Morgunblaðið - 18.09.1997, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 45
GÍSLI Jón með regnbogasilunginn sem var sá fimmtíuþúsund-
asti sem veiddist í Reynisvatni og hluta verðlaunanna sem
hann fékk frá rekstraraðilum Reynisvatns.
Verðlaun fyrir
þriggja punda sil-
ung úr Reynisvatni
ÞRIGGJA punda regnbogasilung-
ur sem Gísli Jón Bjarnason frá
Akranesi veiddi í Reynisvatni síð-
astliðinn laugardag reyndist vera
fimmtíuþúsundasti fiskurinn sem
veiðst hefur í vatninu frá upphafi
rekstrar 1993.
í viðurkenningarskyni hlaut
Gisli Jón verðlaun að verðmæti
um 200 þúsund krónur. Þau voru
tveir laxveiðidagar i Laxá í kjós
sumarið 1998 undir leiðsögn As-
geirs Heiðars, fluguhnýtinga-
námskeið að Reynisvatni í vetur,
flugukastnámskeið hjá Vilbergi
Haukssyni næsta vor, fluguveiði-
stöng og hjól að verðmæti 50.000
krónur, veiðijakki, hattur og háf-
ur að verðmæti 25 þúsund krón-
ur, sérsaumaðar vöðlur frá Skó-
vinnustofunni Dunhaga í Reykja-
vík og loks kvóti í Reynisvatni
upp á 50 fiska á fiskveiðiárinu
sem hefst næsta sumar.
Hildur Haraldsdóttur fram-
kvæmdastjóri Laxins hf.,
rekstraraðila Reynisvatns, veitti
Gísla Jóni verðlaunin en hann
veiddi fiskinn á „svartan nobler
6.“
UMHVERFI minnisvarðans um Matthías Jochumsson.
Minnisvarði Matthías-
ar Jochumssonar
í SUMAR var gengið frá um-
hverfi minnisvarða sem ættingj-
ar, aðdáendur og sveitungar
Matthíasar Jochumssonar reistu
á Stekkjarholtinu við þjóðveginn
neðan við Skóga í Þorskafirði
árið 1985. í Skógum fæddist
Matthías 11. nóvember 1835.
Gengið var frá bílastæði,
hringakstri og samstæðu borði
og bekkjum fyrir gesti er þar
koma og taka sér ferðahvíld.
Vegagerð ríkisins og verktakar
í Reykhólasveit unnu verkið en
verkstjórn við framkvæmdina
hafði Eiður B. Thoroddsen,
rekstrarstjóri Vegagerðarinnar
á Patreksfirði.
Námskeið í Skóla
Johns Casablancas
HAUSTTÍMABILIÐ er hafíð hjá
Skóla Johns Casablancas. Boðið
verður upp á fjölbreytt námskeið
fyrir börn og unglinga.
„Byijendanámskeið miða að því
að auka hæfni í mannlegum sam-
skiptum, bæta framsögn og líkam-
lega tjáningu og efla þannig sjálfs-
traust einstaklingsins. Framhalds-
námskeið kemur í kjölfarið, þar er
farið í framsögn, göngu, leikræna
tjáningu, auglýsingar, förðun,
umönnun húðar og hárs og módel-
starfíð.
Módelnámskeið fjallar um skipu-
lagningu, göngu við tónlist, fram-
sögn, bókara, prufur, umboðsskrif-
stofur erlendis, sjónvarpsauglýsing-
ar, feimni og sjálfstraust. Innfalin
er myndataka og skráning hjá Ice-
landic models," segir í fréttatil-
kynningu.
FRÉTTIR
Haust-og vetrar-
áætlun Islandsflugs
ÍSLANDSFLUG og Flugfélag Vest-
mannaeyja hafa tekið upp samstarf
í haust- og vetraráætlun íslands-
flugs sem tók gildi 8. september
sl. Flugfélag Vestmannaeyja flýgur
níu sæta vél af gerðinni Chieftain
RA-31-350 frá Vestmannaeyjum
kl. 8 og frá Reykjavík kl. 18 frá
mánudegi til föstudags. Auk þess
flýgur Islandsflug daglega tvær
ferðir til Vestmannaeyja.
