Morgunblaðið - 10.10.1997, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
Dario Fo hlýtur bókmennta-
verðlaun Nóbels
Húrrahróp er
tilkynnt var um
ver ðlaunahafann
Mílanó. Rcuter.
HIÐ heimsþekkta ítalska leik-
skáld Dario Fo hlýtur bókmennta-
verðlaun Nóbels í ár og er það í
fyrsta sinn svo árum skiptir, sem
þekktur og viðurkenndur rithöf-
undur hlýtur verðlaunin. Gaman-
leikrit Fos hafa verið flutt um
allan heim, fjölmörg þeirra hér-
lendis og nýtur hann mikilla vin-
sælda á meðal leikhúsgesta.
„Ég er auðvitað óskaplega glöð
yfir því að Dario Fo skuli fá þessi
verðlaun og það kemur mér í raun
ekki svo mjög á óvart,“ segir
Vala Þórsdóttir leikkona en hún
kynntist Fo á Ítalíu fyrir nokkrum
árum og sótti í framhaldi af því
leiklistarnámskeið hjá honum í
Kaupmannahöfn. „Það
er mikilvægt fyrir list-
ina að maður á borð við
Fo fái bókmenntaverð-
laun, hann er róttækur
og verk hans full af
samfélagsgagnrýni þótt
hún sé sett fram á gamansaman
hátt,“ segir Vala.
Vörpuðu öndinni léttar
Fo er 71 árs, kvæntur leikkon-
unni Frönku Rama, og hefur ver-
ið áberandi í evrópsku leikhúslífið
undanfarna þijá áratugi. í Aften-
posten segir að heyra hafi menn
varpa öndinni léttar er Sture
Allen, forseti Sænsku akadem-
íunnar tilkynnti um verðlaunahaf-
ann þetta árið.
Húrrahróp fylgdu svo í kjölfar-
ið en akademían hefur sætt mik-
illi gagnrýni fyrir að veita ítrekað
algerlega óþekktum höfundum
Nóbelsverðlaunin. Þá eru fá leik-
skáld í hópi verðlaunahafa, síðast
voru þau veitt leikskáldi árið 1969
er írinn Samuel Beckett hlaut
þau. Var Fo enda furðu lostinn
er honum var tilkynnt um bók-
menntaverðlaunin í gær.
Fo er sjötti Italinn sem hlýtur
Nóbelsverðlaunin í bókmenntum
og fetar þar með í fótspor ekki
ómerkari manna en Luigis Piran-
dellos sem hlaut verðlaunin árið
1934 en þeir tveir eru taldir í
hópi merkustu leikskálda Ítalíu.
„Hirtir yfirvöld"
í greinargerð sænsku akadem-
íunnar segir að Fo hljóti verðlaun-
in fyrir hæfileika sinn til
að „semja texta sem
skemmti, heilli og opni
nýjar víddir“. Ennfrem-
ur fyrir að „líkja eftir
hirðfíflum miðalda með
því að hirta yfírvöld og
viðhalda virðingu þeirra sem hafa
orðið undir í lífsbaráttunni,“ en
Dario Fo hefur sinnt hinni gömlu
ítölsku Commedia dell’arte leiklist-
arhefð af alúð og hefur kynnt,
hana víða um heim.
Vinsæll hérlendis
Fo er vinstrimaður og róttækur
í skoðunum. Með verkum sínum
hefur hann komið á framfæri
skarpri ádeilu, og hefur dregist inn
í fjölmargar deilur við fulltrúa rík-
is, lögreglu og Páfagarðs en þeir
síðastnefndu sögðu Fo hafa unnið
tjón á trúarlífi ítala. Árið 1980
var Fo ennfremur neitað um vega-
Fyrsti þekkti
verðlaunahaf-
inn ílangan
tíma
Reuter
ÍTALSKA leikskáldið Dario Fo hlýtur bókmenntaverðlaun Nó-
bels í ár fyrir hárbeitta þjóðfélagsádeilu sem hann hefur fært
í gamansaman búning.
bréfsáritun til Bandaríkjanna
vegna stjórnmálaskoðana sinna.
Verk Fos njóta mikilla vinsælda
á íslandi en fyrsta verkið sem
sýnt var eftir hann hérlendis voru
einþáttungarnir „Þjófar, lík og
falar konur“, í Iðnó árið 1963.
