Morgunblaðið - 18.09.1997, Page 30

Morgunblaðið - 18.09.1997, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 Davíð Oddsson forsætisráðherra í ræðu í tilefni af 80 ára afmæli Verslunarráðs MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. NETIÐ MÖRGUM FINNST ekkert eðlilegra en netið eða alnetið sé kallað internet á íslenzkri tungu. Fyrir nokkrum árum hefði líklega fáum dottið í hug að slík málglöp væru það sem koma skyldi. Ástæða þessa er líklega sú að síðari hluti orðsins endar á íslenzka orðinu net og til að stytta sér leið og vera dálítið alþjóðlegur hefur þeim sem nota internetið þótt tilhlýðilegt að gleypa þetta alþjóðlega fram- andi orð inter - með húð og hári og svo er ætlazt til þess að þjóðin melti þetta framandi orð eins og ekkert sé. Samt dettur áreiðanlega engum í hug - og líklega kæmist eng- inn upp með það - að nota forliðinn inter í orðum eins og alþjóða-, fjölþjóða-, milliríkja- o.s.frv.; eða hvers vegna heita ekki alþjóðalög á íslenzkri tungu international lög? Nei, við höfum miklu betri orð eins og alþjóðalög, alþjóða- réttur, þjóðaréttur og hafa þau dugað vel fram að þessu. Þeir sem telja að forliðurinn inter- í samsetningunni inter- net dugi íslenzkri tungu ættu þá með sama rétti að beita sér fyrir því að talkerfi eða innanhússími heiti interphone, intersex sé notað um ánamaðka, interlift um lyftu á vöru- bílum og interview leysi samtöl eða viðtöl af hólmi. Það er engin afsökun þótt net sé i enda þessa orðskríp- is því að við höfum aldrei notað þennan forlið sem merkir víxl-, milli-, eða gagn- á íslenzku og þannig ætti netið að heita víxlnet eða millinet samkvæmt orðanna hljóðan. Al- net er að mörgu leyti ágætt orð yfir þetta fyrirbrigði, en netið ætti þó að duga; eða vefur. Þótt við notum framandi orð um það sem kallað er mótor- sport gegnir það allt öðru máli því að mótor er tökuorð sem hefur hlotið þegnrétt í íslenzkri tungu, svo og orðið sport. Mótorsport er þannig íslenzkt orð þótt það sé framandlegt að ýmsu leyti en sem tökuorð gagnast það með allt öðrum hætti en til að mynda internet. Mótor, þ.e. vél eða hreyfill, er gefið í íslenskri orðabók sem vont mál að vísu, orð eða merking sem forðast ber í íslenzku en samt nothæft, sport er gefið í fyrrnefndri orðabók sem íþróttir eða skemmtilegt viðfangsefni, athugasemdalaust; þ.e. íslenzkt orð ann- markalaust. Orðið mótorbátur hefur fullan þegnrétt í tung- unni þótt vélbátur standi okkur nær. Internet (tölvunet, skjánet; vefur) er af allt öðrum toga. Það er eins framand- legt og karlinn í tunglinu og á ekkert erindi inn í málsmenn- ingarhefð okkar. Við ættum að reyna að útrýma því þótt erfitt muni verða, svo vinsælt sem þetta orðskrípi er meðal alls kyns sérfræðinga og internationalista, en tungan mun að sjálfsögðu hafna því að lokum og þá mun það verða almannarómur að farið hefur fé betra. Vonandi verður það sem fyrst. Internet er hallærislegt orð í íslenzku; tilgerðarlegt; fram- andi. Það er allt og sumt(!) „VENJULEG SPITALA- STARFSEMI“ UNGIR læknar á sjúkrahúsum hafa sagt upp yfirvinnu sinni til að knýja á um kjarasamninga, sem meðal annars dragi úr vinnuálagi þeirra og færi vinnutíma til samræmis við ákvæði vinnuverndartilskipunar Evrópusam- bandsins, sem gildir hér á landi. Fram hefur komið að ungir aðstoðar- og deildarlæknar vinna 70-90 tíma vinnuviku og ganga oft 26 klukkustunda vaktir. Morgunblaðið hefur áður lýst þeirri skoðun að þessi vinnutími nái ekki nokkurri átt. Hann stofnar bæði heilsu læknanna sjálfra og heilsu og öryggi sjúklinga þeirra í hættu. Athyglisvert er að í Morgunblaðinu í gær viðurkennir framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Reykjavíkur að það komi honum ekki á óvart að á bráðadeildum sjúkrahúsanna vinni ungir læknar langt umfram þá 90 yfirvinnutíma á mánuði (20 á viku!) sem kjarasamningar kveða á um, jafnvel 150-200 tíma í mánuði. Jafnframt segir lækningaforstjóri