Morgunblaðið - 10.10.1997, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.10.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 25 AÐSENDAR GREINAR Bóknám og starfsnám ÍSLENSKA skólakerfið hefur með réttu verið gagnrýnt fyrir það hve hlutur starfsnáms er þar rýr. Hér verður leitað skýringa á þessu og bent á leiðir til úrbóta. Efling handmennta í Evrópu Víða í Evrópu þróuðust á miðöld- um gildi, samtök manna í ýmsum greinum handverks. Gildin settu sér eigin lög og efldu á ýmsan hátt veg og virðingu þeirra er að greininni stóðu (alþjóðahreyfing frímúrara rekur dæmis rætur til gilda steinkirkjusmiða á miðöld- um), tryggðu löggildingu þeirra til að vinna í faginu og studdu fjöl- skyldur þeirra þegar á móti blés. Síðast en ekki síst sáu gildin sonum félaga sinna fyrir starfsþjálfun. Jafnframt þróuðust í Evrópu háskólar sem urðu miðstöðvar æðri menntunar og rannsókna. Með því að tryggja afkomu, virðingu og menntun handverksmanna stuðl- uðu gildin að jafnvægi milli bók- lærðra og verkþjálfaðra manna. Þjóðfélag bænda og fiskimanna Allt til loka 19. aldar var ís- lenska þjóðfélagið aftur á móti að mestu í sömu skorðum og verið hafði öldum saman. Feður kenndu sonum sjósókn eða búskap (eða hvort tveggja) og dætur námu heimilisstörfin af mæðrum sínum. Önnur handverk gengu einnig í arf á heimilunum. Loks er þess að geta að læsi varð snemma útbreiddara hér en í nágrannalöndunum og menn báru með réttu virðingu fyrir þeim ein- stæðu miðaldabókmenntum sem hér urðu til. Vera má að þessi virð- ing eigi enn í dag þátt í þeirri áherslu sem lögð er á bóknámið. Svo mikið er víst að átaks er þörf í skólamálum til að auka vægi verk- náms, án þess þó að nokkurri rýrð sé kastað á bóknámið. Æðri menntun embættismanna Fram á þessa öld takmarkaðist formlegt skólanám hérlendis að mestu við presta, sýslumenn og lækna. Framan af námu prestling- ar við stólsskóla á Skáiholti og Hólum. Hólavallaskóli í Reykjavík var í þessu hlutverki skamman tíma kringum aldamótin 1800, en síðan tók Bessastaðaskóli við 1805- 1846. Formlegur prestaskóli var svo stofnaður í Reykjavík 1847. Læknakennsla hófst á Islandi 1872 og hefur staðið óslitið síðan, en Alþingi samþykkti lög um lækna- skóla 1875. Þingið setti lög um lagaskóla 1904 og endurskoðaði þau 1907, en kennsla hófst ekki fyrr en 1908. Þegar Háskóli íslands var stofn- aður 1911 urðu þessir þrír embætt- ismannaskólar deildir hans. Hin fjórða var heimspekideild. Aukin almenn menntun Síðan hefur háskólinn þróast í átt frá hreinum embættismanna- skóla yfir í fjölþætta kennslu- og rannsóknastofnun í tengslum við atvinnulíf landsins. Verður sú saga ekki rakin hér. Annar háskóli er risinn á Akureyri og ýmsir sérskól- ar, á framhalds- og háskólastigi sinna margvíslegri starfsþjálfun. Þar eru meðal annars iðnskólar (sumir raunar eldri en Háskóli ís- lands) sem veita réttindi í löggilt- um iðngreinum, og fer námið ýmist allt fram í skólunum eða að hluta hjá meisturum í viðkomandi grein. Loks má benda á það að flestir framhaldsskólar sem stofn- aðir hafa verið eftir 1970 eru fjöl- brautaskólar, þar sem auk bóklegs náms til stúdentsprófs eru í boði aðrar námsbrautir, þar á meðai í mörgum þessum skólum brautir er veita kennslu í löggiltum iðn- greinum. Starfsmenntunin er hornreka En hvers vegna er aðsókn að starfsnámi hérlendis jafnlítil og raun ber vitni? Til þess virðast mér, auk máttar hefðarinnar, eink- um liggja tvær ástæður: Annars vegar er takmarkað framboð á verklegu námi í grunn- skólum. Aðstaða til kennslu í smíði Það þarf ekki síður að leita að verklegri og list- rænni talentu en hæfni •• til bóknáms, segir Orn- ólfur Thorlacius, ef nota á samræmd próf til að stýra nemendum inn á tilteknar brautir í framhaldsnámi. og annarri handavinnu er rýr í mörgum þeirra, þótt hún sé að vísu breytileg eftir skólum. Því miður virðist mér að nýir skólar séu síst betur búnir í þessu efni en hinir eldri. í tengslum við ársnám í kennslu- fræðum við Háskólann í Edinborg fyrir rúmum 20 árum sótti ég heim nokkra skoska skóla er sinntu nem- endum frá tólf ára aldri til loka framhaldsnáms. Þar voru