Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 6
Y TCfii jium/kTratf ,8i HiinAauTMMi^ 6 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 (TmAuavmnaoM MORGUNBLAÐIÐ ' FRETTIR Skólastjórnendur um meðaleinkunnír samræmdra prófa 10. bekkjar grunnskóla Birting meðaltala ýtir við fólki og er af hinu góða Morgunbladid/Atli Vigfússon SIF Jónsdóttir ásamt gimbrinni Gjöf og dóttur sinni Sigríði. Haustburður í Reykjadal Laxamýri. Morgunblaðið. ÞEGAR meðaleinkunnir grunnskóla landsins úr samræmdum prófum 10. bekkjar frá síðastliðnu vori eru born- ar saman er einkum tvennt sem vekur sérstaka athygli: að af öllu landinu er meðaleinkunnin lægst á Suðurnesjum og að þeir skólar sem allra lægstu meðaleinkunn höfðu í fyrra hafa bætt sig verulega. Á Suðumesjum var meðalein- kunnin lægst í Gerðaskóla í Garði, 3,09. Einar Arason skólastjóri segir það hafa verið vitað fyrirfram, þar sem ljóst sé að árgangar geti verið afar mismunandi og að viðkomandi árgangur hafi ekki verið sterkur. Sterk tengsl við atvinnulífið Hann segir skólamenn á Suður- nesjum mikið hafa rætt slæma út- komu svæðisins sín á milli. „Við vilj- um ekki meina að unglingarnir hér séu vitlausari en annars staðar eða kennaramir verri, en við höfum velt upp þeirri spurningu hvort hin sterku tengsl við atvinnulífið sem hér eru hafí eitthvað að segja. Þetta birtist bæði í viðhorfí til menntunar og í því að krakkamir vinna mikið með skólanum. Þegar loðnan kemur er t.d. stundum illa kennsluhæft." Spurður um aðgerðir segir Einar enn ekki hafa verið ákveðið að taka afgerandi skref en auðvitað sé verið að skoða hvað sé til ráða. „Eflaust á þetta eftir að brýna kennara í kennslu," segir hann. Guðbrandur Stígur Ágústsson, skólastjóri Patreksskóla, þar sem meðaleinkunnin hækkaði úr 3,19 í VEGNA meðaleinkunna grunn- skóla á samræmdum prófum í 10. bekk sl. vor, sem birtar voru í Morgunblaðinu í gær, skal tekið fram að meðaltal samræmdu greinanna fjögurra er ekki reikn- að út með því að leggja saman einkunnirnar fyrir samræmdu greinarnar fjórar og deila svo í útkomuna með fjórum. Að sögn Finnboga Gunnarsson- ar, umsjónarmanns samræmdra prófa hjá Rannsóknastofnun upp- eldis- og menntamála, er meðal- einkunnin úr greinunum fjórum byggð á einkunnum þeirra nem- enda sem þreyta öll fjögur prófin. Nokkuð er um að nemendur séu með undanþágu frá próftöku í fyrra í 4,71 nú, er ánægður með niðurstöðuna og segir ljóst að það átak sem ráðist var í í kjölfar slæmr- ar útkomu í fyrra sé að bera árang- ur. Hann bendir á að nú sé meðalein- kunn Patreksskóla orðin hæst á Vestfjörðum en hún var næstlægst í fyrra. „Við erum ákveðin í að reyna að gera enn betur næst. Það að birta þessi meðaltöl ýtir heilmikið við fólki og er af hinu góða,“ segir hann. Foreldrar betur meðvitaðir en áður Skarphéðinn Jónsson, skólastjóri Grunnskólans á Hólmavík, tekur í sama streng og segir umræðuna í fjölmiðlum eftir birtingu einkunn- anna í fyrra hafa orðið til þess að foreldrar væru orðnir betur meðvit- aðir en áður og gerðu meiri kröfur til skólans. Meðaleinkunnin á Hólmavík hækkaði í 4,0 nú en var 2,73 á síð- asta ári. Aðspurður um hverju hann þakkaði þennan bætta árangur nefn- ir hann tvennt. Vinnuaðstaða starfs- fólks hafi verið bætt veruiega og keyptur hafí verið tölvubúnaður fyr- ir nemendur. Hann tekur þó einnig fram að í fámennum skólum geti meðaltal oft gefíð villandi mynd, þó að það gefí kannski vísbendingu. Fyrir dyrum stendur að gera út- tekt á skólastarfinu á Hólmavík, og fá til þess aðstoð frá Kennaraháskó- lanum. Þegar er fenginn styrkur úr þróunarsjóði grunnskóla og gerir Skarphéðinn ráð fyrir að hafist verði handa fljótlega. ákveðnum greinum eða hafi verið veikir á próftímanum og þess vegna þurft að fara í sjúkrapróf, sem séu ekki reiknuð inn í meðal- talið. „Þannig eru það færri nemend- ur sem liggja að baki meðalein- kunn greinanna fjögurra en í ein- stökum greinum. Meðaleinkunnin byggist á summu stiga úr öilum greinunum fjórum, sem síðan hef- ur verið færð að normaldreif- ingu,“ segir Finnbogi. Aðspurður segir hann það hugsanlega hafa verið mistök hjá RUM að taka það ekki fram hvemig meðaleinkunnin var reiknuð, en þetta sé raunar ekki í fyrsta sinn sem svona sé farið að. ÆR með nýfædda gimbur birtist smalamönnum á dögunum þegar svæðið á milli