Morgunblaðið - 17.09.1997, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997 9
FRÉTTIR
*
Akvörðun norrænu ráðherranefndarinnar
Styrkur til norræns húss í New York
SAMSTARFSRÁÐHERRAR Norð-
urlanda hafa ákveðið að Norræna
ráðherranefndin styrki stofnun
norrænnal- menningar- og upplýs-
ingamiðstöðvar í New York um
250.000 dollara, eða tæpar 18
milljónir króna. Ríkisstjórn íslands
samþykkti fyrr á árinu að styrkja
verkefnið um sömu upphæð, að því
tilskildu að hin norrænu ríkin legðu
einnig eitthvað til þess.
American Scandinavian Found-
ation í Bandaríkjunum hefur þegar
fest kaup á húsi á Manhattan, sem
breyta á í norræna menningar- og
upplýsingamiðstöð. Heildarkostn-
aður vegna kaupa á húsinu, endur-
bóta og framlags í stofnsjóð er
talinn verða rúmlega milljarður
króna. Meirihluti fjárins verður
reiddur fram af stofnuninni sjálfri
og af söfnunarfé, m.a. frá norræn-
um fyrirtækjum, en ASF hefur
einnig farið fram á styrki frá ríkis-
stjórnum norrænu ríkjanna.
Styrkur íslands skilyrtur
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra og samstarfsráðherra
Norðurlanda hefur mjög beitt sér
fyrir því að norrænu ríkin styrki
þetta mál. Í janúar síðastliðnum
ákvað ríkisstjórn íslands að greiða
250.000 dollara til byggingarinnar
á fjórum til fímm árum, að því til-
skildu að hin ríkin tækju einnig
þátt í kostnaðinum. Nú hefur ráð-
herranefndin samþykkt samnor-
rænan styrk, auk þess sem flest
ríkin hafa ákveðið að leggja fé til
byggingarinnar einhliða, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins. Skilyrði fyrir styrkveitingu ís-
lands ættu því að vera uppfyllt.
Norræna húsið í New York verð-
ur á horni Park Avenue og 38.
strætis. Sendinefnd Austur-Þýzka-
lands hjá Sameinuðu þjóðunum var
þar áður til húsa.
Glæsilegar haustvorur
Ný sending
Mikið úrvai
af peysum
Verð frá
kr. 3.900
/'ssa t-í&kuh
vervisgötu 52, sími 562 511(
$5
cPovce'
Fundur verður í Verði - Fulltrúaráði
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í Súlnasal
Hótels Sögu í kvöld kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Tillaga stiórnar Varðar - Fulltrúaráðsins
um að fram skuli fara prófkjör vegna
framboðs til borgarstjórnarkosninga
næsta vor.
2. Ræða: Formaður Sjálfstæðis-
flokksins, Davíð Oadsson,
forsætisráðFierra.
Vinsamlega athugið að fundurinn er eingöngu
opinn félögum í Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík.
Stjórnin.
V
Varðarferð — Þingvellir
Vörður — FulltrúaráS sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík efnir til
haustferðar til Þingvalla laugardaginn 20. september næstkom-
andi. Umsjón með ferðinni hafa sálfstæðismenn í Nes- og
Melahverfi.
Lagt verður af stað kl. 1 3.30 frá Valhöll, Háaleit-
isbraut 1. Við komuna til Þingvalla tekur leiðsögu-
maður á móti hópnum og leiðir um Þingvalla-
svæðið. Að þvi loknu verður öllum boðið upp á
kaffiveitingar í Valhöll þar sem Ólafur G. Einars-
son, forseti Alþingis flytur ávarp.
Að loknum kaffiveitingum, fjöldasöng og óvæntum uppákomum
verður haldið til Reykjavíkur og stefnt að því að koma til baka
um sexleytið.
Ferðin er ókeypis og þeir sem hafa hug á að taka þátt, eru vin-
samlega beðnir að skrá sig á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í síma
568 2900 ekki síðar en á hádegi föstudagsins 19. september.
Allir sjálfstseðismenn eru hjartanlega velkomnir.
Stjórnin.
VERKJA
STILLANDI
O G FYRIRBYGGJANDI
Kynning verður á hitahlífum og M.Pact höggdeyfandi innleggjum frá
iRehband.&inum fremsta framleiðenda á þessu sviði, í Lyfju Lágmúla 5
Fimmtudaginn 18. september klukkan 13 til 18
Er vandamálið verkir í:
úlnlið nára
olnboga læri
öxl hné
baki ökkla
Eða er vandamálið:
beinhimnubólga
hásinabólga
verkir undir hæl
tábergsig
REHBAND hlífarnar og M-PACT innleggin gætu verið lausnin
Bjúkraþjálfari frá Stoðtækjafyrirtækinu 8TOÐ hf. verður á staðnum og veitir ráðgjöf
IfcSTVÐ S Rehbancf [£b LYFJA
loJ Lágmúla5
SKIPTIKJÖR I BDÐI FYRIR SP 1987 II6A
f r
I UTBDÐI 24. SEPTEMBER
Spariskírteini ríkissjóðs í 2. fl. A 1987 - 6 ár, koma til innlausnar 10. október
næstkomandi. Þeir sem eiga þessi skírteini geta tryggt sér skiptikjör á nýjum
spariskírteinum í markflokkum í útboði 24. september.
Hafðu samband strax við starfsfólk
Lánasýslu ríkisins og fáðu nánari
upplýsingar. Þar getur þú einnig fengið
alla aðstoð við þátttöku í útboðinu.
Nýttu þér skiptikjörin og vertu áfram
■ örygginu.
'Íw^s*Í2===^=
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð, sími 562 6040
ÚTBOÐ RÍKISVERÐBRÉFA • SALA • INNLAUSN • ASKRIFT
aTQd noo