Morgunblaðið - 17.09.1997, Side 24

Morgunblaðið - 17.09.1997, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997 25 • + STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FLOKIN STAÐA í NOREGI URSLIT stórþingskosninganna í Noregi flækja enn pólitíska stöðu, sem var flókin fyrir. Undanfarin ár hefur annað stjórnarmynztur en minnihlutastjórn Verka- mannaflokksins varla verið fyrir hendi, vegna þess að borgaralegu flokkarnir hafa ekki getað komið sér saman. Urslit kosninganna breyta ekki þeirri grundvallarstað- reynd. Fylgi Verkamannaflokksins minnkaði þannig lítið, er nú 85,2% en var 36,9% í síðustu kosningum. I Ijósi þessa kann mönnum að þykja einkennilegt að Thorbjorn Jagland for- sætisráðherra hafi nú dæmt sjálfan sig og flokk sinn til að láta stjórnartaumana af hendi með því að gera að skilyrði fyrir áframhaldandi stjórnarsetu að Verkamannaflokkur- inn fengi a.m.k. sama kjörfylgi og 1994 upp á brot úr hundraðshluta. Ætlun Jaglands var án efa að hræða kjós- endur með þeim glundroða, sem myndi skapast ef Verka- mannaflokkurinn færi frá völdum. Þessi aðferð skilaði ár- angri miðað við stöðu flokks hans í skoðanakönnunum fyr- ir nokkrum vikum en ekki þó nægilegum til að halda valdastólunum - í bili. Aðrir kostir í stöðunni virðast nefnilega ekki margir. Verkamannaflokkurinn, Sósíalíski vinstriflokkurinn og Miðflokkurinn - vinstriblokkin í norskum stjórnmálum - halda meirihluta sínum á norska þinginu og gætu þannig komið í veg fyrir að ríkisstjórn Venstre, Kristilega þjóðar- flokksins og Hægriflokksins gæti rekið hægripólitík í norskum stjórnmálum með hlutleysi eða stuðningi Fram- faraflokksins. Miðflokkastjórn undir forystu Kjell Magne Bondevik, sem nú virðist sennilegt að reynt verði að mynda, mun líka reka sig á pólitíska veggi. Verkamannaflokkurinn og Hægriflokkurinn verða í aðstöðu til að koma í veg fyrir að miðflokkarnir geti uppfyllt kosningaloforð sín um að auka ríkisútgjöld til ýmissa málaflokka. Sömu flokkar, ásamt Framfaraflokknum, munu geta borið miðflokkastjórn of- urliði í atkvæðagreiðslu um aðild Noregs að Schengen- samkomulaginu, sem miðflokkarnir leggjast gegn. Sama á við um gasorkuverin, sem miðflokkarnir vilja ekki reisa, og um þá kröfu þeirra að hægt verði á olíuvinnslunni úti fyrir ströndum Noregs. Hægriflokkurinn hefur hótað að fella mþðílokkastjórn strax er hún fer fram á traust Stórþingsins. Ástæðan fyrir því er einkum stefna Miðflokksins, sem þrátt fyrir nafnið hefur í mörgum málum staðsett sig vinstra megin við Verkamannaflokkinn - Anne Enger Lahnstein flokksfor- maður hefur sagt að Verkamannaflokkurinn sé betur til þess fallinn en Hægriflokkurinn að framfylgja hægri- stefnu. Aukinheldur er Miðflokkurinn enn andvígur aðild Noregs að EES-samningnum. Miðflokkurinn er hins veg- ar í sárum eftir kosningaúrslitin og fari svo að Venstre og kristilegir fái að ráða ferðinni í nýrri stjórn kunna hægri- menn að endurskoða afstöðu sína. Líklegt verður hins vegar að teljast að borgaraleg stjórn spryngi fyrr en síðar vegna innri misklíðar eða vegna þess að hún hefði ekki þingmeirihluta fyrir stefnu- málum sínum. Þá gæti Verkamannaflokkurinn átt aftur- kvæmt í ráðuneytin. ÚTHAFSRANNSÓKNIR MEÐ TILKOMU nýs og öflugs rannsóknarskips, sem tekið verður í notkun um mitt ár 1999, gjörbreytist aðstaða Hafrannsóknastofnunar til rannsókna, m.a. á líf- ríki hafsvæðanna djúpt suður af landinu og á Reykjanes- hrygg. I ljósi þess verður nýrri verkefnisstjórn falið að undirbúa sérstakt rannsóknarátak, suðurdjúpsrannsóknir, með frekari nýtingu á úthafs- og djúpfisktegundum í huga. Þetta átak