Morgunblaðið - 10.10.1997, Blaðsíða 6
Tækniva! Skf'íftfnn!
W. 10.30-11.30:
Þó'nr 8a!du«sbn
tónli'.tarmaóui ky
Tölvur ög tónlist,
tcnging og vinns!
Tæknivaí Hafrtíirfiró
fcl. '12,30-13.30:
Þdrii Balciursson
tðnlistai'niaður k'
*íölvui og tónlist,
■tcnging öc vínns
mmvs
6 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÍMÐ
FRÉTTIR
Námsefni í
tóbaksvörnum
dreift í alla skóla
Síróp þaggaði
niður í þjófi
var
að
MAÐUR var staðinn að vejrki við
innbrot í kaffistofu í Hafr|arfirði
aðfaranótt miðvikudags. Hann er
einnig grunaður um innbrotátilrau,n
í gæludýraverslun þar skamfnt fra-
Þegar að var komið baí’cfi hatin
brotið rúðu á kaffistofuijni °S
stungið á sig vasatölvu o| öðni
smálegu. Auk þess hafði m#urinn
sopið duglega á sírópi, serf hann
hafði fundið í eldhúsinu, Dg
munnurinn svo samanlímdur
hann gat varla talað. Maðurinn vat
undir áhrifum fíkniefna, að sögn
rannsóknarlögreglu í Hafnyfirðl-
Grunur leikur á að sami|hi|yur
hafi geit tilraun til að brjól^st inn
í gæludýraverslun í Haf|arfir.
skömmu áður. Þar var rúða ,hr°.un
og reynt að fara inn en glugginn
reyndist of þröngur. Maðurinn val
mikið skorinn en við yfirheyrslu
sagðist hann ekki muna ejfth' ÞV1
að hafa brotið rúðu í verslúninni-
Andlát
EBENEZER Þ.
ÁSGEIRSSON
LÁTINN er í Reykjavík
á 75. aldursári Ebenezer
Þ. Ásgeirsson forstjóri.
Hann var einkum þekkt-
ur fyrir að stofna og
reka fyrirtækin Hansa
hf. og síðar Vörumark-
aðinn hf.
Ebenezer fæddist 15.
maí árið 1923 á Flateyri
við Önundarfjörð. sonur
hjónanna Ásgeirs
Guðnasonar kaupmanns
og Jensínu Eiríksdóttur
húsmóður. Hann braut-
skráðist frá Verzlunar-
skóla Islands árið 1944 og var að-
stoðarmaður í fyrirtækjum föður
síns til ársins 1949 og fulltrúi hjá
Sigurði Ágústssyni í Stykkishólmi á
árunum 1949-1952.
Hann stofnsetti fyrir-
tækið Hansa hf. árið
1952 ásamt Eiríki bróð-
ur sínum og rak það til
ársins 1967. Hann stofn-
aði Vörumarkaðinn hf.
árið 1967 og stjórnaði
því fyrirtæki í 20 ár.
Ebenezer gegndi
ýmsumi trúnaðarstörf-
um á sviði verslunar og
viðskipta auk þess að
vera virkur félagi í
Lionshreyfingunni.
Hann var og um árabil
í sóknarnefnd Dómkirkjunnar.
Eftirlifandi eiginkona Ebenezers
er Ebba Thorarensen og eiga þau
þijú uppkomin börn.
\aug@r
dögurD
DAGSKRA
11.10. '97
Tæicriival
\ ''ef ra i 'elk&min}
ÍTARLEGT námsefni í tóbaksvörn-
um sem sent verður öllum grunn-
skólum landsins næstu daga var
kynnt á blaðamannafundi í gær.
Starfsmenn Krabbameinsfélags
Reykjavíkur hafa undanfarna mán-
uði unnið að þýðingu, staðfæringu
og útgáfu efnisins sem uppruna-
iega er norskt. Þessi vinna er hluti
af tóbaksvarnarátaki undir yfir-
skriftinni: „Sköpum reyklausa kyn-
slóð“.