Þá hafa verkin „Steldu bara millj-
ón, Hassið hennar mömmu“, „Sá
sem stelur fæti er heppinn í ást-
um“ „Félegt fés“ og nú síðast
„Við borgum ekki, við borgum
ekki“ verið sýnd hjá Leikfélagi
Reykjavíkur. Það síðastnefnda
var frumflutt hérlendis hjá Al-
þýðuleikhúsinu árið 1978. Þá
sýndi Alþýðuleikhúsið „Stjórn-
leysingi ferst af slysförum" og
„Kona“ og Þjóðleikhúsið sýndi
„Betri er þjófur í húsi en snurða
á þræði“. Á meðal þeirra sem
þýtt hafa farsa Fos á íslensku eru
Sveinn Einarsson, Stefán Bald-
ursson, Ingibjörg Briem og Guð-
rún Ægisdóttir.
Alls hefur Fo samið um 70
verk og nýjast þeirra er „II dia-
volo von le zinne“ (Djöfullinn með
bijóst) en það var frumsýnt í
Messina á Sikiley í ágúst sl.
Réttarhöld yfir fyrrverandi frönskum ráðherra fyrir aðild að stríðsglæpum
Mælt með flutningi
Papons á sjúkrahús
Bordeaux. Reuter, The Daily Telegraph.
FRANSKIR læknar mæltu með því
í gær að Maurice Papon, hinn 87
ára gamli fyrrverandi fjárlagaráð-
herra sem réttarhöld eru hafín yfir
vegna þáttar hans í samstarfi við
nazista á tímum síðari heimsstyij-
aldar, yrði látinn dvelja á sjúkra-
húsi á meðan á réttarhöldunum
stæði en ekki í fangelsi. Papon,
sem var lögreglustjóri í Bordeaux
á tímum Vichy-stjórnarinnar og
hersetu Þjóðveija í Frakklandi
1940-1944, er sakaður um að
hafa gerzt sekur um glæpi gegn
mannkyninu með því að koma fleiri
en 1.500 frönskum gyðingum, þar
á meðal 200 börnum, í hendur
nazista, sem fluttu þá flesta til
Auschwitz.
Við upphaf réttarhaldanna í
fyrradag fór veijandi Papons fram
á að hann yrði látinn laus úr fang-
elsi vegna þess að hætta væri á
að hann dæi þar. Papon er hjart-
veikur.
Yfirdómarinn við réttarhöldin,
Jean-Louis Castagnede, las í gær
upp skýrslu tveggja sérfræðinga í
hjartasjúkdómum, sem skoðuðu
Papon að beiðni dómarans. í
skýrslunni segir að sakborningur-
inn, sem gekkst undir hjartaskurð-
aðgerð fyrir ári, liði undan hjarta-
sviða og þyrfti á stöðugu eftirliti
læknis að halda, sem ekki væri að
fá í fangelsinu. Dómarinn frestaði
ákvörðun um hvort orðið yrði við
beiðni veijandans fram á daginn í
dag.
Veijandi Papons, Jean-Marc
Varaut, hvatti réttinn til að taka
ekki tillit til ráðgjafar læknanna
og láta skjólstæðing sinn lausan
gegn tryggingu. Hann sagði Papon
ekki geta skipulagt málsvörn sína
í varðhaldi, ekki heldur á sjúkra-
húsi.
Varaut kvartaði einnig undan
„ómannúðlegum" aðbúnaði í Grad-
ignan-fangelsi við Bordeaux, þar
sem Papon - áður fyrr einn af
mestu áhrifamönnum Frakklands
- hefur dvalið frá því i fyrradag.
Hann væri vakinn margsinnis á
nóttu auk þess sem niðrandi hróp
samfanga héldu fyrir honum vöku.
„Fortíð sem ekki vill líða“
Þessi réttarhöld, sem haldin eru
52 árum eftir stríðslok og 16 árum
eftir að Papon var fyrst ákærður,
eru almennt álitin sönnun þess að
Frakkar hafa langt frá því lokið
uppgjöri við þann hluta þjóðarsög-
unnar sem snýr að samstarfi við
þýzk hernámsyfirvöld á árunum
1940-1944 - „fortíð sem ekki vill
líða,“ eins og þessi kafli franskrar
sögu hefur verið kallaður af sagn-
fræðingum. Gert er ráð fyrir að
þetta séu síðustu réttarhöldin sem
haldin eru í Frakklandi vegna
stríðsglæpa í síðari heimsstyijöld.
