Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞEIR eru búnir að vera svona yfir línuna síðan við gellurnar tókum okkur saman og
sögðumst vilja fara aftur heim til mömmu . . .
m Sími 5 88 44 22
0>->a i /r-. j X Húsi verslunarinnar
KvJYVtLLb Kringlunni 7
Skólaúlpur
Meö lausri hettu
Stæröir 98 — 170 sm.
Verö frá kr. 2.952
Fáanlegar í 7 litum
- Sterkar
Mjúkar
Ráðin um-
hverfis-
stjóri Lands-
virkjunar
•RAGNHEIÐUR Ólafsdóttir
j arðverkfræðingnr hefur verið ráð-
in umhverfísstjóri Landsvirkjunar.
Þetta er ný staða og er til henn-
ar stofnað í tengslum við nýja
umhverfísstefnu Landsvirkjunar,
sem stjórn fyrirtækisins hefur
samþykkt.
Ragnheiður hefur undanfarin
ár starfað sem
framkvæmda-
stjóri og um-
hverfisverkfræð-
ingur á verk-
fræðistofu VBB
Viak í Sundsvall
í Svíþjóð. VBB
Viak er stærsta
verkfræðistofa á
Norðurlöndum og
rekur deildir vítt
RAGNHEIÐUR
Ólafsdóttir.
og breitt um Svíþjóð.
Ragnheiður veitir forstöðu deild
sem heitir Vatten och Miljö sem
fæst einkum við verkefni á sviði
umhverfismála, grunnvatnsrann-
sóknir og förgun sorps. Verkefnin
eru m.a. unnin fyrir sveitarfélög,
vegagerðina, járnbrautirnar og
helstu raforkufyrirtæki Svíþjóðar.
Með störfum sínum hefur Ragn-
heiður haft mikil samskipti við
sænska náttúruvemdarráðið og
aðrar stofnanir og samtök er
tengjast umhverfismálum þar í
landi. Þá hefur hún reynslu af inn-
leiðingu gæðastjórnunar og um-
hverfisstjórnunar.
Til starfa
um áramót
Ragnheiður lauk B.Sc.-prófi í
jarðfræði frá Háskóia íslands
1982 og prófi í verkfræði frá
Tækniháskólanum í Stokkhólmi
árið 1990. Ragnheiður mun koma
til starfa hjá Landsvirkjun um nk.
áramót.
Hvað er kynþáttahyggja?
Veigamikill þáttur
í rannsókn
alþjóðasamskipta
JóhannM. Hauksson
Kynþáttahyggja er
hugtak sem kemur
oft fyrir í opinberri
umræðu, einkum í tengsl-
um við innflytjendamál, en
fullyrða má, að notkun þess
hafi oft verið ómarkviss.
Hvað .er kynþáttahyggja
nákvæmlega? Jóhann M.
Hauksson stjórnmálafræð-
ingur hefur rannsakað fyr-
irbærið ýtarlega. Hann
heldur framsögu um þetta
efni á opnum hádegis-
verðarfundi sem haldinn
verður á vegum Félags
stjómmálafræðinga á
morgun, föstudag, á efri
hæð veitingastaðarins
Lækjarbrekku.
Jóhann var fyrst beðinn
að útskýra í stuttu máli,
hvað átt sé við með orðinu
„kynþáttahyggja".
„Kynþáttahyggja er hugmynd
sem byggist annars vegar á því
að maðurinn er greindur í nokkra
kynþætti eftir útliti og hins vegar
að hveijum kynþætti séu eignaðir
ákveðnir huglægir eiginleikar. I
henni felst ekki að tekið sé eftir
mismunandi hörundslit fólks - svo
sem að einn sé „gulur“ og annar
„svartur" - heldur í því að ályktað
sé um andlegt atgervi fólks með
tilliti til útlitseinkenna. Kynþátta-
hyggja þarf ekki að birtast sem
neikvætt afl, en í raun tengjast
fordómar henni sterkum böndum."
- Geturðu nefnt dæmi um birt-
ingarform kynþáttahyggju?
„Nefna má íjöldamorð hútúa á
tútsum í Rúanda fyrir tveimur
árum sem eitt öfgadæmi. Annað
saklausara dæmi felst í því að í
Bandan'kjunum er sú skoðun út-
breidd að svertingjar standi öðrum
að baki hvað vitsmuni snertir.
Hægt væri að nefna mýmörg önn-
ur dæmi, en þessi tvö ættu að
gefa nokkuð góða hugmynd um
hvað átt er við.“
- Hvað varð kveikjan að því að
þú tókst þér fyrir hendur að skoða
kynþáttahyggju svo nákvæmlega?
