Morgunblaðið - 10.10.1997, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 17
ÚRVERINU
íslenskar sjávarafurðir kaupa Tros
Vilja taka þátt
í ferskfisk-
útflutningi
STJÓRN íslenskra sjávarafurða hf.
samþykkti á stjórnarfundi í gær að
kaupa meirihluta hlutafjár í fisk-
vinnslufyrirtækinu Tros í Sandgerði
af Loga Þormóðssyni, fiskverkanda
og stjórnarformanni Fiskmarkaðs
Suðurnesja. Að auki hefur það orðið
að samkomulagi að Logi Þormóðs-
son, eigandi og stofnandi Tros, verði
áfram við stjórnvölinn sem fram-
kvæmdastjóri í fyrirtækinu, sem
verða mun í meirihlutaeigu IS. Sam-
komulag varð milli aðila um að gefa
ekki upp kaupverð. Heildarferskfisk-
sala fyrirtækisins nemur um 400
milljónum króna á ári.
„Við ætlum að reka fyrirtækið
áfram á svipuðum nótum og verið
hefur í góðri samvinnu við viðskipta-
menn félagsins bæði hér heima og
erlendis. Hinsvegar mun ÍS væntan-
lega nota sína aðstöðu til þess að
styrkja ferskfiskútflutninginn enn
frekar,“ sagði Benedikt Sveinsson,
forstjóri ÍS, í samtali við Verið í gær.
Stefnt að uppbyggingu
meiri viðskipta
Starfsemi Tros er tvíþætt. Ann-
ars vegar er hún fólgin í kaupum
á fiski, vinnslu og pökkun og hins-
vegar er fyrirtækið í samvinnu við
önnur fyrirtæki á Reykjanesi um
að kaupa og pakka fiski undir hand-
leiðslu Trosmanna, sem sjá svo um
að flytja fiskinn út og selja hann.
Aðspurður af hverju Tros hafi orðið
fyrir valinu, sagði Benedikt: „1
fyrsta lagi teljum við að Tros sé
mjög gott fyrirtæki í þessum
bransa. í öðru lagi teljum við að
Logi og hans fólk hafi unnið feikn-
arlega gott starf. í þriðja lagi tel
ég að staðsetningin nálægt flugvell-
inum sé mjög mikilvæg."
Að sögn Benedikts liggja ekki enn
sem komið er fyrir áætlanir um
heildarútflutning í magni þó vissu-
lega sé stefnt að því að byggja upp
meiri viðskipti í kringum Tros en sem
nemur því sem er í dag. „Við tökum
nú við féiaginu með 400 miiljóna
króna veltu og munum að sjálfsögðu
stefna að því að auka hana á næstu
tveimur til þremur árum. Við erum
búnir að vera að skoða ferskfiskút-
flutning og erum á því að í þeim
geira séu niikil tækifæri. Það hefur
verið vöxtur í þessu og við viljum
fara upp á vagninn og ferðast með,“
sagði forstjóri ÍS, en hingað til hefur
ferskfiskútflutningur á vegum ÍS
aðeins verið stundaður í mjög litlum
mæli.
Snæfell kaupir hluta af eignum Njarðar
„ Viljum koma
sterkar inn í loðnu-
veiðar og vinnslu“
SAMKOMULAG er um að sjávarút-
vegsfyrirtækið Snæfell hf. kaupi
stærstan hluta af eignum Njarðar
hf. í Sandgerði. Með kaupunum
eignast Snæfeli nótaveiðiskipið Dag-
fara ásamt loðnukvóta 1,83% af
heildarloðnukvótanum, 150 tonna
rækjukvóta, gamla mjölverksmiðju í
Sandgerði og aðra nýja verksmiðju,
sem stendur ennþá óuppsett. Sú
verksmiðja ætti að geta afkastað
um 600 tonnum af loðnu á sólar-
hring, en ennþá hafa forsvarsmenn
Snæfells ekki tekið ákvörðun um
hvar nýja verksmiðjan kemur til með
að verða á landinu. Kaupverð fæst
ekki upp gefið. Viðræður um kaupin
hafa staðið stutt yfir eftir að ákveð-
ið var að fella sameiningu Njarðar
og Búlandstinds. Njörður hf. heldur
eftir tveimur skipum, togbátnum Þór
Péturssyni fjölveiðiskipinu Heiðrúnu
ásamt nokkrum aflaheimildum.