íslandsflug sinnir sem fyrr
sjúkraflugi á Vestíjörðum. Flugvél
félagsins verður á Isafirði um næt-
ur og um helgar. Áætlunarflug
verður frá ísafirði kl. 8 og frá
Reykjavík kl. 17 mánudaga til
föstudaga auk annarrar áætlunar
félagsins til ísafjarðar.
Flogið verður milli Ísafjarðar og
Bíldudals á fimmtudögum og föstu-
dögum. íslandsflug hefur bætt við
hádegisvél inn í áætlun sína til
Akureyrar og býður nú upp á þijár
ferðir alla virka daga milli Reykja-
víkur og Akureyrar.
Haustáætlun íslandsflugs trygg-
ir Austfirðingum einnig betri þjón-
ustu því aukavél fer til Egilsstaða
síðdegis á föstudögum og sunnu-
dögum. Brottför verður til Egils-
staða kl. 17.15 og frá Egilsstöðum
kl. 19.40. Aukavél verður einnig á
Sigluíjarðarleiðinni á föstudögum
og sunnudögum. Brottför er til
Siglufjarðar kl. 13.30 og frá Siglu-
firði kl. 14.40. Tvær ferðir verða
alla virka daga, morgun- og síðdeg-
isflug, til og frá Sauðárkróki. Brott-
för’til Sauðárkróks er kl. 8.20 og
17.45 og frá Sauðárkróki kl. 10.25
og 18.45. Áætlunarflug til Hólma-
víkur og Gjögurs verður óbreytt frá
síðasta vetri.
Boðið er upp á beint flug án
millilendinga nema í morgunflugi
til og frá Siglufirði þar sem milli-
lent er á Sauðárkróki.
Fargjöld verða óbreytt frá því í
sumar. Nú verður að borga farseðil-
inn við bókun.
MEÐAL afmælisgjafa sem Árbæjarsafni hafa borist er sími frá
Talsímafélagi Reykjavíkur. Það hóf starfsemi árið 1905 og hafði
á hendi símaþjónustu innanbæjar í nokkur ár. Gefandi var Og-
mundur Frímannsson. Engin skífa var á símum í þá daga, aðeins
sveif sem snúið var og kom notandanum í samband við skiptiborð.
40 ára afmæli
*
Arbæjarsafns
RÉTT 40 ár verða liðin laugar-
daginn 20. september nk. síðan
Árbæjarsafn var opnað gestum.
Af því tilefni verður opið þann
dag kl. 13-17 og er aðgangur
ókeypis.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun stjórnar
Barnaheilla um yfirstandandi
kjaradeilu launanefndar sveitarfé-
laganna við grunnskólakennara:
„Af fréttum má heyra að enn
og aftur stefni í harða kjaradeilu
grunnskólakennara við viðsemj-
endur sína. Mikið virðist bera í
milli verði ekki hugarfarsbreyting
hjá deiluaðilum mun starf í grunn-
skólum í landinu í vetur vegna
verkfalls. Stjórn Barnaheilla bendir
á að sú óvissa sem nú ríkir er með
öllu óþolandi fyrir barnafjölskyldur
í landinu.
Komi til verkfalla mun það hafa
slæm áhrif á framvindu náms hjá
þorra nemenda, einkum þeim sem
standa höllum fæti fyrir.
Sú endurtekna truflun sem orðið
hefur á skólastarfi vegna kjara-
deilna kennara hefur óhjákvæmi-
lega orðið til þess að skólakerfið
setur ofan í augum nemenda.
