Morgunblaðið - 15.02.1998, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998 25
in kvennastörf eða karlar í hefð-
bundin karlastörf. Helst þyrfti að
stuðla að jöfnu kynjahlutfalli í öllum
starfsgreinum."
Verkaskipting
Þótt erfðir úr fóðurætt hafi verið
ráðandi þegar að vah á lífsstarfí kom
höfðu genin úr móðurætt ekki sagt
sitt síðasta orð, því að tónlistin varð
að vissu leyti örlagavaldur í lífi Önnu
Soffíu. í Háskólakómum kynntist
hún eiginmanni sínum, Þorgeiri
Óskarssyni sjúkraþjálfara, meðan
þau vora í námi. Þau giftu sig árið
1981 og fóru síðan saman til Banda-
ríkjanna í framhaldsnám. Bömin
þeirra tvö, sem eru fimm ára og á
öðru ári, komu þó síðar til sögunnar.
„Við byrjuðum seint að eignast
börn, okkur fannst ekkert liggja á.
Ég var líka í mjög erfiðu námi, gat
ekki sinnt mörgu utan þess, og í
raun var ég ekki reiðubúin í bam-
eignir fyrr en um þrítugt. Það er þó
vissulega einstaklingsbundið eins og
annað.“
Auk þess að vera í fullu starfi sem
prófessor og forstöðumaður starfar
Anna Soffía í ýmsum ráðum og
nefndum, er meðal annars í Rann-
sóknarráði íslands, Kæranefnd út-
boðsmála og Landafundanefnd. En
rekstur heimilis er tímafrekur, eink-
um þar sem böm era fyrir, og því er
hún spurð hvemig henni gangi að
koma öllu heim og saman?
„Það gengur vel. Vinnutími minn
er um 50 stundir á viku, getur orðið
60 stundir þegar mikið er að gera, og
ég vinn jafnt og þétt, og hratt. En ef
ég segði að ég gæti sinnt húsmóður-
starfinu með vinnu minni fyndist
mér ég gera lítið úr starfi húsmóður-
innar. Við hjónin eram samhent og
það hefur ætíð verið jöfn verkaskipt-
ing á milli okkar. Við skiptumst á um
að elda og höfum valið okkur þá sér-
stöku leið að vera innkaupastjórar
hvort um sig eitt ár í senn. Sá sem
gegnir því embætti sér um að kaupa
inn, gætir þess að ekkert vanti í ís-
skápinn og ákveður hvað verði í mat-
inn. A meðan sér hinn aðilinn um
þvottana.
Eftir að börnin fæddust fengum
við okkur barnfóstra sem er heima
hjá börnunum á daginn og sér auk
þess um þrif og þvotta, þannig að við
eram laus við helstu húsverkin. Þeg-
ar við komum heim úr vinnu, oftast
milli klukkan fjögur og fimm, sinn-
um við bömunum, eldum og göngum
frá. Eiginlega geram við lítið annað,
eram í vinnunni og svo með börnun-
um.
Jú eitt gerum við reyndar, við
stundum líkamsrækt. Við höfíim
bæði ánægju af íþróttaiðkun. Maður-
inn minn er gamall hlaupari og ég
var mikið á skíðum í gamla daga.“
Og áhugamálin era fleiri þegar
betur er að gáð. Hún hefur áhuga á
myndlist og finnst gaman að fara í
leikhús.
,Aftur á móti er ég ekki mikil
bíókelling og hef aldrei verið. Tón-
listin hefur að sjálfsögðu alltaf skip-
að stóran sess í lífi mínu, ég hlusta á
alla tegund tónlistar nema kannski
grófasta rokkið. Sígild tónlist hefur
þó vinninginn og þai- era þeir
Rachmaninoff, Brahms, Mozart og
Beethoven í uppáhaldi. Við fórum þó
sjaldan á tónleika og í leikhús núna
og sjáum vinina ekki alveg eins oft
og áður. En við þurfum heldur ekki
að vera út um allar trissur, tíminn
sem eigum með börnum okkar ung-
um er stuttur og dýrmætur og því
betra að njóta hans. Það lærði ég af
móður minni.
Ef við setjum upp lítið reiknings-
dæmi þá má segja að fólk vaki yfir-
leitt um 116 tima á viku. Ef það vinn-
ur rúma 50 tíma á viku hefur það 60
tíma sem það getur eytt með fjöl-
skyldunni. Það er því ekki rétt að
segja að ekkert líf sé fyrir utan vinn-
una.
En það er mikil pressa utan frá og
neikvæð umfjöllun sem snýst um það
að telja fólki trú um að allir vinni svo
mikið og að allir foreldrar séu vondir
við börnin sín. Þetta er niðurrífandi
þankagangur, og það er rangt að tala
svona og koma því inn hjá fólki að
eitthvað sé að lífi þeirra. Mjög marg-
ir foreldrar standa sig mjög vel og
tekst vel að sameina vinnu og fjöl-
skyldulíf, og því má ekki gleyma, þó
svo að auðvitað verði að ræða og
taka á því sem miður fer.“
FRÉTTIR
Stuðningur við fræðslu- og
leiðbeiningarstarf Skóg-
ræktarfélags Islands
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samstarfssamningur Skógræktarfé-
lags Islands og Búnaðarbanka ís-
lands hf. um eflingu á fræðslu- og
leiðbeiningarstarfi fyrir almenning
um allt land. Þessi samningur kem-
ur í framhaldi af samstarfi aðilanna
á síðasta ári.
Eitt af meginmarkmiðum skóg-
ræktarfélaganna er að vinna að
fræðslu og leiðbeiningum um skóg-
rækt og landgræðslu. Með stuðningi
Búnaðarbankans er Skógræktarfé-
lagi íslands, í samvinnu við aðildar-
félögin 53, gert kleift að gangast fyr-
ir fjölbreyttu starfi fyrir áhugasamt
ræktunarfólk. Á dagskrá era fundir,
námskeið, sérstök námskeið ætluð
sumarbústaðaeigendum, skógar-
göngur og fræðsluferðir svo eitthvað
sé nefnt. Verða þessir viðburðir aug-
lýstir jafnharðan og eins kynntir í
sérstökum bæklingi sem allir félags-
menn fá sendan á næstunni.
Fyrsti viðburðurinn í þessu sam-
starfi verður nk. þriðjudagskvöld en
þá mun Jón Loftsson skógræktar-
stjóri fjalla um framtíð skógræktar á
Islandi í máli og myndum sem hann
kallar „Skógrækt inn í 21. öldina“.
SKÓGARGÖNGUR verða í sumar.
Opib
sunnudagirm
15. febrúar
kl. 13.00~16.00
í Abalstræti 9.
Komdu 09 fáðu
bækling!
RÐASBÍMF'i
AÐAL