Reykingar meðal grunnskóla-
nema hafa aukist undanfarin ár
eftir að hafa náð lágmarki um
1990. Samkvæmt rannsókn sem
Rannsóknarstofnun uppeldis- og
menntamála hefur látið gera reykja
nú 13,2% unglinga I 8.-10. bekk
en árið 1990 var samsvarandi tala
8,3%. í 10. bekk reykir nú rúmlega
fimmtungur nemenda.
„Það getur verið að áróður gegn
reykingum hafi að einhveiju leyti
týnst í öðrum herferðum á síðustu
árum,“ segir Ingibjörg Pálmadótt-
ir heilbrigðisráðherra. „Nú höfum
við mun meira fé til umráða held-
ur en áður og ætlum að nota það
fyrst og fremst til að sporna við
því að börn byiji að reykja og við
stefnum að því að skapa reyklausa
kynslóð."
Nýja námsefnið er byggt á
norsku efni sem notað hefur verið
í þijú ár með góðum árangri. „í
kennslunni er ekki bara verið að
tala um sjúkdóma sem koma upp
eftir fjörutíu ár heldur hversu gott
er að vera laus við fíknina hér og
nú,“ segir Hrund Sigurbjörnsdóttir,
fræðslustjóri Krabbameinsfélags
Reykjavíkur, sem hefur haft um-
sjón með gerð námsefnisins..
Forsætis-
ráðherra
til Dan-
\ iiierKui
FORSÆTISRÁÐHERRA Dav-
íð Oddsson og frú Ástríður
Thorarensen verða dagana
12.-15. október í opinberri
heimsókn í Danmörku í boði
Poul Nyrup Rassmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur.
Forsætisráðherra mun dag-
ana 10. og 11. október sitja
leiðtogafund Evrópuráðsins í
Strassborg.
„Það þarf að afhjúpa hvað ungl-
ingar eru að reyna að öðlast með
því að reykja, til dæmis það að
sýna fram á að þeir séu komnir í
tölu fullorðina. Við þurfum að sýna
þeim fram á að hægt sé að nálgast
þessi markmið með öðrum leiðum.
Hrund segir ýmsar skýringar á
auknum reykingum, meðal annars
aukna áfengisneyslu og neyslu
munntóbaks, eða „snuff“. „Reyk-
ingarnar tilheyra líka ákveðinni
tísku. Svo tekið sé dæmi eru ungl-
ingar sem renna sér á snjóbrettum
í Bláfjöllum líklegri til að vera reyk-
ingamenn heldur en þeir sem eru
á skíðum."
Kennarar og foreldrar
virkjaðir
„Við höfum aldrei haft námsefni
áður til að leggja upp í hendur
kennara, aðeins fræðsluefni af
ýmsu tagi,“ segir Hrund. „Nú verða
kennararnir virkjaðir til að taka
þátt í þessu.“
Starfsmenn Krabbameinsfélags-
ins munu á næstunni fara um allt
landið og kynna efnið á kennara-
fundum og halda námskeið í notkun
þess fyrir kennara.
Einnig verður foreldrum ungl-
inga á grunnskólaaldri öllum sent
sérstakt fræðsluefni þar sem þeim
er leiðbeint um hvernig best sé að
halda börnum sínum reyklausum.
Unglingar í 8.-10. bekk munu í
tengslum við herferðina fá í hend-
urnar samning þar sem þeir heita
því að vera reyklausir til ársins
2000. Þeir sem skrifa undir og
senda skjalið til Krabbameinsfé-
lagsins verða með í útdrætti um
fjölda armbandsúra.
Morgunblaðið^RAX
AF KYNNINGARFUNDI um námsefni í tóbaksvörnum í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarþlíð-
Sitjandi eru Þorsteinn Njálsson, formaður tóbaksvarnanefndar, Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra og Hrund Sigurbjörnsdóttir, fræðslustjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur.
