Morgunblaðið - 15.02.1998, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.02.1998, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT ÓL í Nagano 15 km ganga karla: (Eltiganga, ræst út eftir tímum í 10 km göngunni) 1. Thomas Alsgaard (Noregi)...1:07:01.7 2. Björn Dæhlie (Noregi)......1:07:02.8 3. Vladimir Smirn. (Kasakstan)...1:07:31.5 4. Silvio Fauner (ítaliu).....1:07:48.9 5. Fulvio Valbusa (Ítalíu)....1:07:49.1 6. Mika Myllylae (Finnl.).....1:07:50.6 7. Markus Gandler (Austurr.)..1:08:14.2 8. Jari Isometsae (Finnlandi).1:08:19.4 9. Sergei Tchepikov (Rússl.)..1:08:24.3 10. Niklas Jonsson (Sviþjóð)...1:08:25.7 11. Achim Walcher (Austurr.)...1:08:26.9 12. Andreas Schluetter(Þýskal.)...1:08:32.3 13. FabioMaj (Ítalíu)..........1:08:55.4 14. Alois Stadlober (Austurr.).1:08:57.1 Norræn tvíkeppni (Samanstendur af stökki af 90 metra palli og 15 km göngu). 1. Bjarte Engen Vik (Noregi)....41:21.1 2. Samppa L. (Finnl.)...27.5 sek á eftir 3. Valery Stolyarov (Rússl.).......28.2 4. Kenji O. (Japan)..1:21.1 mín. á eftir 5. Milan Kucera (Tékklandi)......1:24.7 Íshokkí Undankeppni kvenna: Svíþjóð-Japan.........................5:0 Finnland-Kína.........................6:1 Karlar D-riðill: Bandaríkin - H-Rússland...............5:2 (2-1 1-0 2-1). Chris Chelios (09:06), Pat Lafontair.e (10:31), Brian Leetch (28:16), Brett Hull (53:45), Adam Deadmarsh (58:14) - Viktor Karachun (18:02), Vasily Pankov (40:27). Kanada - Svíþjóð......................3:2 (0-1 3-0 0-1). Joe Nieuwendyk (31:56), A1 Maclnnis (37:02), Rob Blake (39:53) - Nicklas Lidst- rom (15:27), Mats Sundin (49:31). Staðan Kanada...................2 2 0 0 8:2 4 Sviþjóð..................2 1 0 1 6:5 2 Bandaríkin...............2 1 0 1 7:6 2 Hv-Rússland..............2 0 0 2 2:10 0 500 m skautahlaup kvenna: mín. 1. Catriona Le May Doan (Kanada) ..1:16.60 2. Susan Auch (Kanada)..........1:16.93 3. Tomomi Okazaki (Japan)........1:17.10 4. Franziska Schenk (Þýskal.)...1:17.45 Körfuknttleikur NBA-deildin Leikir aðfaranótt laugardags Indiana - Dallas.......... ■Eftir tvíframlengdan leik. Charlotte - Philadelphia. New Jersey - Toronto..... Orlando - New York....... Miami - Detroit.......... Chicago - Atlanta........ Denver - Minnesota........ Portland - Houston........ Golden State - Sacrametno. La Clippere - Boston..... La Lakers - Seattle...... ■Eftir framlengingu. Leiörétting í umfjöllun blaðsins um bikarúrslitaleik kvenna í gær var sagt að Keflavíkurstúlkur væru núverandi íslandsmeistarar. Þetta er að sjálfsögðu ekki rétt því Grindavík er íslandsmeistari kvenna 1997. Beðist er vel- virðingar á mistökunum. ....82:85 ..103:96 130:115 ....83:99 ..100:86 112:110 ..80:107 ...105:81 ..92:109 ...96:97 108:113 ÓL í NAGANO Nú var það silfur-Björn TOMAS Alsgaard varð ólympíumeistari í 15 km göngu og kom þannig í veg fyrir að landi hans, Björn Dæhlie, næði að fagna sjöundu gullverðlaununum á ólympíuleikum og vera þannig sigursælasti íþróttamaður vetrarleika frá upphafi. Dæhlie fór fyrstur af stað og hafði forystu þar til aðeins 200 metrar voru eftir en þá skaust Alsgaard framúr og nældi í gullið. Valdimir Smirnov frá Kasakstan varð þriðji. Dæhlie fór vel af stað og var með 20 sekúndna forystu á næstu menn þegar gangan var hálfnuð. Alsgaard, sem var ræstur af stað 24 sekúndum á eftir Dæhlie, náði honum þegar sex kílómetrar voru eftir. Hann fylgdi Dæhlie eins og skugginn að markinu og þegar 200 metrar voru eftir hófst endasprettur þeirra. Alsgaard átti meira inni og þaut framúr og Dæhlie varð að gera sér annað sætið að góðu. Þegar kom að síðustu brekkunni áður en komið var inn á leikvanginn þar sem markið var hægði Dæhlie á sér og bauð Aisgaard að fara framúr. En Alsgaard var ekki á því