Morgunblaðið - 18.09.1997, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Lífvörður Dodi Fayed gengur í fyrsta
sinn eftir slysið í París
Franska lögreglan
leitar að grunsam-
legum lúxusbíl
París. Reuter.
FRANSKA lögreglan leitar bif-
reiðar, sem talið er að bifreið
Díönu prinsessu hafi rekist á
rétt áður en hún skall á stein-
stólpa í undirgöngum í París með
þeim afleiðingum að prinsessan,
unnusti hennar Dodi Fayed og
bílstjóri þeirra, Henri Paul, biðu
bana.
Að sögn sjónvarpsstöðvarinn-
ar France 2 hafa nokkur vitni
að slysinu sagt við yfirheyrslur
að bifreið hafi horfið af vett-
vangi eftir slysið 31. ágúst sl.
Eitt vitnanna kveðst, að sögn
sjónvarpsins, hafa heyrt væl frá
hjólbörðum og árekstrarhögg
áður en Mercedes-bifreiðin, sem
Djana var í, skall á steinstólpa.
„ A því augnabliki sá ég tvær bif-
reiðar. Önnur þeirra, dökk lúxus-
bifreið af stærri gerðinni, jók
hraðann n\jög og um það leyti
virtist ökumaður Mercedes-bif-
reiðarinnar missa vald á bílnum.
Mér sýndist Mercedes-bíllinn
rekast utan í lúxusbílinn," sagði
stöðin að vitnið hefði tjáð lög-
reglunni.
Að sögn France 2 fann lögregl-
an vísbendingar á slysstað um
að önnur bifreið hafi komið við
sögu, m.a. fann hún brot úr aftur-
ljósum sem eru úr annarri bif-
reið en þeirri sem Díana var í.
Þá voru rispur á annarri hlið
Benzins, sem bentu til áreksturs,
og hús af öðrum afturspegli hans
fundust aftan við steinstólpann
sem bendir til að hann hafi farið
af við árekstur nokkru áður en
bíllinn skall á stólpanum.
Lífvörðurinn, Trevor Rees Jo-
nes, sem komst einn lífs af úr
slysinu, gekk um gólf í gær í
fyrsta sinn. Gert er ráð fyrir að
lögreglumenn byrji að rekja úr
honum garnirnar í þessari viku
og er framburðar hans beðið með
mikilli eftirvæntingu.
Walesbúar áhugalitlir um eigið þing en búist við samþykki
Átök milli tveggja
menningarheima
London. Reuter.
FYRIR aðeins 18 árum felldu Wal-
esbúar með miklum mun að koma
á fót sínu eigin þingi en skoðana-
kannanir benda til, að þeir muni
svara því játandi í kosningunum í
dag. Samt er búist við, að kjörsókn
verði mjög lítil og sýnir það kannski
best andúð margra Walesbúa á
breytingum.
Þingið eða „Senedd“ á velsku
verður ekki nema hálfdrættingur á
við það skoska og fær hvorki lög-
gjafarvald né vald til að ákveða
skatta. Er ástæðan sú, að í Wales
takast á tveir menningarheimar,
annars vegar sá velski og hins veg-
ar sá enski, og þessi niðurstaða var
tilraun Tony Blairs, forsætisráð-
herra Bretlands, til að fara bil
beggja.
Wales á sér ekki langa sögu sem
sjálfstætt ríki og sjálfstæði lands-
hlutans hefur aldrei varað lengi í
senn. Það stóð síðast í tvö ár
snemma á 15. öld í kjölfar uppreisn-
ar undir forystu velsku þjóðhetjunn-
ar Owain Glyndwr.
Fimmtungur velskumælandi
Eins og Skotar eiga Walesbúar
sér sína menningu, skáldskap og
tónlist og síðast en ekki síst tungu-
málið, velskuna, en hana talar þó
ekki nema brot af íbúunum, sem
eru um þrjár milljónir talsins. Um
það bil 20% eru velskumælandi og
búa flestir í fjöllunum í norðurhluta
landsins. Aðrir tala ensku og líta á
sig sem Breta og hafa áhyggjur af
ákafri þjóðemisstefnu minnihlut-
ans. Óttast þeir, að hann muni ráða
mestu á nýja þinginu.
Þótt velskumælandi fólk sé í
minnihluta hefur því gengið mjög
vel við að ná sínu fram. Allar veg-
merkingar og opinber skjöl eru á
velsku og ensku og jafnvel á svæð-
um þar sem eingöngu býr ensku-
mælandi fólk. Rekin er sérstök sjón-
varpsstöð fyrir velskumælandi með
stuðningi ríkisins og sagt er, að
hvergi í víðri veröld njóti slík starf-
semi meiri styrkja. Walesbúar hafa
hins vegar aldrei haft þær stofnan-
ir, sem annars einkenna sjálfstæð
ríki. Skotar hafa sína eigin kirkju,
sín eigin lög og seðlaútgáfu en
Wales hefur ekkert af þessu.
Lítill stuðningur við ofbeldi
Andúð velskumælandi fólks á
stjórninni í London jókst mjög á
18 ára valdatíma íhaldsflokksins
en þá voru ráðherrarnir, sem fóru
með málefni Wales, hvorki velskir
né velskumælandi en bein skæru-
liðabarátta fyrir heimastjórn heyrir
að mestu sögunni tii. Seint á átt-
unda áratugnum stóðu „Synir
Glyndwrs" fyrir því að brenna sum-
arhús í eigu Englendinga í Wales
og þeir báru einnig ábyrgð á bréf-
sprengjum, sem þeir sendu frá sér
fram yfir 1990. Þessar baráttuað-
ferðir nutu þó aldrei mikils stuðn-
ings meðal velskumælandi fólks og
flokkur velskra þjóðernissinna, Pla-
id Cymru, hefur ekki náð nema um
10% atkvæða eða helmingi minna
fylgi en flokkur skoskra þjóðernis-
sinna.
