Morgunblaðið - 18.09.1997, Page 29

Morgunblaðið - 18.09.1997, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 29 AÐSENDAR GREINAR Eignarréttur, öfund og herleiðing fjármagnsmarkaðarins í ÞRIÐJU greininni í sumarspretti Hann- esar Hólmsteins Giss- urarsonar (9. ág.) rek- ur hann hneykslan Karls heitins Marx þegar þýskir fátækl- ingar voru sviptir hefðbundnum rétti til að týna sprek í skóg- um, og getur sér þess til að atburðurinn hafi leitt til þess að Marx snerist gegn eignar- réttinum almennt með alþekktum afleiðing- um fyrir drjúgan hluta mannkyns. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um að eignarrétturinn er gagnleg stofnun því hann stuðlar að því að menn njóti verka sinna og verði þar af leiðandi fúsari að gera gagn. Slíku er hins vegar ekki til að dreifa um kvótaverð- mætin, sem eru einskis verk nema almannavaldsins. En rétt eins og rónarnir koma óorði á brennivínið kemur það óorði á eignarréttinn ef stjórnmálamenn misbeita hon- um til að hygla gæðingum á kostn- að almennings. Vonandi verður sú gríðarlega og tilefnislausa mis- munun, sem felst í ókeypis úthlut- un kvóta, ekki til þess að íslending- ar snúist gegn eignarrétti yfirleitt. Fjórða grein Hannesar er svar við athugasemdum Þorvalds Gylfa- sonar, mest endurtekning á ann- arri greininni og verður ekki tekið á hér. Fimmta greinin (13. ág) fjallar um hollensku veikina svo- kölluðu. Hún kvað felast í því að nýjar atvinnugreinar sem eru fjár- magnsfrekar en þurftalitlar til mannafla sogi til sín fjármuni og hækki vexti með þeim afleiðingum að raungengi og kaupmáttur hækki en annað atvinnulíf staðni. Hannes telur litlar líkur á sýkingu en bendir réttilega á að hækkað raungengi kæmi launafólki til góða. Nú ber nýrra við að við Hannes erum nokkuð á einu máli um að ekki séu miklar líkur á hækkun raungengis, einkum þar sem sjávarútvegurinn er að fækka starfsfólki og opnun ij ármagnsmarkaða ætti að koma í veg fýrir vaxtahækkun. Ef allir markaðir svín- virka og mannfækkun í sjávarútvegi er veru- leg, gætu raungengið og kaupmátturinn jafnvel lækkað. En hvar er þá hagur al- mennings af hagræð- ingunni í sjávarútvegi? Það er reyndar fulls- nemmt að afskrifa hol- lensku veikina. Upp á Markús síðkastið hafa virtir Möller fræðimenn þóst fínna merki um að náttúru- auðlindir séu dragbítur á hagvöxt. Hægt er að gera sér í hugarlund hvernig svo gæti farið hér á landi án þess að raungengi hækkaði: Ef eignarkvótakerfið festist í sessi, er Það kemur óorði á eignarréttinn, segir Markús Möller í þriðju athugasemd sinni, ef stjórnmálamenn mis- beita honum til að hygla gæðingum á kostnað almennings. ekki ólíklegt að þeir útgerðarmenn sem fengu ókeypis kvóta selji frá sér talsverðan hiuta á næstu ára- tugum, sláum á fimm milljarða á ári næstu tuttugu árin, til að veija í neyslu og fjárfestingu erlendis. Ef alþjóðlegir fjármagnsmarkaðir vinna snurðulaust, breytir þetta engu um raungengi eða fjármögn- unarmöguleika atvinnurekstrar á íslandi, en ef færi á erlendu fjár- magni eru takmörkuð, verður erfítt fyrir fýrirtæki í öðrum greinum að keppa við sölumenn gjafakvótans og raunvextir verða hærri en ella. Fimm milljarðar á ári væru umtals- verð blóðtaka í samanburði við r LANCOME Kynning á haust- og vetrar- litunum í dag og á morgun. Spennandi litir - Spennandi kaupauki Bylgjan Hamraborg I4a - sími 564 2011 hreina fjárfestingu hér á landi und- anfarin ár, sem svaraði til svo sem 25 milljarða króna að meðaltali á árunum 1983-1994. Það mætti kalla herleiðingu fjármagnsmark- aðarins, ef afl snjöllustu íjárfest- anna færi í að púkka upp á viðbót- arfjármagn - kvótann - sem ekki þyrfti að íjármagna ef kvótinn væri almannaeign og leigður út með hagfelldum hætti. Hannes lýkur fimmtu grein með því að fullyrða að undirrót andstöð- unnar