Morgunblaðið - 17.09.1997, Page 14

Morgunblaðið - 17.09.1997, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Pizza 67 með nýja símtækni a 5 ara afmælinu VEITINGAHÚSAKEÐJAN Pizza 67 tekur í dag í notkun svokallað alnúmer fyrst ís- lenskra fyrirtækja, sama dag og 5 ára afmæli keðjunnar verður fagnað. Alnúmer byggist á nýrri tækni hjá Pósti og síma og felur í sér að sama símanúmerið, 755-6767, verður hjá öllum veit- ingastöðum keðjunnar um allt land. Þegar hringt er í númerið fæst samband við þann stað sem er næst viðkomandi viðskipta- vini. Gísli Gíslaon, framkvæmda- stjóri Pizza 67 International, sagði í samtali við Morgunblaðið að Pizza 67 væri fyrsta pizzak- eðjan í heiminum til að nýta sér þessa nýju tækni. Verið væri að taka hana upp svæðisbundið í Bretlandi og Danmörku, en hvergi hefði sama símanúmerið verið notað með þessum hætti í einu landi. • Sérmerktur bjór Innan keðjunnar eru nú 16 staðir um allt land. Veitinga- staðirnir eru allir reknir sam- kvæmt sérstöku sérleyfi, en keðjan sjálf einbeitir sér að sölu sérleyfa og þjónustu við aðila í kerfinu. Sú þjónusta felst t.d. í leiðbeiningum, vöruþróun, sam- eiginlegum auglýsingamálum Steve Jobs skipaður til bráða- birgða Cupertino, Kaliforníu. Reuter. APPLE tölvufyrirtækið hefur skipað Steve Jobs aðalfram- kvæmdastjóra, tveimur árum eftir að Gil Amelio sagði af sér. Apple segir að formlega hafi verið gengið frá skipun Jobs á fyrsta reglulega fundi nýrrar stjórnar fyrirtækisins í síðustu viku og býst við að nýr aðalframkvæmdastjóri verði skipaður í árslok. Jobs, sem var einn stofn- enda Apple, var nýlega skip- aður í stjórn fyrirtækisins og hefur verið ráðunautur henn- ar í nokkra mánuði. Hlutabréf í Apple hækkuðu um 50 sent í 22 dollara. Amelio stjórnaði Apple í 17 mánuði, en tókst ekki að binda enda á skriffinnsku og var rekinn í júlí. Á fundinum í síðustu viku ræddi stjórnin við ráðningar- stjóra sinn, John Thompson frá Heidrick & Struggles, um leit að nýjum forstjóra. Þetta var fyrsti fundur stjórnarinn- ar síðan hún var skipuð í síð- asta mánuði. Öllum á óvart samþykkti Apple 150 milljóna dollara íjárfestingu frá keppinautin- um Microsoft og skipaði fjóra nýja menn í stjórn: forstjóra Intuit, Bill Campbell, forstjóra Oracle, Larry Ellison, fv. yf- irfjármálastjóra IBM, Jerome York, og Jobs. VIÐSKIPTI Stjórn Fjárfestingarbanka atvinnulífsins ræður forstjóra Bjami Ármannsson ráðinn til starfans Morgunblaðið/Kristinn BJARNI Armannsson nýráðinn forsljóri Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og Þorsteinn Ólafsson, stjórnarformaður bankans. Morgunblaðið/Kristinn og uppbyggingu ímyndar. Jafn- framt annast fyrirtækið eftirlit með veitingastöðunum. í tilefni afmælisins hefur Pizza 67 látið tappa bjór á sér- merktar flöskur með nafni og merki keðjunnar og segir Gísli að það sé sömuleiðis algjört eins- dæmi hér á landi. Þá sé ráðgert að gefa boli með hverri pöntun sem nær 1.500 krónum. Pizza 67 hefur sem kunnugt er haslað sér völl í fleiri löndum og nú eru starfræktir slíkir staðir í Danmörku, Noregi og Tékklandi. Verið er að ganga frá samningum við sérleyfis- hafa í Bretlandi og fleiri mál eru til athugunar. Hér á landi hafa frá upphafi verið seldar um 2,5 milljónir pizza, að sögn Gísla. STJÓRN Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins hf. réð í gær Bjarna Ármannsson til starfa sem forstjóra félagsins. Bjarni hefur störf hjá bankanum næsta mánudag en á næstu vikum og mánuðum mun hann vinna með stjórn félagsins að mótun markmiða þess og megin- stefnu gagnvart viðskiptavinum, starfsmönnum og eigendum en bankinn tekur til starfa 1. janúar næstkomandi. Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf. er stofnaður á grunni Fiskveiða- sjóðs Islands, Iðnlánasjóðs, Iðnþró- unarsjóðs og Útflutningslánasjóðs. Starfsfólki þeirra sjóða verður boðið starf hjá Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins eða Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins eigi síðar en 30. októ- ber nk. Bjarni Ármannsson er 29 ára gamall. Hann lauk prófi í tölvunar- fræði frá Háskóla íslands árið 1990 og MBA prófi frá IMD viðskiptahá- skólanum í Lausanne í Sviss árið 1996. Bjarni hóf störf hjá Kaup- þingi árið 1991, varð staðgengill forstjóra 1993 og gegndi síðan starfí forstjóra þess frá síðustu ára- mótum. Bjarni er kvæntur Helgu Sverrisdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau einn son. Forsljóri en ekki bankastjóri Bjarni segir að það verði keppi- kefli hans að byggja upp Fjárfest- ingarbankann sem þjónustufyrir- tæki sem er samkeppnishæft al- þjóðlega þannig að það nýtist ís- lensku atvinnulífi vel til þess að bæta samkeppnisstöðu þess enn frekar. Að sögn Bjarna hefur hann valið að vera titlaður forstjóri en ekki bankastjóri fyrst og fremst til þess að undirstrika það að Fjárfestingar- bankinn er þjónustufyrirtæki sem vinnur á jafnréttisgrundvelli við önnur fyrirtæki í landinu. Að sögn Þorsteins Ólafssonar, stjórnarformanns Fjárfestingar- banka atvinnulífsins, var ákveðið á fyrsta stjórnarfundi félagsins, sem haldinn var fyrir viku, að bjóða Bjarna forstjórastarfið en endanleg ákvörðun um ráðningu hans hafi ekki verið tekin fyrr en í gær. Bjarni segir að mikið starf sé framundan hjá honum og stjórn fé- lagsins á næstu vikum við að móta stefnu bankans og hvernig starfsemi hans verður háttað. „Nýja starfið leggst vel í mig og mjög spennandi að fá að taka þátt í uppbyggingu bankans og mikil áskorun sem felst í því að geta þjónað atvinnulífínu þannig að það verði samkeppnishæf- ara. Eg er því mjög ánægður með að hafa tekið starfinu en samt sem áður kveð ég minn gamla vinnustað með mikilli eftirsjá." Morgunblaðið/Ásdls PÁLL Skúlason háskólarektor og Halldór Blöndai samgönguráð- herra undirrituðu samning um stofnun Flugkerfis hf. * Islenska sjónvarpsfélagið á breiðbandinu Osnmið við Póst og síma ÍSLENSKA sjónvarpsfélagið hefur ekki gengið frá neinum samningum um dreifingu á sjónvarpsefni um breiðband Pósts og síma hf., að sögn Hrefnu Ingólfsdóttur, blaðafulltrúa fyrirtækisins. í Morgunblaðinu í gær var það haft eftir Hólmgeiri Baldurssyni, forstöðumanni íslenska sjónvarps- félagsins, að félagið hygðist ráðast í endurvarp á erlendu sjónvarpsefni um breiðband Pósts og síma og hefði þegar verið samið við um 15 erlend- ar gervihnattastöðvar; Hrefna segir að íslenska sjón- varpsfélagið hafí rætt við umsjónar- menn breiðbandsins um hugsanlegt samstarf, en ekki hafí verið gengið frá neinum samningum. Þær rásir sem P&S gæti boðið upp á væru takmarkaðar og enn væri alls óljóst hveijir fengju aðgang að þeim. Hún segir að viðræður standi yfír við fjöl- marga aðila, innlenda og erlenda, um hugsanlegt samstarf og stefnt sé að því að heij'a útsendingar í október. Flugmálastjórn og Háskóli Islands stofna hlutafélagið Flugkerfi hf. Stór verkefni framund- an á erlendum vettvangi STOFNFUNDUR hlutafélagsins F’lugkerfí hf., sem er í eigu Flug- málastjórnar og Háskóla íslands, var haldinn í gær og verður hlutverk félagsins að vinna að þróun, rann- sóknum og hvers konar þekkingar- öflun á sviði flugstjórnar- og flug- leiðsögiitækni. Með stofnun hlutafé- lagsins verður rennt sterkari stoðum undir þá starfsemi sem á rætur að rekja til samstarfs Flugmálastjórnar og Kerfísverkfræðistofu Verkfræði- stofnunar Háskólans sem staðið hef- ur í tæplega tvo áratugi. Samstarfið hefur einkum beinst að rannsóknar- og þróunarverkefn- um fyrir alþjóðaflugþjónustuna sem rekin er hér á landi samkvæmt sér- stökum samningi á vegum Alþjóða- flugmálastofnunarinnar. Meðal þeirra verkefna, sem þannig hafa verið unnin, eru þróun skeytadreifi- kerfis, ratsjárvinnslukerfis, flugum- ferðarhermis, sjálfvirks flugeftirlit- skerfís og ýmiss konar athuganir á sviði staðsetningartækni, en um er að ræða brautryðjendastarf á sviði sem til skamms tíma var aðeins tal- ið á færi erlendra stórfyrirtækja. Verkefni á vegum ESB Þorgeir Pálsson flugmálastjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að mörg verkefni væru fyrirliggjandi hjá Flugkerfum hf. Þar á meðal væru stór þróunarverkefni á sviði ratsjár- vinnslutækni, þróunarverkefni í Namibíu og mörg önnur verkefni á sviði flugstjómartækni. Meðal annars tekur félagið nú þegar þátt í þróunar- verkefni á vegum Evrópusambands- ins og í undirbúningi er samvinna við Dani um þróun á sjálfvirku til- kynningakerfi fyrir flugvélar. Þorgeir sagði að á þessari stundu væri of snemmt að segja til um hver velta þess yrði, en fyrstu áætlanir þar að lútandi lægju hins vegar fyrir. „Það verður fyrsta verkefni stjórnar að fara yfír þær áætlanir sem liggja fyrir og gera sér grein fyrir því hversu hratt félagið mun vaxa. En það eru mörg verkefni sem liggja fyrir bæði fyrir alþjóðaflug- þjónustuna og verkefni á erlendum vettvangi," sagði Þorgeir. Stjórnarformaður Flugkerfa hf. var kjörinn Einar Kristinn Jónsson rekstrarhagfræðingur, en auk hans skipa aðalstjórn þau Þorgeir Pálsson flugmálastjóri og Anna Soffía Hauksdóttir, prófessor og forstöðu- maður Kerfisverkfræðistofu Há- skóla íslands. Brynjar Örn Arnarson rafmagnsverkfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri félagsins. Nýr forstjóri hjá Kaup- þingi hf. SIGURÐUR Einarsson hefur verið ráðinn forstjóri Kaupþings hf. í stað Bjarna Ármannssonar. Stjórn fé- lagsins gekk frá ráðningunni í gær og tók Sigurður þegar í stað við stjórnartaumunum. Sigurður Ein- arsson hefur starfað hjá Kaupþingi síðan árið 1994 og ver- ið aðstoðarfor- stjóri þess frá árinu 1996. Á tímabilinu frá ágúst til desemb- erloka í fyrra var Sigurður starfandi forstjóri fyrir- tækisins. Sigurður er 37 ára að aldri. Hann er hagfræðingur frá Kaupmanna- hafnarháskóla og starfaði áður hjá íslandsbanka og Den Danske Bank a/s í Kaupmannahöfn. Hann er kvæntur Arndísi Björnsdóttur við- skiptafræðingi og eiga þau tvö börn. < I > t i > ! i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.