Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 35
QIQAJHHUOHOM MORGUNBLAÐIÐ T6ei HUHMUT4H8 .81 HUOAQUTMMIQ FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 35 • AÐSENDAR GREINAR Búsetulandslag á íslandi Á UNDANFÖRN- UM áratugum hefur áhersla á umhverfis- og náttúruvemd vaxið hröðum skrefum um heim allan, samfara aukinni þekkingu. í fyrstu fólst náttúru- vemd nær eingöngu í sértækri friðun, það er friðun ákveðinna teg- unda og/eða ákveðinna svæða. Mikil áhersla var lögð á að taka frá og friða ósnortin eða lítt snortin svæði og halda þannig eftir sýn- ishomum af ýmsum náttúmfarsgerðum fyr- Anna Guðrún Þórhallsdóttir ir komandi kynslóðir. Fljótlega varð mönnum ljóst að ekki einungis „ósnortin" náttúra var að hverfa víða í heiminum. Ýmsar náttúmfars- gerðir sem beinlínis höfðu verið skapaðar af manna völdum vom einnig á fallanda fæti, einkum vegna breyttrar landnýtingar af völdum breyttra búskaparhátta. Á Norður- löndunum og í Bretlandi var nátt- úmfar víða að breytast mjög hratt, ekki vegna ofnýtingar heldur, þvert á móti, vegna vannýtingar - og/eða breyttrar nýtingar. í S-Noregi stóðu menn frammi fyrir því að með mik- illi fækkun beitardýra tók skógurinn yfir á stómm svæðum. Beitanjóðrin („beitekolle") sem em mjög teg- undafjölbreytt vistkerfi vom óðum að hverfa og fjölmargar tegundir plantna og dýra sem áttu sitt bú- svæði í beitanjóðmnum eða á jaðar- svæðum þeirra vom að komast í útrýmingarhættu. í Bretlandi var sama upp á teningnum. Limgerðin (hedges), sem einkenna landslags- sýnina í Englandi og S-Wales og einnig em sérstaklega tegundaflöl- breytt vistkerfi, vom að hverfa vegna þess að ekki var lengur þörf á þeim til að aðgreina beitilönd bænda. Fjölmörgum tegundum, sem eiga sitt búsvæði í og við limgerðin, fækkaði og nokkrar þeirra komust í útrýmingarhættu. í Skotlandi var gróðurfar skosku heiðanna að breyt- ast, aðallega vegna minnkaðs beitar- álags, og tijágróður farinn að stinga sér niður í mikilli óþökk skoskra náttúmvemdarsinna. Náttúmvemd á Norðurlöndunum og í Bretlandi hefur því um nokkurt skeið ekki einungis snúist um að friða afmörk- uð ósnortin svæði heldur og ekki síður snúist um að viðhalda svoköll- uðu kulturlandskap eða culture landscape. í þessum löndum hefur einnig áherslan í nátt- úmvemd færst frá sér- tækum friðunaraðgerð- um yfír í almennar og fýrirbyggjandi aðgerðir ásamt upplýsingamiðl- un til almennings. Hugtakið „kúltúr- landslag" hefur lítið sem ekkert komið inn í umræðuna um nátt- úmvemd hérlendis. „Kúltúrlandslag“ hefur verið þýtt sem menn- ingarlandslag, mann- vistarlandslag, byggð: arlandslag eða búsetulandslag. í orðunum felst mismunandi skilning- ur á hinu erlenda hugtaki kultur- landskap eða culture landscape. Menningarlandslag, mannvistar- landslag og byggðarlandslag skil- greina hugtakið mjög þröngt með beina tilvísun í mannvistarleifar. Hugtakið búsetulandslag er víðara og nær frekar til áhrifa búsetunnar og landnýtingarinnar á landslag og náttúmfar. í nýendurskoðuðum lögum um náttúmvemd, lögum