Morgunblaðið - 15.02.1998, Page 30

Morgunblaðið - 15.02.1998, Page 30
30 SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ VALTÝR SNÆBJÖRNSSON + Valtýr Snæ- björnsson fædd- ist i Reykjavík 23. apríl 1923. Hann lést í Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja 10. febr- úar sfðastliðinn. For- eldrar hans voru Snæbjörn Sigurvin Kristinn Bjarnason frá Hergilsey á Breiðafirði, f. 18. júlí 1892, d. 31. janúar 1951, og Guðný Pá- lína Ólafsdóttir frá Akureyri, f. 9. mars 1895, d. 2. október 1950. Systkini Valtýs voru: Björn, Fjóla, Adólf, Friðbjöm, Sigurvin, Kristján, Guðbjöra og Steinunn. Þau era nú öll látin nema Guðbjöra sem býr í Reykjavík og Steinunn sem býr í Texas 1 Bandaríkjunum. Hinn 26. október 1945 kvænt- ist Valtýr Erlu Jóhönnu Eh'sa- betu Gfsladóttur frá Sólbakka í Vestmannaeyjum, f. 26. okt. 1927. Böra þeirra eru: 1) Gísli, f. 27. febrúar 1946, prentsmiðju- stjóri, kvæntur Hönnu Þórðar- dóttur. Böra þeirra eru: a) óskfrð, lést nýfædd; b) Erla, gift Óskari Emi Ólafssyni, böra þeirra eru Gfgja og Birta; c) Hrund, f sambúð með Guðmundi Óla Sveinssyni; d) Þóra. 2) Frið- björa Ólafur, f. 20. febrúar 1950, framkvæmdastjóri, kvæntur Magneu Traustadóttur, böm þeirra eru a) Þórey, í sambúð með Benóný Benónýssyni, bara þeirra er Friðbjöra Sævar; b) Jessý; 3) Valtýr Þór, f. 25. maí 1955, verslunarstjóri, kvæntur Ingunni Lfsu Jóhannesdóttur, böra þeirra eru: a) Valur; b) Eraa; c) Aron. 4) Snæbjörn Guðni, f. 31. ágúst 1958. í sam- búð með Valgerði Ólafsdóttur, böra þeirra eru: a) Jörundur; b) Þorgerður Anja; c) Ragnheiður Alma. 5) Kolbrún Eva, f. 23. maf 1960, gift Birgi Þór Sverrissyni. Böra þeirra eru: a) Hulda; b) Sædís Eva; c) Val- týr Snæbjöra. Valtýr fluttist nokkurra mánaða gamall með foreldr- um sínum til Vest- mannaeyja og bjó þar til æviloka utan 7 mánaða sem hann bjó í Garðabæ í Heimaeyjargosinu 1973. Hann gekk f Vest- mannaeyja, lauk síð- an minna vélstjórnarnámi. Sem ungur maður vann hann ýmis störf til lands og sjávar. Árið 1948 hóf hann nám f húsasmfði hjá föður sfnum og vann við tré- smfðar fram að gosi, lengst af sem sjálfstæður byggingaverk- taki. Eftir gosið gerðist hann byggingafúlltrúi þjá Vestmanna- eyjabæ og starfaði sem slfkur til ársins 1994 að hann hætti vegna aldurs. Valtýr var félagi í Rotaryklúbbi Vestmannaeyja, félaginu Akóges, lét málefni iðn- aðarmanna f Eyjum til sín taka og síðar meir Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar. Mest starfaði hann þó innan raða íþróttahreyfíngarinnar í Eyjum; fyrir Iþróttafélagið Þór og Iþróttaband;ilag Vestmanna- eyja. En innan raða íþrótta- hreyfingarinnar spönnuðu störf hans um 60 ára tfmabil. Hann var einnig keppnismaður á þeim vettvangi, var á sínum yngri ár- um knattspyraumaður og keppti fyrir íþróttafélagið Þór og með sameiginlegu liði Eyjamanna, sem fyrst hét KV en sfðar ÍBV. Þá keppti hann einnig f fijálsum iþróttum og átti um tíma ís- landsmet f stangarstökki. Útför Valtýs fór fram frá Landakirkju f Vestmannaeyjum f gær. Elsku besti afí okkar. Nú ert þú því miður farinn frá okkur. Við sjáum þig aldrei meir. Þú sem gerðir allt fyrir okkur. Við eigum eftir að sakna þín alla ævi. í hverju sem við lendum, hugsum við alltaf til þín. Þú leyfðir okkur allt, þú skammaðir okkur aldrei og þú gerðir allt til þess að við yrðum alltaf ánægðar. Þú varst fyndinn, skemmtilegur, góður og langbesti afi í heiminum. En þá veiktist þú, þá breyttist líf okkar. Við eigum alltaf eftir að