Morgunblaðið - 15.02.1998, Qupperneq 8
8 SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞÚ MÁTT alveg fá hann Bangsímon þinn aftur, mr. Blair. Clinton er orðinn svo
stór, að hann er farinn að leika sér við stelpur.
Jdhanna Sigurðardóttir Þingflokki jafnaðarmanna
Framvarp um fjárreið-
ur sljórnmálasamtaka
JÓHANNA Sigurðardóttir, Þing-
flokki jafnaðarmanna, mælti á
föstudag fyrir frumvarpi um starf-
semi og fjárreiður stjórnmálasam-
taka, en meðflutningsmaður hennar
er Össur Skarphéðinsson, Þing-
flokki jafnaðarmanna. Frumvarp
þetta hefur verið flutt á þremur síð-
ustu þingum en hefur ekki hlotið af-
greiðslu.
„I frumvarpi þessu er farin sú
leið að setja lagaramma um starf-
semi allra stjórnmálaflokka, einnig
þeirra sem bjóða fram til sveitar-
stjórna," sagði Jóhanna. ,Annar
kafli nær hins vegar aðeins til
stjómmálasamtaka sem bjóða fram
til Alþingis, en í ákvæði til bráða-
birgða II er lagt til að dómsmála-
ráðherra undirbúi löggjöf í samráði
við Samband íslenskra sveitarfélaga
sem tryggi framboðum til sveitar-
... _
jýí|ú}iú|i:! Í. 4'i 4 'iij íl u
ALÞINGI
stjórna framlög úr sveitarsjóðum."
Jóhanna sagði að á íslandi hefði
lengi tíðkast að einstaklingar og
fyrirtæki styrki fjárhagslega þá
stjórnmálaflokka sem þeir styðji.
„Það getur vissulega skapað tor-
tryggni að leynd skuli hvíla yfír há-
um styrkjum frá einstaklingum eða
fyrirtækjum, enda er það óeðlilegt,"
sagði hún. Jóhanna sagði að auk
þessara frjálsu framlaga væru ís-
lenskir stjómmálaflokkar fjár-
magnaðir af ríkissjóði. Það væri
öðmm þræði gert til þess að jafna
aðstöðu flokkanna. Það samræmd-
ist ekki hugmyndum manna um lýð-
ræði ef aðeins fjárhagslega sterk
samtök gætu boðið fram til Alþing-
is. Jóhanna sagði ennfremur að í
frumvarpinu væri gert ráð fyrir að
mótaðar verði lögbundnar reglur
um ríkisframlög sem allir stjóm-
málaflokkar gætu gengið að.
Jóhanna sagði að síðustu að þeir
atburðir sem orðið hefðu í byrjun
þessa árs, og vísaði þar til deilu
Kvennalistakvenna um skiptingu
fjárframlags ríkisins, sýndu ljóslega
að það væri mjög brýnt að setja lög
um fjárreiður stjórnmálaflokka.
Framlög miðist við þingmenn
I umræðum um framvarpið vora
m.a. gagnrýndar þær greinar sem
kveða á um það hvemig stjómmála-
samtök skuli skipuleggja sig. Sagði
Kristinn H. Gunnarsso, þingmaður
Alþýðubandalags og óháðra, að slík
ákvæði væra óþörf. Löggjafinn ætti
ekki að setja slíkar reglur, það væri
í höndum samtakanna sjálfra. Guð-
ný Guðbjörnsdóttir, þingmaður
Kvennalista, sagði m.a. að Kvenna-
listinn væri að undirbúa framvarp
svipaðs eðlis en kvaðst skyldi styðja
það að framvarp Jóhönnu fengi al-
varlega umræðu í allsherjarnefnd.
Ólafur Þ. Þórðarson, þingmaður
Framsóknarflokks, gagnrýndi ým-
islegt í frumvarpinu m.a. þá grein
sem kvæði á um það að ef framlög
til stjómmálasamtaka færu yfir 300
þúsund krónur á hverju reiknings-
ári skyldi nafn styrktaraðila birt
samhliða birtingu ársreikninga. í
máli Ólafs kom fram að slíkt ákvæði
væri tilgangslaust þar sem auðveld-
lega væri hægt að komast hjá því.