enda hefur hann aldrei tapað fyrir Dæhlie á endaspretti. „Eg var löngu búinn að ákveða það fyrir keppnina að fara ekki framúr Dæhlie, heldur vera fyrir aftan hann og hvíla mig fyrir lokasprettinn. Það fór mikil orka í það að ná honum. Ég vissi að það þýddi ekki að reyna að stinga hann af í brekkunum, því var skynsamlegast að bíða og taka framúr á endasprettinum," sagði Alsgaard. „Auðvitað er samkeppni á milli okkar, „ sagði Alsgaard sem býr í sömu götu og Dæhlie í norska bænum Nannestad, sem er 60 km vestur af Ósló. „Það er mikil barátta um það að vera bestur í götunni," sagði ólympíumeistarinn. „Það eru aðeins 200 metrar á milli húsa okkar. Nú sendir hann börnin sín yfir til mín til að kasta grjóti í rúðurnar," sagði Alsgaard í gríni. „Björn er frábær skíðamaður og verður í fremstu röð svo lengi sem hann verður með.“ Alsgaard vann þama önnur gullverðlaun sín á Ólympíuleikum því hann sigraði í 30 km göngunni í LiUehammer fyrir fjórum árum. Hann náði sér hins vegar ekki á strik í 30 km göngunni í Nagano í síðustu viku þar sem hann hætti keppni. Átti þá í vandræðum eins og félagar hans í norska landsliðinu með skíðaáburðinn. „Ég vissi að Tomas væri sterkur á endasprettinum og eina von mín var að auka bilið milli okkar í brekkunum. En ég fann fyrir þreytu í fótunum eftir tvær erfiðar göngur og náði því ekki að slíta mig frá honum,“ sagði Dæhlie. „Ég komst ekki hraðar og er mjög ánægður með silfurverðlaunin." Reuters Norðmenn sigursælir NORÐMENN voru sigursælir á Ólympíuleikunum í Nagano í gær. Þeir sigruðu í 15 km göngu og i norrænni tvíkeppni. Á myndinni eru: Tomas Alsgaard, ólympíumeistari í 15 km göngu, Bjarte Engen Vik, ólympíumeistari í norrænni tvíkeppni og Bjöm Dæhlie, sem varð annar í 15 km göngunni. Brynja á brun- æfingu BRYNJA Þorsteinsdóttir frá Akureyri æfði í brunbrautinni í Nagano í gærmorgun, en hún keppir í alpatvíkeppni á morg- un. Hún fór tvær ferðir í brun- brautina. í síðari umferð náði hún 44. besta tímanum og var sex sekúndum á eftir besta brautartímanum. Hún sleppti hins vegar hliði í fyrri umferð. íslenska ólympíuliðið er við góða heilsu að sögn Kristjáns Vilhelmssonar, aðalfararstjóra liðsins. „Það eru engin veik- indi og allir mjög ánægðir með lífið hér í Nagano. Við tókum okkur frí í dag frá æf- ingum vegna veðurs og vorum að koma af leik Kanada og Svía í íshokkí og skemmtum okkur vel,“ sagði hann við Morgunblaðið í gær og bað fyrir kveðjur heim. Veður truflar alpa- greinar VEÐUR hefúr sett stórt strik í reikninginn í alpagreinum Ólympíuleikanna og hafa menn nú áhyggjur af því að hægt verði að keppa í öllum greinunum áður en þeim lýk- ur. í fyrrinótt varð að fresta bruni kvenna og risasvigi karla vegna þoku og rigning- ar. „Við megum ekki við því að missa út fleiri daga,“ sagði Giienter Hujara, sem á sæti í tækninefnd alpagreinanna í Nagano. Nú hafa fjórir dagar af sjö fallið út vegna veðurs. Þetta ástand er einnig slæmt fyrir aðra keppendur, sem hafa ekki getað æft mikið síð- ustu daga vegna veðurs. KNATTSPYRNA Útsláttarkeppni í Getraunakeppni Evrópu Spænsk og ítölsk lið keppa í fyrsta sinn og ensk félög aftur með NÝTT fyrirkomulag í Getrauna- keppni Evrópu í knattspymu, Toto-keppninni, varð til þess að Rnattspyrnusambönd Ítalíu og Spánar hafa samþykkt að senda hvort sín tvö liðin í keppnina í sumar en þau hafa ekki verið með síðan hún byrjaði 1995. Englendingar, sem sendu þrjú lið fyrsta árið og hafa ekki verið með síðan, hafa einnig staðfest þátttöku í sumar en þrjú efstu liðin í keppninni fara í Evrópu- keppni félagsliða, UEFA-keppn- ina, í haust. 