sakna þín. Þótt þú sért dáinn þá elskum við þig alltaf. Við viijum votta ömmu Erlu inni- legar samúðarkveðjur. Sædfs Eva Birgisdóttir og Jessý Friðbjarnardóttir. Maðurinn með ljáinn hafði hægt en örugglega nálgast vin okkar og fyrrum vinnufélaga, Valla Snæ, undangengna mánuði. Þriðjudags- morguninn 10. febrúar var svo komið að „klappinu á öxlina“, síð- ustu snertingu við dauðlega menn í heimi hér. Hraustmennið Valli Snæ, þessi gamli íþróttakappi, sem unnið hafði til ótal metafreka í ýmsum íþróttagreinum í nafni Iþróttafé- lagsins Þórs í Eyjum. Kraftalegi dyravörðurinn, sem hélt mönnum í skeijum með augnaráðinu einu saman, ef hitna fór i kolum á fjör- ugum dansleikjum í „þá gömlu, góðu daga“. Ef augnaráðið dugði ekki á verstu óróaseggina, lyfti Útsalan er hafin Valli þeim einfaldlega upp á háls- málinu og vippaði þeim út fyrir meðan mesti móðurinn rann af mönnum. Valli var það sem við samstarfs- fólk hans kölluðum „fínn karl með stórt hjarta“. Hann gat verið þverari en þykkasti þverbiti en hjartað var gott sem í brjóstinu sló. Hann var fastur fyrir og hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum. Oft á tíðum brá hann fyrir sig eigin mállýsku við lýsingar sínar á samverkafólki og öðrum er bar á góma í skrafi á vinnustað. Því var oft hváð, er Valli nefndi líkt og „slánann á rosabullunum" eða „kerluna í bláa sloppnum" og þá var viðstöddum ætlað að geta í eyður. Samstarfsfólkið nefndi þetta tungutak hins vegar hina einu og sönnu „valtýsku“ og var hann afar sáttur við nafngiftina. Honum þótti hún Erla sín, fal- legasta og duglegasta stelpan í bænum, engu breytti þótt stelpan væri liðlega sjötug enda var Valli sammála því, sem Jeanne Moreau segir á einum stað: „Ellin ver mann ekki fyrir ástinni, en að vissu leyti er ástin vöm gegn ell- inni“. Nokkrir starfsmanna Ráðhúss- ins og á tæknideild Vestmanna- eyjabæjar unnu með þessum öðlingi í allt að 20 ár, aðrir skemur. Aldrei gátum við merkt að aldur hans kæmi í veg fyrir að hann sam- lagaðist sér yngri samverkamönn- um. Valli var sérlega þakklátur fyrir hvert smáviðvik, sem fyrir hann var gert og það var ávallt geymt en ekki gleymt. Síðustu árin, eftir að hann lét af störfum sem byggingarfull- trúi, hellti hann sér út í „Espolin" tölvuættfræðiskráningu og átti það svo að segja hug hans allan síðustu árin. Hann lagði oftar en ekki leið sína í Ráðhúsið, þáði kaffisopa og spjaU og nældi sér yfirleitt í ein- hveija ættfræðipunkta hveiju sinni til að fylla betur upp í tölvuskrán- ingu sína heima á bæ. Hann lét sér ekki síður annt um aðra ættboga en sinn eiginn. Synir Valla og Erlu era fjórir auk dótturinnar, Kolbrúnar Evu, sem er yngst bama þeirra. Meðan heilsan leyfði vora þær ófáar stundimar, sem Valli lagði hönd á plóg fyrir bömin sín við nýbygg- ingar eða lagfæringar á híbýlum þeirra. Þá vora þeir margir helgar- bfltúramir með bamabömin og jafnan eitthvað keypt, sem gladdi litla munna. Kæra Erla, böm, tengdaböm, bamaböm, bamabamaböm og aðrir ættingjar. Við sendum ykkur einlægar samúðarkveðjur. Megi minning um Valla Snæ lifa. Samstarfsfólk. Valtýr Snæbjörnsson var ötull baráttumaður bæði í leik og starfi. Við hjá Starfsmannafélagi Vest- mannaeyjabæjar (STAVEY) feng- um að njóta krafta hans allan þann tíma er hann var félagsmaður í okkar félagi. Á fyrsta aðalfundi fé- lagsins eftir að hann hóf störf hjá Vestmannaeyjabæ árið 1975 var hann kosinn í trúnaðarráð, síðar á sama ári varamaður í samninga- nefnd. Hann var