Morgunblaðið - 15.02.1998, Page 34

Morgunblaðið - 15.02.1998, Page 34
34 SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Innilegustu þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur hlýju og samúð vegna and- láts og útfarar ástkaers eiginmanns, bróður, föður, tengdaföður, afa og langafa, KÁRA ÞÓRÐARSONAR fyrrv. rafveitustjóra, Kirkjuvegi 5, Keflavík. Kristín Elín Theodórsdóttir, Þórunn Þórðardóttir, Katrín Káradóttir, Eiríkur Svavar Eiríksson, Theodóra Steinunn Káradóttir, Elín Káradóttir, Hilmar Bragi Jónsson, Hlíf Káradóttir, Þórunn Káradóttir, Kristín Rut Kárad. Klempan, Scott Klempan, Þórður Kárason, Hólmfríður Sigtryggsdóttir, Theodór Kárason, Lára Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við fráfall eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, RAGNHEIÐAR JÓHÖNNU ÓLAFSDÓTTUR, Selvogsbraut 23, Þorlákshöfn. Guð blessi ykkur öll. Björgvin Guðjónsson, Helga Dagbjartsdóttir, Guðjón Ólafsson, Hörður Björgvinsson, Guðbjörg Hjörleifsdóttir, Guðbjörg Björgvinsdóttir, Magnús H. Sigurðsson, Ingibjörg Björgvinsdóttir, Katrín J. Björgvinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓREYJAR BIRNU RUNÓLFSDÓTTUR, Hjallaseli 55, Reykjavík, áður Hvassaleiti 12. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Seljahlíðar, Hjallaseli 55 fyrir hlýja og góða umönnun. Sigurður Guðmundsson, Björg Sigurðardóttir, Ásgeir Einarsson, Sigfríð Sigurðardóttir, Tómas Ólafsson, Hjördís Sigurðardóttir, Óskar Björgvinsson, Sævar Sigurðsson, Halldóra Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega þeim fjölmörgu sem sendu okkur samúðarkveðjur og vinarhug vegna andláts foreldra okkar, GUÐRÚNAR Þ. ÖRNÓLFSDÓTTUR og SVEINS KR. GUÐMUNDSSONAR, Akranesi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki dvalarheimilisins Höfða og Sjúkra- húss Akraness. Örnólfur Sveinsson, Guðrún Bjömsdóttir, Kristján Sveinsson, Sigrún Halla Karlsdóttir, Sigurbjörn Sveinsson, Dagbjört Hansdóttir og bamabörn. SIGRÍÐUR GUÐBRANDSDÓTTIR + Sigríður Guð- brandsdóttir fæddist á Vogalæk á Mýruni 18. mars 1926. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- vlkur 6. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðbrandur Jón Tómasson, f . 23.7. 1893, d. 8.5. 1980, og Sigþrúður Sigurðar- dóttir, f. 12.5. 1896, d. 9.12. 1953. Sigríður var þriðja í röðinni af sex systkinum. Þau eru: Ragnar, f. 30.8. 1921, d. 19.11. 1965, Sigurður Björgvin, f. 3.8. 1923, Þorkell Gísli, f. 15.1. 1928, Sigursteinn, f. 4.6. 1929, og Tómas Birgir, f. 17.12. 1931. Hinn 21.12. 1946 giftist hún Þorvaldi Ólafssyni frá Vest- mannaeyjum, foreldrar hans voru Ólafur Guðmundsson, f. 2.7. 1892, d. 8.10. 1953, og Siggerður Þorvaldsdóttir, f. 10.12. 1891, d. 17.3. 1929. Börn Sigríðar og Þor- valds eru: 1) Siggerður, f. 5.11. 1947, hennar maki er Baidur S. Baldursson. Börn þeirra eru Ragnar, kona hans er Bergrún Svava Jóns- dóttir; Hrannar, kona hans er Angeles Alv- arez Laso; og Anna Brynja. 2) Guðbrand- ur Þór, f. 22.3. 1952, kona hans er Bryndís Björgvinsdóttir. Börn þeirra eru Björgvin Ivar, Sigríður Hrönn og Aldís. 3) Júlíana Petra, f. 25.12. 1958, sonur hennar er Þor- valdur Már, maki hennar er Guðmund- ur Björgvinsson, þeirra börn eru Auður Hrefna og Oddur Ingi. 4) Atli Þór, f. 28.11. 1962, kona hans er Hafdís Hall- dórsdóttir. Börn þeirra eru Erla Þórdís, Daníel og Halldór. Barna- barnabörnin eru íjögur. Tuttugu fyrstu hjúskaparár sín var Sigríður heimavinnandi húsmóðir, en vann síðan um tutt- ugu ára skeið við verslunarstörf, síðast hjá Vogue í Mjóddinni. títför Sigríðar fer fram frá Fossvogskirkju á morgun, mánu- dag, og hefst athöfnin klukkan 15. Það er ekki auðvelt að kyngja því að hún tengdamóðir mín er dáin. Sérstaklega er það erfitt fyrir þau yngri í fjölskyldunni, sem mörg hver áttu sitt annað heimili hjá ömmu og afa á Staðarbakkanum. Það var kappsmál hjá þeim hjónum að hafa ungviðið sem oftast hjá sér, enda sóttust börnin eftir því að koma til þeirra og vera hjá þeim sem allra mest. Það sama má reyndar segja um þá sem eldri eru. Avallt voru móttökumar góðar og alltaf var hægt að leita til hennar Sigríðar í leit að svörum við spurn- ingum er vörðuðu lífið og tilveruna. Hún vissi margt, og leitaði oft í bækur, blöð og tímarit eftir enn meiri fróðleik. Hún fylgdist vel með því sem var að gerast á hinum ýmsu sviðum þjóðlífsins, og oftar en ekki hafði hún ákveðna skoðun á málefn- um. Reynslu sinni af ýmsum þjóð- legum störfum og siðum útdeildi hún eftir bestu getu. Flest lék í höndum hennar og eiga margir af- komenda hennar m.a. í fórum sínum fót sem hún hafði hannað og saum- að, eða prjónað á þá. Fagurbók- menntum unni hún og yfirleitt var ljóðabók innan seilingar. Hún naut þess að fara í leikhús og var vel að sér um það sem henni þótti mark- vert á þeim vettvangi. Islenska náttúrufegurðin átti hlutdeild í hjarta hennar og naut hún þess að ferðast um landið sitt og staldra við um stund á fögrum stað, það skemmdi ekki fyrir ef um sögustað var að ræða. Sveitir Borgarfjarðar voru henni þó ávallt efst í huga, enda þar fædd og uppalin. Ég hugsa til þess og margs ann- ars er ég minnist tengdamóður 5- £ Þegar andlát ber að höndum Útfararstofa kirkjugarðanna ehf. Sími 551 1266 Allan sólarhringinn minnar. Aldrei mun ég gleyma um- hyggju hennar, hjálpsemi og góðum siðum. Mér eru ofarlega í huga á þessari stundu orðin sem hún var vön að segja í æðruleysi um óumbreytan- lega atburði: „Þetta er bara svona.“ Ég kveð þig, kæra tengdamóðir, megi minningin um þig verða Þor- valdi, tengdafóður mínum, fjöl- skyldu þinni og vinum, sá styrkur sem við þörfnumst á þessari stundu. Blessuð sé minning þín. Baldur. Tengdamóðir mín, Sigríður Guð- brandsdóttir, er látin. Þetta kom sem reiðarslag íyrir alla í fjölskyld- unni því allir höfðu búist við að hún væri á leið heim eftir erfið veikindi. En vegir guðs eru órannsakanlegir. Hún skilur eftir stórt skarð, því hún, ásamt eftirlifandi eiginmanni sínum, Þorvaldi Olafssyni, var hjarta fjölskyldunnar sem allir þræðir lágu til og alltaf var opið hús á heimili þeirra á Staðarbakkanum. Hún sá um að allir gætu notið skjóls og hlýju er leið þein-a lá á þeirra yndislega heimili. Ávallt gat hún laðað það besta fram í öllum og tók á móti öllum á sama hátt og gerði þar engan mun á. Hún var ávallt til viðræðu um allt, hvort sem það var um persónuleg mál eða þjóðmálin almennt. Hún hafði sínar skoðanir á hlutunum en reyndi aldrei að þvinga neinn til að hafa þær líka og virti allar þær skoðanir sem aðrir höfðu á hinum ýmsu málefnum er tekin voru til umræðu hverju sinni. Hennar er sárt saknað af hinum fullorðnu og barnahópnum í fjöl- Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Einarsson, útfararstjóri Sverrir Olsen, útfararstjóri Útfararstofa íslands Suóurhlíó 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. skyldunni, en söknuður barnabarn- anna er mjög sár ef hægt er að gera greinarmun þar á. En Sigga þekkti og kynntist þeim mjög náið og gaf þeim öllum, hverju