Morgunblaðið - 18.09.1997, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.09.1997, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tvö nótaskip farin í síldarleit „Erum líklega of snemma á ferðinni“ TVÖ nótaveiðiskip, Víkingur AK og Húnaröstin SF, eru nú byrjuð síldarleit án þess að hún hafi enn sem komið er borið árangur. Við- mælendur Morgunblaðsins um borð í skipunum tveimur töldu sig vera of snemma á ferðinni, en sögðust verða við leitina áfram og áttu von á því að fleiri leitarskip bættust í hópinn um helgina. „Það er mjög rólegt og gengur ekkert enn,“ sagði Bjarni Sveins- son, stýrimaður á Víkingi AK, sem var seinnipartinn í gær undan Hjörleifshöfða. Víkingur hélt til síldarleitar við Eldey á mánudags- kvöld og hefur síðan verið að leita austur með suðurströndinni. „Það er eitthvað að sjá fyrir austan en síldin er alltof neðarlega og kemur ekki upp á nóttunni þannig að okkur liggur ekkert á þangað. Við höfum kastað einu sinni til þess að taka prufu, sem reyndist ekki nógu hagstæð, bara smáar síldar og spærlingur.“ Erum bara að þreifa fyrir okkur ennþá „Við höfum fundið stakar lóðn- ingar en ekki nóg til að kasta á ennþá. í augnablikinu er mjög dauft yfir þessu og þetta er senni- lega í það fyrsta að byrja. Við höfum aðeins orðið varir við síld í dag sem við eigum kannski von á að geta kastað á í nótt. Veiðin er yfirleitt á nóttunni. Á daginn skoða menn sig um til að sjá hvar síld liggur við botninn og hvar er möguleiki á að hún þétti sig saman á kvöldin og komi upp. Við erum bara að þreifa fyrir okkur ennþá," sagði Sigurður Olafsson, stýrimað- ur á Húnaröstinni, sem hélt til leit- ar á hádegi á þriðjudag og var í gær stödd á Breiðdalsgrunni. Hún hefur að mestu haldið sig úti fyrir Suðausturlandi, en heldur í dag norður með Austfjörðunum ef ekkert glæðist. „Við ætlum að leita þangað til við finnum síld. Það getur tekið smátíma því þetta er stórt svæði og við erum einir við leitina hér ennþá. Við bíðum eftir að fleiri skip komi sér af stað, en gerum ojckar besta á meðan.“ Jörundarfellið með hvítan koll Morgunblaðið/J6n Sigurðsson 3 grunnskólar í Reykjanesbæ og Kópavogi 49 kenn- arar segja upp störfum HÓPUR kennara við þijá grunnskóla í Reykjanesbæ og Kópavogi lagði fram uppsagn- arbréf sín í gær og hafa alls 49 kennarar með réttindi sagt upp störfum við þessa skóla. Meirihluti kennara við Hjallaskóla í Kópavogi afhenti fræðslustjóra uppsagnarbréf sín eftir hádegi í gær. Alls sögðu 23 fastráðnir kennarar upp störfum en 38 kennarar starfa við skólann. Farnir að leita sér að annarri vinnu Jón Óttar Karlsson, trúnað- armaður kennara, segir ástæðu uppsagnanna óánægju með launakjörin. Hann sagði að sumir kennaranna væru þegar farnir að leita sér að annarri vinnu og því léki mikill vafi á hversu margir þeirra sneru aft- ur til kennslustarfa þótt viðun- andi samningar næðust í kjara- viðræðum kennarafélaganna. í gær sögðu átta kennarar við Holtaskóla í Reykjanesbæ upp störfum en tveir kennarar höfðu áður lagt inn uppsagn- arbréf sín, skv. upplýsingum Sigurðar E. Þorkelssonar skóla- stjóra. Alls eru rúmlega 30 manns við kennslustörf í Holta- skóla. Þá sögðu 16 af 20 fast- ráðnum kennurum við Njarðvík- urskóla upp störfum í gær. Legsteinar skemmdir SKEMMDARVARGAR voru á ferð í kirkjugarðinum við Suð- urgötu fyrir skömmu, að líkind- um um síðustu helgi. Tólf legsteinum var velt um koll í garðinum og brotnuðu þrír þeirra. Skemmdimar upp- götvuðust skömmu eftir helg- ina. Lögreglan í Reykjavík leitar sökudólganna. Drengurinn í Texas Ríkið tek- ur þátt í kostnaði ÍSLENSKA ríkið tekur líklega þátt