tengist nýrri rannsóknar- og starfsáætl- un Hafrannsóknastofnunar fyrir árin 1997 til 2001. Fagna ber ráðgerðum fjarmiðarannsóknum, enda flestir stærstu nytjastofnar við landið þegar fullnýttir. Vaxtarmöguleikar í íslenzkum sjávarútvegi tengjast ekki hvað sízt úthafs- og djúpfisktegundum, auk norsk-ís- lenzku vorgotssíldarinnar, en sá stofn var fyrr á tíð einn af hornsteinum þjóðarbúskapar okkar. Af þeim sökum er mikilvægt að afla sem víðtækastrar þekkingar á lífríki suðurdjúpsins - og allt suður á Hatton-Rockall svæðið. Aukin þekking á lífríki sjávar, bæði á heima- og fjar- miðum, er lykillinn að nýjum sóknartækifærum og góðu framtíðargengi íslenzks sjávarútvegs, veiða og vinnslu. Það er því fagnaðarefni þegar aðstaða Hafrannsóknastofnunar er bætt með nýju og öflugu rannsóknarskipi. Virkjanir norðan Vatna- jökuls eru mikil mann- virki og verði af öllum þeim áformum fer mikið land undir vatn. Jóhann- es Tómasson var á ferð um virkjanaslóðir og kynnti sér sjónarmið þeirra sem vilja sem minnst virkja. UMRÆÐA um virkjanir norðan Vatnajökuls hefur verið takmörkuð og lítil kynning farið fram opinber- lega á þeim áformum að mati for- ráðamanna Ferðafélags Fljótsdals- héraðs og Félags um vemdun há- lendis Austurlands. Stóðu þessir aðil- ar fyrir ferð um þessi svæði í liðinni viku og tóku þátt í henni um 20 manns víða af Austurlandi og nokkrir lengra að komnir. Þrjár stórvirkjanir kalla á þrjú miðlunarlón á þessum öræfum og við það fara all víðáttumiklar grónar lendur undir vatn. Tvennar skoðanir eru meðal náttúruverndarmanna og virkjunarmanna á því hvort þetta þýði óbætanleg landspjöll eða ekki. Tvö lónanna eru austan og vestan Snæfells, þ.e. Eyjabakkalón við upp- tök Jökulsár á Fljótsdal og Hálslón innan við Dimmugljúfur í Jökulsá á Brú. Það þriðja er talsvert norðar, Arnardalslón við Arnardalsfjöll og Öskjufjallgarð, skammt austan Kreppu og Jökulsár á Fjöllum, og myndi það lón taka við vatni úr þeim. Lengst er þó í að endanleg útfærsla á þessum síðasta kosti liggi fyrir enda eru hugmyndir um hann ennþá að taka breytingum. Skarphéðinn Þórisson líffræðingur var leiðsögumaður í ferðinni en hann er gjörkunnugur svæðinu og hefrn- m.a. rannsakað hreindýr og heiða- gæsir á virkjanaslóðum og verður hann hér látinn túlka sjónarmið nátt- úruvemdarmanna. Þá var Ágúst Guðmundsson jarðfræðingur með í för og tíndi í ferðamenn margháttað- an fróðleik úr heimi jarðvísinda. Ágúst hefur í tvo áratugi unnið að jarðfræðirannsóknum á Austurlandi, m.a. vegna fyrirhugaðra mannvirkja, og útskýrði hann frá nokkuð öðru sjónarmiði þýðingu virkjana og auk- innar orkuöflunar fyrir Áustfírðinga. MYNDARÖÐIN sýnir hvar stíflað verður við Káralinúka fyrir Hálslón. Það verður vatnsmesta lónið þótt yfírborð þess sé ekki stærst. Virkjanir eða náttúruvernd - ósættanleg sjónarmið? m&t HORFT yfir þar sem Eyjabakkalónið verður en leyfi er þegar fengið fyrir virkjun sem safna á vatni fyrir í Eyjabakkalón. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins MÁLIN rædd í ferð um fyrirhuguð virkjanasvæði. Fremst eru Skarphéðinn Þórisson (t.h.) og Þórhallur Þorsteinsson (t.v.). Beitarlönd minnka Sjónarmiðin eru í stuttu máli þessi þótt það sé nokkur einföldun að stilla annars vegar upp náttúru- verndarmönnum og þeim sem vilja virkja sem mest: Skarphéðinn: Öll lónin færa að ein- hverju leyti í kaf dvalarstaði heiða- gæsa og mikilvæg beitarlönd hrein- dýra og sauðfjár; gífurleg efnistaka yrði vegna bygginga stíflugarða og þegar göng yrðu grafín myndi upp- gröfturinn mynda heilu fjöllin, eða fellin eins og Austfirðingar nota mik- ið. Þá þarf