Morgunblaðið - 15.02.1998, Side 50
50 SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Eitt blað
fyrir alla!
Plmrgnwlrlatiiti
- kjarni málsins!
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
PERSONURNAR í leikritinu gætu hæglega átt heima í sögu Agötu
Christie, að sögn höfundanna ungu.
velta fyrir okkur sögu
eftir Agötu Christie og
fórum að ímynda okk-
ur krakka í skólanum í gervum per-
sónanna. Út frá þessu spannst svo
sagan. Við tókum báðar þátt í skóla-
leikritum tveggja síðustu ára þar
sem við sáum hvernig leikrit líta út
á blaði. Þannig fengum við fyrir-
mynd að handritinu.“
„Þetta var mjög gaman til að
byrja með,“ segir Sigríður. „Við
höfðum nógan tíma til að velta sög-
unni og persónunum fyrir okkur og
skrifuðum leikritið smám saman.
Þegar ákveðið var að setja það upp
þurftum við hins vegar að klára það
á skömmum tíma í jólafríinu. Þá
kárnaði gamanið heldur."
Framtíðin
Oft er talað um leiklistarbakteríu,
sjúkdóm sem fólk læknist seint og
illa af, smitist það á annað borð. Það
er ekki laust við að sýkingarein-
kenna gæti hjá þeim stallsystrum
og í rannsóknarskyni voru þær
spurðar um framtíðina og leikhúsið.
„Ég fer til Svíþjóðar bráðum og
er þegar búin að skrá mig í leiklist-
arnámskeið í skólanum sem ég
byrja í þar,“ segir Sunna Dís. „Ég
veit auðvitað ekki hvort ég mun
leggja leiklistina fyrir mig, en ég
hef mikinn áhuga svo það er aldrei
að vita.“
Sigríður tekur í sama streng. „Ég
hef mikinn áhuga á öllu sem tengist
leikhúsinu. Ég fer líklega í Mennta-
skólann í Hamrahlíð í haust og mig
langar til að halda leiklistarnámi
áfram að menntaskóla loknum. En
þetta verður bara að koma í ljós.“
MORÐ í matinn er gert að fyrirmynd sígildra morð- og leynilögreglu-
sagna.
LEIKLIST er fastur
liður í félagslífi margra _______
skóla. Þótt leikhússtarf
hafi einkum verið áberandi í fram-
haldsskólunum er það víðar að
finna. Leiksýningar hafa verið ár-
legur viðburður í Laugalækjarskóla
um nokkurt skeið. I hópnum sem
stendur að sýningunni í ár eru Alf-
rún Tryggvadóttir, Eiríkur Egill
Jónsson, Hjalti Kristinsson, Hulda
Sif Ólafsdóttir, Linda Heiðarsdóttir,
Pálmi Viðar Snorrason, Sigríður
Torlacius, Sunna Dís Másdóttir og
Ögmundur Rafn Magnússon. Leik-
stjóri er Þórunn Pálsdóttir. Verkið
sem sett er á fjalirnar í ár er alveg
sérstakt. Höfundar þess og tveir af
aðalleikurum eru nefnilega nemend-
ur tíunda bekkjar skólans. Blaða-
maður fór á sýninguna og hitti leik-
skáldin ungu, þær Sunnu Dís og
Sigríði, að henni lokinni.
Leikrit Laugalækjarskóla
Akralind - nýbygging
Við Akralind er nú í byggingu vel hannað iðnaðar- og þjónustuhús. í dag
eru einungis eftir um 840 fm sem skiptast þannig: Á jarðhæð þrjá
iðnaðareiningar 120 fm hver og 240 fm þjónustu- og iðnaðareining. A 2.
hæð er 240 fm skrifstofueining. Eigninni verður skilað fullbúinni að
utan og samkvæmt samkomulagi að innan.
Tryggðu þér gott húsnæði á mesta uppgangssvæði Stór-
0 Reykjavíkursvæðisins.
Nánari upplýsingar veittar í síma 511 2900 og á
WWM ■ I V skrifstofu okkar.
FASTEIGINJ ASALA
sími 511 2900
Verkið
Leikritið heitir „Morð í matinn"
og er gert að fyrirmynd sígildra
morð- og leynilögi'eglusagna.
Akveðnum fjölda fólks er boðið til
kvöldverðar, en heldur færri kom-
ast lifandi í burtu og einhver, eða
einhverjir, eru færðir þaðan í bönd-
um. Sunna Dís og Sigríður voru
beðnar að lýsa tildrögum verksins.
Sigríður útskýrði byggingu leik-
ritsins: „Vegna reynslu okkar af
sviðinu í skólanum og þeim vanda-
málum sem geta fylgt því að koma
leikriti eftir aðra inn á það, hönnuð-
um við sýninguna sérstaklega með
það fyrir augum að auðvelt yrði að
setja hana upp. Persónurnar áttu
eiginlega heima í dæmigerðri Agötu
Christie morðsögu. Þess vegna
nefndum við þær enskum nöfnum
og létum söguna gerast í kringum
1920 til 1930.“
„Nöfnin eru líka sérstaklega valin
með það fyrir augum að lýsa per-
sónunum," segir Sunna Dís. „Við
pældum mikið í þeim og þurftum að
fletta í orðabókum til að finna not-
hæf nöfn sem lýstu hroka og fleiri
eiginleikum."
Hugmyndin
Það er heldur óvenjulegt að svo
ungt fólk taki sér leikritun fyrir
hendur. Þetta er fjörug og vel
heppnuð morðsaga og stúlkumar
voru spurðar hvemig hugmyndin
hefði komið til.
„Þetta gerðist eiginlega óvart,"
segir Sunna Dís. „Við vomm að
Morð í matinn
.y-.
Tölvuskóli
Reykjavíkur
100 klst.
forritunar-
námskeið
Skráning
og nánari
uppl. í síma
561 6699
Tölvuskóii
Reykjavíkur
Vegna gffurlegrar eftirspurnar bjóðum við upp á grunnnámskeið í
forritun og hugbúnaðargerð í visuai Basic s.o
Grunnþekking: Ágæt þekking á Windows 95, áhugi á forritun og
þokkaleg enskukunnátta.
Kennd veröa m.a. grundvallaratriði almennrar forritunar, upp-
bygging og undirbúningur forritunar, forritun í gluggaumhverfi,
uppbygging gagnaforritunar, forritun og uppbygging viðskiptakerfa,
forritun tengd Internetinu, grafísk forritun og innsýn f leikjaforritun,
samspil við stýrikerfi o.fl.
Borgartúni28 Smi 5616699 Fax5616696 tolvuskoli@totvuskoli$
„Titanic“ í
Rússlandi
► LEIKSTJÓRINN James
Cameron hlustar hér á spurning-
ar blaðamanna sem hljómuðu á
blaðamannafundi sem var hald-
inn í Moskvu á dögunum í tilefni
frumsýningar myndarinnar „Tit-
anic“. Cameron valdi að frum-
sýna stórmyndina í Kaliningrad
sem er svo fátækt svæði að leik-
sljórinn þurfti sjálfur að koma
með sýningartækin með sér.