Morgunblaðið - 18.09.1997, Side 23

Morgunblaðið - 18.09.1997, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 23 Ortiz og Davidovitsj meðal einleikara TÓNLEIKAR kvöldsins eru í svo- nefndri Rauðri röð en það sem einkennir hana öðru fremur er flutning-ur á vinsælum einleiks- konsertum. Fimm aðrir tónleik- ar verða í Rauðu röðinni í vetur. 16. október mun finnski hljómsveitarstjórinn Hannu Lintu sljórna tónleikum, þar sem hinn kunni píanóleikari Cristina Ortiz mun flylja Píanó- konsert nr. 20, K.466 eftir Moz- art. Jafnframt verða á efnis- skránni Gleðiforleikur eftir Madetoja og Þriðja sinfónía Brahms. Petri Sakari, aðalhljómsveitar- stjóri SI, mun halda um tónsprot- ann á tónleikum sem verða haldnir 20. nóvember en þar mun Sigurður Yngvi Snorrason flytja klarínettkonsert Mozarts, auk þess sem verk eftir Leif Þórar- insson og Sibelius munu hljóma. Einleikarinn á tónleikunum urkennir að sumarið hafi jafnvel verið einum of strembið. „Auðvitað er alltaf dýrmætt að fá tækifæri til að spila á tónleikum. Fimm tónleikar á einum og hálfum mán- uði eru hins vegar í það mesta fyrir einleikara og undir það síð- asta var ég andlega komin í þrot. Svona fer fyrir fólki sem getur ekki sagt nei! Ég lifði hins vegar af og nú er ég eldhress.“ 22. janúar 1998, Jenö Jandó, færist mikið í fang en hann mun flytja báða píanókonserta Liszts. Stjórnandi verður En Shao en verk eftir Kodaly og Bartók verða jafnframt á efnisskránni. Við annan tón kveður á fimmtu tónleikum raðarinnar en þá mun þýska söngkonan Andrea Catzel flytja Fjóra síð- ustu söngva Strauss. Witold Lut- oslawski á einnig verk á tónleik- unum sem Petri Sakari stjórnar. Síðustu tónleikar Rauðu raðarinnar verða haldnir 14. maí en þá stígur á svið rússneski píanóleikarinn Bella Davidovitsj en hún mun halda upp á sjö- tugsafmæli sitt næsta sumar. Á efnisskrá tónleikanna verða ein- göngu verk eftir Beethoven en hljómsveitarstjóri verður Ole Christian Ruud frá Noregi en SÍ hefur lengi haft hug á að fá hann til liðs við sig. Meðal staða sem Sigrún lék á i sumar var Wigmore Hall í Lund- únum. Lætur hún hugann reika þegar þeir tónleikar berast í tal: „Þetta voru stærstu tónleikar lífs míns - allt gekk vel og áheyrend- urnir voru æðislegir.“ Tónleikarnir hafa líka undið upp á sig, því sömu aðilar og buðu Sigrúnu að spila í Wigmore Hall hafa nú boðið henni að koma fram í Purcell Room í Lundúnum 16. desember næst- komandi. Þar mun hún velja efnis- skrána sjálf, líkt og á flestum tón- leikum sem hún heldur. „Það er mjög þægilegt að geta valið verk- in sjálf en því fylgir auðvitað meiri ábyrgð." Hljómsveitarstjóri á tónleikun- um í kvöld verður Svíinn B. Tommy Andersson sem stjórnar nú Sinfóníuhljóm- sveit íslands í fyrsta sinn. Hefur Svens- son, sem hefur stjórnað öllum helstu hljómsveitum Svíþjóðar, einkum lagt sig eftir flutn- ingi nútímaverka og stjórnaði nýlega frumflutningi á óperunum Gun- smoke eftir Reine Jönsson og II Prigi- oniero eftir Dallapiccola. Andersson er hæstánægður með að vera kominn til íslands en hann kveðst vera farinn að þekkja Sinfóníuhljómsveit íslands ágæt- lega í gegnum geislaplöturnar sem BIS hefur gefið út á síðustu miss- erum. Þá ber hann íslenskum tón- listarmönnum sem hann hefur kynnst í Svíþjóð vel söguna. En stendur hljómsveitin undir vænt- ingum, þegar í návígið er komið? „Svo sannarlega. SÍ er mjög góð hljómsveit sem stenst fyllilega samanburð við bestu hljómsveitir á Norðurlöndum. Þá er ákaflega auðvelt að vinna með hljóðfæra- leikurunum sem hafa greinilega jákvætt viðhorf til þess sem þeir eru að fást við. Það er synd að hljómsveitin skuli ekki eiga tónlist- arhús sem er henni samboðið." Jón Leifs í Stokkhólmi Andersson er mikill áhugamað- ur um verk Jóns Leifs og í apríl á næsta ári mun hann stjórna flutningi Fílharmóníuhljómsveit- arinnar í Stokkhólmi á Sögusinfó- níunni. „Ég lít öðrum þræði _ á heimsóknina til ís- lands sem lið í undir- búningi mínum fyrir þá tónleika en ég mun jafnframt nýta tækifærið til að kynna mér verk ann- arra íslenskra tón- skálda eins og tími vinnst til. Allar þjóð- ir hafa gott af því að kynna sér verk nágranna sinna.