Benedikte Thorsteinsson hverfur úr
grænlensku heimastj órninni
Víkur fyrir starf-
andi formanni
Trygqðu þér inngöngutilboðið
Skráðu þig í síma 550 3000 í
e>
VAKA- HELGAFELL
Stjórnarflokkarnir tveir, Siumut
og Atassut, gerðu með sér nýjan
stjórnarsáttmála í fyrradag, að
sögn grænlenska útvarpsins. Gildir
hann fram til næstu landsþings-
kosninga, sem fram eiga að fara
í síðasta lagi í mars 1999. Hann
hefur ekki verið gerður opinber,
en í frétt grænlenska útvarpsins í
fyrradag sagði, að ætlunin væri
að færa húsnæðismálin undan
efnahags- og fjármálaráðuneyti til
ráðuneytis Benedikte Thorsteins- i
son. Einnig væri ætlunin að gefa |
heilbrigðis-, umhverfis- og
menntamálum aukið vægi í stjórn- 1
arstarfinu.
„I raun og veru hefur ekkert
breyst, engin nýmæli eru í endur-
skoðuðum samstarfssáttmála og
ekki heldur áherslubreytingar.
Stefnan er óbreytt. Hið eina sem
gerst hefur, er að Jonathan Motz-
feldt hefur tekið við formennsku í
stjóminni af Lars Emil Johansen, 1
sem ákvað að hverfa til annarra |
starfa, og ég er látin víkja fyrir ,
arftaka Lars Emils á stóli flokks-
formanns," sagði Benedikte.
„Auðvitað hverf ég úr starfi með
söknuði, en hlakka samt til að prófa
eitthvað nýtt. Við verðum áfram
hér í Nuuk og nú er að finna gott
starf. Ég er alls ekki hætt í pólitík,
er nýbyijuð og býð mig örugglega
fram við landsþingskosningarnar
eftir tvö ár,“ sagði Benedikte.
„JÚ, ég er á förum úr stjórninni,
verð í starfi fram á föstudag, en
þá tekur Mikael Petersen, starfandi
formaður Siumut-flokksins, við því
ráðherrastarfi sem ég hef gegnt,“
sagði Benedikte Thorsteinsson, at-
vinnu- og félagsmálaráðherra í
grænlensku heimastjóminni í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Benedikte, sem er gift íslenskum
manni, Guðmundi Þorsteinssyni,
tók við ráðherrastarfi í Grænlandi
eftir landsþingskosningarnar í apríl
1995. „Petersen tók við starfi for-
manns er Lars Emil Johansen sagði
af sér flokksformennsku um síðustu
mánaðamót og ákvað að hverfa til
annarra starfa. Hann krafðist þess
að fá sæti í landsstjórninni hvað
sem það kostaði og var ég látin
víkja. Ég get ekki sagt neitt um
það hvort átök hafi átt sér stað um
málið innan flokksins því ég sit
hvorki í miðstjórninni né á lands-
þinginu og kom því ekki nærri
ákvarðanatökunni. Og út af fyrir
sig hefur það kannski auðveldað
mönnum ákvörðunina," sagði Bene-
dikte.
Petersen var varaformaður
Siumut-flokksins og hefur setið á
landsþinginu, gegnir m.a. for-
mennsku í fjárveitinganefnd þings-
ins. Hann gegnir starfi flokksfor-
manns fram að flokksþingi á næsta
ári er nýr eftirmaður Johansens
verður kjörinn.
Reuter
FÓLK á gangi í undirgöngunum við Pont d’Alma þar sem Díana prinsessa beið bana fyrir tæpum
þremur vikum. Göngin voru lokuð í fyrrinótt vegna hreinsunarstarfa. Fólkið lengst til vinstri stend-
ur við stöpulinn sem bifreiðin, sem Díana var í, skall á.
Laxastríðið við Kanada
Clinton hótar gagnaðgerðum
Toronto. Reuter.
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, hefur varað
Kanadamenn við ólöglegum aðgerðum vegna lax-
veiði Bandaríkjamanna við vesturströndina og seg-
ist ekki munu láta þeim ósvarað verði þeim ekki
hætt.
Kanadíska dagblaðið Toronto Globe and Mail
skýrði frá þessu í gær en hótun Clintons kemur
fram í bréfi, sem hann sendi öldungadeildarþing-
mönnum í Alaska. Kanadamenn hafa sakað Banda-
ríkjamenn um að stunda rányrkju á laxi við vestur-
ströndina en engir kvótar hafa verið á laxinum þar
í Jþgur ár vegna deilu ríkjanna um nýjan samning.
í bréfinu segir Clinton, að komi aftur til ólöglegra
aðgerða eins og þegar sjómenn í Bresku Kólombíu
stöðvuðu feiju frá Alaska í júlí sl., þá muni því verða
svarað á viðeigandi hátt.
Bréfíð skrifaði Clinton í síðustu viku en þá hafði
Jean Chretien, forsætisráðherra Kanada, samband
við Clinton og bað að leggjast á eitt með sér við
að leysa deiluna.