Morgunblaðið - 15.02.1998, Page 2
2 SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýtt alnæmistilfelli greinist að jafnaði á tveggja mánaða fresti
Fleiri konur gi’eindust
með HlV-veiruna í fyrra
JAFNVÆGISÁSTAND virðist ríkja í útbreiðslu
HlV-veirunar hér á landi þótt fleiri tilfelli hafi
greinst á síðasta ári en undanfarin ár.
Haraldur Briem sóttvamalæknir segist ekki
telja að um marktæka aukningu sé að ræða þótt
óvenjumörg ný tilfelli hafi greinst á síðasta ári.
Greining veirunnar gangi upp og niður og menn
þurfi að líta nokkur ár til baka til að átta sig á því
hver þróunin sé.
„Ný tilfelli koma að jafnaði fram á eins til
tveggja mánaða fresti,“ segir Haraldur. „Heild-
arfjöldi smitaðra fer því vaxandi þar sem sífellt
bætist í hóp þeirra sem greinast með veiruna."
Haraldur segir hlutfall gagnkynhneigðra sem
greinast með veiruna og þá sérstaklega kvenna
fara vaxandi. Þetta sé að hans mati í samræmi
við munstur sjúkdómsins og komi ekki á óvart.
Smit hafi í upphafi verið mest áberandi meðal
samkynhneigðra karlmanna og fíkniefna-
neyenda. Það hafi nú borist yfir í konur og í
framhaldi af því megi einnig búast við aukningu
tilfella meðal gagnkynhneigðra karlmanna.
Árangursrík lyQameðferð
Haraldur segist þó vera nokkuð bjartsýnn.
Sjúklingar hafi undirgengist nýja öfluga
lyfjameðferð hér á landi frá því í febrúar 1996
sem hafi orsakað gífurlega breytingu til batnað-
ar. Meðferðin geri það að verkum að minni líkur
séu á því að þeir sem eru smitaðir af HIV-
veirunni fái alnæmi og að þeir sem fái sjúkdóm-
inn látist af völdum hans. Innlögnum á sjúkrahús
hafi fækkað mikið og dæmi séu um að fólk sem
hafi verið mikið veikt hafí snúið aftur til eðlilegs
lífs.
Einnig segir hann lyfið hydroxyurea, sem hafí
verið notað gegn blóðkrabbameini, vera mjög öfl-
ugt sé það notað með alnæmislyfjunum. Það geri
smitaðar frumur næmari fyrir lyfjameðferðinni
þannig að þær deyi fyrr. Haraldur segir að til
hafi staðið að hefja notkun þess hér á landi en
hann viti ekki enn til þess að það hafi verið gert.
Samvinnuferðir-Landsýn
Páskaferð frá Bret
landi á 9.500 kr.
Fasteigna-
vefur Morg-
unblaðsins
MORGUNBLAÐIÐ eykur
enn vefútgáfu sína í dag með
opnun fasteignavefjar. Fast-
eignavefnum er ætlað að gera
fólki kleift að leita að fasteign-
um á vefnum en á fjórða þús-
und fasteignir eru kynntar á
vefnum.
Auk þess má finna fréttir
tengdar fasteignamarkaðinum,
handbók sem svarar ýmsum
algengum spurningum, lána-
reikni sem reiknar út afborg-
anir lána vegna fasteigna-
kaupa og svo framvegis.
Fasteignavef Morgunblaðs-
ins má finna með því að slá inn
slóðina www.mbl.is/fasteign-
ir/ Líkt og Fréttavefurinn er
Fasteignavefurinn öllum op-
inn, endurgjaldslaust.
SAMVINNUFERÐIR-Landsýn
bjóða Islendingum á Bretlandseyj-
um fargjöld heim og út aftur um
páskana á 80 sterlingspund eða um
9.500 kr. Markmið félagsins er að
vera með helmingi lægra fargjald
en þau flugfélög eða ferðaskrifstof-
ur sem bjóða næstbest og gæti far-
seðillinn því lækkað enn meira.
