Morgunblaðið - 27.06.1998, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 27
Fangaskipti
Kfar Falous í Libanon. Reuters.
Skorar á Indónesíu
stjórn að veita A-
Tímorbúum frelsi
Diii. Reuters.
FÉLAGI í Hizbollah-samtökunum
var kampakátur í gær er ísraelskir
hermenn fylgdu honum úr fangelsi
til bfla Rauða krossins. Fimmtíu og
flmm líbanskir fangar fóru í gær
frá Iíbönsku landi sem Israelar
hafa á valdi sínu og lauk þar með
skiptum á föngum fyrir líkamsleif-
ar tíu ísraelskra hermanna sem
féllu í misheppnaðri hernaðarað-
gerð fyrir tíu mánuðum.
Tvær rútur og tveir sendibflar
óku undir fánum Rauða krossins
með fangana yfir á svæði sem líb-
anski herinn ræður og var þar vel
fagnað af hundruðum Líbana sem
biðu þeirra. „Ég er ákaflega ham-
ingjusamur," sagði Ali Ashmar,
meðlimur í Hizbollah, en hann
hafði setið í fangelsi í Israel síðan
1988.
Alls létu Israelar 60 fanga lausa í
gær, að sögn Rauða krossins, en á
fimmtudag aflientu þeir jarðneskar
leifar 40 líbanskra skæruliða. Áður
hafði lík að minnsta kosti eins ísra-
elsks hermanns, sem féll í Líbanon,
verið flutt til Tel Aviv.
CARLOS Belo, biskup Austur-
Tímorbúa, skoraði í gær á
indónesísku stjómina að leyfa íbú-
unum að njóta víðtækra borgara-
réttinda og fækka í herliðinu sem
hersitur Austur-Tímor.
Belo, sem er friðarverðlaunahafi
Nóbels, talaði á blaðamannafundi í
Dili, höfuðstað A-Tímor, sem hald-
inn var samtímis því að fram fór
kröfuganga í borginni til stuðnings
indónesískum yfirráðum. Margir
þeirra sem þátt tóku í göngunni
sögðust reyndar gera það aðeins
vegna þess að þeim hefði verið
skipað það.
Vill að skoðana- og hugsana-
frelsi verði virt
„Við biðjum [Indónesíustjórn] að
tryggja skoðana- og hugsanafrelsi,
jafnvel þótt það sé pólitískt í eðli
sínu,“ tjáði Belo fréttamönnum, en
hann var að útskýra nánar þær til-
lögur sem hann hefði komið á
framfæri við Jusuf Habibie, for-
seta Indónesíu, á fundi þeirra í
Djakarta á miðvikudaginn.
Margir Austur-Tímorbúar hafa
slæmar minningar frá því þátttak-
endum í kröfugöngu gegn
indónesískum yfirráðum í þessari
fyrrverandi nýlendu Portúgala,
sem Indónesíuher hernam 1976,
laust síðast saman við indónesíska
hermenn í Dili árið 1991. Að
minnsta kosti 50 A-Tímorbúar létu
þá lífið, en að mati vitna og óháðra
mannréttindasamtaka var mann-
fallið nær 200.
Belo hvatti stjórnina til að
ganga lengra en hún gerði fyrr í
þessum mánuði, þegar hún ákvað
að láta lausa 16 pólitíska fanga,
flesta frá A-Tímor. Frá því Su-
harto, fyi-rverandi einræðisherra
Indónesíu, fór frá völdum í byrjun
maí, hefur ekkert lát verið á mót-
mælum gegn yfirráðum Indónesíu
í A-Tímor.
Gleypti
flugii í
beinni út-
sendingu
London. Reuters.
BRESKI sjónvarpsmaðurinn
Jonathan Hill brást fagmann-
lega við er fluga flaug upp í
hann í beinni útsendingu í vik-
unni, og gleypti hana með bros
á vör.
Hill, sem er 28 ára, segir að
sér hafi verið eðlilegast að
spýta flugunni út úr sér. Hann
hafi hins vegar ekki viljað
ganga fram af áhorfendum sín-
um enda hafi þetta verið um
miðjan dag er mai’gir Bretar
sitji að tedrykkju. „Mér svelgd-
ist á,“ sagði hann er hann lýsti
atvikinu fyi-ir fréttamanni. „Ég
gat hins vegar ekki fengið af
mér að spýta flugunni út úr mér
fyrir framan myndavélarnar."
Hill, sem er grænmetisæta,
segh- að þessi fyrsti „kjötbiti“
sem hann hafi bragðað árum
saman hafi ekki komið sér á
bragðið.
Deila andstæðra fylkinga í Iran
Uppgjör
talið lfldegt
Teheran. Reuters.
MOHAMMAD Khatami, hinn um-
bótasinnaði forseti Irans, hefur
hvatt til þess að tekin verði upp
mildari islömsk stefna í landinu og
að áhersla verði lögð á bætt sam-
skipti við umheiminn.
