Morgunblaðið - 15.02.1998, Qupperneq 22
22 SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Allison Cook Robert Melling Emma Roche Evgeny Morozov
söngkona meðleikari flautuleikari píanóleikari
Tónlistarmenn
frá Glasgow
Á VEGUM Tónlistarskólans í
Reykjavík eru hingað komnir fjórir
ungir tónlistarmenn sem eru á loka-
stigi náms við Konunglegu tónlist-
arakademíuna í Glasgow. Þeir eru
komnir til tónleikahalds og verða
fyrstu tónleikarnir í Norræna hús-
inu þriðjudaginn 17. febrúar kl.
20.30.
Fyrir fjórmenningunum fer próf.
Philip Jenkins, deildarstjóri píanó-
deildar Tónlistarakademíunnar í
Glasgow. Nemendurnir eru Evg-
eny Morozov píanóleikari frá
Úkraínu, sem er í framhaldsnámi
hjá Philip Jenkins; Emma Roche
flautuleikari frá Irlandi; Allison
Cook söngkona af skoskum upp-
runa; og Robert Melling meðleikari
sem kemur frá York. 011 hafa þau
komið fram á opinberum tónleikum
í ýmsum löndum og unnið til
margra verðlauna hvert á sínu
sviði.
Á tónleikunum flytja þau m.a. pí-
anóverk eftir Chopin, Liszt og
Brahms, verk fyrir flautu eftir
Widor, Enesco og Richard Rodney
Bennet, ljóðasöng eftir Schumann,
Schubert, Brahms og Alison Bauld
og verk fyrir flautu, messósópran
og píanó eftir Saint-Saens.
Föstudaginn 20. febrúar heldur
Philip Jenkins námskeið fyrir pí-
anónemendur og kennara í Tónlist-
arskólanum í Reykjavík.
Tónleikar úti á landi
Tónleikar verða síðan haldnir í
Safnaðarheimilinu á Akranesi mið-
vikudaginn 18. febrúar, í Tónlistar-
skólanum í Keflavík fóstudaginn 20.
febrúar og í Kirkjuhvoli í Garðabæ
síðdegis laugardaginn 21. febrúar.
Sýning á gömlum
ljósmyndum í Hafnarfírði
UNDANFARIÐ hefur staðið yf-
ir sýning á gömlum ljósmyndum
í nýrri Félagsmiðstöð eldri borg-
ara í Hafnarfírði. Að sýningunni
stendur hópur áhugamanna um
varðveislu gamalla mynda og
fékk til þess styrk frá Menning-
armálanefnd Hafnarfjarðar.
Flestar myndanna eru komnar
úr gömlum fjölskyldualbúmum
og hafa margar þeirra verið
stækkaðar og settar við þær
myndatextar, ef upplýsingar eru
fyrir hendi.
Þarna er t.d. að fínna yfirlits-
myndir af Hafnarfirði frá ýmsum
tímum, fjölda mannamynda,
myndir úr atvinnulífinu frá íyrri
tíð og myndir frá hemámsárun-
um. Alls eru yfir 300 myndir á
þessari sýningu.
Tilgangur sýningarinnar er
fyrst og fremst sá að vekja fólk
til umhugsunar um það að oft er
að finna margvíslegar heimildir á
þessum myndum.
Sýningin er opin á afgreiðslu-
tíma félagsmiðstöðvarinnar, frá
kl. 13-17 alla virka daga og laug-
ardaga og sunnudaga kl. 14-17.
Aðgangur er ókeypis.
Námskeið í
kvikmynda-
og ljdðagerð
Á VEGUM Endurmenntunar-
stofnunar Háskóla Islands hefst
námskeið um kvikmyndagerð
mánudagskvöld 16. febrúar. Nám-
skeiðið er ætlað fólki sem vill þróa
kvikmyndahugmynd að handriti til
framleiðslu. Leiðbeinandi verður
Þorsteinn Jónsson kvikmyndaleik-
stjóri.
Námskeið í ljóðagerð hefst mið-
vikudaginn 18. febrúar. Nemendur
munu skila frumsömdum ljóðum
sínum og ræða þau í tímum. Leið-
beinandi er Þórður Helgason bók-
menntafr. og rithöfundur, lektor í
KHÍ.
