Morgunblaðið - 18.09.1997, Page 40

Morgunblaðið - 18.09.1997, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 MIIMNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Ástkær tengdamóöir mín og amma okkar, GUÐBJÖRG GUÐNADÓTTIR, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík á morgun, föstudaginn 19. september, kl. 13.30. Esther Gunnarsson, Gunnar Guðnason, Helga Magnúsdóttir, Helgi Guðnason, Elín Guðjónsdóttir, Kristinn Guðnason, Harpa Dóra Guðmundsdóttir. Útför HERMANNS G. JÓNSSONAR lögfræðings, Lindargötu 61, Reykjavík, er lést á Vífilsstöðum sunnudaginn 14. sept- ember, fer fram frá Prestsbakkakirkju á Síðu laugardaginn 20. september kl. 14.00. Sætaferðir frá BSl' með Austurleið kl. 9.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Magdalena Ingimundardóttir. + Hjartans þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu okkar, GUÐNÝJAR EIRÍKSDÓTTUR, Melhaga 5, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild B4 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fyrir frábæra umönnun og hlýhug. Þórður Pálsson, Elín Þórðardóttir, Reinhold Kristjánsson, Steinunn Þórðardóttir, Hrafn Bachmann, Aðalsteinn Þórðarson, Guðrún Jóhannesdóttir, Kjartan Þórðarson, Helga Kr. Einarsdóttir, Gunnar Þórðarson, Hafdís Kjartansdóttir, Páll Þórðarson, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför vinar míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS V. HELGASONAR frá Bjargi, Vopnafirði, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi. Ingibjörg Daníelsdóttir, Helgi F. Jónsson, Fríða Friðgeirsdóttir, Sigurgeir Þ. Jónsson, Auður Valgeirsdóttir, Bergvin F. Jónsson, barnabörn og barnabarnabarn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓSKARS ÓLAFS VIGFÚSSONAR, Blöndubakka 3. Þóra Óskarsdóttir, Pétur Yngvason, Sveinn Óskarsson, Guðríður Halldórsdóttir, Örn Óskarsson, Sjöfn Svansdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. HALLDOR BRAGASON + Halldór Bragason fæddist í Reykjavík 18. nóvember 1945. Hann lést á heimili sínu 4. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaða- kirkju 11. september. Hann afi Dóri er dáinn og farinn upp til Guðs. Nú finnur hann afi Dóri ekki lengur til í handleggnum, svo hann getur spilað golf eins og honum fannst svo skemmtilegt, bara að hann passi nú að golfkúlurnar detti ekki niður á okkur. Fyrstu árin mín átti ég heima hjá afa Dóra og ömmu Tobbu. Oft lenti það á afa Dóra að passa mig þegar mamma var að vinna. Þá urðum við mjög náin, og ég sakna hans mikið. Ég vil þakka afa Dóra fyrir hvað hann var alltaf góður við mömmu mína og reyndist henni alltaf svo vel, ég veit að hún mun hjálpa mér að muna eftir þér. Hvíl þú í friði. Þín, Sunna Björg. Þegar ég var 15 ára, byrjaði ég ásamt nokkrum vinum og félögum úr Laugalækjarskóla að æfa og spila handknattleik með Þrótti. Fljótlega fórum við að fylgjast með meistara- flokki félagsins, enda stefndi hugur okkar flestra þangað. Einn af lykil- mönnum meistaraflokks Þróttar á þeim tíma var Halldór Bragason, þá 22 ára. Nokkrum árum síðar vorum við vinirnir farnir að spila með meist- araflokknum og þrátt fyrir sjö ára aldursmun myndaðist sérstök vin- átta með mér, Jóa Frímanns og Dóra Braga. Dóra var það gefið að hann náði góðum árangri með allt, sem var kringlótt og er einn af fáum, sem keppti í handbolta, fótbolta og körfubolta. Körfuboltann lagði hann þó fljótlega á hilluna, sem keppnis- íþrótt. Dóri var burðarás meistara- flokks Þróttar í knattspyrnu til margra ára og það voru ófáar sókn- ir andstæðinganna, sem brotnuðu einmitt á honum. Einnig var maður hissa á því hvað hann var fljótur að ná góðum árangri í golfíþróttinni. Sumarið 1982 fórum