Ólafur lagði einnig áherslu á að
framlög ættu að miðast við þing-
menn en ekki flokka, en því var
Guðný Guðbjömsdóttir ósammála.
Vandíb
qeymslu matvæla
** "Hitastigiö skiptir miklu máli.
# Það ræðst af hitastiginu hvort bakteríur fjölga sér í matvælum.
# Geymið kælivöru við 0-4°C, þá fjölgar bakteríum hægt.
# Kælið mat hratt niður. Hafið mat sem styst í hitastigi 10-50°C.
# Gætið að hitastiginu í kæliskápnum, það er oft hærra en 4°C.
# Hitamælar eru ekki dýrir, en geta komið sér vel.
# Upphitun þarf að ná 75°C til að drepa bakteríur. Gætið einnig að
þessu þegar hitað er í örbylgjuofni.
# Haldið mat heitum við a.m.k. 60°C, til að koma í veg fyrir
að bakteríur fjölgi sér.
HOLLUSTUVERND RÍKISINS
Ármúla 1a, Reykjavík. Þjónustu- og upplýsingasfmi 568-8848.
Ritgerðasamkeppni um frelsi
Við viljum virkja
frelsiskynslóðina
UNGT fólk í dag er
frjálslynt, umburð-
arlynt og afslappað
gagnvart boðum og bönn-
um segir Andrés Andrés-
son annar framkvæmda-
stjóra ritgerðasamkeppni
SUS um frelsispennann
ásamt Helga Zimsen við-
stdptafræðinema.
Markmið keppninnar er
að vekja ungt fólk til um-
hugsunar um mikilvægi
frelsis fyrir einstaklinga
og samfélag og stuðla að
frekari umræðu meðal
þess um frelsið. „Við eram
ekki að reyna að breyta
fólki í öfgafulla frjáls-
hyggjumenn en ungt fólk
þarf að gera sér grein fyrir
því að frelsið er alls staðar
að verki,“ segir Andrés.
Þátttaka í keppninni er heimil
öllu ungu fólki 16-20 ára og geta
þeir sem vilja sent inn smásögur,
ritgerðir eða ljóð, sem lýsa mikil-
vægi frelsis fyrir einstaklinginn.
Hámarkslengd er 7 blaðsíður og
hægt að nálgast frekari upplýs-
ingar á heimasíðu Frelsispenn-
ans www.xd.is/frelsi
Höfundur besta efnisins hlýt-
ur frelsispennann til eignar og
60.000 króna verðlaun en önnur
verðlaun era 30.000 krónur.
Verðlaunin verða veitt í boði sem
haldið verður fyrir alla þátttak-
endur.
- Nú hefur ungt fólk það orð á
sér að skorta hugsjónir og bar-
áttumál og er oft merkt með
nafni x-kynslóðarinnar eða þeirr-
ar týndu. Hvað segir þú um það?
„Ungt fólk í dag er mjög af-
slappað gagnvart boðum og
bönnum, X-kynslóðin svokallaða
hlustar til dæmis á ákveðna teg-
und tónlistar og vill losa sig und-
an tilteknum höftum. Við viljum
frekar kenna ungt fólk í dag við
frelsið og kalla það frelsiskyn-
slóð, því það er tilbúið til þess að
þola sjálfu sér og öðram meira
en forverar þess af ‘68 kynslóð-
inni.
Hins vegar er langt í frá að
þessi kynslóð sé ábyrgðarlaus.
Ungt fólk í dag er meðvitaðra
um mannréttindi en þær kyn-
slóðir sem komið hafa á undan.
Það býr auðvitað við talsvert
frelsi og jafnvel miklu meira
frelsi en eldri kynslóðir, til dæm-
is frjálst útvarp. Þá hefur ungt
fólk séð flokksblöðin hverfa og
frjálsa og óháða fjölmiðla taka
við. Þessi kynslóð man varla eftir
því hvemig kommúnisminn var
eða lífið fyrir fall
Berlínarmúrsins.
