Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rannsóknir íslenskra vísindamanna á 70 metra borkjarna úr Langjökli
Vöxtur knstalla mun
hraðari hér en í
Grænlandsjökli
í ÞRJÁTÍU stiga frosti inni í frysti
Mjólkursamsölunnar við Bitruháls
vinnur jöklafræðingurinn Þor-
steinn Þorsteinsson að rannsókn-
um á borkjama úr Langjökli. Með-
al þess sem hann rannsakar er lag-
skipting og kristalgerð jökulsins
og möguleikar á að þróa aðferð
til að telja árlög í þíðjöklum.
Þorsteinn fór í apríl sl. ásamt
félögum úr Jöklarannsóknafélagi
Islands upp á jökul með kjarna-
bor, sem hann hafði fengið að láni
þjá Alfred Wegener stofnuninni í
Bremerhaven í Þýskalandi þar
sem hann starfar. Hann er nú í
launalausu leyfi þaðan fram að
áramótum og nýtur styrks frá
Vísindasjóði til Langjökulsrann-
sóknanna.
Þorsteinn og félagar slógust í
för með leiðangri frá Raunvís-
indastofnun og Landsvirkjun og
nutu aðstoðar hans við að flytja
borinn og mannskapinn með snjó-
bíl. Þeir settu upp búðir á norður-
bungu Langjökuls og hófust
handa en hrepptu hið versta veður
og ýmsar bilanir urðu til þess að
tefja fyrir en þó tókst þeim á end-
anum að ná 70 metra kjarna úr
jöklinum.
Rannsóknir á Grænlandsjökli
beinast einkum að veðurfarssögu
en hér er m.a. verið að slægjast
eftir eldgosasögunni, að sögn Þor-
steins. Hann nefnir sem dæmi að
fyrir um 25 árum hafi verið borað-
ur ískjarni úr Bárðarbungu. Þar
hafi komið fram fjöldamörg ösku-
lög, sem hafi verið til mikillar
hjálpar við að rekja eldgosasögu
Vatnajökuls, sem sé einmitt mjög
mikilvægt núna. „í Langjökul-
skjarnanum voru eitt til tvö ösku-
lög, m.a. eitt á 60 metra dýpi sem
sterkar líkur benda til að sé úr
Heklugosinu 1970,“ segir hann.
Þá er Þorsteinn einnig að kanna
möguleikana á því að telja árlög
í jöklinum. Hann segir mjög auð-
velt að telja árlög Grænlandsjö-
kuls, það sé svipað og að telja
árhringi í tijám, en enn hafi ekki
verið þróaðar aðferðir til að telja
árlög í kjörnum úr þíðjöklum.
Kristalgerð jökla, sem er sér-
svið Þorsteins og hann hefur skrif-
að doktorsritgerð um, er að hans
sögn nánast ókannað land í ís-
lenskum jöklum. Hann hefur nú
að undanförnu verið að útbúa
þunnsneiðar úr kjarnanum og
skoða þannig kristalgerð jökuls-
ins. „Vöxtur kristalla er mun hrað-
ari hér en í Grænlandsjökli. Ég
get nefnt sem dæmi að á 50 metra
dýpi í ís sem er 25 ára gamall hér
á landi, er að finna jafnstóra krist-
alla og maður finnur fyrst niðri á
2.800 metra dýpi í Grænlandsjökli
sem er 100 þúsund ára gamall,"
segir hann.
Þorsteinn segist að lokum vilja
taka það sérstaklega fram hversu
greiðviknir starfsmenn Mjólkur-
samsölunnar hafi verið og veitt
honum margvíslega hjálp við að
skapa vinnuaðstöðu fyrir rann-
sóknirnar í frystinum.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
ÞORSTEINN skoðar lagskiptingu ískjarna úr Langjökli.
Tveir erlendir taugaskurðlæknar hér á landi
Þrjú börn skorin upp
vegna axlar klemmu
Vann rúmar 6,8
milljónir í Lottói
Fyrst
rug'laður -
svo glaður
„FYRST varð ég hálfruglaður
og svo gífurlega glaður. Ég
get ekki lýst því á annan hátt
hvernig var að fá fréttirnar,"
sagði Erlendur Gunnarsson frá
Vestmannaeyjum um hvemig
honum varð innanbijósts við
að fá fréttir af því að hann
hefði unnið 6,8 milljónir í lottói
á laugardagskvöldið.
Erlendur hefur unnið á út-
sýnisbátnum Víkingi í sumar.