Helgi Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Samvinnuferða,
segir að í fyrra hafi einn félagi í Is-
lendingafélaginu í London spurst
fyrir um kjör hjá ferða-
skrifstofunni. Félagið hafi gert
gott tilboð í þessar ferðir sem hafi
leitt til þess að umræddur félags-
maður og ferðaskrifstofan hafi
fengið hótanir frá stjóm íslend-
ingafélagsins og breskum lög-
manni þess, meðal annars um
skaðabætur fyrir að ávarpa fólk í
félaginu. Það varð til þess að hætt
var við þessar ferðir. „Við látum
hins vegar ekki bjóða okkur þessi
vinnubrögð og höfum skipulagt
ferð um páskana sem við munum
kynna hér heima,“ segir Helgi.
Hugsanlegt framhald
Um er að ræða vikuferð um
páskana frá Manchester á þriðju-
degi fyrir páska og til baka aftur
þriðjudaginn eftir páska. Farið er
með vél Atlanta sem tekur 360 far-
þega. Fargjaldið báðar leiðir er 80
pund eða 9.500 kr. án flugvallar-
skatta.
Morgunblaðið/Benedikt
Bræla á
loðnu-
miðunum
BRÆLA var á miðunum úti af
Austurlandi í fyrrinótt og héldu
skipin til hafnar síðdegis á föstu-
dag. Gerðu skipstjórar sér vonir
um að komast út aftur í gær-
kvöld. Hólmaborgin fékk 800
tonn í troll og landaði á Eskifirði
á fóstudag, en margir bátar voru
með slatta. Loðnan er ýmist fryst
fyrir Rússlandsmarkað eða sett í
bræðslu. Hrognafylling er
11-12% og er það ekki nægjan-
legt fyrir Japansmarkað, auk
þess sem áta er í loðnunni. Full-
trúar japanskra kaupenda eru
orðnir fjölmennir á AustQörðum
og á myndinni skoða þeir loðn-
una úr Hólmaborg á Eskifirði.
A
► 1-56
Hækkun sjálfræðis-
aldurs. Og hvað svo?
►Sjálfræðisaldurinn hækkaði úr
16 í 18 ár frá áramótum um leið
og ný lög tóku gildi. /12
Ný von vaknar
í Hondúras
► Nýr forseti Hondúras tók við
völdum á dögunum og vonir vakn-
að um að betri tíð sé í vændum. /16
í fótspor föðurins
► Anna Soffía Hauksdóttir varð
prófessor í rafmagnsverkfræði að-
eins þritug að aldri. /24
Velgengni í óstöðugri
atvinnugrein
►í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Jón Þór
Haraldsson hjá Saga film. /26
B
► 1-24
Lundinn -
Ijúfastur fugla
►í Vestmannaeyjum fer nú fram
viðamikil athugun á atferli og hátt-
um lundans. /1&10-13
Örlagadómur Titanic
►Titanic slysið er mönnum hug-
leikið þessa dagana. /10
Á Broadway skína
skærustu stjörnur
►Ólafur Laufdal er að breyta
nafninu á skemmtistað sínum. /14
c
FERÐALOG
► 1-4
Stokkhólmur—Hels-
inki — Stokkhóimur
►Fjórtán tímar í fljótandi lúxus-
hóteli. /2
Landinn sækir í sólina
enn sem fyrr
►Ferðaskrifstofumar kynna sum-
arbæklingana um helgina. /4
ID BÍLAR
► 1-4
Stefnir að því að eign-
ast Lexus RX300
►Þórarinn Sigþórsson tannlæknir
hyggjst verða fyrstur íslendinga
að á eignast þennanx nýja lúxusj-
eppa. /3
Reynsluakstur
►Prelude með fjórhjóla- stýri og
VTEC-vél. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► 1-16
Fyrsta vottunarstofan
fyrir sérfræðikunn-
áttu
►Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn í
Hafnarfirði hefur verið útnefndur
sem fyrsta alþjóðlega vottunar-
stofan fyrir sérfræðikunnáttu hér
álandi. /16
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Brids 42
Leiðari 28 Stjömuspá 42
Helgispjall 28 Skák 42
Reykjavíkurbréf 28 Fólk í fréttum 46
Minningar 30 Útv./sjónv. 44,54
Myndasögur 40 Dagbók/veður 55
Bréf til blaðsins 40 Dægurtónl. 16b
Idag 42 Mannlífsstr. 20b
INNLENDARFI ÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6
Atvinnu- og raðaugl. forsiða: