Morgunblaðið - 22.02.1998, Side 1
104 SIÐUR B/C/D/E
STOFNAÐ 1913
44. TBL. 86. ÁRG.
SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Golli
f i'.’V
, S*. - f r J
Sinn Fein hótar að hætta friðar-
viðræðum á N-Irlandi
Bflsprengja slas-
ar fjölda manns
Belfast. Reuters.
ALLT að 11 manns slösuðust þegar
bílsprengja sprakk fyrir utan lög-
reglustöð í bænum Moira á Norður-
írlandi seint á föstudagskvöld.
Gerðist þetta aðeins nokkrum
klukkustundum eftir að Sinn Fein,
stjórnmálaflokki IRA, Irska lýð-
veldishersins, var vikið_ burt úr við-
ræðunum um frið á N-írlandi vegna
morða á tveimur mótmælendum.
Ákveðið var á föstudag, að Sinn
Fein fengi að koma aftur inn í við-
ræðurnar 9. mars næstkomandi en
að því tilskildu, að IRA héldi ekki
áfram ofbeldisverkum. I gær hafði
enginn lýst á hendur sér ábyrgð á
sprengingunni en flest bendir til, að
lýðveldissinnar hafi verið að verki. I
Moira búa aðallega mótmælendur.
Grunar lögregluna, að klofningshóp-
ur úr IRA, sem er andvígur friðar-
Vetraryndi
HIÐ fegursta vetrarveður hefur
verið víða um land síðustu
daga, að minnsta kosti á suð-
vesturhorninu þar sem drifhvít
mjöllin hylur landið og trén
hneigja krónur sínar undan
silfruðum ávöxtum frostsins.
Þessar ungu stúlkur voru að
Ieik í Hljómskálagarðinum í
gær og er ekki annað að sjá en
Listaskáldið góða líti til þeirra
með velþóknun.
viðræðunum, hafi komið sprengj-
unni fyrir.
Martin MeGuinness, einn helsti
samningamaður Sinn Fein í friðar-
viðræðunum, sagði í gær í viðtali við
BBC, breska ríkisútvarpið, að óvíst
væri, að flokkurinn tæki þátt í þeim
aftur. Sagði hann, að það yrði ákveð-
ið að loknum fundi með þeim Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands,
og Bertie Ahern, írskum starfsbróð-
ur hans.
Sinn Fein útilokaður?
Átta manns voni fluttir á sjúkra-
hús með minniháttar áverka en
fréttir era um, að allt að 11 hafi
slasast, þar af sex lögreglumenn.
Á Norður-írlandi er óttast, að
með sprengingunni sé friðurinn úti
og reynist það rétt, að IRA-liðar
hafi staðið að sprengingunni í fyrra-
kvöld, er hugsanlegt, að Sinn Fein
eigi ekki afturkvæmt í friðarviðræð-
urnar. Þær munu þá lognast út af af
sjálfu sér.
Jeffrey Donaldson, samningamað-
ur Sambandsflokksins á N-Irlandi,
sagði í gær, að hefði IRA komið fyr-
ir sprengjunni, sem sprakk í Moira,
yrði Mo Mowlam, N-írlandsmála-
ráðherra bresku stjómarinnar, að
vísa Sinn Fein burt fyrir fullt og allt.
Frá því í desember hafa hryðju-
verkasamtök mótmælenda og kaþól-
ikka myrt 13 manns en IRA lýsti því
þó yfir í síðustu viku, að vopnahléið,
sem greiddi götu Sinn Fein inn í
friðarviðræðurnar, stæði enn.a
Viðræður Annans, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, við íraska ráðamenn í Bagdad
Líkur á að Irakar
gefi eftir hafa aukist
Bagdad. Reuters.
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hóf formlegar
viðræður við fulltrúa Iraksstjórnar í
Bagdad í gær. Er vonast til, að Irak-
ar fallist á að leyfa vopnaeftirlits-
mönnum SÞ óhefta vopnaleit og
þannig megi koma í veg fyrir loft-
árásir Bandaríkjamanna og Breta.
Sagt er, að öryggisráðið hafi gefið
Annan dálítið svigrúm til samninga
en ekki mikið. Nokkur bjartsýni ríkir
þó um, að írakar gefi eftir, að sinni
að minnsta kosti, og beygi sig undir
ályktanir öryggisráðsins.
Annan hóf viðræður við Tareq
Aziz, aðstoðarforsætisráðherra
Iraks, í gærmorgun en megintilgang-
ur þeirra er að tryggja, að vopnaeft-
irlitsmennirnir fái ótakmarkaðan að-
gang að átta höllum Saddam
Husseins, forseta Iraks. Áður en þær
hófust sagði Ahmed Fawzi, talsmað-
ur SÞ, að mikilvægt væri, að menn
gerðu sér grein fyrir þvi, að ekki
stæði til að semja um eitt eða neitt,
heldur að fá Iraka til að hlíta álykt-
unum öryggisráðsins.
Forsetasvæði kortlögð
Fyrir fundinn með Aziz hitti Ann-
an að máli Víktor Posúvaljuk, sendi-
mann Rússa í Bagdad, en hann hefur
unnið að því að finna lausn á deil-
unni. Annan fékk í gær þær góðu
fréttir, að vopnaeftirlitsmönnum
hefði gengið vel við að kortleggja hin
umdeildu svæði við forsetahallirnar
en gi-unur leikur á, að þar hafi Irakar
falið vopn. Hafa þeir ekki verið
hindraðir við það starf en ekki er þó
um eiginlega skoðun að ræða. I Ijós
hefur komið, að þessi svæði era
minni en áður var talið.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, sagði í ávarpi á föstudag, sem
útvarpað var til arabaríkja, að
Bandaríkjamenn ættu ekkert sökótt
við íraska alþýðu. Ef enginn árangur
yi-ði af fór Kofi Annans og loftárásir
yrðu hafnar, væri það sök Saddam
Hussein íraksforseta og einskis ann-
ars.
Dagblöð í írak spáðu því í gær, að
deilan yrði til lykta leidd á fundum
Annans með íröskum ráðamönnum
og öryggisráðið þykir hafa greitt fyr-
ir því með því að samþykkja, að
Irakar megi selja helmingi meiri olíu
en áður til að kaupa fyrir matvæli og
iyf-
Aukin bjartsýni
Lamberto Dini, utanríkisráðherra
Ítalíu, kvaðst í gær bjartsýnn á, að
lausn fyndist í deilunni við Iraka en
Hubert Vedrine, utanríkisráðherra
Frakklands, sagði, að fór Annans
væri hugsanlega ekki úrslitatilraun-
in.
Annan hefur ákveðið að fram-
lengja Iraksferðina um einn dag að
beiðni Aziz og má þá búast við, að
hann gefi öryggisráðinu skýrslu um
hana á þriðjudag eða miðvikudag.
vmsHPnfflviNNuiír
ÁSUNNUDEQl
Blekking og
þekking 30
HVER VEIT HVAR
ÉG ENDA?
36