kosinn formaður STAVEY 1977-1981, í samninga- nefnd BSRB 1977, síðan aftur kos- inn varaformaður 1982-1984, og í stjóm lífeyrissjóð starfsmanna Vestmannaeyjabæjar 1980-1994, í oflofsheimilanefnd 1984-1986 og formaður verkfallsráðs í síðasta verkfalli félagsins 1984. Það má segja að lífeyrissjóðsmál félagsmanna hafi átt hug hans all- an. Valtýr gerði sér strax grein fyrir því að sjóðinn þyrfti að tryggja svo félagsmenn gætu notið hans þegar að því kæmi. Lífeyris- sjóðsmál hafa ekki verið talin eitt af aðaláhugamálum fólks á besta aldri, en Valtýr gaf ekkert eftir, líf- eyrismálin skyldum við tryggja hvað sem á gengi og þótti nú mörg- um nóg um á þeim tíma. Segja má að Valtýr hafi verið mjög framsýnn varðandi nauðsyn þess að félags- menn væra sér meðvitaðir um rétt- indi sín og kjör. Valtýr var sæmdur gullmerki STAVEY á 50 ár afmæli félagsins 1990. Stjóm STAVEY þakkar Val- tý fyrir mikil og óeigingjöm störf í þágu félagsins og sendir eftirlif- andi eiginkonu hans, Erlu, bömum þeirra og fjölskyldum innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd STAVEY, Þorgerður Jóhannsdóttir formaður Þórhallur Guðjónsson ritari. Valtýr Snæbjömsson, fyrrverandi byggingarfulltrúi Vestmannaeyja, er látinn 74 ára að aldri. Hafði hann átt við vanheilsu að stríða hin seinni ár og kallið kom að morgni 10. febrúar sl. Valtýr, eða Valli Snæ eins og hann var ætíð kallaður, var fæddur í Reykjavík en fluttist til Eyja 17 daga gamall og bjó þar alla tíð síð- an. Á sínum yngri árum stundaði hann ýmsa vinnu s.s. sjómennsku eins og títt var um peyja á þessum árum. Árið 1955 lauk hann iðnnámi í húsasmíði og starfaði við smíðar í samstarfi við aðra og sjálfstætt fram að gosi. Árið 1973 varð hann síðan bygg- ingarfulltrúi Vestmannaeyjabæjar og var það starfsvettvangur hans í hartnær 20 ár. Valli kvæntist Erlu Jóhönnu Elísabetu Gísladóttur og eignuðust þau fimm böm. Ekki er hægt að minnast á Valla án þess að nefna íþróttir og þá sérstaklega Iþrótta- félagið Þór. Hann var í hópi bestu íþróttamanna Eyjanna í mörg ár, stundaði knattspymu og frjálsar íþróttir af miklum dugnaði. Jafn- framt tók hann virkan þátt í félags- störfum. Var hann m.a. formaður íþróttafélagsins Þórs, í stjóm ÍBV, gjaldkeri Iðnaðarmannafélags Vestmannaeyja, í stjóm Lands- sambands iðnaðarmanna, formað- ur Starfsmannafélags Vestmanna- eyjabæjar og í stjóm Lífeyrissjóðs starfsmanna Vestmannaeyjabæjar. Einnig tók hann virkan þátt í Rotaryklúbbi Vestmannaeyja og félaginu Akóges. Hlaut Valli marg- víslega viðurkenningu fyrir störf sín að íþrótta- og félagsmálum. Ofangreind upptalning lýsir best dugnaði Valla. Hann var forkur til allra verka og ósérhlífinn í meira lagi. Verkin vora látin tala og svo var hægt að blaðra þegar verkefn- inu var lokið. Hann hafði þá þrjósku og seiglu sem þurfti til þess að koma málum í gegn. Valli hafði skoðanir á mönnum og málefnum og sagði þær um- búðalaust hvort sem mönnum lík- aði betur eða verr. Hann var vinur vina sinna og hjálpsamur þegar á bjátaði því stutt var í blíðuna. í pípum og plötum sem má þrýsta og sveigja, iaust við CFC, í sam- ræmi við ríkjandi evrópska staðla. Hentar vel til einangrunar kæli- kerfa fyrir loftræsti- og hitakerfi, og fyrir pípulagningar. PP &co Leitið frekari upplýsinga Þ. ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚLA 29,108 RETKJAVÍK, SÍMI553 8840 / 568 6100. Valli var einn af þessum karakt- eram sem tóku virkan þátt í mann- lífinu í Eyjum eftir seinna stríð og settu mark sitt á samfélagið. Allir þekktu Valla og hann þekkti alla. Slfldr menn verða því miður æ fá- tíðari og er mikill missir að þessum sterka og afgerandi manni. Sendi ég Erlu og öllum aðstand- endum mínar einlægustu samúðar- kveðjur. Jafnframt sendi ég kveðj- ur frá bæjarstjóm Vestmannaeyja með þakklæti fyrir farsæl störf Valla í þágu bæjarfélagsins. Guðjón Hjörleifsson. Genginn er vinur okkar, Valtýr Snæbjömsson. Valíi Snæ ávallt neftidur var einn af eðal Vestmannaeyingum. Hann var þungaviktarmaður í Vest- mannaeyjasamlífi, mikill félags- maður, vinur vina sinna, sem alltaf var tilbúinn að rétta hjálparhönd. Kynni okkar hófust 1962 þegar við fóram saman til Danmerkur með hóp Þórara í keppnisferðalag. En það var með allra fyrstu ferð- um sem famar vora með fótboltalið til útlanda frá íslandi. Þegar við fóram í Tívolí reiknaði Valli út, tók mat og gerði skissur af ýmsu sem nota mætti á þjóðhátíð. Var hann vakandi og sofandi yfir hvemig þjóðhátíðin mætti verða sem allra mesta prýði. Valli annaðist ætíð smíði „brúarinnar“ fyrir þjóðhátíð, en hún var einkenni Þórs þjóðhá- tíðar. Var það keppikefli hans að brúin kláraðist fyrst allra mann- virkja. Valli lærði húsasmíði. Hann stofnaði Kompaníið ásamt félögum sínum úr Smiði og Gísla Gíslasyni. Eftir að Kompaníið hætti starfsemi gerðist hann sjálfstæður atvinnu- rekandi allt fram að gosi. Eftir gos gerðist hann starfsmaður Vest- mannaeyjabæjar og starfaði sem byggingafulltrúi, þar til heilsa hans bilaði fyrir örfáum áram. Valli hóf störf að félagsmálum 1942 en þá var hann kosinn í stjóm íþróttafélagsins Þórs. Gegndi hann þar ýmsum trúnaðarstörfum og var m.a. formaður þess í átta ár frá 1950-1958. Einnig sat hann nokkram sinnum í stjóm ÍBV, fyrst árið 1946. Alls sat hann í stjóm ÍBV hátt í tuttugu ár þar af sex sem varaformaður. Hann gegndi trúnarðarstörfum hjá Iðn- aðarmannafélagi Vestmannaeyja, fyrst árið 1956 og þá sem gjaldkeri. Einnig sat hann í stjóm Lands- sambands iðnaðarmanna í sex ár. Fljótlega eftir að hann hóf störf hjá Vestmannaeyjabæ var hann kjör- inn í stjóm Starfsmannafélags bæjarins, ýmist sem meðstjóm- andi, varaformaður eða formaður. Árið 1958 gekk hann í Rotarýklúbb Vestmannaeyja. Þar var hann kos- inn í stjóm árið 1975, fyrst sem stallari og síðar sem forseti. Hann gekk í Akoges 1963 og var heiðurs- félagi þess. Fyrir störf sín að íþrótta- og félagsmálum hefur hann hlotið margvíslega viður- kenningu. Þar má nefna: Árið 1955 fékk hann afreksbikar Þórs fyrir íþróttir og félagsstörf. Árið 1963 á 50 ára afmæli Þórs var hann gerð- ur að heiðursfélaga. Á 25 ára af- mæli ÍBV var hann sæmdur gull- merki Þórs og ÍBV. Á 60 ára af- mæli Þórs var hann sæmdur gull- merki ÍSÍ. Á 70 ára afmæli Þórs var hann sæmdur silfurmerki KSÍ. Á 75 ára afmæli Þórs var hann sæmdur gullmerki KSÍ og æðsta heiðursmerki ÍSÍ, Gullkrossinum. Á Þjóðhátíð 1992 var honum afhent líkan af brúnni yfir tjömina í dalnum fyrir smíði brúarinnar frá upphafi og fleiri störf tengd þjóð- hátíð Vestmannaeyja. Á 50 ára af- mæli Starfsmannafélags Vest- mannaeyjabæjar var honum afhent gullmerki félagsins. Árið 1988 var hann sæmdur Paul Harris Fellow- orðunni en hún er æðsta viður- kenning sem félaga í Rotary getur hlotnast. Á áram áður þegar hann var í stjóm ÍBV vora fiindir alltaf haldnir á heimili hans, Hergilsey. Eitt herbergið var hlaðið bikurum, en þá átti félagið ekkert húsnæði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.