Morgunblaðið - 10.10.1997, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.10.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 19 ERLENT Leiðtogafundur Evrópuráðsins í Strassborg Ahersla á mannréttindi og félagslega uppbyggingu Ráðstefnuborgin Strassborg í Frakklandi er í hátíðarbúningi vegna fundar fjörutíu leiðtoga Evrópuráðsríkja í dag og á morgun. í grennd við höfuðstöðvar ráðsins úir og grúir af öryggisvörðum o g blaðamönnum og fánar blakta yfír lokuðum götum. Þórunn Þórsdóttir hefur fylgst með aðdraganda fundarins og segir hér frá upphafi hans. FUNDUR pólitískra leiðtoga Evr- ópuráðsríkja hefst í Strassborg í dag og stendur fram á miðjan morgundag. Gestgjafinn, Jacques Chirac Frakklandsforseti, er fyrstur á mælendaskrá og Davíð Oddsson forsætisráðherra er sjö- undi ræðumaður af hátt í fjörutíu forystumönnum. Undir kvöld talar Jacques Sant- er formaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og líklegt þykir að samskipti stofnananna tyeggja verði mikið til umræðu. Útlit er hins vegar fyrir að ekki takist að nota tækifærið fyrir boðaðan fund leiðtoga EFTA-ríkj- anna með forystumönnum ESB. Á morgun munu forsetar ríkja er sótt hafa um aðild ávarpa þing- ið, forsetar Armeníu, Azerbajdz- an, Bosníu-Herzegóvínu og Ge- orgíu. Skilyrði fyrir aðild Bosníu voru sett af þingi ráðsins um mánaðamótin og meðal skilyrð- anna er virðing stjórnvalda fyrir úrskurðum alþjóðadómstólsins í Haag, mannréttindum þegnanna og frelsi fjölmiðla. Jafnframt að flóttafólk geti snúið aftur til síns heima og að Dayton-samkomu- lagið sé virt í samskiptum við grannlöndin. Fulltrúar ÖSE, Bandaríkjanna, Japans og Páfagarðs verða enn- fremur á fundinum, sem lýkur með ávarpi Lionels Jospins, for- sætisráðherra Frakka. Þeir fara nú með forystu í ráðherranefnd ráðsins og hafa síðustu mánuði gert mikið úr vináttu við Rúss- land, eins og fram kom í heim- sókn Chiracs þangað í september- lok. Leiðtogafundurinn endur- speglar þetta, önnur Austur-Evr- ópuríki njóta góðs af og næsta víst er að rætt verði um samspil Evrópuráðsins, ESB og Atlants- hafsbandalagsins, einnig hvað varðar Rússa. Um þúsund fréttamenn eru í Strassborg og gríðarleg öryggis- gæsla vegna leiðtoganna. Lokað var fyrir hótelpantanir þessa daga fyrir ári og hafa allar bókanir þurft að fara gegnum nálarauga franska innanríkisráðuneytisins. Yfir þúsund manna starfslið Evr- ópuráðsins fékk vinsamleg til- mæli um að taka sér frí, enda þyrftu öryggisverðir á skrifstof- unum að halda. Verslanir eru opnar lengur en venjulega, með Evrópufána í gluggum og út- færsla af honum í tilefni fundar- ins blaktir víða. Hótelin Hilton og Sofitel hafa verið gerð upp fyrir fundinn og starfsfólki margra hótela verið fjölgað þessa daga. Eitt hótel lét sérsmíða 2,20 metra langt rúm fyrir Rússlands- forseta og í þriggja stjörnu veit- ingastaðnum Buerehiesel standa nú 40 kokkar yfir pottum sem ausið verður úr í kvöld. Þannig er einn kokkur á leiðtoga, en hann má hafa sig allan við því aðrir embættismenn þurfa að fá mat sinn líka en alls verða 160 gestir í veislunni. Aðgerðir til styrktar lýðræð- Fyrsti leMlogafundur Evrópu- ráðsins frá stofnun þess 1949 var haldinn í Vín fyrir fjórum árum að tillögu Francois Mitterrands þáverandi Frakklandsforseta. Til- efnið var ör þróun í álfunni og stækkun ráðsins. Þetta er annar fundur leiðtoganna og sem fyrr mun hver þeirra flytja ávarp um þau mál væntanlega, sem brýnust þykja í skjali sem ráðherranefndin hefur undirbúið. Það skjal verður síðan að lokayfirlýsingu fundarins með breytingum eða viðbótum leiðtoganna. Skjalið er annars vegar stefnuyfirlýsing og hins vegar áætlun um aðgerðir á næstu árum á þeim sviðum sem ráðið telur brýnt að beita sér á. EVRÓPUHÖLLIN í Strassborg, aðsetur Evrópuráðsins. í uppkasti _að áætluninni eru fjórir kaflar. I kafla um lýðræði og mannréttindi er að finna ákvæði um nýjan Mannréttinda- dómstól Evrópu, sem sameinar núverandi Mannréttindanefnd og -dómstól og mun starfa án þeirra hléa sem nú eru. Stefnt er að því að hann taki til starfa seint á næsta ári. Embætti umboðs- manns mannréttinda verði einnig stofnað við Evrópuráðið, til að leiðbeina einstaklingum og sam- tökum. Mikið er lagt uppúr því að