“ I ljósi þessa skyldi engan undra að Andersson hafi áhuga á að snúa aftur til íslands og stjórna sinfóníutónleikum þar sem sænsk tónlist yrði leidd til öndvegis. „Þeirri hugmynd verður hins vegar varla hrint í fram- kvæmd á næstunni en óhætt er að segja að Svíar beri sænsk tón- skáld ekki á höndum sér um þess- ar mundir. Ef við flytjum ekki sjálfir verk tónskáldanna okkar, hveijir gera það þá? Vonandi stendur þetta þó til bóta.“ Jafnframt verða flutt á tónleik- unum í kvöld serenaða eða kvöld- lokka op. 16 eftir Johannes Brahms, þar sem fiðlum er sleppt úr strengjasveit hljómsveitarinnar, og forleikur að leikritinu Rósa- mundu eftir Franz Schubert. Ég hef gætt þess að æfa konsertinn ekki of mikið - hann verður að vera frjáls og ferskur EIN mynda Þorvalds sem sýndar eru í Gallerí Borg. ► I I i ) \ I > > : Sölusýning á verkum Þorvalds Skúlasonar GALLERÍ Borg hefur safnað sam- an nokkrum verkum eftir Þorvald Skúlason. Myndirnar, sem eru um fimmtíu talsins, eru unnar með olíu, krít og vatnslitum um og eftir 1940. Fæstar myndanna hafa verið sýnd- ar hér á landi áður, en margar þeirra koma úr búi Astrid Fug- mann, sem var gift Þorvaldi. Þetta er fyrsta sýningin sem sett er upp í nýjum og rúmgóðum húsa- kynnum Gallerís Borgar í Síðumúla 34. Sýningin hefst í dag, fimmtudag kl. 20.30. Við opnunina mun Sigrún Hjálmtýsdóttir flytja nokkur lög við undirleik Önnu Guðnýjar Guð- mundsdóttur. ■-------------■ SLIM-LINE dömubuxur frá gardeur Udumv tískuverslun m V/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 h Námstefna með einum virtasta sérfræðingi heims á sviði stjórnunar breytinga Bylting í stjórnun fyrirtækja - Umskipti á vinnumarkaði „Föst störf tilheyra iðnbyltingunni, ekki morgundeginum“ Dr. William Bridges Þetta einstæða efni varðar framtíð allra fyrirtækja og stofnana. Stjórnunarfélag íslands hefur boðið Dr. William Bridges hingað til lands, einum virtasta sérfræðingi heims á sviði stjómunarbreytinga. Bridges segir þörfina fyrir fækkun fastra starfsmanna augljósa en framundan séu fleiri tímabundin störf og enn meiri sjálfvirkni. Fyrirtæki morgundagsins munu krefjast ■ nýs skipulags, • nýrrar gerðar stjórnunar, • nýrrar gerðar ráðninga, • nýrra stefnumiða, • nýrrar gerðar þjálfunar starfsfólks, • nýrrar fjármála- og launastjórnunar. Lýst verður innihaldi breytinganna, hvers vegna þær hljóta að kalla á endurskoðun stjórnunarhugtaksins og þau 5 skref sem nauðsynleg eru í áætlun um umsköpun fyrirtækja og vinnumarkaðar. Skráning í síma: 533 4567 Tölvupóstur: stjornun@itn.is Símbréf: 533 4566 Þriðjudagur 30. september kl. 9.00-13.00 eða 14.00-18.00, Hótel Loftleiðum, Þingsal 1. Dr. William Bridges er í hópi viðurkenndustu sérfræðinga og fyrirlesara í Bandaríkjunum á sviði þróunarbreytinga (Wall Street Journal). Hann hefur ritað 8 bækur um efnið en síðasta bók hans JobShift - How til Prosper in a Workplace Without Jobs, hefur verið notuð sem leiðarbók íyrirtækja jafnt í S-A Asíu, Evrópu og Bandaríkjunum. Auk Bandaríkjamarkaðar hefur hann m.a. starfað með fyrirtækjum í Bretlandi, Hong Kong, Singapore, Frakklandi, Brasilíu, Ástralíu og Suður- Afríku. Á meðal ólíkra fyrirtækja sem hafa notið leiðsagnar hans má nefna Pacific Bell, Intel, Kaiser Permanente, Proctor & Gamble, Hewlett-Packard, Chevron, Kal Kan Foods og McDonnel Douglas. Stjómunarféiag islands I tilefni 5ára afmælis Vikuna I7. - 24. september gefum við bol með hverri pizzu meðan bir|»ðir endast ef verslað er fyrir kr. I.500 eða meira. Eitt símanúmer um land allt 755 6767 Gömlu númerin giida áfram W'o V/ÖÁ wM I mBBaeffl ^I! wA www,pizza67»<

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.