„Það er ekki hægt að rannsaka
stjómmál, einkum alþjóðasam-
skipti, án þess að gera sér grein
fyrir mikilvægi huglægra og til-
fínningalegra þátta sem stjórna
gerðum manna. Meðal slíkra þátta
er kynþáttahyggja veigamikil.
Annar slíkur þáttur, ekki síður
veigamikill, er þjóðemishyggja, en
um það efni Ijallaði ég í BA-rit-
gerð minni.
Eftir að hafa búið i París og
kynnzt þar samlífi fólks af ólíkum
uppruna tók ég til við að skrifa
bók um kynþáttahyggju, sem kem-
ur út hér á landi í vetur."
- Þú býrð í Frakklandi. Innflytj-
endamál eru mjög ofarlega á baugi
franskra stjórnmála um þessar
mundir. Hefur umræð-
an um þau og uppgang-
ur Þjóðfylkingar Jean-
Marie Le Pens ekki
haft áhrif á áhuga þinn
á efninu?
„Hreinskilnislega,
nei. Le Pen er áreiðanlega rasisti,
en hans málflutningur er mjög lít-
ið á þeim nótunum. Það stafar
fyrst og fremst af því að slíkt tal
á opinberum vettvangi er bannað
samkvæmt lögum í Frakklandi."
- Megna slík lög að þínu mati
að hindra viðgang kynþátta-
hyggju?
„Nei, það held ég ekki. Nú ríkja
talsverðir fordómar gagvart músl-
imum og svertingjum í Frakklandi
og stafar það að einhverju leyti
af því að þeir eru fátækari og
menntunarsnauðari og leiðast
frekar út í glæpi í þessu samfélagi
► Jóhann M. Hauksson er
fæddur í ágúst 1966 í Reykja-
vík. Hann lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Kópa-
vogi 1988 og BA-prófi í stjórn-
málafræði og heimspeki frá
Háskóla íslands 1998. Þá tók
hann meistaragráðu í alþjóða-
samskiptum frá Institut d’Etu-
des Politiques de Paris (Science
Po) 1995. Nú vinnur hann að
doktorsritgerð við Sorbonne-
háskóla í sömu borg.
Eiginkona Jóhanns er Nat-
halie Hauksson-Tresch, sem
kennir lögfræði við Strassborg-
arháskóla.
þar sem erfiðara er fyrir þá að
vinna fyrir sér á heiðarlegan hátt.
Lög sem takmarka tjáningarfrelsi
fólks í þessu samhengi skila litlu
að mínu mati. Það sem telja má
varhugavert við slík lög er að þau
koma í veg fyrir að heilbrigð um-
ræða um kynþáttahyggju geti átt
sér stað.
Réttlæting lagasetningar af
þessu tagi er hins vegar, að um-
ræða um kynþætti og útlit einstakl-
inga geti leitt til vaxandi kynþátta-
hyggju. Þessu til stuðnings má
nefna að í Bandaríkjunum, þar sem
slík lög þekkjast ekki, eru kynþætt-
ir óhemju mikilvægir í hugum fólks.
Hluti ástæðunnar fyrir því er aug-
Ijóslega sú, að sífellt er vísað til
hörundslitar einstaklinga í öllu
mögulegu samhengi.“
- Álítur þú að kynþáttahyggja
hér á landi sé mikil?
„Nei, það er hún ekki, hér þrífst
hún vel í ákveðnum hópum, en til
að mynda hygg ég að almennt séu
litlir fordómar gagnvart innflytj-
endum og fósturbömum af öðrum
kynþáttum, sem hér búa. Bæði er
að hér er sómafólk á ferð, sem vel
hefur aðlagazt samfélaginu og
einnig er lítið um at-
vinnuleysi og önnur þjóð-
félagsmein, sem gjaman
veldur því að kynþátta-
hyggja sprettur upp. Ég
efa á hinn bóginn ekki,
að kynþáttahyggja gæti
prðið illvíg við „réttar" aðstæður.
íslendingar eru engir englar, frekar
en aðrir.“
- En er ekki ákveðinn munur á
andúð sem brýst útgegn útlending-
um og kynþáttahyggju sem slíkri?
„Kynþáttahyggja brýst oft út
með því móti að útlendingar verði
fyrir barðinu á fordómum en hins
vegar eru tengslin milli fyrirbær-
anna ekki sjálfvirk, vegna þess að
andúð á ókunnugum (xenófóbía)
getur beinzt að einstaklingum af
sama kynþætti. Þetta em tvö að-
skilin fyrirbæri, þó þau séu nátengd
í veruleikanum."
Kynþátta-
hyggja ekki
mikil á íslandi