Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 51
Thx
DIGtTAl.
JOLAMYNDIR 1997
ISLENSKA KVIKMYNDASAMSTEYPAN
KYNNIR SPENNANDI GAMANMYND
G.l. Jane sló rækilega í gegn í
Bandaríkjunum og sat 2 uikur á
toppnum. Hasargellan Demi Moore
hefur aldrei ueriö flottari.
Leikstjóri Ridley Scott (Alien, Blade
Runner, Thelma S Louise, Black Rain)
Sýnd í A-$al kl. 430,6.45,9 og 1130. b.i. 16
Sýnd kl. 3, 5, 7,9 og 11.
Sýnd (A-sal kl. 3
ATH! Vöröufélagar fá
25% afslátt af miðaverði.
msKimmsAÐm mmm y viðskiptanetið hr
rao
DIÖITÁ
tin stærsta og glæsilegaslu mynd sem gerd lieíur verið
Ef þú sérð bara eina mynd ó óri þó er þetta myndin.
Leikstjóri: James Cameron (Terminator I og II, Aliens).
Aðalhlutverk: Leonardo DiCaprio (Romeo & Juliet)
& Kate Winslet (Sense and Sensibility).
Sýnd kl. 5 og 9. B.i. 12 ára.
n 553 2075 ALVORU BIOI nnpolby STflFRÆNT stærstb tjaldb meo
ZZT *'"*"* — HLJOÐKERFI1 ÖLLUM SÖLUM! IHX
Sýnd kl. 9 og 11.
Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.20.
G.l. Jane sló rækilega í gegn í Bandankjunum og
sat 2 vikur á toppnum. Hasargellan Demi Moore
liefur aldrei verið flottari.
Leikstjóri Ridley Scott (Alien, Blade
Runner, Thelma S Louise, Black Rain)
Héðan og þaðan
Alþjóðleg
jólaboð
► AFS skiptinemasamtökin
héldu jólaboð fyrir erlenda
skiptinema og fjölskyldur þeirra.
Flutt voru skemmtiatriði og gátu
gestir innbyrt matföng frá hinum
og þessum þjóðlöndum. Hver og
einn skiptinemi mætti nefnilega
með rétt sem var einkennandi
fyrir hans heimaland.
Morgunblaðið/Kristinn
CAMILLE Vincent frá Frakklandi, Unchalee Thanasamanchok frá
Tælandi, Jannine Koch frá Þýskalandi og Birgit Berg frá Þýskalandi.
LOET*wn'“'
Þjóðargersemar í geymslu
EITT af verkefnum Bókasafns
Bandaríkjaþings er að varðveita
kvikmyndaarf landsins. Fyrir tæp-
um tíu árum hófst skipulagt val á
þeim kvikmyndum sem taldar eni
þjóðargersemar og fá sem slíkar
sérstaka meðferð, enda kvikmynda-
varðveisla dýr. Tvö hundruð kvik-
myndum hefur þegar verið safnað
saman undir yfirskriftinni
„National Film Registry“. Nýverið
bættust 25 myndir í hópinn.
James Billington, yfirsafnvörður,
sinnir því erfiða verki að velja hvaða
myndir eru valdar til varðveislu.
Hann er hefur sér til stuðnings
National Film Preservation Board
en einnig er hlustað á tillögur frá al-
menningi. Samkvæmt lögum á að
velja þær myndir til varðveislu sem
hafa sagnfræðilegt, menningarlegt
eða listrænt gildi. Billington segir
að þær myndir sem valdar séu séu
ekkert endilega bestu bandarísku
kvikmyndirnar eða þær þekktustu,
en þær séu engu að síður ávallt
merkilegar að einhverju leyti, og
séu oft á tíðum fulltráar fleiri kvik-
mynda.
Meðal þeirra kvikmynda sem
voru valdar til varðveislu í þetta
skipti eru: „Cops“ (Buster Keaton),
„Ben-Hur: A Tale of Christ“,
„Wings“, „The Music Box“ (Laurel
og Hardy), „The Thin Man“, „The
Great Dictator", „The Big Sleep“,
„Knut Rockne, All American“ (með
Ronald Reagan), „The Naked Sp-
ur“, „Rear Window", „Bridge Over
River Kwai“, „West Side Story“,
„How the West Was Won“, „The
Hustler", „Harold and Maud“,
„Mean Street", og „Return of the
Secaucus 7“.
CLARA Bow og Richard Arlen í
„Wings“ (1927) rómantískri
mynd sem gerist í fyrri heims-
styrjöldinni.
Öldungadeild (fjjfc|
Menntaskólans við Hamrahlíð
Er ekki kominn tími til að hefja nýtt nám,
rifja upp eða bæta við fyrra nám?
Það getur þú gert hjá reyndum kennurum Menntaskólans
við Hamrahlíð.
Þú getur stundað nám í mörgum eða fáum
greinum eftir því sem þér hentar.
I MH er hægt að auka við þekkingu sína á mörgum sviðum
án þess endilega að stefna að stúdentsprófi. Við skólann
eru 6 brautir: félagsfræði- (félags- og sálfræðilína), nýmála-,
náttúrufræði-, eðlisfræði-, tónlistar- (í samvinnu við tónlist-
arskóla) og listdansbraut (í samvinnu við listdanskóla).
Margir áfangar í boði í mörgum greinum m.a.
íslenskt mál, bókmenntir og bókmenntasaga að fornu og
nýju, danska, enska, franska, ítalska, rússneska, sþænska,
þýska, eðlisfræði, efnafræði, jarðfræði, líffræði, stærðfræði,
tölvufræði, félagsfræði, hagfræði, sálfræði, stjórnmálafræði,
uppeldisfræði, Islandssaga, mannkynssagá, heimspeki,
leiklist, myndlist og hússtjórn (matreiðsla). Auk þess upp-
rifjunaráfangi í stafsetningu og stoðáfangi í stærðfræði.
Er þetta eitthvað fyrir þig?
Innritun fyrir vorönn 1998 fer fram 6.-9. janúar sem hér
segir:
6. janúar kl. 13.00-16.00
7. janúar kl. 15.00-19.00
8. janúar kl. 15.00-19.00
9. janúar kl. 13.00-16.00
Innritunardagana verða námsráðgjafar og matsnefnd til
viðtals. Deildarstjórar verða til viðtals fimmtudaginn 8.
janúarfrá kl. 17.00-19.00
Nemendur velja námsgreinar og fá afhenta stundatöflu
vorannar gegn greiðslu kennslugjalds sem hér segir:
Fyrir einn áfanga kr. 11.500
Fyrir tvo áfanga kr. 13.500
Fyrir þrjá áfanga kr. 15.500
Fyrir hvern áfanga til viðþótar kr. 1.500
Að auki er þjónustugjald NFÖMH kr. 200
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 12.
janúar.
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!