Ríkisspítalanna að unglæknarnir séu mjög mikilvægur þáttur í starfsemi spítal- ans. „Það er ekki hægt að halda uppi venjulegri spítalastarf- semi eins og við sjáum hana ef þeir vinna ekki sína yfir- vinnu,“ segir hann. Ef það er „venjuleg spítalastarfsemi“ að þræla ungu fjöl- skyldufólki út í 90 eða jafnvel 150-200 yfirvinnutíma á mánuði og láta örþreytta starfsmenn taka ákvarðanir, sem geta varðað líf og dauða, er sannarlega pottur brotinn í starfsemi spítalanna. Markaðsbú- skapur efldur og mennta- kerfið bætt Davíð Oddsson forsætisráðherra segist sjá fyrir sér mikilvægar breytingar á íslenskri efnahags- og þjóðfélagsgerð á næstu árum. Markaðsbúskapur verði efldur, menntakerfíð bætt og opinber búskapur endurskipulagður ---------3»--------------- og muni staða Islands í alþjóðlegu umhverfí nýrrar aldar að verulegu leyti ráðast af því hvemig til takist. IRÆÐU sinni í tilefni aý 80 ára afmæli Verslunarráðs íslands í gær fjallaði forsætisráðherra um stöðu íslands á nýrri öld í nýju alþjóðlegu umhverfi. Sagði hann að staða íslands á alþjóðavettvangi væri almennt hagstæð. íslendingar eigi náin samskipti við mörg ríki og séu aðilar að helstu alþjóðastofnunum. Aðgangur að mikilvægustu mörkuð- um sé tryggður með ágætum hætti og í Evrópu, okkar langstærsta mark- aði, sé hagsmunum íslands vel borgið með EES-samningnum. Engir brýnir hagsmunir kalli á breytingu í þeim efnum og þótt aðild að Evrópusam- bandinu sé auðvitað ekki útilokuð séu flestir hér á landi sammála um að aðild myndu fylgja stórfelldir ann- markar. Aðild verði aukinheldur enn minna aðlaðandi en ella meðan þróun- in í ESB sé svo mjög í átt til miðstýr- ingar sem raun beri vitni. Davíð sagði að ísland ætti að not- færa sér sitt sérstaka samband við Evrópuríkin og bandalag þeirra og ekki iáta þar við sitja, heldur samnýta þá möguleika sem þar gefist með nánum tengslum í austur og vestur. „Við eins og svo margir aðrir kveinum yfír reglugerðarfargani Evrópusam- bandsins. Við eigum að láta af slíkum kveinstöfum. Þess í stað eigum við að aflúsa okkur sjálf í reglugerðarmál- um og forðast að apa reglugerðarár- áttuna eftir. Við höfum sérstöðu og eigum að nýta okkur hana. Það gefur ekki fullkomlega rétta mynd af mögu- leikum okkar að segja að við eigum að vera gagnvart Evrópusambandinu eins og Hong Kong gagnvart öðrum hlutum Kína, en það gefur heldur ekki alranga mynd af möguleikun- um,“ sagði Davíð. Hann vék síðan að fyrirætlunum Evrópusambandsins um sameiginlega mynt árið 1999 og sagði að ríkis- stjórnin myndi á næstunni skipa nefnd til að fjalla um áhrif myntsamstarfsins á íslenskt efnahagslíf í sam- ræmi við ályktun Alþingis frá því í vor. Það sé ljóst að engin þjóð verði þátttakandi í myntsamstarfinu nema hún sé full- gildur aðili að Evrópusambandinu. Mestu skipti á næstu árum hvað varð- ar peninga-, og gengismál að við sönn- um fyrir sjálfum okkur og öðrum að við getum fylgt sjálfstæðri stefnu í þessum málum sem tryggi stöðug- leika, vöxt og velferð. Þjóðir háðar hver annarri Davíð sagði að þróunin í alþjóða- málum væri um margt íslenskum hagsmunum til framdráttar til lengri og skemmri tíma iitið. „Þjóðir verða sífellt háðari hver annarri. Það gerir stærri ríki háð alþjóðasamstarfi langt umfram það sem áður var og leiðir til aukins alþjóðasamstarfs_ og fleiri og öflugri alþjóðastofnana. í kjölfarið festast enn frekar í sessi venjur og ieikreglur, sem styrkja stöðu hinna smærri í alþjóðasamfélaginu. Örar framfarir í fjarskiptum og tölvutækni minnka óðum kostnað sem fylgir fjar- lægð og miklu ódýrara og fljótvirkara verður að koma á framfæri upplýsing- um eða afla þeirra. Allir þessir þætt- ir hafa þau áhrif að minnka muninn á stórum og smáum og á það jafnt við um ríki, fyrirtææki og aðra sem starfa á alþjóðavettvangi.