Búizt er við að þeim ljúki ekki
fyrr en um áramót.
í aðdraganda réttarhaldanna
hafði Papon verið fijáls, en hann
mætti sjálfviljugur í fangelsið þeg-
ar þau hófust í fyrradag í samræmi
við frönsk lagaákvæði sem gera
ráð fyrir að sakborningar séu í
varðhaldi á meðan á réttarhaldi
yfir þeim stendur.
Farsi eða sögulegt uppgjör?
Papon hefur lýst réttarhöldun-
um yfir sér sem farsa. Hann seg-
ist aðeins hafa hlýtt skipunum og
reynt það sem í hans valdi stóð, á
meðan hann gegndi fógetastöðu
Gironde-héraðs á stríðsárunum, til
að halda skaða í lágmarki. Þessi
röksemd hefur ýtt undir umræðu
Maurice Papon
í Frakklandi um hlutverk franskra
embættismanna á stríðsárunum og
þá ábyrgð sem á þeim hvílir, þ.e.
hvort þeir geti skotið sér á þennan
hátt undan samábyrgð á stríðs-
glæpum sem nazistar frömdu og
nutu aðstoðar frá embættismönn-
um Vichy-stjórnarinnar.
Að stríðinu loknu átti Papon
árangursríkan feril, sem náði há-
marki með ráðherradómi hans
1978-1981, þegar hann fór með
fjárlagamál í frönsku ríkisstjórn-
inni. Hann neyddist til að segja
af sér embættinu þegar skjöl um
stríðsfortíð hans komu fram í dags-
ljósið 1981. Mitterrand og fleiri
áhrifarnenn lögðu síðan sitt af
mörkum til að ekkert yrði af réttar-
höldum fyrr en nú.
Annar bíll
viðriðinn
Díönu-
slysið
FRANSKA rannsóknarlög-
reglan, sem hefur unnið að
rannsókn bílslyssins sem
Díana prinsessa af Wales, vin-
ur hennar
Dodi Fayed
og bílstjóri
þeirra' létu
lífið í 31.
ágúst sl.,
hefur kom-
izt að þeirri
niðurstöðu
að annar bíll
kom að öll-
um líkind-
um við sögu er slysið varð, að
því er ónafngreindur talsmað-
ur lögreglunnar greindi frá í
gær. Hann sagði líkur benda
til að Mercedes Benz-bifreiðin,
sem Díana og Dodi voru far-
þegar í, hafi snert aðra bifreið
áður en hún rakst á stein-
steypustólpa. Vísbendingar
munu vera um að hinn bíllinn
hafi verið af gerðinni Fiat Uno.
Vopnahlé í
Kongó
TALSMAÐUR Sameinuðu
þjóðanna greindi frá því í gær
að stríðandi fylkingar í barátt-
unni um völdin í Kongó hefðu
samið vopnahlé, en með því
hefði tekizt að hindra að ófrið-
urinn bærist yfir landamærin
til Lýðveldisins Kongó, áður
Zaires.
IRAaf
hryðjuverka-
lista
BANDARÍSK stjórnvöld hafa
tekið um það ákvörðun að
strika írska lýðveldisherinn,
IRA, út af lista sem þau halda
yfir hryðjuverkasamtök. Á
listanum eru 30 samtök sem
Bandaríkjamönnum er bannað
að láta í té fé, vopn eða ann-
ars konar stuðning.
Samveldisríki
treysta bönd
FULLTRÚAR ríkisstjórna 12
fyrrverandi lýðvelda Sovétríkj-
anna sem eru bundin samtök-
um í Samveldi sjálfstæðra ríkja
undirrituðu í gær röð samninga
um efnahagssamstarf, sem
vonir eru bundnar við að komi
samstarfi þeirra í fastari skorð-
ur, en það hefur verið frekar
losaralegt fram að þessu.
Ráðamenn ríkjanna 12, þar á
meðal Tsjernomyrdín forsætis-
ráðherra Rússlands, gengu frá
24 samningum um efnahags-
samstarf á fundi í Bishkek,
höfuðborg Kyrgizstans.
Þotukaup
samþykkt
ÞÝZKA ríkisstjómin sam-
þykkti á miðvikudag kaup á
180 Euro/igMe/’-orrustuþot-
um, fýrir 23 milljarða marka,
um 920 milljarða króna. Stjórn-
arandstaðan hafði barizt hat-
rammlega gegn kaupunum.