Morgunblaðið - 18.09.1997, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 7
Atta tilboð
bárust í 52
eignir í
Súðavík
Ísafírði. Morgunblaðid.
Á FIMMTUDAG fimmtudag í síð-
ustu viku voru opnuð tilboð í 52
húseignir í gömlu byggðinni í Súða-
vík, sem Súðavíkurhreppur og Of-
anflóðasjóður höfðu auglýst til sölu.
Átta tilboð bárust í þrettán húseign-
ir sem eru mun minni viðbrögð en
búist hafði vérið við. Tilboðin eru
til skoðunar og verður væntanlega
tekin afstaða til þeirra undir lok
þessarar viku. Engin tilboð bárust
í stærri eignir né heldur í íbúðir í
eina fjölbýlishúsi staðarins.
Bjóðendur eru í flestum tilfellum
brottfluttir Súðvíkingar sem og aðr-
ir sem tengjast sveitarfélaginu og
virðist sem flestir bjóðendur hugsi
sér eignirnar sem sumardvalarstað
í gömlu heimabyggðinni. Hæsta til-
boðið sem barst hljóðaði upp á allt
að eina milljón króna en það lægsta
var 50 þúsund krónur.
„Tilboðin eru bæði viðunandi og
ekki, það fer eftir því hvaða hús á
í hlut. Tilboðin verða skoðuð nánar
og ég vænti þess að afstaða verði
tekin til þeirra í lok þessarar viku.
Við áttum ekki von á neinum stór-
kostlegum viðbrögðum en því er
ekki að neita að þau eru minni en
við vonuðumst til. Það er sammerkt
með tilboðunum að það er verið að
bjóða í minni timburhúsin á staðn-
um það er ekki boðið í nein stærri
húsin _né íbúðirnar í blokkinni,"
sagði Ágúst Kr. Björnsson, sveitar-
stjóri í Súðavík, í samtali við blaðið.
Þær kvaðir fylgja sölu húseign-
anna að ekki verði búið í þeim á
tímabilinu frá 1. nóvember til 30.
apríl ár hvert. Að sögn Ágústar
hefur sala sumarhúsanna gengið
þokkalega og á mánudag var búið
að ganga frá sölu á fimm húsum
af þeim tólf sem auglýst voru til
sölu.
---------------
Á156 kíió-
metrum inn-
anbæjar í
Bolungarvík
ísafirði. Morgunblaðið.
UM síðustu helgi voru tveir ungir
ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðan
akstur innanbæjar í Bolungarvík.
Annar ökumaðurinn var stöðvaður
aðfaranótt laugardags á 144 km
hraða og hinn sólarhring síðar á
156 km hraða. Þar sem ökumenn
voru stöðvaðir er 50 km hámarks-
hraði.
Ökumaðurinn, sem ók hraðar,
hefur samkvæmt upplýsingum
blaðsins, tvívegis áður verið sviptur
ökuréttindum, annars vegar fyrir
of hraðan akstur og hins vegar fyr-
ir meintan ölvunarakstur. Eftir síð-
ara brotið var manninum gert að
taka ökupróf að nýju og mun hann
hafa haft prófið í þijá daga er hann
var stöðvaður í Bolungarvík. Mál
ökumannanna, sem báðir eru bú-
settir á ísafirði, var sent lögregluyf-
irvöldum þar og sviptu þeir öku-
mennina réttindum sínum.
-----♦ ♦ ♦-----
Skipaður hér-
aðsdómari
DÓMSMÁLARÁÐHERRA hefur
hinn 15. september sl. skipað Loga
Guðbrandsson hæstaréttarlögmann
til þess að vera héraðsdómari við
Héraðsdóm Austurlands frá 1. októ-
ber 1997 að telja.
FRETTIR
I UNDIRBUNINGI er endurbygging
flugbrauta og flughlaða á Reykja-
víkurflugvelli og standa vonir til
þess að framkvæmdir geti hafist á
næsta ári. Það skýrist þó ekki endan-
lega fyrr en Alþingi hefur fjallað
um flugmálaáætlun á haustþingi,
að sögn Þorgeirs Pálssonar, flug-
málastjóra. Gert er ráð fyrir að end-
urbygging vallarins taki þijú ár og
kosti einn og hálfan milljarð króna.
í alþjóðlegri flugkeppni frá
Reykjavík til Tyrklands sem hófst
í síðustu viku skemmdust skrúfu-
blöð einnar vélarinnar þegar henni
var ekið yfir misfellu á flughlaði á
Reykjavíkurflugvelli og tafðist
brottför vélarinnar á meðan útveg-
uð voru ný skrúfublöð.
Endurbygging Reykjavíkurflugvallar í undirbúningi
Vonast til að
framkvæmdir
hefjist í vor
Þorgeir sagði aðspurður að
samspil margra þátta hefði orsak-
að skemmdir á skrúfublöðum vél-
arinnar. Vélinni hefði verið breytt
þannig að óvenju lítið bil væri
milli skrúfublaða og yfirborðs
jarðar. Þá hefðu mikil þrengsli
verið á flughlaðinu vegna flug-
keppninnar og því erfiðara um vik
en venjulega, auk þess sem löngu
væri orðið tímabært að endur-
byggja flugbrautir og flughlöð
flugvallarins.
„Það er velþekkt að undirstaðan
undir bæði flughlöðum og flug-
brautum á Reykjavíkurflugvelli er
ekki nægjanlega góð, enda orðið
langt síðan völlurinn var byggð-
ur,“ sagði Þorgeir.
Hann bætti því við að hann
vonaðist til að hægt yrði að hefj-
ast handa um fyrsta áfanga
endurbyggingar vallarins á næsta
ári. Það hefði lengi staðið til, en
eftir væri hins vegar að fjalla um
flugmálaáætlun á þingi á haust-
mánuðum og skipulagsnefnd
borgarinnar væri að fjalla um
deiliskipulag flugvallarins. „Það
er auðvitað ekki fyrr en þessari
umfjöllun er lokið sem við getum
sagt með vissu hver niðurstaðan
verður,“ sagði Þorgeir ennfremurJ
blléníwdl
Haustlaukar
ímw
Blómaval býður eingöngu haustlauka sem góð reynsla er af á Islandi. Sérstaklega
mælum við með okkar landsþekktu magnpakkningum af túlipönum, páskaliljum,
krókusum og perluliljum.
rí>essir laukar eru kröftugri (meira ummál) og gefa stærri og sterkari blóm í vor.
m
MAGNTILBOÐ:
stórir kröftugir laukar
0 TÚLÍPANAR
(ummál lauka 12 sm)
kr. 990,-
;g PÁSKALILJUR
(30-40 blóm stærðarflokkur 1)
kr. 699,-
ÍÓKUSAR
íál lauka 10 sm)
kr.599,-
■ILJUR
10 sm)
399,-
f . %. I
^ * / -á
*1 ifej'
;r
*, \ ■■ ’■■-. •/ ■ ,:-■. v ■.
* , ;
V- l
t K11 I I \
SENDUM UM LAND ALLT
SÍMI 568 9070
-A ■