Morgunblaðið - 04.01.1998, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Borgarlögmaður fjalli um umsókn Vegas
Vegas fái vín-
veitngaleyfi í
sex mánuði
Lækkað verði í hljómflutningstækjum
BORGARRAÐ hefur vísað umsókn
um vínveitingaleyfi frá skemmti-
staðnum Vegas við Laugaveg 45,
til umsagnar borgarlögmanns. I
umsögn skrifstofustjóra Félags-
málastofnunar er lagt til að leyfið
verði veitt í sex mánuði með því
skilyrði að hávaði frá hljómflutn-
ingstækjum valdi ekki nágrönnum
ónæði. í bréfi lögmanns tveggja
íbúa kemur meðal annars fram að
á þinglýstum teikningum frá 1988
er gert ráð fyrir verslunum, þar sem
Vegas er til húsa.
Áskoranir með og á móti
í umsögn skrifstofustjóra Félags-
málastofnunar kemur fram að með
umsókninni um vínveitingaleyfi
fylgi áskorun 111 aðila, sem mót-
mæla rekstri staðarins á grundvelli
voðaatburðar sem þar varð og þeirri
dagskrá, sem þar er flutt sem lista-
og skemmtiefni. Af 111 áskorend-
um eru 15 búsettir innan eðlilegra
grenndarmarka en aðrir í öðrum
hverfum eða utan Reykjavíkur.
Samkvæmt upplýsingum þeirra
sem stóðu að undirskriftunum er
þarna um að ræða starfsfólk og
eigendur verslana í nágrenni veit-
ingastaðarins. Einnig fylgja gögn
lögmanns rekstraraðila með undir-
skriftum 244 aðila, sem lýsa stuðn-
ingi við rekstur staðarins og þá
saklausu afþreyingu og skemmtun
sem þar fari fram. Heimilisföng
fylgja ekki.
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfh
Morgunblabib
fæst á Kastrnpflugvelli
og Rábhústorginu
■kjami málsins!
Skrifstofustjóri telur í umsögn
sinni ekki eðlilegt að einstaka voða-
atburður sem byggði á ósamkomu-
lagi gesta inni á veitingastaðnum
og talin er hafa getað gerst hvar
sem var ráði þar um niðurstöðu.
Dagbókarfærslur lögreglunnar
vegna veitingastaðarins gefi ekki
tilefni til að afturkalla leyfið. Það
sé jafnframt mat hans að erfitt sé
að láta skemmtiatriði veitingastaða
sem ekki valda ónæði og ekki eru
talin ólögleg ráða niðurstöðu við
afgreiðslu umsókna.
Sameiginlegur inngangur
Jafnframt segir að í viðræðum
við fulltrúa íbúðareigenda í húsinu
við Hverfisgötu 62, hafi komið fram
að stigahús milli bygginga væri
ekki eingöngu nýtt sem neyðarút-
gangur fyrir veitingastaðinn heldur
jafnframt til almennrar umgengni
frá veitingastaðnum að efri hæð
hússins. Þetta hafi íbúunum þótt
óviðunandi. Eftir að rekstraraðila
var gerð grein fyrir þessari athuga-
semd hafi hann brugðist skjótt við
og að höfðu samráði við Eldvamar-
eftirlit borgarinnar hefur verið
komið í veg fyrir þennan umgang
nema í neyðartilvikum.
Hópþjálf-
un Gigtar-
félagsins
GIGTARFÉLAG íslands
gengst fyrir hópþjálfun sem
hefst 7. janúar. Boðið er upp
á morgunleikfimi, kínverska
leikfimi, alhliða líkamsþjálfun,
hryggiktarhópa og vatnsleik-
fimi og er miðað við að allir
geti tekið þátt, einnig þeir sem
lítið geta og vilja fara rólega
af stað, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Þjálfunin fer fram á mis-
munandi tímum dags í húsi
GÍ, Ármúla 5 og vatnsþjálfun-
in í Sjálfsbjargarlaug í Há-
túni. Skráning og nánari upp-
lýsingar eru á skrifstofu GÍ,
Ármúla 5.
NYJUNG HJA PLANET PULSE
GRUNNIHÁMSKEIÐ I YOGA
orka - Jafnvægi - árangur
Pétur Valgeirsson er
reyndur Yogakennarl
og er nýlega kominn
frá einni þekktustu
yogastöð Bandaríkj-
anna, þar sem hann
kenndi undirstöðu-
atriði Hatha Yoga o.fl.
Planet Pulse býður nú grunnnámskeið í Yoga
hjá einum hæfasta Yogakennara á Islandi,
Pétri Valgeirssyni.
Námskeiðið er haldið i fallegu og róandi umhverfi
Planet Pulse á Hótel Esju og er öllum opið.