við gjafakvótakerfið sé öf- und. Hann hefur sjálfur viðurkennt að útgerðarmenn hafi ekkert sér- stakt unnið til þess viðbótargróða sem kvótakerfið skapar (t.d. „Há- degisverðurinn er aldrei ókeypis," bls 255). Er það öfund ef menn sækjast eftir einhveiju sem þeir telja sig eiga jafnan rétt til á við aðra eða jafnvel meiri? Setjum sem svo að maður sæki um stöðu, fái ekki en telji sig jafnvel eða betur að henni kominn en þann sem fékk. Ef hann notar sér málskotsrétt til æðra valds og nær stöðunni með harðfylgi þá þykir mér það lýsa einurð fremur en öfund. Það væri hins vegar öfundarverk ef hinn vonsvikni umsækjandi reri að því öllum árum að leggja stöðuna nið- ur. Þegar íslenskur almenningur gerir kröfu til kvótans, gilda sömu mælikvarðar. Höfundur er hagfræðingur. Helgarferð til Parísar 9. október frá kr. 24.990 J Barnakuldaslfór stærðir 20-34 verð frá 3.990 ,i,ir og góðir fyrstu skór 5 gerðir verð frá 3.590 smáskór í bláu húsi við fákafen sími 568 3919 Við höfum nú fengið viðbótargistingu í París 9. október á afbragðsgóðu tveggja stjörnu hóteli og getum nú boðið helgar- rispu á ótrúlegum kjörum. Hótel Campanile, öll her- bergi með baði, sjónvarpi, síma, nýtt hótel og smekklegt. Að auki bjóðum við úrval gististaða, spennandi kynnisferðir og íslenskir farastjórar Heimsferða tryggja þér ánægjulcga dvöl í heimsborginni allan tímann. Bókaðu strax og tryggðu bér tilboðsverðið Verð kr. 19.990 Flugsæti til Parísar með flugvallarsköttum, flug á mánudegi til fimmtudags. Verð kr. 24.990 M.v 2 í herbergi Hotel Campanile, 4 nætur, 9. október. Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 £ Smiðjuvegi 9 • Sími 564 1475* FERÐAMALARAÐ ÍSLANDS Ferðamálaráðstefna 9.- 10 október 1997 á Blönduósi Fimmtudagur 9. október 13:00 Setning ráðstefnunnar, Birgir Þorgilsson formaður Ferðmálaráðs 13:10 Ávarp heimamanns 13:20 Ávarp Halldórs Blöndal, samgönguráðherra 13:30 Flugleiðir til framtíðar, erindi Sigurður Helgason, forstjóri. 14:00 Fyrirspurnir. 14:30 Hvernig aukum við hlut okkar á Evrópumarkaði og sérstaklega á Þýskalandsmarkaði, Dieter Wendler, forstöðumaður Jón Karl Ólafsson, svæðisstjóri 15:10 Bandaríkjamarkaður, ástand og horfur Einar Gústavsson, forstöðumaður 15:30 Kaffihlé 16:00 Fyrirpurnir 16:45 Afhending umhverfisverðlauna Ferðamálaráðs Föstudagur 10. október 10:00 Fjórir sjálfstæðir fundir með frummælendum og fundarstjórum. a) Miðhálendið b) Svört avinnustarfsemi c) Arðsemi til endurnýjunar d) Nýsköpun 13:00 Niðurstöður heilsárskönnunar Ferðamálaráðs kynntar Oddný Þ. Óladóttir, verkefnisstjóri 13:30 Umræðurumniðurstöðurfundanna fjögurra 15:00 Kaffihlé 15:30 Almennar umræður 17:00 Fundarslit 19:30 Lokahóf Gistimöguleikar Innifalið f verði er gisting í tvær nætur, morgunverður og hádegisverður báða dagana. Glaðheimar, morgunverður á Sveitasetrinu. 7 sumarhús, 4-5 í hverju húsi. Verð pr. mann 7.900 Geitarskarð, morgunverður á staðnum. Bændagisting fyrir 10 manns. Verð pr. mann 7.900. Stóra Giljá, morgunverður á staðnum. Bændagisting í sumarhúsi fyrir 6 manns. Verð pr. mann 7.900. Hótel Dagsbrún Skagaströnd, morgunverður á staðnum. 4 herb. fyrir alls 6 manns. Verð pr. mann 7.900. Soffía Lárusdóttir gisting á Skagaströnd, morgunverður á Hótel Dagsbrún. 4 herb. fyrir alls 7 manns. Verð pr. mann 7.900. Húnavallaskóli, morgunverður á staðnum. 5 eins manns herbergi. 5 tveggja manna herbergi. Verð pr. mann 7.900. Flóðvangur, veiðihús i Vatnsdal, morgunverður á staðnum. 1 eins manns herbergi. 9 tveggja manna herbergi. Verð pr. mann 7.900. Steinkot, veiðihús í Vatnsdal, morgunverður á staðnum. 6 tveggja manna herbergi. Verð pr. mann 7.900. Ráðstefnugjald kr. 6.000.00 Skráning fer fram á skrifstofu Ferðamálaráðs íslands, sími 552 7488.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.