Re-vMtiaar uviqlíhQá 1974-1997
HEIMILD:
Ungt fólk '97 - rannsóknarsfofnun '
40%
□ppeldis- og menntamala 1997:
Daglegar reykingar í unglingadeildum gru
KraDDameinsteiagio og öorga
1974-94: Daglegar reykingar í
grunnskóium i Reykjavík.
21.7%
20
42,8%
8. bekkur
1974
1978
1982
1986
1990
1994 1997
Prentara dæmdar 7,9
millj. bætur vegna leysiefna
HÆSTIRÉTTUR dæmdiígær prent-
smiðjuna Vörumerkingu til að gréiða
rúmlega fimmtugum prentara 7,9
milljónir króna í bætur með vöxtum
frá 1994. Talið er sannað að leysi-
efni sem maðurinn notaði til að þrífa
prentvélar sem hann starfaði við hafi
valdið honum heilaskaða sem gerði
að verkum að hann er nú 75% öryrki.
Prentsmiðjan er talin bera 60%
sök á heilsutjóni mannsins en hann
sjálfur 40%. Ekki er talið sannað að
prentarinn hafi krafist úrbóta hjá
fyrirtækinu þótt hann fyndi fyrir
drunga og sljóleika við nær daglega
hreinsun prentvélar með efninu
„white spirit" og segðist á köflum
hafa átt erfitt með að einbeita sér
og fengið höfuðverk sem ekki leið
hjá strax. Maðurinn vann hjá fyrir-
tækinu í 14 'U ár á tímabilinu frá
1975 til 1992.
Sá ekki fyrir öryggisbúnaði
Bótaskylda fyrirtækisins byggist
á því að það sá starfsmönnum ekki
fyrir viðunandi öryggisbúnaði við
meðferð leysiefnisins. Við notkun
hættulegra efna beri að beita starfs-
aðferðum sem tryggja að starfsmenn
séu varðir gegn slysum, eitrunum
og sjúkdómum. Dómurinn telur að
eftir 1980 hafi vitneskja verið orðin
almenn í þjóðfélaginu um hættueig-
inleika lífrænna leysiefna á borð við
white spirit.
Það leysi vinnuveitandann ekki
undan ábyrgð að aðstæður hafi ekki
veri betri á öðrum stöðum eða að
Vinnueftirlit ríkisins hafi ekki gripið
harkalegar í taumana en raun virð-
ist hafa verið.
j
Alþjóðlegi g-eðheil-
brigðisdagurin|
Opið hú
og hátíð-
ardagskrá
í TILEFNI af alþjóðlegum gfeðheil-
brigðisdegi, sem er í dag, yerður
opið hús fyrir almenning í fcarnp-
og unglingageðdeildinni vif Dal-
braut og Félagsmiðstöð Geðhjálpar
í Hafnarbúðum milli kl. 14|og 16
í dag. Opnuð verður myndlislarsý11-
ing gesta í athvarfinu Vin í {Rauða
kross húsinu við Efstaleiti. pö-
verður gengið frá Hafnarbúðum )
Háskólabíó þar sem hátíðard|gskra
hefst kl. 16.30. f
í Háskólabíói flytja ávörp Pþt-ur
Hauksson, formaður Geðhjálpar>
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis
og tryggingamálaráðherra, og Ey-
dís Sveinbjörnsdóttir hjá barna- °S
unglingageðdeildinni.
og unglingageðdeild tónlfet °K
kynning verður á Fjölskyldulínunm
800-5090 og Klúbbnum Geysi'
Einnig koma fram hljómsvöitirnar
Quarashi, Botnleðja og Wi^eguys-
Þá verður heimasíða GeðhjálPar
kynnt. Aðstandendur hátíð4rinnar
eru Geðhjálp í samstarfi við þarna-
og unglingageðdeild, Geávorn.ð"
arfélag Islands og Rauða kross Is-
lands.
-------» ♦ ♦--------