Hann segir að hann og félagi
hans hafi ávallt keypt lottó-
miða í sama sölutuminum í
sumar. „Að kaupa í Goða-
hrauninu var hálfgert fram-
hjáhlaup og ég lét ekki athuga
miðann fyrr en ég fór með
hann og nokkra aðra þangað
í hádeginu á þriðjudag," sagði
Erlendur.
Erlendur sagði að konan
hans hefði ekki fremur en aðr-
ir í fjölskyldunni trúað því í
fyrstu að hann hefði dottið
svona rækilega í lukkupottinn.
Hann sagði að vissulega hefði
fjölskyldan þörf fyrir pening-
ana. „Peningarnir koma sér
mjög vel enda stöndum við í
húsakaupum, keyptum á ár-
inu,“ sagði hann og fram kom
að von væri á fjölgun í fjöl-
skyldunni. Nú væm börnin
tvö, 3ja og 5 ára, og von væri
á því þriðja á allra næstu dög-
um. Barn sagði Erlendur vera
margfaldan lottóvinning.
Erlendur sagðist ekki hafa
velt því fyrir sér hvort hann
myndi fagna vinningnum sér-
staklega enda væri í nægu að
snúast hjá sér.
TAUGASKURÐLÆKNARNIR
Thomas Carlstedt og Rolf Birch frá
Royal National Orthopædic sjúkra-
húsinu í London gera ásamt Rafni
Ragnarssyni yfirlækni á lýtalækn-
ingadeild Landspítalans aðgerðir á
þremur íslenskum börnum, vegna
svokallaðrar axlarklemmu, á Land-
spítalanum á föstudag. Carlstedt
hefur í tvívegis gert aðgerðir á ís-
lenskum börnum vegna axlar-
klemmu hér á landi.
Sigríður Logadóttir í stjóm for-
eldrafélags axlarklemmubarna segir
að Carlstedt hafí fyrst komið hingað
til að skera upp son hennar í febr-
úar árið 1994. „Eftir nokkurt stríð
samþykkti Tryggingastofnun að
greiða hluta kostnaðarins vegna
heimsóknarinnar. Ekki var hins veg-
ar viðlit að Tryggingastofnun
greiddi nema um 200.000 kr. af
kostnaðinum við aðra heimsókn
Carlstedt í fyrra. Á endanum gerði
því eldri borgari aðgerðirnar mögu-
legar með því að safna fyrir mismun-
GEÐLÆKNAFÉLAG íslands telur
áætlanir um stórfelldan niðurskurð
fjárveitinga til geðdeildanna í
Reykjavík vera fráleitar og fyrir
neðan allt velsæmi og muni hug-
myndimar leiða til aukins kostnað-
ar fyrir samfélagið og lakari þjón-
ustu.
Fundur sem haldinn var í Geð-
læknafélaginu í gærkvöldi skorar
á stjórnvöld að draga tillögur þess-
inum,“ sagði hún. Hún segist hafa
frétt af því að Tryggingastofnun
og Landspítali hafi gert heiðurs-
mannasamkomulag um að deila
með sér kostnaðinum núna. „Trygg-
ingastofnun hefur, með réttu, lagt
áherslu á að Ríkisspítalar eigi að
bera kostnað af aðgerðum inni á
spítalanum.
Á móti ber Tryggingastofnun að
greiða kostnað vegna ferða sjúkl-
inga til annarra landa ef ekki er
hægt að veita viðeigandi þjónustu
hér. Nú hafa stofnanirnar ákveðið
að taka höndum saman og deila
með sér kostnaðinum vegna heim-
sóknar tvímenninganna hingað,"
sagði hún.
Tvenns konar aðgerðir
Sigríður sagði að axlarklemman
myndaðist eftir að höfuð bamanna
kæmi í ijós í fæðingu. „Þegar togað
er í bamið slitna eða togna taugar
fram í hendina. Oftast lagast skað-
inn af sjálfu sér en 10 til 15% barn-
ar til baka því óeðlilegt sé að láta
niðurskurð bitna á þeim sem síst
geta borið hönd fyrir höfuð sér.
Félagið telur að nái samkomulag
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, fjármálaráðherra og borgar-
stjóra frá 12. september síðastliðn-
um, sem feli í sér niðurskurð á
þjónustu við geðsjúka, fram að
ganga, muni þjónusta við geðsjúka
á landinu skerðast vemlega. Flutn-
anna verða fyrir varanlegum skaða,“
segir hún.
Hún segir að erlendu sérfræðing-
arnir geri tvenns konar aðgerðir til
að hjálpa börnunum. „Strákurinn
minn fór í svokallaða taugaaðgerð.
Aðgerðin fólst í því að taug var tek-
in aftan úr kálfanum og splæst við
taugina þar sem hún slitnaði uppi
við öxl. Nokkurn tíma tekur fyrir
taugina að vaxa og barnið þarf að
læra sérstaklega að nota höndina.
