á ný
ÞRIGGJA manna áhöfn rúss-
nesku geimstöðvarinnar Mír
tókst í gær að snúa stöðinni
mót sólu, eftir að tölvubilun
um helgina hafði komið í veg
fyrir að sólarljós nýttist til
raforkuöflunar í stöðinni. Leið-
angursstjóri í stjórnstöð Mír á
jörðu niðri sagði í gær að allar
rafhlöður stöðvarinnar væru
nú fullhlaðnar og beðið væri
upplýsinga um það, hvort stöð-
in virkaði að öllu leyti eðlilega.
Bucaram
snýr aftur
ABDALA Bucaram, fyrrum
forseti Ekvador, hyggst snúa
aftur til heimalands síns, þar
sem hann er eftirlýstur vegna
ákæru fyrir spillingu. Hyggst
Bucaram bjóða sig fram í
kosningum til þings er gera á
stjórnarskrárumbætur í land-
inu, að því er fulltrúi forset-
ans, sem flýði til Panama í
febrúar, eftir að þing Ekvador
hafði sett hann af, og lýst
hann „andlega óhæfan“ um
að vera forseti.