Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Mat Aiþjóða gjaldeyrissjóðsins á efnahagsþróun í heiminum
ÁÆTLUN ALÞJÓÐABANKANS
Hagvöxtur í heiminum er nú örari en hann hefur verið í áratug, og að mati Alþjóða gjaldeyrissjóðsins mun hann haida áfram að aukast fram á næstu öld Meðaltalsaukning vergrar þjóöartramleiöslu (GDP) I prósentum -1 0% * 1 2 3 4 5 6 7 8 9
Heimurinn
[ 1995 11996 áætlun Q1997-2006 spá
lönríki ——VV
G7 rikin Lágtekju- eöa meðaltekjuríki Asía mmrnmiX'K
aMMWBMB—■■ÍÍ— y | A í |||
|l mmpm
Mið-Ameríka, Karíbahafið Evrópa, LósPö M.ö-Asia “ Miö-Austurlönd, Norður Afríka Afríka sunnan Sahara REUTERS *t,L
i| ó iÍl iL , \
' 1L
Jan P. Syse látinn
Hófsamur
mælsku-
maður
Ósló. Morgunblaðið.
JAN P. Syse, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Noregs, lést í gær 66 ára
að aldri. Var banamein hans heila-
blóðfall. Syse var leiðtogi Hægri-
flokksins á árunum 1988 til 1991,
iðnaðarráðherra
í ríkisstjórn Káre
Willochs
1983-’85 og for-
sætisráðherra í
eitt ár, 1989-’90.
Syse varð for-
sætisráðherra í
þriggja flokka
stjórn Hægri-
flokksins, Kristilega þjóðarflokks-
ins og Miðflokksins eftir kosning-
arnar 1989 en þeir höfðu aðeins
62 þingmenn saman og urðu því
að reiða sig á stuðning Framfara-
flokksins. Það voru hins vegar Evr-
ópumálin, sem urðu stjórninni að
falli, því að Miðflokkurinn gat ekki
sætt sig við þau drög, sem þá voru
til umræðu vegna væntanlegs
samnings um Evrópska efnahags-
svæðið.
Þetta eina ár Syses sem forsætis-
ráðherra var honum að mörgu leyti
mótdrægt og hann naut ekki mik-
illa vinsælda meðal landa sinna eft-
ir að hann mátti viðurkenna að
hafa ekki farið að lögum við rekst-
ur fyrirtækis síns.
Jan Peder Syse fæddist í Nott-
eroy skammt frá Ósló 35. nóvember
1930. Var hann fyrst kjörinn á stór-
þingið 1973 og sat þar síðan óslitið
fram að kosningunum sl. mánudag.
Syse var mælskur vel og slyngur í
kappræðu, hafði góða kímnigáfu
og hið mesta ljúfmenni. Sagði hann
einu sinni um sjálfan sig, að hann
væri allt að því „einstrengingslega
hófsamur“.
Aukinn
hagvöxtur
án verð-
bólgu
Hong Kong. Reuter.
ÁRLEGUR fundur Alþjóða
gjaldeyrissjóðsins (IMF) hófst
í Hong Kong í gær með því
að gefið var út mat á stöðu
efnahagsmála í heiminum.
Spáir sjóðurinn auknum hag-
vexti án verðbólgu þrátt fyrir
erfiðleika í Tælandi og Suð-
Austur Asíu. Að mati sjóðsins
mun hagvöxtur í heiminum
nema 4,2% á þessu ári og 4,3%
á því næsta. Hagvöxtur í Tæ-
landi muni verða hverfandi,
vegna harkalegra aðhaldsað-
gerða stjórnvalda þar.
„Við teljum enn að efnahag-
ur heimsins muni vænkast
bæði 1997 og 1998,“ sagði Mic-
hael Mussa, yfirhagfræðingur
IMF á fréttamannafundi þar
sem greint var frá spánni.
„Sums staðar má búast við erf-
iðleikum, en ástæða er til að
ætla að hagvöxtur verði mikill
og verðbólga lág.“ Mussa spáði
þó miklum samdrætti í Tæ-
landi, 2,5% á þessu ári úr 6,4%
í fyrra.
Efnahagsvandinn í Tælandi
hófst með hruni gjaldmiðils
landsins, bathsins, og skyggir
á önnur viðfangsefni á fundi
IMF og systurstofnunar hans,
Alþjóðabankans. Stofnanirnar
tvær leggja fram allt að 5,5
milljörðum Bandaríkjadala til
17,5 milljarða dala aðstoðar
| sem alþjóðlegar stofnanir veita
Tælandi. Er þetta stærsta lán
sem veitt hefur verið síðan
Mexíkó var komið til aðstoðar
1995.