Hreyfingin kemur smám saman og
of mikið er að búast við 100% ár-
angri, t.d. vantar heilmikið upp á
axlarhreyfingarnar hjá stráknum
mínum,“ segir hún.
Erlendu sérfræðingarnir skoða 12
til 14 börn með varanlegan skaða
vegna axlarklemmu í dag. Á morgun
gera tvímenningamir í samvinnu við
Rafn svo aðgerðirnar á börnunum
þremur og halda fyrirlestur um að-
gerðir af því tagi í gamla hjúkrunar-
skólanum á Landspítalalóðinni kl.
13.
ingur geðdeildar úr aðalbyggingu
SHR sé stórt skref aftur til fortíð-
ar og um leið skerðist þjónusta á
stærstu slysadeild landsins, sem
verði að geta veitt geðlæknisþjón-
ustu í bráðum tilfellum allan sólar-
hringinn. Slíkt sé óframkvæman-
legt ef geðdeildin sé ekki í sömu
byggingu, en mikið framfaraskref
hafí verið stigið 1968 þegar geð-
deild Borgarspítalans tók til starfa.
Geðlæknar segja niðurskurð
fyrir neðan allt velsæmi
Hagkaupí
Borgarnes
GENGIÐ hefur verið frá
samningi milli Hagkaups og
eigenda Verslunar Jóns og
Stefáns í Borgamesi um að
Hagkaup kaupi verslunina.
Óskar Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Hagkaups,
sagði að búið væri að skrifa
undir kaupsamning og aðeins
ætti eftir að ganga frá nokkr-
um minniháttar atriðum. Ekki
væri frá því gengið hvenær
Hagkaup tæki formlega við
versluninni.
Viðræður stóðu yfir milli
Kaupfélags Borgfirðinga og
eigenda Verslunar Jóns og Stef-
áns í sumar og var búið að
gera drög að kaupsamningi.
Veruleg andstaða var við samn-
inginn í stjórn Kaupfélagsins
og í framhaldi af því óskuðu
stjórnendur Kaupfélagsins eftir
því að samningnum yrði breytt.
Niðurstaðan varð sú að viðræð-
um var slitið og í framhaldi af
því ákvað Hagkaup að kaupa
verslunina.
Opið próf-
kjör í lok
október
VÖRÐUR, fulltrúaráð sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík,
samþykkti í gærkvöldi tillögu
stjórnar um að halda prófkjör
24. og 25. október um skipan
framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjómarkosn-
ingunum í vor. Á fundinum var
samþykkt að sjálfstæðismenn í
Kjalameshreppi gætu einnig
tekið þátt í prófkjörinu.
Samþykktin felur í sér að
prófkjörið verður opið öllum
fullgildum meðlimum sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík sem þar
eru búsettir og náð hafa 16 ára
aldri síðari prófkjörsdaginn og
ennfremur þeim stuðnings-
mönnum Sjálfstæðisflokksins,
sem eiga kosningarétt í Reykja-
vík í borgarstjórnarkosningun-
um sem fara fram 30. maí 1998
og undirritað hafa inntöku-
beiðni í sjálfstæðisfélag í borg-
inni fyrir lok kjörfundar.
Jón Viktor
vann Hannes
ÞAU óvæntu úrslit urðu í 8.
umferð sem tefld var í gær-
kvöldi á Skákþingi íslands á
Akureyri að hinn 17 ára gamli
Jón Viktor Gunnarsson sigr-
aði Hannes Hlífar Stefánsson.
Hannes Hlífar gafst upp eftir
30 leiki þegar drottningartap
eða mát blasti við.
Onnur úrslit í gærkvöldi urðu
þau að Jóhann Hjartarson vann
Áskel Örn Kárason, Þröstur
Þórhallsson vann Sævar
Bjarnason, Þorsteinn Þorsteins-
son vann Arnar Þorsteinsson,
Bragi Þorfínnsson vann Gylfa
Þórhallsson og Jón Garðar Við-
arsson vann Rúnar Sigurpáls-
son.
■ Úrslitaskákin/43
Fundur í
leikskóla-
deilu
SAMNINGAFUNDUR í kjara-
deilu leikskólakennara og
sveitarfélaganna stóð fram
yfir miðnætti í nótt.
Þórir Einarsson ríkissátta-
semjari kvað ekki margt hægt
að segja um stöðuna í viðræð-
unum. Samningsaðilar væru að
meta þær hugmyndir sem
lægju á borðinu og erfítt væri
að segja til um hvort árangur
væri að nást.