Morgunblaðið - 18.09.1997, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 53
FÓLK í FRÉTTUM
Myndin Bara
stelpa er ekki
alveg sann-
leikanum
samkvæm
MARGIR af bestu leikurum Danmerk-
ur koma fram í myndinni Bara stelpa.
- Finnst þér leikstjóranum takast
að ná fram því sama og þú vilt
segja með bókunum þínum?
„Já, sum atriði myndarinnar eru
mjög raunsönn og vel gerð. Má
nefna atriðin sem gerast í hús-
mæðraskólanum. Ein af skóla-
systinm mínum var eins og þessi
íslenska stúlka.
Hún dó reyndar ekki í þessum
skóla, heldur í þeim næsta sem hún
var send í.“
Matador gaf ungum
leikuruni tækifæri
- Finnst þér aðalleikkonan, Puk
Scharbau, vera lík þér á yngri ár-
um?
„Já, allir nefna hvað við séum
líkar og ég sé af hverju. Hún er
mjög góð leikkona. Ég hef gaman
af því þegar ungar leikkonur verða
frægar út á verkin mín. Það sama
gerðist þegar við gerðum Matador-
þættina. Við fengum til liðs við
okkur þekkta leikara, en gáfum
líka ungum leikurum tækifæri, sem
urðu allir mjög þekktir eftii- að
þættirnir voru sýndir.“
- Voru Matador-þættirnir gerðir
eftir bók sem þú skrifaðir?
„Nei, reyndar átti að verða bók
úr hugmyndinni. Ég hafði þegar
skapað allar persónumar og gert
uppkast að bókinni en hafði ekld
haft tíma til að skrifa hana. Á sama
tíma vantaði Danmarks Radio hug-
mynd að sjónvarpsþáttaröð. Leik-
stjóri þáttanna vissi að ég var að
undirbúa þessa bók því hann hafði
hugsað sér að gera kvikmynd eftir
bókinni þegar hún kæmi út. Honum
datt þá í hug að biðja mig um að
selja þeim hugmyndina til að gera
sjónvarpsþáttaröð, og það varð úr.“
- Er þáttaröðin líka byggð á end-
urminningum þínum?
„Matador-þættirnir eru byggðir
á minningum mínum um þennan
tíma og tíðarandann sem honum
fylgdi en ekki um sérstakar mann-
eskjur. Á þessum tíma skiptist
samfélagið á þennan hátt; yfirstétt-
arfólk og þjónustufólk. Foreldrar
mínir áttu stórt og fallegt hús eins
og í kvikmyndinni, en ekki sama
húsið. Það er svo stórt að í dag búa
þar tvær fjölskyldur.“
Lauk nýlega við
kvikmyndahandrit
- Var það í fyrsta skipti sem þú
vannst fyrir sjónvarp eða kvik-
myndir?
„Nei, ég hafði þegar gert nokkr-
ar kvikmyndir, þar af tvær með
Dirch Passer. Það var líka gerð
kvikmynd eftir fyrstu bókinni
minni „Med mor bag rattet". Ný-
lega vorum við Peter Bay að ljúka
við handrit að nýrri mynd, en við
unnum líka saman handritið að
„Kun en pige“. Það samstarf gekk
hryllilega illa í fyrstu og Peter
ávarpaði mig alltaf „Madame“. Eft-
ir að við vorum búin að blóta hvort
öðru í sand og ösku urðum við
bestu vinir og allt gekk miklu bet-
ur. Hann sagði mér þá frá hug-
mynd sem snýr að fjölskyldu hans.
Við skrifuðum það handrit og það
fer í tökur næsta vor.“
- Árin þín áttatíu draga ekkeit úr
vinnu hjá þér?
„Nei, alls ekki. Annars var ég
mjög löt í sumar. Það var sannkall-
að Spánarveður í Danmörku svo ég
stalst í sund á hverjum degi og gaf
ritstörfunum frí.“
septembertilboð
uppgnp
Colaate Total tannkrem ] f*.
Colgate annburstar
Trðpí 1/4 Itr.
Appelsínu- og eplasafi
Verð áður.
75 kr.
Marabou sukkulaði, 100 gr.
4 tegundir
Verð áður
95 kr.
Tyreweld dekkjakvoða
Verð áður /IQC
615 kr. HÍÍUkr.
Soma samlokur
Verðáður
195 kr.
135kr.
Samvinnuferðir — Landsýn efnir til ferðagleði fyrir
ferðaklúbbinn Kátir dagar — kátt fólk í Súlnasal Hótel Sögu,
föstudaginn 3. októberkl. 19.00.
Dagskrá Verö aöeins: 1.950 kr.
• Glæsilegur kvöldverður
• Spennandi ferðamöguleikar ársins kynntir
• Kórsöngur, grín og glens
• Óvæntir vinningar dregnir úr Lukkupottinum
• Eldfjörug hljómsveit
• Dans ffam eftir nóttu
Sala aðgöngumiða hefst í dag á skrifstofú
Samvinnuferða - Landsýnar í Austurstræti 12.
Allir velkomnir.
Samrinniilerðir-Laiiilsýii
toyt)avtc Austurstraeti 12 • S. 569 1010 • Slmbrtf 552 7TB6 og 5691095 • Innenitnðstvðlr S. S69 1070 HðM Söflu y*ð Hagitorg • S. M2 2277 • Stmbrtt 562 2460
HitMrt)*rt«r B«imr»un. 14 - S S65 1155 - Simbfíl 565 S355 Ketavft: Hatnargðtu 35* S 421 3400* Sknbrt(4?1 3490 Aknan: BrMirgðtu 1 *S. 431 3386* Sknbrtt 4311195
Akartyri: Riðhústorgl 1 • S «42 7200 • Sbnbrét 461 1035 tatMMrlr VestmMnabraut 38 • S 4011271 • Sfcnbrtt 481 2792
M»rtar.Ha»naiatr«i7.S.45«5390*SJnbf4(456 3592 Elanlg ■>
VJS / QISQH VIJAH