„Við erum að kaupa þessar eignir
til þess að styrkja Snæfell hf., sem
ég tel að muni verða eitt öflugasta
félagið í sjávarútvegi í framtíðinni,"
segir Ari Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Snæfells. Hann segir
kaupin vera í samræmi við stefnu
fyrirtækisins. „Við viljum koma mun
sterkar inn í loðnuveiðar og vinnslu
heldur en við höfum gert fram að
þessu. Við erum að eignast loðnu-
verksmiðju nú í fyrsta skipti, en átt-
um '/:■ loðnukvóta fyrir og þijá síld-
arkvóta. Stefna okkar er að vera í
dreifðum rekstri til að geta jafnað
út afkomuna í félaginu."
Einhugur virðist ríkja
um fyrirhugaðar sameiningar
Gert er ráð fyrir því að sameining-
arferli nokkurra fyrirtækja í Snæ-
fell hf. verði lokið um áramót, en
Snæfell samanstendur nú af land-
vinnslu á Dalvík og í Hrísey. Gengið
verður frá sameiningu Utgerðarfé-
lags Dalvíkinga við Snæfell á hlut-
hafafundi í dag. Auk þess koma
Gunnarstindur _á Stöðvarfírði og
Snæfellingur í Ólafsvík til með að
sameinast Snæfelli og á þeim sam-
einingum að verða lokið fyrir ára-
mót. „Það er auðvitað hluthafafunda
að ákveða slíkar sameiningar endan-
lega, en miðað við stærstu hluthaf-
ana, finnst mér að menn séu ein-
huga um þetta mál,“ segir Ari.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins verða
á Dalvík. Rekstur á bolfiskvinnslu
verður á Dalvík. Pökkunai'verk-
smiðja er úti í Hrísey þaðan sem
verslunum úti í Evrópu er sinnt og
hefur sú verksmiðjan í Hrísey ein
og sér samninga við erlendar versl-
unarkeðjur upp á 650 milljónir króna
á ári. Rækjuverksmiðja er í Ólafsvík
og síld- og loðnuvinnsla verður á
Stöðvarfirði þó óvíst sé enn hvar
nýja mjölvinnslan verður sett niður.
Snæfell gerir út frystitogarann
Björgvin, ísfiskskipið Björgúlf sem
sér frystihúsinu á Dalvík fyrir hrá-
efni, nótaveiðiskipin Kambaröst og
Dagfara og rækjufrystitogarann
Snæfell. Stefnt er að því að selja tvo
ísfisktogara frá félaginu sem búið
er að taka úr rekstri og leggja. Það
eru togararnir Már og Kambaröstin
gamla.
Snæfell stefnir á
almennan hlutabréfamarkað
Ekki liggur enn ljóst fyrir hversu
stór eignaraðild Kaupfélags Eyfirð-
inga verður að afloknum samrunan-
um, en nú er unnið að því að meta
eignarhlutana. Ljóst er að KEA
muni eiga verulegan hlut í hinu sam-
einaða félagi þegar það verður kom-
ið saman þó enn sé ekki ákveðið
hversu stóran hlut það ætlar sér í
framtíðinni. Stefnt er að því að Snæ-
fell verði sett á almennan hlutabréfa-
markað upp úr áramótum eða þegar
sameiningarferlinu verður að fullu
lokið, að sögn Ara.
ERLENT
Reuter
Tilnefningu Kims fagnað
NORÐUR-Kóreumenn flykkt-
ust út á götur dansandi af gleði
er tilkynnt var um tilnefningu
Kim Jongs-il sem flokksleið-
toga, að sögn rússnesku frétta-
stofunnar Tass. Mikil gleði
braust út í bænum Nampo og
veifar mannfjöldinn heillaóska-
borðum og fánum af fögnuði.
Þjóðverjar hækka
vexti vegna
Frankfurt. Reuter.
ÞÝZKI seðlabankinn varð fyrstur
seðlabanka nokkurra Evrópulanda
til að hækka vexti til að halda
verðbólgu í skefjum og hefjast
handa um samræmingu vaxta áður
sameiginlegum gjaldmiðli og
myntbandalagi (EMU) verður
komið á fót.
Seðlabanki Þjóðveija sagði skilið
við þá stefnu að lækka vexti, sem
hún hefur fylgt í fimm ár, og til-
kynnti að vextir af skuldabréfum
í endursölu yrðu hækkaðir í 3,30%
úr 3% í næstu viku.
