Morgunblaðið - 15.02.1998, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Útför Halldórs Kiljans Laxness gerð frá Kristskirkju í Landakoti
^r^SÓLIN braust fram úr skýjum og lýsti inn um steinda
glugga Kristskirkju í Landakoti í þann mund sem sálu-
messa hófst vegna útfarar Halldórs Kiljans Laxness. Um
300 manns, fjölskylda skáldsins, vinir, forseti Islands, rík-
isstjórn, fulltrúar erlendra ríkja og fleiri voru viðstaddir.
Á sama tíma safnaðist fólk saman í safnaðarheimili kirkj-
unnar og í Hlégarði í Mosfellsbæ og fylgdist þar með
beinni útsendingu Ríkissjónvarpsins frá athöfninni.
Séra Jakob Rolland, prestur kaþ-
ólska safnaðarins, söng sálumessu
'®*rog flutti stutta predikun og séra
Gunnar Kristjánsson, prófastur á
Reynivöllum í Kjós, flutti minning-
arorð.
Séra Jakob Rolland gerði trú
Halldórs Laxness að umtalsefni í
predikun sinni og sagði að sumir
myndu jafnvel hneykslast á því að
hann væri jarðsunginn frá kaþólskri
kirkju. „Var hann trúaður? Á hann í
raun og veru samleið með Jesú
Kristi? Eða hafði hann ekki fyrir
löngu varpað af sér oki kristindóms-
ins? Ég veit að maður getur lesið
ýmislegt í ritum hans, sem kemur
ekki heim og saman við boðskap
kirlqunnar. Efasemdir í trúmálum
voru honum yfirsterkari um tíma.
: '~^3n eigum við sjálf að þykjast sterk-
ari í trúnni?" Séra Jakob kvaðst vita
að þrátt fyrir allar efasemdir hefði
Halldór aldrei misst trú á þessa
undraveru sem maðurinn sjálfur
væri. Hann vitnaði að lokum í skáld-
ið og sagði: „Eitt faðirvor beðið á
næturþeli þegar aðrir sofa er miklu
voldugri atburður en allir sigrar
Rómaveldis samanlagðir, og eitt
andvarp hrelldrar sálar sem þráir
Guð sinn eru miklu stórfenglegri
tíðindi á himnum en byltingin í
Rússlandi eða pólitík Breta í Asíu.“
I minningarorðum sínum sagði
séra Gunnar Kristjánsson, meðal
annars: „Halldór Laxness var skáld
_,samúðarinnar, fegurðarinnar og
<J,-feinnar heilögu návistar. Hann kall-
aði þjóðina til umhugsunar um
dýptina í mannsins tilvist á nýjan
hátt. Hverjar eru grundvallarhug-
myndimar, ekki aðeins í boðskap
kirkjunnar heldur í lífi mannsins?"
Síðar sagði séra Gunnar: „Vér
kveðjum Halldór Laxness, hið skap-
andi og gefandi skáld, sem náði æv-
intýralegu sambandi við þjóð sína.
Og vér getum spurt hversu óendan-
lega fátækari þjóðin væri hefði hún
ekki eignast verk hans. En þjóð-
skáldið Halldór Laxness kveðjum
«~~yér aldrei í eiginlegri merkingu
þess orðs, ungir sem aldnir njóta
verka hans um ókomna tíma.“
Við lok útfararinnar var kistan
borin úr Idrkjunni og fór líkfylgdin í
Fossvogskirkju en bálför skáldsins
verður gerð eftir helgi. Verður duft
hans lagt í jörð í kyrrþey á Mosfelli
í Mosfellsdal. Líkmenn voru Auður
-nlónsdóttir, dótturdóttir skáldsins,
Halldór Þorgeirsson, tengdasonur
Lýsisframleiðsla ársins seld, en dregið hefur ur spurn eftir loðnumjöli
Lækkun um leið
og loðna veiðist
HEIMSMARKAÐSVERÐ á
loðnumjöli er um 450 sterl-
ingspund tonnið um þessar mund-
ir, svipað óg fyrrihluta síðasta árs.
Markaðsstjóri SR-Mjöls hf. segir
eftirspum hafa minnkað og að
verðið muni ömgglega lækka um
leið og loðnan fari að veiðast. Hátt
verð er á loðnulýsi og öll fram-
leiðsla ársins hefur verið seld fyrir-
fram. Ovissan vegna verkfalls sjó-
manna leiðir til lægra verðs til ís-
lenskra framleiðenda.