Reykjadals og Seljadals var gengið en það er ekki vanaleg sjón að finna lítil lömb með mæðrum sínum á þess- um árstíma. Móðirin, sem er frá Lyngbrekku, er veturgömul, var sleppt lamblausri í vor og því var þetta kærkominn viðburður. Gimbrin á að lifa og hefur hlotið nafnið Gjöf. Handtekinn > á Akureyri með þýfi frá ísafirði | ísafirði. Morgunbiaðið. i ÞEKKTUR fíkniefnaneytandi á ’ ísafírði var handtekinn á Ákureyrar- | flugvelli á föstudag fyrir viku með ætlað þýfi úr þremur innbrotum sem framin voru í tveimur fyrirtækjum á ísafirði fyrir stuttu. Farið var fram á viku gæsluvarð- hald yfír manninum en Héraðsdómur Norðurlands eystra stytti það um þijá daga eða til hádegis á miðviku- dag í síðustu viku. Þá var að nýju j óskað eftir lengra gæsluvarðhaldi . og tók héraðsdómari sér sólarhrings * frest til ákvarðanatöku eða til kl. 11 ) í dag, fimmtudag. „Eg get staðfest að viðkomandi maður er grunaður um að hafa brot- ist inn í tölvufyrirtækið Snerpu í tvígang sem og inn í fyrirtækið Rafverk í Bolungarvík. Þegar frétt- ist af ferðum mannsins til Akureyrar var lögreglan þar látin vita og handt- ók hún hinn grunaða á Akureyrar- . flugvelli. í framhaldi af því var gerð húsleit hjá manninum á ísafirði og I fannst þar ætlað þýfi úr framan- ) greindum innbrotum. Þar fundust einnig tæki og tól til fíkniefna- neyslu,“ sagði Hlynur Snorrason, rannsóknarlögreglumaður á ísafirði. -----» ♦ ♦ Tveir árekstrar á sömu gatna- mótum | TVEIR árekstrar urðu í gær á mót- um Nýbýlavegar og Þverbrekku í Kópavogi. Ánnar áreksturinn var svo harður að kalla þurfti á kranabíl til að fjar- lægja bílana. Hinn var öllu vægari. í hvorugu tilvikinu urðu meiðsli á fólki. Enn í lífshættu I Á sömu gatnamótum varð 14 ára * piltur á reiðhjóli fyrir bíl sl. mánu- ) dag og slasaðist mikið. Samkvæmt upplýsingum lögreglu í gær var hann enn í lífshættu. Lögreglan telur tilviljun eina ráða óhöppum á þessum gatnamótum undanfarna daga, enda hafa þau ekki verið tíðari þarna en annars staðar. Umferðarljós eru á gatna- mótunum. | -----~--------- Í Stálu hljóðfærum > BROTIST var inn í Hljóðfærahúsið við Grensásveg í fyrrinótt. Innbrotið uppgötvaðist þegar starfsfólk kom til vinnu í gærmorg- un. Þjófarnir tóku gítara og bassa- gítara að andvirði um 600 þúsund kr. Meðaleinkunn normaldreifð Fegursta Islandsbókin Ljósmyndir eftir Sigurgeir Sigurjónsson. Texti eftir Sigurð Steinþórsson iarðfræðinn on formáii eftir frú Viadísi Finnboaadóttur. Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síöumúla 7 • Simi 510 2500 Atvinnubílslj órar ræddu I þungaskatt við ráðherra FULLTRUAR þriggja félaga at- vinnubifreiðastjóra áttu fund með fjármálaráðherra í gær, þar sem rætt var um möguleika á að breyta ákvæðum laga um þungaskatt, en Samkeppnisráð hefur úrskurðað að ákvæðin hamli samkeppni. Um er að ræða félög leigubifreiða- stjóra, sendibifreiðastjóra og vöru- bifreiðastjóra. Unnur Sverrisdóttir, fram- kvæmdastjóri Landssambands vörubifreiðastjóra, sagði að þau væru ánægð með fundinn með fjár- málaráðherra. Farið hefði verið yfír þennan úrskurð Samkeppnis- ráðs og sjónarmiðin skýrð. Laga- breytingar þyrfti til að breyta þessu ástandi og þyrfti málið því Lagaákvæði hamla samkeppni að koma til kasta Alþingis. Þau myndu verða í sambandi við þá starfsmenn í ráðuneytinu sem hefðu með þessi mál að gera og það yrði einnig kynnt þingmönn- um. Unnur sagði að núgildandi lög fælu meðal annars í sér afslátt af þungaskatti ef ekið væri umfram 45 þúsund kílómetra á ári. Þeim mun meira sem væri ekið þeim mun meiri yrði afslátturinn og væri það í hróplegum ósamræmi við tilgang laganna, þar sem þau væru fyrst og fremst hugsuð sem fjáröflun til vegagerðar í samræmi við notkun vega. í þessu fælist mismunun gagn- , vart þeim sem minna ækju og væri munurinn hundruð þúsunda I króna enda væri þungaskatturinn ) stór hluti af rekstrarkostnaði vöru- bifreiða. Þannig væri borgað í þungaskatt af tíu hjóla bíl sem æki 45 þúsund kílómetra á ári tæplega 1.220 þúsund krónur á ári. Gjald þess sem æki umfram þetta lækkaði hins vegar um 50%, þannig að í stað þess að borga um 27 krónur á kílómetra væru j) greiddar 13 krónur. Sem dæmi i fengi sá sem æki 100 þúsund kíló- . metra á ári 750 þúsund krónur í I afslátt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.