öll ríkin standi við'skuldbind- ingar sínar, virði Mannréttinda- sáttmálann og þá aðra sem þau hafa staðfest og gefi reglulega greinargóðar upplýsingar um stöðuna. Þess má meðal annars geta að ráðherranefnd Evrópuráðsins beindi því í vikunni til aðildarríkja að setja á fót sjálfstæða mann- réttindastofnun í hverju landi, til lagalegrar aðstoðar við stjórnvöld og einstaklinga, til að upplýsa nemendur og almenning um mannréttindi og stunda rann- sóknir á þessu sviði. í kafla um félagsmál er rætt um samræmingu milli landa, að- hald og aðstoð við lagasetningu, í menntamálum og fleiru við þau lönd sem þurfa. Ahersla var lögð á félagsmálin í undirbúningi fund- arins vegna nýrra ríkja Evrópu- ráðsins í austurhluta álfunnar. Þing ráðsins hefur lagt til að þessi málaflokkur fái sama vægi hjá ráðinu og mannréttindamál og Félagsmálasáttmáli ráðsins verði jafnvel sameinaður Mannrétt- indasáttmála þess. Þá segir í áætluninni að efla eigi Þróunar- sjóð Evrópu, sem er félagsleg lánastofnun ráðsins með höfuð- stöðvar í París. í kafla um öryggi borgaranna er hvatt til að baráttan gegn skipulagðri glæpastarfsemi verði efld. Rússar beittu sér fyrir því við undirbúning áætlunarinnar að vinnuhópur gegn spillingu_ tæki til starfa við Evrópuráðið. Áfram sé unnið gegn eiturlyfjanotkun og átak gert í barnavernd. Þess er óskað, að tillögu Belga, að löggjöf verði hert í löndunum til að koma í veg fyrir hvers kyns misnotkun barna. Loks er að áeggjan Frakka og Spánverja hvatt til aukins samstarfs ríkj- anna um aðgerðir og refsingar vegna hryðjuverka. I kafla um lýðræði og menn- ingu er rætt um lýðræðismennt- un, einkum í þágu Austur-Evr- ópuríkja, og efld nemendaskipti tilgreind sérstaklega. Bondevik spáir stjórn- armyndun í næstu viku Ósló. Reuter. KJELL Magne Bondevik, leiðtogi Kristilega þjóðarflokksins í Noregi, og forsætisráðherraefni miðflokk- anna, segist reiðubúinn að mynda stjórn á þremur til fjórum dögum eftir að hann fær umboð til stjórnar- myndunar í hendur. Það gerist að líklega á mánudag en þá hyggst Thorbjorn Jagland forsætisráðherra segja af sér eftir að stjórn hans hefur lagt fjárlagafrumvarp sitt fram. Jagland mun ganga á fund Har- aldar Noregskonungs um hádegi á mánudag og tilkynna afsögn sína. Fullvíst er talið að konungur muni boða Bondevik á sinn fund síðdegis sama dag. Flokkur hans, Miðflokk- urinn og Venstre (ftjálslyndir) hafa átt fjölda funda um væntanlegt stjórnarsamstarf að undanförnu og verður enn einn fundur haldinn í dag um málið. Þess er þó ekki vænst að hann leiði til niðurstöðu og sjálf- ur gerir Bondevik ráð fyrir að sam- starfssamningur flokkanna liggi fyrir eftir viku. Miðflokkastjórn verður í minni- hluta á þingi og henni hefur ekki verið spáð langlífi, þar sem listi þeirra mála sem kunna að fella hana er langur. Þar á meðal eru Evrópumálin; aðild Noregs að Schengen, og fyrirhugað gasorku- ver. Miðflokkarnir eru andvígir báð- um málunum en meirihluti er fyrir þeim á þinginu. • 200 MHz MMX örgjörvi • ISDN spjald m/faxhugbúnaði BYLTING .900 Kr. 139 eða 137.700 m/mótaldi í staðinn fyrir ISDIM í s@mskiptum Risatölva með ISDN korti, Microsoft Explorer 4, einn kynningarmánuður á netinu o.fl. o.fl. Vissirðu að þú getur haft samband við vini og kunningja erlendis fyrir aðeins nokkrar krðnur með þvi að nota tölvupóst, net- eða myndsíma. Hið geysiöfluga forrit Microsoft Intemet Explorer 4 gerir þér kleift að hafa samskipti við vini og kunningja á auðveldari hátt en áður. Það er ekki nðg að vera með ISDN tengingu ef tölvan er ekki nðgu öflug og hröð. Könnuðurinn er útbúinn öflugum örgjörva, miklu geymslurými og ótrúlegu vinnsluminni. Þess vegna hentar hún afar vel við leik og störf á netinu sem og annars staðar. . . .?> ■ Könnuðurinn • 3.8 6B harður diskur • ET 6000 4MB skjákort • 15" lággeisla skjár • 20 hraða geisladrif • Soundblaster 16 • 200 w hörkuhátalarar I + einn mánuður frir á netinu • 6 íslenskir leikir Sama vél nema með mótaldi í stað ISDN korts • 33.6 bás mótald • Fjórir mánuðir fríir á netinu ODYRT ORUGGT ■■ ai m am Tolvur Grensásvegi 3 • Simi 588 5900 • Fax 588 5905 Opið virka daga 10-19 • Laugardaga 10-16 • wwi/u.bttolvur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.