að rannsaka nánar önnur áhrif, svo sem breytingu á framburði ánna en minni framburður getur þýtt Skammsýni að banna allar virkjanir landrof við ósa þeirra; áhrif árstíða- bundinna breytinga á vatnshæð lóna á lífríkið og við gagnrýnum að virkj- unaráform hafa ekld verið nægilega vel kynnt fyrir Austfirðingum eða öðrum. Bent er fremur á þann kost að virkja við Bessastaði og safna til þeirrar virkjunar vatni af Fljótsdals- heiði og myndi slík virkjun gefa um 10% af afli Fljótsdalsvirkjunar. Telja náttúruverndarmenn rýrara land fara undir vatn og spjöllin minni. Við þetta má bæta því sem Þórhall- ur Þorsteinsson, stjórnarmaður í Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs, benti á að verði þessi afréttarlönd látin í friði megi byggja upp mun meiri starfsemi ________ í ferðaþjónustu en nú er. Svæðið sé vinsælt til gönguferða og með tilkomu fleiri gönguskála á leiðinni frá Snæfelli að Lóni megi reikna með mun meiri um- ferð. Þórhallur kveðst einnig þeirrar skoðunar að stjórnvöld verði að breyta um atvinnustefnu, láta af leit sinni að stóriðjukostum en styrkja fremur þá starfsemi sem nýtir land- gæði á annan hátt. Benda má á að vegna þrýstings hafa komið fram hugmyndir hjá Landsvirkjun sem hlíft gætu Eyja- bökkunum þrátt fyrir virkjun Jök- ulsár í Fljótsdal. Ágúst: Of mikil skammsýni er að banna allar virlqanir enda eru um- hverfisáhrif virkjanakosta norðan Vatnajökuls, þ.e. þeirra sem búið er að leyfa, ekki skaðleg. Orkuþörf landsmanna, Austfirðinga einnig, fer vaxandi, m.a. með þeirri þróun að fiskvinnsla og bræðsla noti fremur rafmagn en olíu sem orkugjafa og víðar í atvinnulífnu sé þörf aukinnar orku. Kröfur um hagvöxt og aukin at- vinnutækifæri verða ekki uppfylltar án þess að vatnsaflið sé nýtt. Hug- myndir um að nýsköpun í t.d. ferða- þjónustu og hugbúnaðargeiranum geti skapað fjölda nýrra starfa eru ekki tryggilega í sjónmáli og íslensk menntun fékk mikinn skell í nýlegri samanburðarkönnun. Þætti mér betra ef íslensk orkuvinnsla gæti orð- ið til þess að mennta æskuna betur. Þrjú ný stöðuvötn Virkjanirnar norðan Vatnajökuls byggjast einkanlega á nýtingu vatns úr þremur jökulám sem safnað yrði í miðlunarlón. Þau eru nauðsynleg til að tryggja nægt vatnsrennsli árið um kring. Vatnið yrði leitt í 30-50 km löngum göngum fram að viðkomandi stöðvarhúsum þar sem ná má jafnvel rúmlega 500 m fallhæð. Sá virkjunar- kostur sem leyfi hefur fengist fyrir er Fljótsdalsvirkjun, 210 MW virkjun þar sem nýtt er vatn úr Jökulsá í Fljótsdal, það leitt í göngum úr lóni í stöðvarhús sem yrði neðanjarðar við mynni Norðurdals. Ætlunin er að safna vatni í Eyjabakkalón með því að reisa um 25 m háa og rúmlega fjög- urra km langa stíflu stutt norðaustur af Snæfelli, við Eyjabakkafoss, og næði lónið inn að Eyjabakkajökli. + Yrði það í 664 m hæð yfir sjó, 500 gígalítrar og 47 ferkílómetrar að flat- armáli eða liðlega helmingur af stærð Þingvallavatns. Hinar virkjanirnar væru annars vegar Kárahnúkavirkjun sem nýta myndi vatn úr Jökulsá á Brú þar sem 38 ferkílómetra miðlunarlón, Hálslón, yrði við Dimmugljúfur innan við Kárahnúka og hins vegar Brúarvirkj- un en þá yrði vatni úr Jökulsá á Fjöll- um og Kreppu safnað í Arnardalslón. Það lón yrði 77 ferkílómetrar eða tæplega tvöföld stærð Mývatns og 1.340 gígalítrar. í báðum tilvikum yrði vatn leitt í göngum niður í Fljótsdal, að stöðvarhúsum neðan- jarðar, við mynni Norðurdals eins og í tilviki Fljótsdalsvirkjunar. Komið var að þessum þremur fyr- irhuguðu lónstæðum. Ekið uppúr Fljótsdalnum á góðum vegi allt inn að Snæfelli í björtu veðri. Nokkur snjór var um allan afréttinn