Hollendingar fóru strax að dæmi
Þjóðveija og hækkuðu seðlabanka-
vexti í 3,30 af hundraði úr þremur.
Samræmdar aðgerðir
Önnur aðildarlönd Evrópusam-
bandsins gengu ekki alveg eins
langt, enda efnahagsaðstæður ólíkar
eftir löndum, en greinilega var um
samræmdar ráðstafanir að ræða.
Belgíski seðlabankastjórinn, Al-
fons Vei-plaetsem, sagði að sam-
komulag hefði tekizt um aðgerð-
irnar fyrirfram. „Samstaða hafði
EMU
náðst um undanfara samræmdra
ráðstafana, sem verða nauðsynleg-
ai- þegar efnahags- og myntbanda-
lag tekur til starfa í Evrópu í jan-
úar 1999,“ sagði hann.
Frakkar hækkuðu viðmiðunar-
vexti um 0,20% í 3,30%. Belgar
hækkuðu helztu vexti sína í 3,30%
úr þremur.
Danir hækkuðu vexti af banka-
bréfum í 3,75% úr 3,50 og Austur-
ríkismenn sögðu að að vextir af
skuldabréfum í endursölu yrðu
3,2% miðað við 3% nú.
Michael Portillo á flokksþingi brezka íhaldsflokksins
Segir hroka og spillingu
hafa valdið ósigrinum
MICHAEL Portillo, fyrrverandi
varnannálaráðherra í ríkisstjórn
Johns Majors og einn af umdeild-
ustu mönnum flokksforystu brezka
íhaldsflokksins, stal senunni á
flokksþingi brezka íhaldsflokksins
í Blackpool í gær með óvæginni
gagnrýni á flokksfélaga sína, sem
hann sagði hafa tapað þingkosnig-
unum í vor vegna eigin hroka og
spillingar. Hann hvatti til þess að
íhaldsflokkurinn tæki upp um-
hyggjusamari stefnu til að endur-
heimta fylgi.
Taldir standa fyrir græðgi
„íhaldsmenn voru tengdir við
hörku, talið að þeim stæði á sama
um atvinnuleysi, fátækt, lélegar
íbúðir, fötlun og einstæða for-
eldra,“ sagði Portillo í ræðu sinni
á þinginu. „Við vorum taldir standa
fyrir græðgi og tillitslausa gróða-
sókn á hinum fijálsa markaði með
því viðhorfi að „fjandinn hirði þá
sem heltast úr lestinni“,“ sagði
Portillo, sem sjálfur missti þing-
sæti sitt í kosningunum og varð
þar með að gera hlé á ferli sínum
sem stjórnmálamanns. Hann hafði
Routcr
MARGARET Thatcher,
barónessa og fyrrverandi for-
sætisráðherra Bretlands,
hlýðir á ræður á þriðja degi
flokksþings brezka Ihalds-
flokksins, sem sumar hverjar
innihéldu óvægna gagnrýni á
hegðun flokksmanna fyrir
síðustu kosningar. I forgrunni
er núverandi leiðtogi flokks-
ins, William Hague.
verið talinn einn líklegasti arftaki
Johns Majors í flokksleiðtogasæt-
inu.
Þessi ræða hans þótti stinga
nokkuð í stúf við margar sem hann
hélt fyrir kosningarnar, en í þeim
veittist hann meðal annars að er-
lendum námsmönnum, sem hann
sagði „kaupa sér prófgráður" í
Bretlandi, og hann vakti reiði
margra innan flokks sem utan með
ógætilegum ummælum um Evr-
ópumál og fleira.
„Fólk þarf hvíld
frá okkur"
Reiði Portillos á flokksþinginu í
gær beindist einkum að flokksfé-
lögum sem hann taldi hafa svikið
allan trúnað, sýnt hroka með því
að láta sig raunveruleg áhyggju-
efni kjósenda lítið varða og með
því að blandast í spillingarmál.
„Fólk þarf á hvíld frá okkur að
halda og við þurfurn tíma til að
hugsa okkar gang, hlusta og skilja
hvert annað betur en við liöfum
gert að undanförnu," sagði Port-
illo, og gekkst jafnframt við að
hafa gert mörg mistök á eigin ferli.