En það er mikill
misskilningur að ungt
fólk hafi ekki skoðan-
ir. Það fær bara ekki
mikið að tjá þær þvi
aðrir gefa sér að það
sé skoðanalaust. Ungt fólk
fylgist mjög vel með því sem ger-
ist úti í heimi, svo dæmi sé tek-
ið.“
- Er baráttunni ekki bara lok-
ið?
„Nei, það er svo margt annað
sem á eftir að vinna. Það er ekki
langt síðan að Islendingar tóku
upp réttarkerfi sem samrýmist
Mannréttindasáttmála Evrópu,
kannski 8 eða 9 ár, og það má
ekki gleyma því sem unnist hef-
ur. Okkur finnst frelsið sjálfsagt
en það er hægt að afnema það
með mjög lítilli fyrirhöfn. Þriðj-
ungur ríkja heimsins býr við ein-
hvers konar form einræðis og
þegnar mjög margra ríkja þurfa
að þola skerðingu mannréttinda
► Andrés Andrésson fæddist í
Reykjavík árið 1974. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum við Hamrahlfð árið 1994
og hóf nám í stjórnmálafræði
árið 1996. Hann er fram-
kvæmdastjóri ritgerðasam-
keppni Sambands ungra sjálf-
stæðismanna um frelsið.
að einhverju leyti. Þannig að við
einblínum ekki einvörðungu á lít-
ilsháttar frelsisskerðingu hér
heima. Við þurfum að sjá hlutina
í stærra samhengi.“
- Hvað á ungt fólk við með
frelsiskerðingu hér? Stífan opn-
unartíma veitingahúsa eða einka-
leyfi á sölu áfengis?
„Það virðist kannski léttvægt
en skiptir samt sem áður miklu
máli, til dæmis varðandi viðhorf
til ríkisins. A það að vera stóri
bróðir eða pabbi sem heldur í
höndina á okkur? Það ætti að
vera í lagi að leyfa okkur að leika
lausum hala svo fremi að við
sköðum ekki aðra. Frelsi fylgir
ábyrgð og ég tel ungt fólk vera
hugsandi einstaklinga. Það þekk-
ir takmörk frelsisins."
- Hvaða höft önnur búum við
við?
„Hér ríkir ekki fullt atvinnu-
frelsi sem þýðir að skortur er á
framkvæði og nýsköpun hjá
einkafyrirtækjum. Þannig vant-
ar grandvöll til fjárfestingar og
fjölgunar atvinnutækifæra. Þetta
skiptir máli fyrir frelsi ungs
fólks til þess að hafa atvinnu í
framtíðinni. Of mikið vafstur rík-
isins í atvinnurekstri snertir
frelsi ungs fólks, beint og óbeint.
Einnig má nefna frelsi til þess
að halda eftir stærst-
um hluta launa sinna.
Þarf fólk að horfa upp
á það stóram hluta
tekna þess sé sóað í
ríkissjóði?"
- EkM má gleyma
frelsinu til þess að
fiytja iír landi sem ungt fólk virð-
ist ætla að nýta sér ef marka má
kannanir, eða hvað?
„Það vill fá að nýta þá mennt-
un sem það hefur aflað sér. Ef
stöðnun ríkir í atvinnulífinu hér
getur það ekki nýtt sér þekking-
una.“
- Er þetta ekki skortur á
skyldurækni við föður- og móð-
urlandið sem ól það upp?
„Eg held að flest ungmenni
vilji búa hérlendis og afla sér
lífsviðurværis hér en það þarf að
skapa þeim tækifæri. Það getur
ríkisvaldið gert með því að búa
til réttan farveg. En það á ekki
að vasast í smáatriðum daglegs
lífs. Hvað kemur ríkinu til dæmis
við hvað við heitum?"
Ætlum ekki
að búa til
öfgafulla
frjálshyggju-
menn