Námsefnið er eftirfarandi:
• Grunnstöður i Hatha Yoga
• Öndunaraefingar
• Slökun
• Hugleiðsla
• Hugmyndaf ræði
Kennt er tvisvar I viku tvo tfma f senn
I fjórar vikur.
NAMSKEIDID HEFST 14.JANÚAR.
MISSTU EKKI AF BINSTÖKU TSKIFSRII
UPPLÝSINGAR O G
INNRITUIU í SÍMA 51
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
„Einstaklings
klúbburinn“
SÍÐLA sumars eða í haust
birtist í Morgunblaðinu
grein um að stofnaður
hefði verið klúbbur fyrir
einhleypinga/ógift fólk.
Nafn klúbbsins var að því
er mig minnir „Einstakl-
ingsklúbburinn" og for-
sprakki hans Pétur.
Ég hef reynt að hafa
uppi á þessum klúbbi án
árangurs. Ef einhver getur
gefið frekari upplýsingar
væri það vel þegið.
M.B.
Nú er hvítur
Esjutindur
í VELVAKANDA 19. des-
ember er fyrirspum um
höfund að: „Nú er hvítur
Esjutindur." Fyrir mörgum
árum lærði ég eftirfarandi:
Nú er úti norðanvindur
nú er hvítur Esjutindur
ef ég ætti úti kindur
myndi ég láta þær allar inn,
elsku bezti vinurinn.
Höfundur var sagður
Ólafur Kristjánsson,
Skaga-skáld.
Ó. Kei.
Um aldamótin
ENN eru menn að velta
vöngum yfir aldamótun-
um. Ýmsir virðast ekki vita
að árið 0 var aldrei til og
telja því næstu aldamót
árið 2000. En hvenær kom
0 til sögunnar? Indverskar
bækur benda til að það
hafi þekkst þar eystra fyr-
ir Krists burð og það sé
komið úr búddiskum fræð-
um en það náði ekki út-
breiðslu. Það er svo ekki
fyrr en á 9. öid að arabar
endurfinna það og Vestur-
landabúar taka að nota það
á 12. öld. Áður en arabísku
tölustafirnir komu til sög-
unnar voru bókstafir not-
aðir fyrir tölustafi svo sem
í grísku, hebresku og lat-
nesku (rómverskar tölur).
Þá stafi þekkjum við best.
Kirkjufeðumir sem reikn-
uðu út fæðingarár frelsar-
ans voru nú einmitt í hinu
forna heimsveldi Rómveija
og hafa því sett upphaf
tímatalsins I, annað kemur
ekki til greina. Næstu
aldamót eru samkvæmt því
þegar árið 2001 gengur í
garð enda voru þau síðustu
haldin 1. janúar 1901.
S. Andersen.
Vikartindsmyndir
SÁ SEM sendi Víkartinds-
myndimar til birtingar í
Velvakanda fær kærar
þakkir og óskir um gleði-
íegt ár og kveðjur frá fólk-
inu á myndinni.
Tapað/fundið
Hver fann
seðlaveskið mitt?
ÉG tapaði peningaveskinu
laugardaginn 27. desem-
ber annaðhvort í leigubíl
eða á Fomhaga. Skilvís
finnandi vinsamlega hafið
samband við Ottó í síma
551 7567. Fundarlaun.
Lyklar fundust við
brennu
ÞRÍR lyklar á kippu og
tveir slípaðir íslenskir
steinar (grænblár og
brúnn) fundust við brenn-
una við Ægissíðu á nýárs-
dag. Uppl. í síma
561 1423.
SKÁK
Llmsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp í úrslit-
um í Evrópukeppni taflfé-
laga, sem fram fóru í Kas-
an í Rússlandi um
síðustu mánaða-
Kasan fékk að vera með í
úrslitunum vegna þess að
Taflfélagið Hellir átti þátt-
tökurétt, en hvarf frá Rúss-
landsferð. Hellismenn unnu
óvæntan sigur í undan-
rásariðli sem fram fór í
Frakklandi í haust.
Heimsmeistaraeinvíg-
SVARTUR leikur og vinnur.
mót. A.N. Panc-
henko (2.420),
Kasan, B-sveit, var
með hvítt, en Alek-
sei Drejev
(2.640), Kasan,
A-sveit, hafði svart
og átti leik.
23. - Hxf3! 24.
gxf3 - Dg6+ 25.
Khl - Dh5 26.
Hdl - Be5!!
(Fórnar hrók með
skák, en nú er hvít-
ur óverjandi mát!)
27. Hxd8+ - Kf7
28. f4 - Bxf4 og hvítur
gafst upp.
B-sveit heimamanna í
ið: Þriðja skákin er tefld í
dag á Ólympíusafninu í
Lugano í Sviss.
COSPER
Við mamma fórum í rosalega sniðuga búð þar sem
við fengum ókeypis blöðru fyrir hvern 2000 kall
sem við eyddum.
Víkveiji skrifar...