Khatami hvatti landa sína til
þess, fyrr í vikunni. að sýna fram-
andi stjórnmálaskoðunum um-
burðarlyndi og sagði sérstaklega
mikilvægt að farið yrði vel að
ungu fólki svo að það láðaðist að
múhameðstrú í stað þess að hrekj-
ast að henni í ótta.
Yfirlýsingar Khatamis fylgja í
kjölfar harðnandi deilna andstæðra
fylkinga í írönskum stjórnmálum,
en aukin harka hljóp í deilurnar í
byrjun vikunnar, er islamskir bók-
stafstrúarmenn þvinguðu fram af-
sögn Abdullahs Nouris innanríkis-
ráðherra með því að samþykkja á
hann vantraust.
Dregið úr
eftirlitsferðum
Nouri hefur verið bandamaður
Khatamis og svaraði hinn síðar-
nefndi harðlínumönnum án tafar
með því að tilnefna Nouri sem
varaforseta sinn og Mostafa Tajza-
deh, helsta aðstoðarmann Nouris,
sem starfandi innanríkisráðheiTa.
Er talið sennilegt að í kjölfarið
styttist í pólitískt uppgjör í Iran.
Umbótasinninn Khatami vann
óvæntan stórsigur í forsetakosn-
ingum fyrir ári og hefur reynt að
losa þær hömlur sem íslömsk bók-
stafstrú hefur lagt á landsmenn.
Meðal annars hafa reglur um fatn-
að kvenna verið gerðar frjálslegri
og einnig hafði Nouri í starfi sínu
sem innanríkisráðherra fækkað
mjög eftirlitsferðum inn á heimili
almennings til að sannreyna hvort
fólk stundaði ólöglega dansa,
drykkju eða sjónvarpsgláp.
Harðlínumenn, með Ayatollah
Ali Khameini, erkiklerk og leiðtoga
landsmanna í trúarmálefnum, í
broddi fylkingar, hafa hins vegar
snúist til varnar. Þeir hafa áður
gert Khatami erfitt fyrir þegar
þeir létu handtaka borgai-stjórann
í Teheran. Borgarstjórinn, sem er
bandamaður Khatamis, bíður nú
réttarhalda í máli sínu. Tilnefning
Nouris í nýtt embætti þykir hins
vegar sýna að Khatami sé staðráð-
inn í að láta engan bilbug á sér
finna og að hann muni ótrauður
starfa áfram að því að stýra Iran í
umbótaátt.
Eþíópíumenn
undirbúa átök
Addis Ababa. Reuters
STÓRIR hópar fólks hafa mætt til
herskráningar og herþjálfunar í
Eþíópíu undanfarna daga eftir að
stjórnvöld sendu ákall til þjóðarinn-
ar um að ganga til liðs við herinn.
Sögðu nokkrir sjálfboðaliðar
Eþíópíustjórn hafa reynt að finna
friðsamlega lausn á landamæradeilu
Eþíópíu og Eritreu en að stjórnvöld í
Eritreu hefðu sýnt að þau væru ekki
tilbúin til að fara þá leið. Þeir hefðu á
sínum tíma stutt sjálfstæðisbaráttu
Eritreumanna en gætu ekki horft
aðgerðalausir á árásh- á eþíópíska
borgara.
Stjórnvöld í Eritreu höfnuðu í síð-
ustu viku málamiðlunartillögu
Bandaríkjanna og Rúanda en sendi-
herrar fjögun-a Afríkuríkja vinna nú
að því að komast til botns í því hvort
ríkið hafi ráðið hinu umdeilda land-
svæði fram til 6. maí síðastliðins.
Lítið hefur verið um átök á landa-
mærunum undanfarnar tvær vikur
og hafa stjórnvöld beggja ríkja notað
tímann til að safna mannafla og fjár-
munum til stríðsrekstrarins.
Asakanir um illa meðferð stríðs-
fanga og óbreyttra borgara hafa
gengið á víxl milli þjóðanna en talið
er að hundruð manna hafi fallið frá
því átökin brutust út í maí.
Enski landsliðsbúningurinn (stuttb.+ bolur) . .1.490 kr.
Brasilíubúningurinn (stuttb.+ bolur) ...1.490 kr.
Manchester, Arsenal og
Liverpool búningar (stuttb.+boiur)......m 1.490 kr.
Hermannabolir ..........................590 kr.
Galla stretchbuxur með blómamynstri.... 2.290 kr.
Velúr ungbarnagallar.....................990 kr.
[Q339 Ungbarnagalli, samfella,
bolur og tveir smekkir........ ...aðeins 1.590 kr.
Við ætlum ekki
að hætta að
bjóða frábær föt
á góðu verði
V
barnaföt við hliðina á Hagkaup í Skeifunni