kennslu- stofur til handíða, verkstæði fyrir tré og málm, nokkrar skólaeldhús- stofur og að auki að sjálfsögðu margar sérbúnar stofur til verk- legrar kennslu í náttúrufræðigrein- um. Jafnt yngstu sem elstu nem- endur skólanna höfðu aðgang að allri þessari aðstöðu til verknáms. íslenskur nemandi sem hyggur á framhaldsnám eftir tíu ár í grunn- skóla hefur mjög takmarkaða reynslu af því hversu vel honum henti verklegt nám. Hann er van- astur bóknámi, og ef hann kann því vel er þess vegna eðlilegt að hann haldi áfram á sömu braut. Skýringin er að sjálfsögðu, eins og á mörgu öðru sem miður hefur farið í íslenskum skólamálum, fjár- skortur. Verklegt nám kallar á sér- búnar skólastofur, ýmis kennslu- tæki og hráefni. Skortur á fé til framhaldsskóla á svo þátt í því að nám í sumum iðngreinum er ekki í boði eða erfitt að komast þar að. Ef fé til verknáms verður ekki aukið svo um munar, bæði á grunn- og framhaldsskóla- stigi, er tómt mál að tala um eflingu þess. Hin meginástæðan fyrir takmarkaðri að- sókn að starfsnámi er að skólakerfið hefur ekki leitað að efnileg- um nemendum í þetta nám. Unglingar hafa frekar hafnað í iðn- námi af því að þeir réðu ekki við að finna yfsiloni réttan stað í „yfir“ eða reikna út rúmtak mi- svíðra hitaveituröra heldur en af því að hallamál eða hárlakksbrúsi léki í höndum þeirra. Prófakerfið hefur alltaf beinst að því að velja hæfa nemendur til bóknáms. Meg- inbrautin liggur til stúdentsprófs. Þeim sem ekki standast þær kröfur sem þar eru gerðar er vísað á verknám, án tillits til áhuga þeirra eða getu á því sviði. Sama gildir raunar um listir. Þær eru víðast hornreka í hinu almenna skólakerfi og prófin ekki til þess fallin að leita að listfengum ungmennum svo hlúa megi að hæfileikum þeirra. „Forgangsverkefni í skólamálum?" Nýlega tóku gildi lög um grunn- og framhaldsskóla sem um margt eru til bóta. Því miður virðist mér þó að þau taki ekki á þeim vanda sem hér er fjallað um. I öllum undirbúningi að gerð laganna var samt mikil áhersla lögð á það að þau ættu að stuðla að auknum vegi starfs- námsins. í skýrslu nefndar sem mótaði á vegum Menntamálaráðuneyt- is þá menntastefnu er í nýju lögunum felst, stendur: „Starfsnám á fram- haldsskólastigi verði forgangsverkefni í skólamálum." Þessu er ég hjartan- lega sammála og mér virðist raun- ar að árangur þeirrar nýskipunar í skólamálum sem stefnt er að með lögunum standi og falli með því hvernig þetta forgangsverkefni verður leyst. Því miður virðist mér að í lögunum séu enn atriði er nánast tryggja það að bóknámi verði sem fyrr haldið að þeim nem- endum sem hafa vald á því. Samræmd próf og starfsnám Þegar landspróf miðskóla var af lagt sem inntökupróf í menntaskóla og sambærilega framhaldsskóla var tekið upp samræmt próf í nokkrum kjarnagreinum. Eins og á landsprófínu er sama kvarða beitt við mat úrlausna um landið allt en ólíkt því er samræmda prófið lagt fyrir alla nemendur í lok skyldu- náms. Neð gildandi lögum verður sam- ræmdum prófum fjölgað. Þau verða fyrst lögð fyrir í fjórða bekk, svo í sjöunda, síðan í lok grunnskóla og jafnvel einnig sem hluti stúd- entsprófs. Ljóst er að eftir sem áður verða þessi próf í bóklegum greinum. Leiðir til úrbóta (1) Auka þarf til muna verklegt nám í grunnskóla, þannig að nem- endur geti valið milli verknáms og bóknáms í framhaldsskóla af eigin reynslu. (2) Ef nota á samræmd próf til að stýra nemendum inn á tilteknar brautir í framhaldsnámi þarf ekki síður að leita að verklegri og list- rænni talentu en hæfni til bók- náms. Ef samræmdu prófin eiga ekki að verða til þess eins að stýra „lakari" nemendum inn í starfs- nám, þá verður að hafa í þeim sem fullgildan og árlegan þátt próf í verklegum greinum og listgreinum, og helst ekki bara í lok 10. bekkjar heldur líka fyrr í grunnskóla. Ann- ars er hætt við að meginfarvegur- inn liggi sem fyrr að stúdentsprófí og aðrar leiðir verði einkum affall fyrir þá sem stranda á skerjum samræmdra prófa í bóknámsgrein- um. Höfundur er fyrrverandi rektor Menntaskólans við Hamrahlíð. Örnólfur Thorlacius
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.