1995 sendu Tottenham, Wimbledon og Sheffield Wed- nesday varalið í keppnina sem varð til þess að Spurs og Wimbledon var meinað að taka þátt í Evrópumótum en þvl banni var síðan aflétt. Lið ann- arra stórþjóða tóku keppnin aheldur ekki alvarlega en UEFA vonast til að með gerðri breytingu verði vægi hennar meira en áður. Leikið verður heima og að heiman í fimm umferðum og hafa 45 knattspymusambönd staðfest að þau sendi samtals 60 lið til keppninnar en Skotland, Andorra, Moldóva, Bosnía, Liechtenstein og San Marínó verða ekki með að þessu sinni. Lið frá sterkari knattspyrnu- þjóðum byrja ekki fyrr en í annarri eða þriðju umferð. Fyrsta umferðin verður helgina 20. til 21. júní - á sama tíma og heimsmeistarakeppnin verður í fullum gangi - en síðasta um- ferðin á að fara fram 11. og 25. ágúst. Leiftur er fulltrúi íslands í keppninni eins og í fyrra en Keflavík var með 1995 og 1996. Úrslitum hagrætt í Belgíu um árabil? Eddy Wauters, formaðui' belgíska knattspyrnufélagsins Antwerpen segist hafa sannanir undir höndum þess efnis að úrslit- um leikja í 1. deild hafi verið hag- rætt um árabil. Wauters sagði að fyrir leik Antwerpen og Excelsior Mouscron í átta liða úrslitum bikarkeppninn- ar sl. miðvikudag hefði maður kom- ið til sín og boðið Antwerpen sigur auk þess að halda sæti sínu í deild- inni en liðið er neðst, hefur tapað 14 leikjum og unnið þrjá. Wauters sagðist hafa hafnað tilboðinu og svo fór að Mouscron vann 5:0. Wauters sagði að að maðurinn hefði sagst hafa samþykki leik- manna Excelsior fyrir „réttum" úr- slitum og farið fram á 250.000 belgíska franka, um 480 þús. kr., fyrir hvern mann sem þyrfti að múta. „Ef þið viljið vinna með okk- ur er öruggt að þið haldið sætinu í fyrstu deild - allt sem við höfum gert hefur staðist,“ hafði hann eftir viðmælanda sínum. Wauters sagði ennfremur að eftir því sem á leið viðræðurnar hefði maðurinn skýrt málin enn frekar og þá hefði hann sannfærst um að úrslitum hefði verið hagrætt um árabil. Formaðurinn tók samræðurnar upp á segulband og var með mynd- ir frá fundinum máli sínu til stað- festingar en gaf hvorki upp nafn félaga eða leikmanna á blaða- mannafundinum þar sem hann greindi frá málinu. I belgísku sjón- varpi kom fram að allt að fimm manns ættu hlut að máli og þar af faðir leikmanns í fyrstu deild og fyrrum lykilleikmaður. Það sagði einnig að málið varpaði nýju ljósi á mútumál í fyrra. Þá var Aalst í 17. sæti í mars, átta stigum á eftir Mechelen en lauk keppni í 15. sæti, fimm stigum á undan Mechelen sem féll með Cercle Briigge. „Ég veit ekkert um þetta og það kæmi mér á óvart ef eitthvað hefði gerst án minnar vitneskju," sagði for- maður Cercle. „Enginn ræddi við okkur í fyrra.“ Umrædd sjónvarps- stöð sagði að viðmælandi Wauters hefði sagt að Cerele Briigge hefði fallið vegna þess að félagið hefði ekki verið samvinnuþýtt og einnig bent á framgöngu Aalst undir lokin til enn frekar áréttingar. Aalst sigraði í fjórum leikjum og gerði tvö jafntefli í síðustu sex umferð- unum en tapaði 14 leikjum og sigr- aði í fjórum í fyrstu 28 umferðun- um. „Þetta er kjaftæði,“ sagði þjálfari Aalst um ásakanirnar en í júní í fyrra var félagið hreinsað af ásökunum um mútur. Knattspyrnusamband Belgíu er að rannsaka málið. Talsmaður þess sagði að það væri litið alvarlegum augum en of snemmt væri að segja til um hvers eðlis það væri, hvort fyrmefndum viðmælanda væri al- vara með máli sínu eða hvort hann væri að blekkja menn. Engu að síð- ur skaðar málið ímynd belgískrar knattspyrnu en ekki er langt síðan fyrrverandi formaður Anderlecht viðurkenndi að hafa gi'eitt dómara milljón franka fyrii' Evrópuleik liðsins við Nottingham Forest 1984.1984 var einnig greint frá því að Standard Liege hefði „keypt“ leik á móti Waterschei tveimur ár- um áður, sigrað og þar með tryggt sér meistaratitilinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.