“ Davíð bætti því við að eitt athyglis- verðasta einkennið í þróun alþjóða- mála nú væri hvernig þau mótuðust í auknum mæli fyrir tilstilli miklu fleiri aðila en ríkja og stofnana þeirra og eftir mun fleiri leiðum en diplóma- tískum og pólitískum. Dæmi um já- kvæð áhrif þessarar þróunar fyrir hagsmuni okkar væri hversu um- hverfismál hefðu komist ofarlega á dagskrá. Það styrkti ferðaþjónustu og útflutning og ætti þátt í því að gera orkufrekan iðnað hér aðlaðandi fyrir erlenda fjárfesta. „Við þurfum hins vegar að gæta þess að við tökum jafnan ríkt tillit til umhverfissjón- ar;miða við ákvarðanir í þessum efn- um. Vel varðveitt umhverfi getur orð- ið okkar dýrmætasta fjárfesting, þeg- ar fram líða stundir,“ sagði Davíð. Dæmi um neikvæð áhrif þessarar þróunar fyrir okkur væru hvalamálið og afskipti umhverfisverndarmanna af fiskveiðum. Staða íslands sterk Davíð gerði einnig fjárfestingu í orkufrekum iðnaði að umtalsefni og sagði að hún hefði aukist jafnt og örugglega á síðustu misserum. Það gerðu sér ekki allir grein fyrir þessum vexti, en með stækkun álversins í Straumsvík, þriðja ofni Járnblendiverksmiðjunnar og byggingu álvers Norður- áls næmi orkunotkunin 2.600 GW stundum á ári. Til samanburðar hefði verk- smiðja Atlantsáls sem mikið hefði verið í umræðunni fyrir nokkrum árum átt að nota 3 þúsund gígawatt- stundir á ári. Ekki sé óvarlegt að álykta að á næstu fáeinu árum muni eðlileg stækkunarþörf þessara fyrir- tækja leiða til notkunar á um 3 þús- und gígawattstundum á ári til viðbót- ar. Davíð sagði að það færi ekki á milli mála að staða íslands í saman- burði við aðrar þjóðir sem hefðu náð langt í efnahagsmálum væri góð. Helstu mælikvarðar á efnahag og lífs- kjör sýndu þetta glöggt. í því sam: bandi mætti benda á fjögur atriði. í fyrsta lagi hefði ísland verið í 5. DAVÍÐ Oddsson forsætisráðhern ára afmæli Versluna: sæti ríkja innan OECD hvað snertir landsframleiðslu á mann árið 1995. Síðan þá hefði hagvöxtur hér verið meiri en í flestum öðrum ríkjum og því spáð að svo verði áfram og fyrir vikið megi búast við að þessi saman- burður verði okkur jafnvel enn hag- stæðari á næstu árum. í öðru lagi hefði ísland lent í 7. sæti á lista Alþjóðabankans yfir auð- ugustu þjóðir heims. Listinn væri byggður á lauslegu mati á heildar- eignum á mann og væri tekið tillit til mannauðs og náttúruauðlinda eins og við væri komið auk fjármunaeign- ar. í þriðja lagi uppfyllti ísland svo- nefnd Maastricht-skilyrði um verð- bólgu, vexti og afkomu og skulda- stöðu hins opinbera og í fjórða lagi hefði lánshæfiseinkunn íslands verið hækkuð í tvígang að undanförnu af alþjóðlegum matsfyrirtækjum. „Á þessum grunni verðum við að byggja á nýrri öld. í því felst einkum að viðhalda stöðugleikanum og hag- felldu rekstrarumhverfi fyrir atvinnu- lífið. Reynslan sýnir að jafnvægis- stefna í ríkisfjármálum og peninga- málum er öruggasta leiðin að þessu markmiði. Slík stefna hlýtur því að móta hagstjórn á nýrri öld.“ Umbætur á markaðsgrunninum Davíð vék einnig að því að hvaða leyti við stæðum höllum fæti í samanburði við aðrar þjóðir og sagði að flestar athuganir bentu til þess að íslenskur þjóðarbúskapur væri skemmra á veg kominn í —~ að virkja markaðsöflin en Velfero hjá öðrum þjóðum í íð þa fremstu röð, þótt miklar endur! breytingar hefðu orðið í jeg, þessum efnum á síðustu árum. Fyrir vikið væru framleiðni og afköst minni en eðlilegt væri að gera kröfu um og því væri brýnt að gera frekari umbætur á markaðs- grunni í íslenskum þjóðarbúskap. Nú væri unnið að slíkum umbótum í fjármálastarfsemi og jafnframt væri verið að taka fyrstu skrefin á fleiri sviðum svo sem í orkumálum og fjarskiptum. Davíð sagði að einnig væri ástæða til að vekja sérstaka athygli á tveim- ur öðrum málaflokkum. Ánnars vegar væri ljóst að bæta þyrfti menntakerf- ið, en menntunin væri öflugasta tæk- ið til að nýta sér þá möguleika sem byðust í breyttum heimi og við yrðum Umhverfið getur orðið dýrmætasta fjárfestingin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.