og einu, sinn tíma í lífsins ólgusjó. Hún vissi um hinar sérstöku þarfír og áhugamál hvers og eins og átti ávallt eitthvað gott í munninn eða lagði eitthvað til málanna, t.d. varðandi áhugamálin. Hún vissi t.d. nöfnin á leikmönnum uppáhaldsliðsins í enska boltanum og hvað allir hétu í uppáhaldshljóm- sveitinni, sem gátu verið margar eftir því hver átti í hlut, einnig pass- aði hún að hafa rétta myndbandið tilbúið og horfa á með þeim allra yngstu. Hún var mikill unnandi bókmennta og lista og var óspör á að miðla til allra þeirra er vildu þekkingu sinni i þeim efnum og oft var amma látin lesa yfir ritgerðir, ljóð eða smásögur sem einhver hafði unnið að í fjölskyldunni til að bera saman við verk annarra stór- skálda og fá hennar álit á hlutunum. Ég held að öll bamabömin og barnabamabömin hafi einhvern tímann kúrt í kjöltu hennar og hlustað á hana lesa skemmtilega sögu. Og ekki má gleyma því að spil voru oft og iðulega tekin fram og held ég að flest ef ekki allur barna- skarinn hafi í fyrsta sinn spilað með ömmu og lært reglurnar af henni. Handlagin var hún með afbrigðum, bæði með prjóna og í saumaskap, og fengu allir þeir sem á þurftu að halda að njóta þeirra krafta. Alltaf tókst henni að sauma eða prjóna allt sem í tísku var hverju sinni. Margar skemmtilegar stundir átti öll fjöl- skyldan saman bæði í fjölskyldu- boðum á Staðarbakkanum og í sum- arfríum og ávallt var hún hrókur alls fagnaðar og sá til þess að eng- inn væri útundan. Þannig væri hægt að telja upp margar minning- ar er tengjast þessari yndislegu konu sem hverfur okkur sjónum svo snöggt. Með þessum ljóðlínum úr kvæði Davíðs Stefánssonar, sem var eitt af uppáhaldsskáldum Siggu, vil ég kveðja að lokum og þakka sam- fylgdina og kynnin. Snert hörpu mína himinborna dís, svo hlusti englar Guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Og eins og bamið rís frá svefnsins sæng, eins sigrar lifið fuglsins mjúka væng. Er tungan kennir töfra söngs og máls, þá teygir hann sinn hvíta svanaháls. Nú fljúga mínir fuglar, góða dís. Nú fagna englar guðs í Paradís. (Davíð Stef.) Elsku Valdi minn, börn, tengda- börn, barnaböm, bamabarnabörn og aðrir aðstandendur, ég votta þér og ykkur mína dýpstu samúð. Megi guð styrkja ykkur öll í þessari mikiu sorg. Guðmundur Már Björgvinsson. Hún tengdamóðir mín og ein af perlum þessa mannlífs er dáin. Þrátt fyrir vitneskjuna um að hún gengi ekki heil til skógar upp á síðkastið var dauðinn svo órafjarri í huga okkar og svo sár fyrir okkur sem eftir stöndum. Hún var lögð á Sjúkrahús Reykjavíkur með blóð- tappa í lungum fyrir um þremur vikum og eftir nokkurra daga harða baráttu fyrir lífinu virtist bati framundan en skyndilega versnaði henni aftur og eiginmaður og börn voru sótt snemma að morgni föstu- dagsins 6. febrúar, kallið var komið. Það er mikill missir að henni Sig- ríði Guðbrandsdóttur. Hún átti stóra fjölskyldu og spilaði stórt hlutverk í lífi okkar allra. Heimili þeirra á Staðarbakka 36 í Reykjavík er nokkurs konar ættaróðal fjöl- skyldunnar og hún ættmóðirin. Hún kom börnum sínum til manns, hún studdi barnabörnin út í lífið. Þegar vel gekk gladdist hún með, ef á móti blés reyndi hún að rétta hjálpar- hönd. Minningarnar um hana eru svo ótal margar, gleðin þegar böm- in okkar fæddust, jólaboðin, sumar- bústaðaferðir, allt sem hún saumaði og prjónaði, hún að lesa fyrir börn- in, samverustundir og spjall. Hún og Erla Þórdís voru vinkonur sem

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.