Þá segir að vænta megi vaxt-
ar í hagkerfum Evrópu, og
allt útlit væri fyrir að sameig-
inlega myntbandalagið, EMU,
yrði að veruleika á tilsettum
tíma. Stjórnvöld í Frakklandi
og Þýskalandi voru þó hvött
til að ryðja úr vegi kerfislæg-
um hagvaxtarhindrunum.
Spáð er 2,3% hagvexti í
Þýskalandi á þessu ári og 2,8%
á því næsta; í Frakklandi 2,2%
í ár og 2,8% 1998; á Ítalíu 1,2%
og 2,1%. Hægja mun á hag-
vexti i Asíuríkjum og fyrra
mat IMF á væntanlegum vexti
í Japan hefur verið endurskoð-
að og er spáin nú 1,1% aukning
á þessu ári. Annars staðar í
heiminum er útlitið harla gott,
að mati IMF, og er það ekki
síst mikill vöxtur í Bandaríj-
unum og Bretlandi sem er for-
senda mats IMF. „Efnahagur
Bandaríkjanna er sérlega góð-
ur,“ sagði Mussa. Að líkindum
yrði að hækka vexti þar á
næsta hálfa ári til þess að koma
í veg fyrir þenslu.
Vandi Tælendinga, sem haft
hefur áhrif á gjaldmiðla ná-
grannaríkjanna, gæti leitt til
þess að sérfræðingar IMF í
gjaldeyrismálum, ráðherrar
og seðlabankamenn á fundin-
um í Hong Kong endurskoði
stefnu ríkja heims í gjaldeyris-
málum.
Blæbrigðamunur á ummælum þýzkra ráðherra um EMU
Reuter
THEO Waigel kynnir útlit bakhliða evró-myntar, sem slegin verður í Þýzkalandi.
Tugabrotin viðkvæm í meðföram
Bonn. Reuter.
VANGAVELTUR um að þýzka sljórnin sé
að hverfa frá strangri túlkun sinni á skilyrð-
um Maastricht-sáttmálans fyrir aðild að
Efnahags- og myntbandalagi Evrópu (EMU)
fengu byr undir báða vængi í gær vegna
þess blæbrigðamuns, sem var á ummælum
Klaus Kinkels utanríkisráðherra og Theo
Waigels fjármálaráðherra um það hvort
halda ætti fast við töiuna 3,0% eða hvort fjár-
lagahalli sem hlutfall af landsframleiðslu
mætti fara einhver tugabrot umfram hana.
Kinkel var í útvarpsviðtali í gærmorgun
spurður hvort hinn sameiginlegi gjaldmiðill
Evrópusambandsins, evróið, myndi ganga í
gildi 1. janúar 1999, jafnvel þótt fjárlaga-
halli Þýzkalands í ár yrði 3,0, 3,1 eða 3,2%
af landsframleiðslu. Kinkel svaraði: „Ein-
mitt, þannig verður það.“
Talsmaður ráðherrans hélt því síðar fram
að svar hans hefði misskilizt og dreifði texta
viðtalsins, þar sem Kinkel bætir því við að
evróið muni verða innleitt „í samræmi við
tímaáætlunina og stöðugleikaskilyrðin, þar á
meðal þann fjárlagahalla, sem krafizt er.“
Waigel fjármálaráðherra sá hins vegar
ástæðu til þess að nota blaðamannafund, þar
sem hann var að kynna útlit bakhliðar evró-
myntar, sem slegin verður í Þýzkalandi, til
að draga úr ummæium Kinkels. Waigel benti
á það, fréttamönnum til nokkurrar kátínu,
að Kinkel hefði ekki notað orðin „3,1“ eða
„3,2“, þar sem þau hefðu verið innifalin í
spurningu útvarpsmannsins.
„Ég geri ráð fyrir að ég muni áfram njóta
stuðnings utanríkisráðherrans í því að halda
mig við skilyrðin," sagði Waigel.
I Maastricht-sáttmálanum stend-
ur hvergi að fjárlagahalli aðildar-
ríkja EMU megi ekki vera meiri en
3,0% af landsframieiðslu, heldur
stendur þar „þijú prósent“. Ákvæði
sáttmálans veita jafnframt nokkurt
svigrúm til að túlka þessa tölu rúmt.
Þýzk stjórnvöld hafa hins vegar til
þessa kosið að halda sig við afar
þrönga túlkun. Skýrsla, sem nokkrir forystu-
menn kristilegra demókrata hafa samið, hef-
ur orðið til þess að menn telja stefnubreyt-
ingu liggja í loftinu, en í henni er meiri
áherzla lögð á efnahagslega samleitni ríkja
ESB en á tugabrotin, sem hafa reynzt svo
viðkvæm í meðförum.
Frakkar sam-
þykkja ekki
tungTimála-
samning
Strassborg. Reuter.