Auk sýningarhúsanna gefst
kostur á að skoða geymslu-
skemmur safnsins og mynda-
deild. Kl. 15 verður messa í safn-
kirkjunni. Leiðsögn um safn-
svæðið verður kl. 13 og 16.
Við höfum nýleg dæmi um
hvernig kennaraverkföll valda upp-
lausn í lífi nemenda. Skólinn er
mikilvæg kjölfesta í daglegu lífi
þeirra. Þegar þeir missa þessa kjöl-
festu um tíma hlýtur það að hafa
neikvæð áhrif. í því sambandi skal
bent á að sterkar vísbendingar eru
um að verkfallið 1995 hafi leitt til
aukningar vímuefnaneyslu meðal
grunn- og framhaldsskólanema.
Undanfarin misseri hefur mikið
verið rætt um forvarnir og ekki
síst mikilvægi skólakerfisins í
vímuvörnum. Slík umræða er orðin
tóm við þær aðstæður sem nú ríkja.
Mikil ábyrgð hvílir því á herðum
þeirra aðila sem sitja við samn-
ingaborð í þessari deilu. Langvinn
óánægja kennara með kaup og
kjör hefur með beinum og óbeinum
hætti haft heftandi áhrif á fram-
þróun skólastarfs. Takist ekki að
bæta laun þeirra í þessari lotu mun
það ástand ekki breytast.“
Málþing um
meltingar-
sjúkdóma
MÁLÞING um meltingarsjúkdóma
verður haldið á vegum St. Jósefsspít-
ala í Hafnarfirði dagana 19. og 20.
september 1997. Yfirskrift mál-
þingsins er Forvörn er fyrirhyggja.
Fyrri dagurinn er eingöngu ætlað-
ur læknum og hjúkrunarfræðingum.
Laugardaginn 20. september er dag-
skráin opin öllum áhugasömum. Þá
verður fjallað um meltingarsjúk-
dóma, fylgikvilla þeirra og forvarnir.
Einnig verður fjallað um offitu, or-
sakir, afleiðingu og meðferð.
Dagskráin hefst kl. 13 í fundarsal
St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, gengið
inn frá Suðurgötu.
Frekar
heiðagæs
en grágæs
VEIÐI á grágæs hér á landi er um
30% af hauststofninum, eða um
35.000 fuglar, en veiði á heiðagæs
um 5% af hauststofninum, eða um
11.000 fuglar.
í fréttatilkynningu frá Náttúru-
fræðistofnun íslands kemur fram -
að þar sem ekki liggi fyrir veiði-
skýrslur nema fýrir árin 1995 og
1996 sé ekki vitað hversu lengi
veiðiþungi á grágæs hefur verið svo
mikill hér á landi, en ætla megi að
um svipaða veiði hafí verið að ræða
undanfarin ár. Ljóst sé að heiðagæs
ætti að þola meiri veiðiþunga og
því sjálfsagt að gæsaveiðimenn
beini athygli sinn fremur að henni,
sem myndi þá um leið draga úr
sóknarþunga á grágæs.
Haustnámskeið
í sjálfsvörn
HAUSTNÁMSKEIÐ Aikidoklúbbs
Reykjavíkur í sjálfsvöm hefst mánu-
daginn 22. september. Námskeiðið
stendur yfir í þijá mánuði. Æft verð-
ur þrisvar í viku, mánudaga og mið-
vikudaga kl. 18.00-19.00 og á laug-
ardögum kl. 12.00-13.00.
Mæting og skráning verður í
Laugardalshöll mánud. 22. septem-
ber kl. 18.00. Inngangur bakdyra-
megin.
LEIÐRÉTT
Rangt heiti
í FRÉTT í blaðinu í gær um dokt-
orsvöm Gottskálks Þórs Jenssonar
í klassískum fræðum var rangt far-
ið með nafn móður hans sem heitir
Elínbjörg Hulda Eggertsdóttir.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
Barnaheill lýsa áhyggjum
vegna kjaradeilna
Kennaraverkföll
valda upplausn