NÝTT ÁR, árið 1998, er gengið
í garð. Gamla árið, árið 1997,
hefur kvatt. Það var gott ár, bæði
veðurfarslega og þjóðhagslega.
Fyrir hundrað árum kvaddi ann-
að ár, árið 1897. Það blés mönnum
þor í bijóst í ljóðum góðskáldanna
Einars Benediktssonar og Þorsteins
Erlingssonar, sem þetta ár gáfu
báðir út sínar fyrstu bækur. Lands-
mönnum, ekki sízt Reykvíkingum,
stóð hins vegar ógn af linnulausri
ásókn enskra botnvörpunga á fiski-
miðin í Faxaflóa.
Enginn veit hvað árið 1998 ber
í skauti. Það þarf að vera meira en
lítið til að jafnast á við afrek örþjóð-
arinnar annó 1898. Þá var vígður
glæsilegur barnaskóli í Reykjavík.
Þá var reist hús Landsbankans á
horni Austurstrætis og Pósthús-
strætis. Þá var vígður holdsveikra-
spítali í Lauganesi. Það ár lauk
Þorvaldur Thoroddsen rannsóknar-
ferðum um hálendið. Það ár lifði
bóndinn Kristinn Jónsson af fimmt-
án hrakningardaga á hálendinu í
vetrarveðrum. Hann villtist á fjöll-
um Norður í Eyjafirði, gekk þvert
yfir örævi landsins, og kom fram í
Árnessýslu.
Þrisvar sinnum fjölmennari,
mörgum sinnum ríkari, með mennt-
un, tækni og þekkingu nútímans í
höndunum, þurfum við að lyfta
ærnum grettistökum, til að vera
jafnokar landa okkar fyrir hundrað
árum!
*
ARIÐ 1998 er afmælisár í ís-
lands sögu. Fyrir áttatíu
árum, 1. desember 1918, varð ís-
land fullvalda ríki. Sambandslög,
svokölluð, vorú samþykkt í þjóðar-
atkvæðagreiðslu 19. október 1918
með 12.411 atkvæðum, en 999
voru á móti. Kosningaþátttaka var
slök, aðeins 43,8%. Samt sem áður
var verið að stíga stórmerkt skref
til farsældar fyrir íslenzka þjóð.
Stefnan sett á sambandsslit og lýð-
veldisstofnun aldarfjórðungi síðar.
Á árinu 1998 eru fimmtíu ár lið-
in frá setningu laganna um vísinda-
lega verndun fiskimiða landgrunns-
ins (1948), sem allar útfærslur fisk-
veiðilögsögunnar voru grundvallað-
ar á. Með þeirri lagasetningu var
lagður grunnur að efnahagslegu
fullveidi þjóðarinnar. Hvorki meira
né minna.
xxx
IDAG er 4. janúar. Sá dagur
kemur og ríkulega við sögu
okkar. Þann dag árið 1917 tók
fyrsta íslenzka ráðuneytið til starfa.
Heimastjórn kom að vísu til sögunn-
ar árið 1904; þá var embætti lands-
höfðingja lagt niður. Ráðherra ís-
lands með aðsetur í Reykjavík hóf
störf. En 4. janúar árið 1917 fjölg-
aði ráðherrum úr einum í þtjá.
Á morgun er 5. janúar. Þann
dag árið 1874 gaf Kristján konung-
ur IX út „stjórnarskrá um hin sér-
staklegu málefni íslands". Þetta
ár var haldið hátíðlegt þúsund ára
afmæli íslandsbyggðar. Stjórnar-
skráin þótti meingölluð en fól engu
að síður í sér mikilvægar réttar-
bætur.
Þrettándinn, þ.e. þrettándi og
síðasti dagur jóla, er síðan á þriðju-
daginn kemur, 6. janúar. Þá „rotar“
landinn jólin, ef að líkum lætur, og
horfir fram á þorrann og það sem
honum heyrir til.
XXX
TÓMAS Guðmundsson, sem oft
var nefndur borgarskáld, var
fæddur 6. janúar 1901 (d. 1983).
Fáir af góðskáldum líðandi aldar
„sungu“ sig svo vel inn í hjörtu
landsmanna sem hann. Borgar-
skáldið var að vísu vetrarbarn, þ.e.
fæddur að vetri tii. En hann var
skáld vors og gróanda, fegurðar og
gleði. Það fer vel á því að enda
þessa fyrstu Víkveijaþanka nýs árs
á hendingum Tómasar:
Nú veit ég, að sumarið sefur
í sál hvers einasta manns.
Eitt einasta augnablik getur
brætt ísinn í bijósti hans,
svo fjötrar af huganum hrökkva
sem hismi sé fleygt á bál,
unz sérhver sorg öðlast vængi
og sérhver gleði fær mál.
Megi nýja árið færa okkur feg-
urð og gleði!