FRÖNSK stjórnvöld neita að samþykkja sátt-
mála Evrópuráðsins um svæðisbundin tungumál
og mál minnihlutaþjóða, á þeirri forsendu að í
Frakklandi sé aðeins eitt opinbert tungumál.
Sáttmálinn á meðal annars að tryggja að fólk,
sem tilheyrir þjóðernisminnihlutahópum í ríkjum
Evrópu, geti notað móðurmálið í samskiptum
við stjórnvöld.
„Við munum ekki undirrita sáttmálann um
svæðisbundin tungumál og mál minnihlutaþjóða,
sem leyfir einstaklingum að nota þessi tungu-
mál í bréfaskiptum og samtölum við ríkisstjórn-
ina,“ sagði Jacques Warin, fastafulltrúi Frakk-
lands hjá Evrópuráðinu, við blaðamenn í gær.
Hann sagði að í stjórnarskrá Frakklands
kæmi fram að eingöngu franska væri viður-
kennd sem opinbert tungumál.
Mörg mál töluð í Frakklandi
Þótt aðeins sé eitt opinbert tungumál í Frakk-
landi eru töluð mörg tungumái í landinu. Bretón-
ar tala eigið mál, Elsassbúar tala margir hveijir
þýzku, Baskar tala
eigin þjóðtungu og
Korsíkubúar ítalska
mállýzku. Þessir
minnihlutahópar
hafa lengi átt í stríði
við miðstjórnina í
París um rétt til að
nota móðurmál sitt
opinberlega og læra það í skólum.
Ýmis önnur Evrópuríki hafa farið þá leið að
veita tungum minnihlutahópa stöðu opinbers
tungumáls í hluta ríkisins eða um allt land, ásamt
tungumáli meirihlutans. Þetta á t.d. við um
sænsku í Finnlandi, basknesku, katalónsku og
galisísku á Spáni og velsku í Bretlandi.
Clinton
vill ný lög
um tóbak
BILL Clinton, Bandaríkjafor-
seti, hvatti Bandaríkjaþing til
þess í gær að setja lög sem
fælu matvæla- og lyfjaeftirlit-
inu að fylgjast með vörum sem
innihalda nikótín. Þá lagði
hann til að verð á tóbaki verði
hækkað takist tóbaksframleið-
endum ekki að ná fyrirfram
settum markmiðum og draga
úr reykingum ungmenna.
Ræða forsetans þykir benda
til þess að hann líti á nýgert
samkomulag yfirvalda og tób-
aksframleiðenda sem upphafs-
skref á lengri leið, sem ekki
sjái enn fyrir endann á.
Fjórar konur
í framboði
FIANNA FAIL, stjómarflokk-
ur írlands, tilnefndi í gær
Mary McAleese lagaprófessor
sem forsetaefni sitt. Val henn-
ar kom mjög á óvart en búist
hafði verið við að Albert Reyn-
olds, fyrrverandi forsætisráð-
herra, yrði fyrir valinu. Auk
þess sem þetta er mikið áfall
fyrir Reynolds, sem hafði sóst
eftir útnefningu, þýðir það að
allir ijórir frambjóðendurnir
verða konur.
Moi fram í
fimmta sinn
FLOKKUR Daniels arap
Mois, forseta Kenýa, sam-
þykkti einróma á þriðjudag
að hann
yrði for-
setaefni
flokksins í
fimmta og
síðasta
sinn í kosn-
ingum síð-
ar á árinu.
Moi, sem er
tæplega
hálfáttræður og hefur verið
við völd í 19 ár, sagði eftir
útnefninguna, að hann myndi
halda áfram að vinna fyrir
landsmenn, jafnvel þá, sem
ekki kysu hann. Moi hefur
verið sakaður um einræði og
harðstjórn og fimm leiðtogar
stjórnarandstöðunnar hafa
hótað að valda glundroða í
landinu til að knýja á um af-
sögn hans.
Ellefu ára
erfingi
ÍTALSKI fatahönnuðurinn
Gianni Versace, sem var
myrtur fyrir utan heimili sitt
15. júlí síðastliðinn, arfleiddi
ellefu ára systurdóttur sína
að 45% hlut sínum í fyrirtæk-
inu sem bar nafn hans. Átta
ára bróðir hennar hlaut hins
vegar listaverkasafn hans
sem m.a. inniheldur verk eft-
ir Picasso og Leger. Þá
ánafnaði Versace sambýlis-
manni sínum, Antonio
D’Amico, ríkulegan fram-
færslueyri auk þess sem hann
fær að dvelja í húseignum
hönnuðarins víða um heim.
Óstaðfestar fréttir herma að
bræðrabörn hönnuðarins hafi
hins vegar ekki verið nefnd
í erfðaskrá hans.
Moi