Verð á loðnumjöli var hátt á síð-
asta ári og að sögn Sólveigar Samú-
elsdóttur, markaðsstjóra hjá SR-
mjöli hf., stærsta framleiðanda og
seljanda loðnuafurða á landinu, hef-
ur það leitt til minnkandi eftir-
spumar. Vegna þess hvað mjölið
hefur verið dýrt hafa kaupendur
dregið úr notkun þess og aukið hlut
jurtapróteina í fóðurblöndum sín-
um. Eftirspum er því lítil eins og
er.
Heimsmarkaðsverð er talið vera
450 sterlingspund á tonnið en afar
lítil viðskipti em á bak við það
verð. Telur Sólveig að til þess að ná
sínum skerf af mjölmarkaðnum á
nýjan leik þurfi framleiðendur að
sætta sig við lægra verð. Býst hún
við að verðið muni lækka um leið
og loðnan fer að veiðast, þá fyrst
reyni á viðskiptin.
Verkfall sjómanna hefur haft af-
ar slæm áhrif á markaðsstöðu ís-
lenskra mjölframleiðenda, að mati
Sólveigar. Vegna boðaðs verkfalls
var ekki hægt að selja fyrirfram
því seljendur gátu ekki tryggt af-
hendingu.
Þannig misstu íslenskir fram-
leiðendur af möguleikunum að
selja mjölið á allt upp undir
465-470 sterlingspund á tonnið og
verða að taka því verði sem býðst
þegar loðnan fer að veiðast. Kaup-
endur töldu tryggara að kaupa það
mjöl sem þeir ætluðu að nota í
febrúar, mars og apríl, í Suður-
Ameríku, Danmörku eða Noregi.
Sólveig segir að ekki bæti stöð-
una að verkfall geti skollið aftur á
15. mars. Mánuður sé stuttur tími
og loðnan enn ekki farin að veiðast.
„Þessi stöðugu verkföll hér virka
illa inn á markaðinn, við fáum þann
stimpil á okkur að við séum óút-
reiknanleg. Þetta kemur fram í
lægra verði fyrir afurðirnar," segir
Sólveig.
Lítið framboð er á lýsi á heims-
markaðnum vegna veðurfarslegra
aðstæðna við Suður-Ameríku. Verð
á loðnulýsi hefur því hækkað. Sól-
veig telur að búið sé að gera fyrir-
framsamninga um alla lýsisfram-
leiðslu íslendinga á þessari vertíð
og áætlar að meðalverðið sé um
600 bandaríkjadalir fyrir hvert
tonn.
Halldórs, Þór Kolbeinsson, dóttur-
sonur hans, Halldór E. Laxness,
sonarsonur hans, Jón M. Guð-
mundsson, fyrrverandi oddviti og
bóndi á Reykjum, Ólafur Ragnars-
son, útgefandi skáldsins, Thor Vil-
hjálmsson rithöfundur og Hjálmar
H. Ragnarsson, forseti Bandalags
íslenskra listamanna.
Auk hefðbundinnar tónlistar við
gregoríanska sálumessu var flutt
við athöfnina íslensk tónlist. Sigrún
Hjálmtýsdóttir söng lögin Vertu
Guð faðir eftir Jón Leifs við sálm
Hallgríms Péturssonar og Vöggu-
kvæði eftir Halldór Kiijan Laxness
sem hefst á orðunum Hvert örstutt
spor við lag Jóns Nordals. Þá flutti
Schola cantorum undir stjóm Harð-
ar Áskelssonar Um dauðans óvissa
tíma, eftir Hallgrím Pétursson, við
lag útsett af Róbert Abraham
Ottóssyni.
Við sálumessuna lásu Gunnar Þór
Ólafsson og Gunnar Eyjólfsson úr
ritningunni, úr Jobsbók og fyrsta
bréfi heilags Jóhannesar postula.
Bryndís Halla Gylfadóttir lék á
selló í upphafi Kom, dauðans blær,
eftir Johann Sebastian Bach við
orgelleik en organistar voru þeir
Douglas A. Brotchie og Hörður
Áskelsson.
■ Halldór Kiljan Laxness/10-11
KISTA Halldórs Kiljans Laxness borin úr kirkju. Næst kistunni ganga ekkja skáldsins, Auður Laxness, dætur
þeirra, Guðný og Sigríður, og aðrir ættingjar. Myndin á forsíðu blaðsins er tekin við upphaf athafnarinnar.
Eitt faðirvor
voldugra en
allir sigrar
Rómaveldis