Morgunblaðið - 18.09.1997, Page 28

Morgunblaðið - 18.09.1997, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREIIMAR skástir. Nei, ég er að hugsa um mennina á stóru flutningabílunum, sem verða að aka þarna allan árs- ins hring, í hvernig veðri, færi og skyggni sem vera skal, stórir bílar og jafnvel með aftanívagn. (Við hjónin mættum þar einum slíkum, þegar ævið fórum þarna um ný- lega). Það er vegna þessara manna, sem ég leyfí mér að segja: Breikk- ið sneiðingana neðan til í Kleifa- heiðinni strax. Gerið góð útskot með stuttu millibili og leggið veg- rið á hættulegustu stöðunum, til dæmis þar sem vegurinn tekur stóra beygju nálægt gilbrún, og við bröttu sneiðingana, sem eru hættulega mjóir, og verða það, þangað til úr hefur verið bætt. Bíðið ekki eftir því að þarna verði slys. Þær framkvæmdir sem ég hef nefnt hér, kosta ekki mikla pen- inga, en þær gætu auðveldlega bjargað mannslífi. íslendingar eru nú á síðari árum í óða önn að afmá þá smánar- bletti, sem voru lengi á íslenzkri vegagerð, þegar búnar voru til stórhættulegar begyjur við brýr, eins víða og við varð komið. Og engu var líkara, en að því dýpra og ægilegra sem gljúfrið var, þar sem brúin ljá yfir, því krappari og hættulegri skyldi beygjan vera. Ég spurðist fyrir um það fyrir fjörutíu árum, hvernig stæði á þessari ósvinnu, og ég fékk þau svör, að beygjurnar ættu að neyða bílstjór- ana til þess að draga úr hraðanum, áður en þeir ækju inn á brúna! En með þessu var auðvitað búin til önnur og margfalt meiri hætta. En þetta er liðin tíð. Nú vitum við betur. Nú er okkur alls engin vork- unn lengur. Lagfærum því hættu- lega staði, í Kleifaheiði sem annars staðar. Komum í veg fyrir slys! Höfundur er rithöfundur. Vegurinn yfir Kleifaheiði KLEIFAHEIÐI er á milli Barða- strandar og Patreksíjarðar, eins og þeir vita sem þá leið hafa farið. Þegar ekið er upp heiðina af Barða- ströndinni má vegurinn heita þokkalegur, eftir því sem malar- vegir eru yfirleitt. Hann hækkar að vísu ört, enda er heiðin há, en hann virðist vera vel lagður og er hvergi hættulegur. En þegar kem- ur að Pareksfirðinum fer heldur betur að kárna gamanið. Þar steypist vegurinn fram af fjalls- Þessar framkvæmdir kosta ekki mikla pen- inga, segir Valgeir Sig- urðsson, en þær gætu bjargað mannslífí. brún og liggur síðan í mörgum hlykkjum og krókum niður snar- bratta hlíðina. Segja verður þó Póstur og sími óskar Pizza 67 til hdmingju meö dlnúmeriö strax, til verðugs hróss þeim sem gerðu þenn- an veg, að hann virðist ágætlega lagður. Það er að segja: Ég gat ekki betur séð, en að valin hefði verið lang- skásta (og kannski eina) leiðin niður íjall- ið, að svo miklu leyti sem ég gat virt vegar- stæðið fyrir mér, án þess að fara út úr bíln- um. Og auðvitað draga hlykkirnir mjög úr brattanum, svo að jafnvel lofthræddum mönnum er vorkunn- arlítið að aka þetta. Hitt er miklu verra, að víða, og einkum þó neðan til í fjallshíðinni, er vegurinn svo mjór, að ekki er nokkur lifandi leið að mætast þar. Það er varla að tveir litlir fólksbílar geti smogið þar hvor framhjá öðr- um, hvað þá ef annar bíllinn er lítill en hinn stór, að ekki sé talað um, ef báðir eru stór- ir. Það er þetta sem verður að lagfæra og það strax. Ég skal taka það skýrt fram, til þess að fyrirbyggja hugsan- legan misskilning, að ég er ekki að kvarta fyrir hönd okkar, sem skreppum þetta kannski einu sinni eða tvisvar á ári, um hásumarið, þegar íslenzkir vegir eru eins og þeir geta orðið Valgeir Sigurðsson Pizza 67 hefur tekið upp nýja þjónustu Pósts og síma sem nefhist Alnúmer. Ainúmer gerir Pizza 67 kleift að vera með eitt sameiginlegt símanúmer fyrir alla 16 veitingastaði sína á íslandi. sem viðskiptavinir eru staddir á landinu, er nóg að kunna alnúmer Pizza 67 þegar panta á pizzu því númerið kemur þeim beint í samband við þann Pizza 67 stað sem næstur er, án þess að fara í gegnum skiptiborð. Alnúmer Pizza 67 er auðvelt að muna. Það er 755 6767. Með alnúmerinu er verið að auka þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins og mun Pizza 67 vera fyrsta pizzukeðjan í heiminum sem tekur upp slíkt þjónustunúmer. Póstur og sími óskar Pizza 67 til hamingju með þennan áfanga í sögu fyrirtækisins og hvetur um leið önnur fyrirtæki til að kynna sér þann hagkvæma kost sem alnúmerið er. ÞAK-OG VEGGKLÆÐNINGAR ISVA\L-ÖOr<GA\ cHF. HÖFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVÍK SÍMI 587 8750 - FAX 587 8751 MUNIÐ SÉRPANTANIR ÁHÚSGÖGNUM TÍMALEGA FYRIR JOLIN Mörkinni 3, sími 588 0640 E-mail: casa@islandia.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.