Vörðukorinn
syngur í
Gerðubergi
VÖRÐUKÓRINN heldur tónleika
í Menninganniðstöðinni Gerðu-
bergií dag sunnudaginn 15. febrú-
ar kl. 16. Flytjendur eru auk kórs-
ins, Loftur Erlingsson, baríton-
söngvari, Agnes Löve, píanóleikari,
Grétar Geirsson, harrnóníkuleikari
og Loftur S. Loftsson, kontra-
bassaleikari. Stjórnandi kórsins er
Margrét Bóasdóttir.
Á efnisskrá eru íslensk og erlend
þjóð- og sönglög. Sérstaklega má
geta laga eftir Loft S. Loftsson,
eldri, sem lést á síðasta ári, en
hann var stjómandi Árnesinga-
kórsins í 25 ár.
Leiðrétt
VIÐ VINNSLU á aukablaði Morg-
unblaðsins í gær um Halldór Kiljan
Laxness urðu þau mistök að fyrir-
sögn greinar Herdísar Þorvalds-
dóttur um uppsetningar á leikverk-
um skáldsins og kynni hennar af því
féll niður og brenglaðist þá merking
fyrstu setninganna sem vísuðu í fyr-
irsögnina. Upphaf greinarinnar er
þvi birt hér aftur:
„Vígsla Þjóðleikhússins 1950
Þvílíkur viðburður í lífi okkar
leiklistarfólks og auðvitað allra
landsmanna. Borgin fékk á sig nýj-
an menningarsvip. Nú þurfti að
vanda vel til fyrstu sýninganna."
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
---------------
fslendingar á
Ginsberg-hátíð
í SUMAR verður haldin ljóða- og
tónlistarhátíð í New York til minning-
ar um bandaríska skáldið Allen Gins-
berg sem lést í íyrra. Ginsberg er
einna kunnastur fyrir ljóðaflokk sinn
Howl sem kom út á sjötta áratugnum
og talinn einkennandi fyrir hina
svokölluðu „Beat-kynslóð“. Tveimur
íslenskum skáldum hefur verið boðið
á hátíðina sem verður í Central Park
12. júní, þ.e. Michael Dean Pollock og
Birgittu Jónsdóttur.
Fasteignavefur
Morgunblaðsins
□. mwt
I DAG eykur Morgunblaðið enn frekar vefútgáfu sína
með opnun fasteignavefjar. Þessi vefur kemur í kjöl-
far Fréttavefjarins sem var opnaður 2. febraar sl. en
þar má lesa nýjustu fréttir, innlendar sem erlendai-
sem birtast jafnharðan og atburðimir gerast. Fast-
eignavefnum er ætlað að gera fólki kleift að leita að
fasteignum sem nú eru á fjórða þúsund, auk þess sem
finna má fréttir tengdar fasteignamarkaðinum, hand-
bók sem svarar ýmsum algengum spumingum, lána-
reiknir sem reiknar út afborganir lána vegna fast-
eignakaupa og svo framvegis. Fasteignavef Morgun-
blaðsins má finna með því að slá inn slóðina
www.mbl.is/fasteignir Líkt og Fréttavefurinn er
Fasteignavefurinn öllum opinn, endurgjaldslaust. Hér
að neðan eru leiðbeiningar um hvemig heppilegast er
að nýta sér vefinn og möguleikar hans útskýrðir.
Forsíða Fasteignavefjarins og flettirammar
Fasteignavef Morgunblaðsins er hægt að nálgast á
tvo vegu. Annars vegar með því að slá inn ofangreinda
slóð eða að fara á forsíðu Morgunblaðsins á Netinu,
www.mbl.is og velja þar Fasteignavefinn.
Forsíða Fasteignavefjarins er eins
konar inngangur að vefnum. Þar má
nálgast á einum stað allar helstu slóðir
og tengla inn á einstakar síður vefjar-
ins. Þægilegast er hins vegar að nota
flettirammann til hægri - efst og neðst
á hverri síðu - sem auðkenndur er með
setningunni Hvað viltu skoða? Með því
að smella á rammann, má velja þann
flokk innan Fasteignavefjarins, sem
notandinn kýs að skoða. Til þess að
gera ferðina um vefinn enn skilvirkari
er í sumum flokkum unnt að fara beint
inn í einstaka undirflokka þeirra. Und-
irflokkamir em aðgreindir frá yfir-
flokkum í flettirammanum með band-
striki og inndrætti.