nr. 93/1996, er hugtakið „kúltúrlandslag“ ekki að finna og í 1. gr. laganna er tek- ið fram að „lögin eigi að tryggja eftir föngum þróun íslenskrar nátt- úm eftir eigin lögmálum, en vemdun þess sem þar er sérstætt eða sögu- legt“. í 2. gr. er náttúmvemd- arsvæði skilgreint sem „friðlýst svæði, þ.e. náttúmvætti, friðlönd, þjóðgarða og fólkvanga, svo og svæði og náttúmmyndanir sem em á náttúruminjaskrá". Í seinni grein- um laganna er fjallað m.a. um fram- kvæmd laganna og ná þau nær ein- göngu til friðlýsinga ýmiskonar þar sem landsvæði em friðuð sem mikil- vægt er að „varðveita sakir sérstaks landslags, gróðurfars eða dýralífs" og gerð grein fyrir „hversu víðtæk friðunin er“ (28. gr.). Ekki er gert ráð fyrir þeim möguleika í lögunum að ákveðin nýting geti ekki aðeins verið æskileg, heldur einnig nauð- synleg til að viðhalda ákveðinni landslagsgerð og/eða náttúmfari. í heild sinni standa nýendurskoðuð lög um náttúmvemd á sama meiði og gömlu náttúruvemdarlögin frá 1971, með aðaláherslu á sértækar friðunaraðgerðir. Mikilvægi þess að vinna að náttúmvemd með tilvísan HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ ^ Viitu auka afköst í starfi með margföldun á lestrarhraða? ^ Viltu bjarga næstu prófum með glæsibrag? Viltu njóta þess að lesa mikið af góðum bókum? Ef svar þitt er jákvætt skaltu skrá þig strax á næsta hrað- lestramámskeið sem hefst þriðjudaginn 30. september. Skráning er í síma 564-2100. IHRAÐUSSTTRARSKÓLJNN Ef forfeður okkar hefðu haft hrossið sem aðal- húsdýr, en ekki sauð- kindina, liti ísland allt öðru vísi út í dag, segir Anna Guðrún Þór- hallsdóttir. Þá væru skógar án efa mun stærri og útbreiddari en nú er. í almenn ákvæði, t.d. hvað varðar alla nýtingu lands og malartekju, með fyrirbyggjandi aðgerðum í tengslum við alla skipulagsvinnu og með upplýsingum til almennings er ekki enn að finna í íslensku náttúm- vemdarlögunum. Breytingartillaga frá Hjörleifi Guttormssyni, Kristínu Ástgeirsdóttur og Gísla S. Einars- syni sem gerði ráð fyrir að ákveðnar landslagsgerðir gætu notið almennr- ar vemdar náði ekki fram að ganga, en hefði verið stórt skref í átt að nútímalegri löggjöf um náttúm- vemd. A síðasta Náttúmvemdar- þingi var lögð fram skýrsla fráfar- andi Náttúmverndarráðs um stefnu í náttúmvemd. Þar kemur fram áhersla á almennar aðgerðir í nátt- úmvemd og bent á að biýnt sé að setja almennar lagareglur um lands- lagsvernd sem taki einnig til byggðalandslags. Þar kemur fram sú skoðun „að markmið landslags- vemdar sé að nokkm leyti fólgin í því að varðveita hið uppmnalega" og „að varðveita stórar landslags- heildir sem enn em að mestu óskemmdar" og „að bæta úr mistök- um 20. aldar“. Að það geti verið eftirsóknarvert og jafnvel æskilegt að varðveita landslagsheildir sem hvorki era uppmnalegar né „óskemmdar", landslagsheildir sem myndu falla í flokk „kúltúrlands- lags“ kemur ekki fram í skýrslunni. En er þá eitthvað til á íslandi sem gætið fallið undir hugtakið „kúltúr- landslag"? Sé hugtakið skilgreint á svipaðan hátt og hjá