Morgunblaðið - 18.09.1997, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997
AÐSEiMDAR GREIIMAR
Er þetta hægt, Finnur?
Opið bréf til viðskiptaráðherra
Benedikt
Brynjólfsson
MER ER sagt að þú
sért yfirmaður trygg-
ingafélaganna í land-
inu, - það er að segja
að starfsemi þeirra
heyri undir þig sem ráð-
herra viðskipta. Eg
þurfti að vísu að hringja
í þijú ráðuneyti áður en
ég fékk úr því skorið
að svo væri, þannig að
ég gauka að þér uppá-
stungu um námskeið
fyrir starfsfólk ráðu-
neyta um leið og ég sný
mér að alvarlegri mál-
um.
Ástæða þess að ég
sendi þér þetta tilskrif
er að ég varð fyrir því sem mér
fínnst vera bæði óþægileg lífs-
reynsla og niðurlægjandi fyrir mig
sem persónu með bærilega sjálfs-
virðingu.
Þannig er að mér varð það á,
eftir 32 ára sjómennsku á togurum
og fiskibátum, að slasast við vinnu
mína úti á sjó. Eftir mikið japl, jaml
Er það sæmandi, spyr
Benedikt Bryniólfs-
son, að fólk sé metið
og afskrífað eins og
bílar, skrifstofuáhöld
eða hvaða annað
lausafé sem er?
og fuður, mála'.engingar og lögfræð-
istagl fór svo að mér voru boðnar
bætur samkvæmt stuðlum nýju
slysabótalaganna sem þið á löggjaf-
arsamkundunni - fulltrúar fólksins,
þú veist - samþykktuð; ekki þó til
hagsbóta fyrir þetta fólk að því er
virðist heldur til að tryggja trygg-
ingarfélögin gegn því að þurfa að
greiða því fólki sem iðgjöld hafa
verið greidd af réttmætar bætur við
slysfarir.
Ég semsé komst að því að ég er
afskrifaður. Rétt eins og gamalt
bílhræ. Afskrifaður. Eftir stöðlum
sem áætla hve hugsanlega væri
hægt að nota fimmtíu og sex ára
gamlan mann lengi enn. Þennan
mig sem er alinn upp á síðutogurum
og smábátum og hefur aflað þjóðar-
búinu tekna með streði sínu frá 13
ára aldri. í tilboði til mín um lúkn-
ingu málsins frá Sjóvá-Almennum
er í E-lið frádráttur vegna aldurs
skv. 9. gr. 40% af slysabótum. Þarna
er tekið eitthvert útreiknað meðaltal
og miðað við að hægt sé að nota
mig til 65 ára aldurs. Þá er ég semsé
orðinn verðlaus og lítið annað að
gera en að trilla mér upp í Vöku
eða Sorpu samkvæmt þessari sið-
fræði tryggingalaga.
Upp vaknar spurning: Hvað hefði
gerst ef ég hefði verið 9 árum eldri?
Hefði þá verið boðið upp á 80% frá-
drátt frá örorkubótum vegna ald-
urs; maðurinn væri
hvort eð er ónýtur, orð-
inn 65 ára gamall? Eða
hefði tryggingarfélag-
ið einfaldlega losnað
að fullu við að greiða
fullnýttum sjómanni
bætur?
Mér fínnst þetta
vera hreint og klárt
brot á mannréttindum.
Og mig grunar að
tryggingafélögin
treysti á að þegar fólk
er búið að tóra á slysa-
dagpeningum langtím-
um saman - í mínu
tilfelli eitt ár - sé ijár-
þörfin orðin slík að
menn kyngi sjálfsvirðingunni og
taki hvaða smánartilboði sem er.
Raunar er það svo í mínu tilfelli að
Sjóvá-Almennar hafa farið vægast
sagt fijálslega með þá upphæð sem
félagið átti að greiða mér í launatap
samkvæmt staðgengilsreglu og út-
reikningar þess fullkomlega óviðun-
andi.
í örorkumati mínu er tekið fram
að ég muni aldrei framar verða fær
um að stunda sjómennsku og hæpið
að ég verði fær um að sinna öllu
því sem uppá getur komið í sam-
bandi við rútuakstur (ég var búinn
að aka rútum hjá Guðmundi Jónas-
syni í 11 ár þegar ég álpaðist á sjó-
inn aftur). Samt er örorka mín ekki
metin nema 15% læknisfræðileg og
10% varanleg. Einhvern veginn
fínnst mér ekki vera fullkomið sam-
ræmi í þessu.
Ég sætti mig ekki við þessi lög
og er ákveðinn í að láta það ganga
í gegnum allt dómskerfið. Og dugi
það ekki skal það fyrir Mannrétt-
indadómstólinn í Strassburg; það
er næsta víst að þessi lögleysa stenst
ekki skoðun þar. Hún fellur. En ég
er hreint ekki einn um að vera
óánægður með þessi nýju lög, eins
og þú sem ráðherra tryggingamála
veist áreiðanlega eins vel og ég. Þú
fylgist auðvitað eins vel með þessum
málaflokki og bankamálum og stór-
iðju. í gangi er í dómskerfínu fjöld-
inn allur af málum sem kosta stórfé
en hefði verið hægt að komast hjá
með vitrænum og heiðarlegum lög-
um um slysabætur.
Og nú spyr ég þig, ráðherra
tryggingamála, Finnur Ingólfsson:
Finnst þér það vera sæmandi fyrir
fískveiðiþjóðina Island að sjómenn
hennar - og raunar aðrir þegnar
Brandtex fatnaður
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433
líka - skuli vera metnir og afskrif-
aðir á sama hátt og bílar, eða skrif-
stofuáhöld eða hvaða annað lausafé
sem er? Ætlar þú að una svona lög-
um? Eða ætlar þú, í anda þess
manngildismats sem þið flokkurinn
þinn segist setja í öndvegi, að beita
þér fyrir því að þarna verði gerð
leiðrétting á? Þannig að andi laga
um slysabætur verði sá að þau séu
í raun ætluð til hagsbóta fyrir þá
sem lenda í þeim hremmingum að
slasast en ekki til að fírra þau trygg-
ingafélög greiðsluskyldu sem með
glöðu geði hafa tekið á móti trygg-
ingaiðgjaldi hinna slösuðu?
Og svaraðu mér nú á skiljanlegu
máli Finnur, án málalenginga þann-
ig að allir geti skilið.
Höfundur er fyrrv. sjómaður og
bllstjóri.
Scooterúlpa
Verð 4.990,
Blass úlpa
Verð 6.990.
vý y, 'v '' '
Ardley úlpa
Verð 6.990. A
Lf
Tyron úlpa
Verð 9.990.
Vatnsheld dúnúlpa.
Denver úlpa
Verð 12.900.
Vatnsheld dúnúlpa
Sendum í póstkröfu. Nýtt kortatímabil. Kringlan, s. 581 1944. Laugavegi 95, s. 5521844.
KVÖUÉÉÓURl
KOMVVOGS#
Snælandsskóii - 200 Kópavogur
TUNGUMALANAMSKEIÐ
Kennt er í byrjenda-, framhalds- og talæfingaflokkum.
ENSKA - DANSKA - NORSKA - SÆNSKA - FRANSKA
- ÍTALSKA - SPÆNSKA - ÞÝSKA - KATALÓNSKA -
ISLENSKA fyrir útlendinga
og fjöldi annarra námskeiða.
■nnritun í símurn:
564 1527,564 1507 og 554 4391 kl. 17.00-21.00.