Flettiramminn hægra megin
Hægra megin á síðunni er
flettirammi undir heitinu Aðrir vefír
blaðsins og stendur Veldu hér í hon-
um. Þar má velja aðra helstu vefi
blaðsins: Fréttavef Morgunblaðsins og
sérefni s.s. Svipmyndir liðins árs, vef
um jeppaför á Suðurskaut, vef helgað-
an Halldóri Kiljan Laxness, umfjöllun
um menningarefni og svo framvegis.
Dálkarnir vinstra og hægra megin
í dálkunum vinstra megin, undir
hausnum Leiðarvísirinn, og hægra
megin undir hausnum Umfjöllun, er að
finna tengla, sem vísa á síður innan
Fasteignavefjarins. Þessar sömu síður
er einnig hægt að nálgast með því að
nota flettirammann.
Eignaleitin
í eignagrunni Fasteignavefjar
Morgunblaðsins eru nú á fjórða þús-
und eigna frá helstu fasteignasölum
landsins og stöðugt bætast fleiri við.
Þar er á einfaldan hátt hægt að nálgast
eignir sem fólk er á höttunum eftir og á
svipstundu eru upplýsingar um þær
eignir, sem uppfylla skilyrðin, komnar
á skjáinn.
í eignaleitinni er hægt að tilgreina
tegund eignar, hverfi, fermetra, herbergjafjölda og
verðbil. Hægt er að nota eins mörg skilyrði og hver
vill, en þó verður ávallt að tilgreina tegund eignar.
Að valinu loknu er slegið á hnappinn Leita. Innan
skamms birtist niðurstaðan með þeim eignum, sem
uppfylltu leitarskilyrðin. Hægt er að þrengja leitina
betur eða smella á einstakar eignir, til þess að fá
nánari upplýsingar. Þegar smellt er á tiltekna eign í
listanum kemur upp á skjáinn lltill rammi með lýs-
ingu á eigninni og öðrum upplýsingum, sem máli
skipta um eignina, auk myndar, ef til er. Eins er þar
að finna nafn fasteignasölunnar og frekari upplýs-
ingar um hvernig eigi að setja sig í samband við
hana. Að lokum skal bent á fyrirspurnarformið, sem
er að finna neðst í rammanum. Það er notað til að
senda fasteignasölunni ósk um frekari upplýsingar
um viðkomandi eign, sem mun svara með tölvupósti
eða símtali eftir því sem óskað er.
Umfjöllun
Fréttir sérblaðs Morgunblaðsins Heimili/fasteign-
ir, auk fastra pistla blaðsins eins og Lagnafréttir,
Smiðjan og Markaðurinn, er hægt að lesa með því að
velja flokkinn Umijöllun í flettirammanum. Sú síða
sem þá kemur upp er nokkurs konar fréttaforsíða og
þar er hægt að nálgast helstu fréttir og pistla. Stutt-
ur inngangur er við hverja frétt. Fyrir neðan inn-
gang fréttarinnar er hnappur, þar sem á stendur Öll
fréttin. Með því að smella á hann birtist ýtarlegri
umfjöllun um viðkomandi frétt eða pistil. Að auki er
hægt að nálgast fréttir og pistla með því að fara
beint inn á sérsíður efnisflokkanna, annað hvort frá
flettiramma eða frá aðalsíðu umfjöllunar, en þar er,
auk fasteignafrétta vikunnar, aðgangur að pistlum
allt frá áramótum 1997. Hér kennir margra grasa
jafnt fyrir íbúðareigendur, væntanlega kaupendur
og alla þá, sem vilja búa vel.
Handbókin
í Handbókinni er leitast við að svara algengustu
spumingum, sem vakna þegar verið er að fjárfesta í
fasteign. Eins er reynt að benda á atriði sem æski-
legt er að fólk velti fyrir sér þegar fasteignaviðskipti
eru annars vegar. Sérstök ástæða er til þess að
benda fólki, sem ekki hefur áður keypt íbúð, að
kynna sér þennan hluta vefjarins.