við, þ.e. Dóri, Jói, ég og Haukur Þorvalds ásamt fjölskyldum okkar, til Ibiza og vorum þar í þrjár vikur. Við vor- um þarna í júlí og lentum í hita- bylgju hluta af tímanum. Dóri og Jói notuðu yfirleitt heitasta tíma dagsins til að tefla og er mér alltaf minnisstætt að horfa á þá sitja renn- sveitta við taflmennskuna. í þessari sömu ferð upplifði maður fyrst ná- lægðina við úrslitakeppni HM í knattspyrnu og er ólýsanleg sú stemmning, sem var í hópnum þegar við horfðum á úrslitaleikinn í beinni útsendingu. Það sem einkenndi helst leikstíl Dóra í handboltanum var það að hann kom ávallt þannig að vörn andstæðinganna að þeir héldu að hann væri hættur við að sækja að þeim. Man ég eftir mörgum tilvikum þar sem þjálfarar mótheijanna reittu hár sitt eftir að Dóri hafði skorað eða gefið á línuna og þjálfar- arnir kölluðu til sinna manna að þeir ættu að taka þennan mann betur, hann hætti aldrei, hann kæmi alltaf aftur. Því miður lá það ekki fyrir Dóra að koma aftur úr þessari baráttu sinni við þennan erfiða sjúkdóm. Ég og fjölskylda mín ásamt öllum Þrótt- urum sendum Þorbjörgu, Dóru og fjölskyldum þeirra innilegustu sam- úðarkveðjur á þessari sorgarstundu. Sveinlaugur Kristjánsson. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasima 5691115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíð- um. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallinubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, STEFÁN JÓHANNSSON, Grundargötu 20, Siglufirði, verður jarösunginn frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 20. september kl. 14.00. Sigga Sól, börn, tengdabörn og barnabörn + Innilegar þakkir til allra, sem heiðruðu minningu systur okkar, GUÐRÚNAR ÞÓRÐARDÓTTUR frá Ljósalandi, Vopnafirði, Stigahlíð 28, Reykjavík. Fríða Þórðardóttir, Helgi Þórðarson, Guðbjörg Þórðardóttir, Steingrímur Þórðarson. Upplýsingar í símum 562 7575 & 5050 925 < o 5 í HOTEL LOFTLEIÐIR. H I t ( t A N D A I R MO T I i « Glæsileg kaffihlaðborð FALLEGIR SALIR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA Afmælis- o g minn- ingar- greinar MIKILL fjöldi minningar- greina birtist daglega í Morg- unblaðinu. Til leiðbeiningar fyrir greinahöfunda skal eftirfarandi tekið fram um lengd greina, frágang og skilatíma: Lengd greina Um hvern einstakling birt- ist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar minningargreinar um sama einstakling tak- markast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, — eða 2200 slög (um 25 dálksenti- metrar í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Formáli Æskilegt er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dá- inn, um foreldra hans, systk- ini, maka, og börn, skóla- göngu og störf og loks hvað- an útför hans fer fram. Ætl- ast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í greinunum sjálfum. Undirskrift Greinarhöfundar eru beðn- ir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinun- um. Frágangur og móttaka Mikil áherzla er lögð á að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í text- amenferð og kemur í veg fyr- ir tvíverknað. Þá er enn- fremur unnt að senda greinar í símbréfi - 569 1115 - og í tölvupósti (minning- @mbl.is). Vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Skilafrestur Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstu- dag. í miðvikudags-, flmmtu- dags-, föstudags- og laugar- dagsblað þarf greinin að ber- ast fyrir hádegi tveimur virk- um dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skila- frestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Erfidrykkjur H H H H H H H H H H H H H H H H H H H u Sími 562 0200 rriixixxxxxil

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.