nágrannaþjóð- um okkar, er trúlega óvíða sem búsetulándslag er jafn útbreitt og á íslandi. Áhrif landnýtingar er að finna um allt land, í mismiklum mæli. Sums staðar em áhrifin þó hverfandi eins og á Homströndum. Sauðfjárbeitin hefur þar að sjálf- sögðu haft langvíðtækust áhrif og án sauðíjárbeitarinnar í gegnum ald- imar liti ísland öðm vísi út í dag. Ekki einungis hefði landeyðingin orðið minni, og landið væri almennt betur gróið, heldur væri gróðursam- setningin allt önnur. Við hefðum t.d. mun meira af skóg- og kjarrlendi, birki og víði. En sauðfjárbeit er ekki það sama og t.d. hrossabeit. Ef forf- eður okkar hefðu haft hrossið sem aðalhúsdýr, en ekki sauðkindina, liti ísland allt öðm vísi út í dag. Þá væm skógar án efa mun stærri og útbreiddari en nú er. Og hvað ef íslensku svínin hefðu ekki dáið út á 15. öld? Stór svínastofn í landinu hefði breytt miklu um ásýnd lands- ins. Áhrif beitarinnar em víðtækari og almennari en margan gmnar og mjög lítið beitarálag þarf til að ger- breyta ásýnd landsins. Sjaldnast em hins vegar óbeitt svæði til sam- anburðar því sem blasir við. Lang- tíma beitartilraun á Auðkúluheiði í A-Húnavatnssýslu sýndi að við nokkuð minnkaða sauðfjárbeit kom hávaxinn gulvíðir fljótlega inn í land- ið. Með þjóðargjöfínni 1974 var hólf <■* upp af Þingvöllum og inn á Uxa- hryggi friðað að mestu fyrir beit. Fléttur em famar að þekja melana og mynda skán sem verður undir- staða frekari gróðurframvindu sem mun breyta ásýnd landsins. Er því þá þannig varið að ís- lenskt búsetulandslag sé ekki eftir- sóknarvert að varðveita - að ís- lenskt búsetulandslag sé „land í tötrum" eða „land sundurgrafið skurðum"? Nei, því er alls ekki þannig varið. Vissulega er búsetu- landslag okkar víða landslag ofbeit- ar í aldaraðir, þó sérstaklega síð- ustu 100 ára og landslag fram- ræslu. En beit er ekki alfarið slæm, þvert á móti er hún víða nauðsynleg og bætandi eins og nágrannaþjóðir okkar hafa áttað sig á. Og hún getur líka verið nauðsynleg og bætandi á íslandi ef rétt er að verki staðið. Alfriðuðu náttúmlegu birki- skógarnir okkar em ekki sérlega aðlaðandi né sérlega aðgengilegir vegna þéttleika og þar fá fáar plönt- ur þrifist í dimmum skógarbotnin- um. Hæfílega beittur skógur er mun meira aðlaðandi, aðgengilegri og tegundafjölbreyttari eins og kom fram í tilraun í Hallormsstaðarskógi fyrir allmörgum ámm. Friðunarað- gerða, sérstaklega fyrir beit, er vissulega þörf á stómm svæðum og eina raunhæfa lausnin til að ná upp gróðurþekjunni. En landnýting- in getur einnig verið af hinu góða eins fyrrnefnd dæmi sýna. Við þurf- um því að viðurkenna að íslenskt búsetulandslag er ekki aðeins til, heldur getur einnig reynst nauðsyn- legt að standa vörð um það. Höfundur er landnýtingarfræðingur. Oik<?ypii:$ uippssíniiinig llníeimieís eíf þu kemiiuir nn&ð foil’wmís til okk'air a K,roik h.a l:s 6 0'keypiiis gieisiadi:s;Kuir þlgir H ri nigdiu i smm.a 7'5í0 5000 /l\ islandia intemet * KrnLitii'.í; j Tlf, fflöl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.