Handbókin er valin með því að fara í
flettirammann og renna músinni niður að kostinum
Handbókin, sem er upphafssíða þessa efnisflokks.
Þar er að finna yfirlit yfir helstu efnisþætti flokksins
sem eru: Undirbúningur, þar sem finna má gagnleg-
ar ábendingar, sem lúta að undirbúningi fasteigna-
kaupa, svo sem hvers konar íbúð á að kaupa, hvaða
□ Neucope; Fosteiqnouefur Motgunbloðsins B3B
B»c* : : R«lo*4 Hecn» $*«roh 0wv>» RrW S*owrtty m
: /fe,lhHp://vwinbl.tí/f«t*t9nir/1 1
Hentugast er að nota flettirammana til þess að velja sér
efnisflokka innan vefsins.
Nelttnpe: toUnignnuefur MDtqunblahvint
H«n» OuW.
: Ihttp ://»<>* mb1is/f«it«tqnir ^
RMHH
| Hvaö vlltu skofta? : vtf‘í »
fignaleítin I gagnagrurmi vefjartna eru um J.SOOeigr*. SxoeíJt 88 ilQMALEITIM f/BBBSSSttk \ Fréttir
Handb&Mn Undiraldfiu- upplýsingarum lasleignakaup Hér get ur þú lettaft aft húsnasfti U solu, jafnt i llokki íbúftarhúsnœftis s em og
Wartaftunnn
Sxsíp> Eionirásvasfti: T egund eignar...
[107 Vesw/Wer -1 Embý* Flölbv* H»6k Lagnafréttir
Lánareiknir ogásvæftl : SigurfturGrétar ; Guömundssonflytur
|6tag»tnt rl
jafngreiOslulán og greiosluraf stuldabréfi. Feimetrar: Nybyggingar ; fAoáa#-
| 80 »}»( 140 Herbergi: rl ^vinnuhúsnæfti Briskúr ; Smiftjan
HúsbréfakerfiO l.*í“ T.I |AÍ« ,| ; skemmtlegarhugmvndir.
spumingum um Verftfrá .. I Blómvikunnareruí umsjá
| Enjtomöik ní' ■ : Agústu Bjdmsdóttur. ; í
Gott eraft hafa 1 Enginnwik “f
13*'
Hægt er að tiltaka leitarskilyrði að vild, eitt eða fleiri, og
síðan er smellt á hanppinn „leita“.
þjónustu fasteignasalar veita o.s.fi'v.; Að fjárfesta í
húsnæði, þar sem teknar hafa verið saman leiðbein-
ingar til að gera íbúðarleitina þægilega og hnitmið-
aða; Fjármögnun fasteignn, þar sem fjallað er um
þær fjármögnunarleiðir, sem eru fasteignakaupend-
um opnar og Frágangur samninga, en þar er tekin
fyrir sú pappírsvinna og gjöld sem eignakaupum
fýlgja. Síðast en ekki síst er að finna efnisflokk, þar
sem teknir hafa verið saman Gntlistar, sérhannaðir
til útprentunar til þess að auðvelda fólki að greina
raunverulegar húsnæðisþarfir sínar og eins að benda
á þau fjölmörgu atriði - smá og stór - sem þarf að
hafa augun opin fyrir þegar fasteign er skoðuð.
Lánareiknirinn, heimasíður fasteignasala og
aðrar gagnlegar tengingar
Eitt af því helsta, sem vefst fyrir fólki við fast-
eignakaup er hverju það hefur ráð á. I Lánnreiknin-
um er hægt að reikna út afborganir og vexti á jafn-
greiðslulánum og skuldabréfum. í flokknum Fast-
eignnsalnr er að finna slóðir að heimasíðum fast-
eignasala sem eru með fasteignir í eignagrunni Fast-
eignavefjarins. I flokknum Gngnlegnr tengingnr er
að finna íslenskar slóðir sem tengjast fasteignakaup-
um á einhvem hátt.
Þess verður gætt að á Fasteignavefnum séu ávallt
nýjar og réttar upplýsingar. Markmiðið með vefnum
er að þjóna fólki í fasteignaviðskiptum sem best og því
mun hann ávallt miðast við þarfir dagsins. Notendur
Fasteignavefjarins eru hvattir til þess að koma með
þarflegar ábendingar svo að hann gagnist sem best.