enda Fljóts- dalsheiði og svæðið Undir fellum sem kallað er inn með brúnum Fljótsdals í 500 til 600 m hæð yfir sjó. Við Eyja- bakkafoss virtu menn fyrir sér væntanlegt stíflustæði og sáu fyrir sér hversu langt lónið myndi teygja sig allt inn að Eyjabakka- jökli. Þaðan var haldið norður, framhjá Sauðafelli og Ytra- Kálfafelli niður í Hrafnkelsdal - þar sem Hrafnkela mun missa talsvert af vatnsmagni sínu ef seilst verður eftir vatni vestur iyrir Snæfell í Fljóts- dalsvirkjun - og áð hjá Aðalbóls- bændum. Svæðið friðlýst? Leyfi er fyrir þessari virkjun. Náttúruverndarráð samþykkti hana árið 1981, áður en lokið var t.d. rann- sóknum á hreindýrum sem þá stóðu Skammsýni að banna allar virkjanir yfir og vitað var að héldu sig talsvert á þessu svæði. Iðnaðarráðuneytið gaf út leyfi sitt tíu árum síðar, þremur árum áður en samþykkt voru lög um umhverfismat og er því Ijóst að þau stöðva ekki framkvæmdirnar. Nú krefjast ýmsir þess að Fljótsdals- virkjun fari skilyrðislaust í umhverf- ismat og vissulega væri þar einn möguleikinn að hætta við núverandi skipulag. Friðlýsing myndi ekki koma í veg fýrir virkjun Jökulsár á Brú nema því aðeins að sýnt þyki að " hún myndi rýra náttúrugildi svæðis- ins óhóflega eins og það er orðað í friðlýsingardrögum. Næsti áfangastaður voru Hafra- hvammar við Jökulsá á Brú. Þegar ekið hafði verið skamma stund upp frá Brú og í átt að Meljaðrafjalli mátti sjá Jökuldælinga í eftirleitum. Voru þeir fjórir og ferðuðust hver með sínu móti: Einn á fjórhjóli, annar á vélhjóli, þriðji á bíl og sá fjórði á tveimur jafnfljótum. Gljúfrin við Hafrahvamma eru hrikaleg og af brúninni mátti sjá hvar Jökulsá á Biú ólgar rúmlega eitt hundrað metra fyrir neðan. Vatns- magn hennar í gljúfrunum verður að- eins svipur hjá sjón ef Hálslónið safn- ar mestöllu vatninu fýrir virkjunar- göngin. Stíflugarðurinn fyrir lónið verður við efri enda gljúfranna við Fremri-Kárahnúk og nær það lang- leiðina inn að jökli. Yfirborð þess verður 38 ferkílómetrar en vatns- magnið er það mesta af þessum þremur lónum eða 1.500 gígalítrar enda lónið mjög djúpt. Þriðji aðalviðkomustaðurinn var við fýrirhugað Arnardalslón. Var þá ekið norður með Fagi'adal, sem bar mjög ákveðið nafn sitt með rentu^. þennan lognkyrra og sóiríka dag, og í Arnardal. Lónið þar verður í 548 m hæð og yrði 77 ferkílómetrar að flat- armáli, það langstærsta af þessum þremur lónum. Hins vegar er með öllu óvíst hvort verður af þessum áformum þar sem þessi virkjun er aftarlega í forgangs- röðinni. Vatnsmagnið í Jökulsá á Fjöllum er í dag um 207 rúmmetrar á sekúndu og mun minnka um helming. Þó má gera ráð fyrir að sumarrennsli verði kring- um 160 rúmmetrar á sekúndu þannig að vatnsmagnið í Dettifoss gæti minnkað um 40%. Hugsanlegt er einnig að á sumrin verði Jökulsáin látin ósnert en vatn fyrir lónið ein-v göngu tekið úr Kreppu. Ósættanleg sjónarmið? Ljóst er að ekki verður unnt að verða við ýtrustu kröfum náttúru- _________ verndarmanna um að hvergi verði virkjað á Aust- urlandi nema gjörbreytt stefna verði tekin upp varð- _ andi lífsmáta og atvinnumál allrar þjóðarinnar. Þessi at- krefjast að óbreyttu aukinnar riði orku - jafnvel þótt ekki komi til ný stóriðja. Varla verður heldur af því að allir virkjunarkostir norðan Vatna- jökuls muni nýttir - hversu hag- kvæmir og arðsamir sem þeir kunna að verða í krónum og aurum. Spuming er hvort hægt verður að finna flöt sem sættir þessi sjónarmið þannig að Austfirðingar sem aðrir geti um alla framtíð sinnt góðum og gagnlegum störfum sínum við birtu og yl. *■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.