í að greiða kostnað við að fá afhent dómskjöl í máli fjór- tán ára drengs sem dæmdur var í 10 ára fangelsi fyrir kyn- ferðisbrot gagnvart yngri börn- um í Texas í Bandaríkjunum fyrir skömmu. Utanríkisráðuneytið hefur undanfarið aflað upplýsinga um mál drengsins, sem dvelst nú á greiningarstöð í Texas undir handleiðslu sálfræðinga og félagsráðgjafa. Að sögn Stefáns Hauks Jóhannessonar, skrifstofustjóra í utanríkis- ráðuneytinu, mun kosta um 300 þúsund krónur að fá öll dómskjölin. Hins vegar þurfi ráðuneytið þau ekki öll til að taka afstöðu til dómsins, svo líklega þurfí að greiða mun lægra verð. Féð er styggt og renrnir á menn Blönduósi - Kýrnar á Hnjúki í Vatnsdal láta ekki haust- svip náttúrunnar slá sig út a f laginu. Hver dagur er þjáningarinnar virði meðan nóg er af bragðgóðri, orku- ríkri hánni. En hvað svo sem í hausum kúnna á Hnjúki býr þá er það staðreynd að hlýtt og vætusamt sumar er senn á enda runnið og framundan bíður vetur sem enginn veit hvað ber í skauti sínu. HILMAR Össurarson, bóndi í Kolls- vík, segir að fé sem ekki heimtist hafí safnast fyrir í fjallinu Tálkna á síðustu 15-20 árum. Hilmar fór með þyrlu ti! að kanna sauðféð í fjallinu fyrir einu og hálfu ári. Þá voru tald- ar 13 kindur í fjailinu en Hilmar tel- ur að þær geti verið orðnar nærri 30 núna. Hann segir að enginn hafí sérstakan áhuga á þessu fé nema þeir sem vilji vemda það og sjái það í dýrðarljóma villifjár. Gísli Ólafsson, forseti bæjarstjómar Vesturbyggðar, kveðst hins vegar alveg viss um að sauðféð hafí verið í Tálkna síðustu 30 ár. Hann segir féð afar styggt og renni á menn lendi það í þröng. Hilmar telur að kindurnar séu frá fleiri en einum aðila. „Fyrst og fremst upphófst þetta vegna þess að eftirliti sveitarstjórna varðandi Qallskil var ekki sinnt. Þetta hefur liðist og kindunum fjölgað stig af stigi,“ segir Hilmar. „Það hafa fallið úr mörg haust þar sem því hefur ekki verið sinnt nándar nærri vel að smala úr fjall- inu. Lokaábyrgðin er hjá sveitarfé- lögunum. Vesturbyggð og Tálkna- fjarðarhreppur eru landeigendur því sauðféð gengur beggja vegna sveit- arfélagamarka," sagði Hilmar. Syntu á haf út Gísli Ólafsson segir að til hafi staðið að smala af fjallinu í fyrra en Tálknfirðingar hafí ýtt því frá sér. Síðast var smalað í hitteðfyrra en féð náðist ekki allt af fjalli. „Við reyndum að ná því sem mögulegt var. Féð er kolvitlaus því það hefur ekki komist í hús eða nálægð við menn áratugum saman. Kindurnar syntu frekar á haf út í hitteðfyrra þegar reynt var að smala þeim heldur en að láta króa sig af. Þær eru svo villtar að þær renna beint á menn ef þær komast í þröng. Kindur hafa verið í fjallinu f a.m.k. þrjátíu ár en ég er ekki trúaður á það að riðuveiki sé í fénu, það væri þá löngu dautt,“ sagði Gísli. Eina leiðin að skjóta féð Hann kvaðst gera ráð fyrir þvi að smalað yrði úr fjallinu á næstu dög- um. „Þegar reynt var að slátra fénu 1985 var það gert úr þyrlu og með aðstoð víkingasveitar lögreglunnar. Þá var allt hálfvitlaust í þjóðfélaginu yfír aðförunum. Það er því ekki gott að eiga við þetta þegar ekki má snerta á þessu með þeim hætti að það sé framkvæmt án þess að mönn- um stafí hætta af. Það dettur engum heilvita manni í hug að láta menn eltast við féð við þær aðstæður sem þarna eru. Fjallið er mjög skorið og féð hleypur í syllur. Þaðan er ekki hægt að ná því öðruvísi en að skjóta það niður. En það hefur ekki verið sátt um það frekar en annað sem þessu viðkemur. Ég held þó að eina leiðin sé að skjóta féð sem ekki næst með öðrum hætti,“ sagði Gísli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.