Morgunblaðið - 16.08.1998, Qupperneq 1
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGVR16. ÁGÚST1998 BLAÐ E
ATVINNUAUGLÝSINGAR
Leikhússtjóri
á Akureyri
LEIKFÉLAG Akureyrar óskar að ráða leikhússtjóra frá
og með næstu áramótum. Umsóknai-frestur er til 7. sept-
ember og skriflegar umsóknir ber að senda foi-manni fé-
lagsins, Valgerði Hrólfsdóttur, sem einnig veitir upplýsing-
ar í síma 460 1462.
Flugvirki hjá
Flugfélagi Islands
FLUGFÉLAG íslands vill ráða flugvirkja til að gegna
störfum verkstjóra í viðhaldsstöð, annan til að starfa í inn-
kaupadeild en einnig flugvirkja á vaktir sem eru 12 stunda.
Fiskvinnsla í Noregi
FISKVINNSLUFYRIRTÆKI á vesturströnd Noregs
óskar eftir að ráða vant fólk í snyrtingu og önnur físk-
vinnslustörf. Fyrirtækið er í bænum Málpy, miðja vega
milli Bergen og Álasunds.
Hjúkrunarfræðingur
á Klaustri
HJÚKRUNAR- og dvalarheimilið Klausturhólar, Kirkju-
bæjarklaustri, óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til
starfa frá 1. september. Upplýsingar gefa Póra og Elsa í
síma 487 4870.
RAÐAUGL ÝSINGAR
FRÁ UNDIRRITUN samningsins. Efri röð frá vinstri: Kris Baner, deildarstjóri tryggðarkerfa TWA, Craig R. Andersen, for-
stöðumaður hjá TWR, Lisbeth Lee Mack, framkvæmdastjóri hjá TWA, Gunnar Eklund, svæðissljdri Flugleiða í USA, Helga
Þdra Eiðsddttir, forstöðumaður tryggðarkerfa Flugleiða, Elísabet Hilmarsddttir, deildarsijdri Vildarklúbbsins. Neðri röð
frá vinstri: Pétur J. Eiríksson, framkvæmdasljdri viðskiptaþrdunarsviðs Flugleiða, Donald M. Casey, framkvæmdastjdri
markaðssviðs TWA.
Samningur Vildarklúbbs Flugleiða við Vildarklúbb TWA
Mun þýða fjölgun farþega
Útflutningur á
íslenskum vörum
KANADÍSKT/íslenskt fyrirtæki óskar eftir upplýsingum
um vörur frá Islandi s.s. gæru- og ullarvörur, skartgripi og
minjagripi eða aðrar vörur. Fyrirtæki sem áhuga hafa eru
beðin að senda greinargóðar upplýsingar til afgreiðslu
Mbl., merktar: „íslensk útrás-5726“ fyrir 19. ágúst.
Ókeypis húsgögn
í Garðabæ
FJÖLBRAUTASKÓLINN í Garðabæ auglýsir að ýmiss
konar húsgögn, sem ekki hefur tekist að selja, fáist ókeypis
mánudaginn 17. ágúst kl. 13.00-19.00. Um er að ræða stóla,
borð, skápa, skrifborð, hillur o. fl.
Námskeið í
kvikmyndagerð
KVIKMYNDASKÓLI íslands stendur fyrir umfangsmiklu
námskeiði í kvikmyndagerð 14. september til 9. nóvember.
Markmiðið er að nemendur fái undirstöðu í m.a. handrits-
gerð, leikstjórn og kvikmyndatöku.
SAAÁAUGLÝSINGAR
Fjallaleiðsögumenn
ÍSLENSKIR fjallaleiðsögumenn minna á gönguferðir,
klettaklifur, tjaldbúðalíf, ísklifur, fjöruferð og margt fleira.
Einnig sumarleyfisferðir, m.a. á Hvannadalshnjúk og
skriðjökla.
SAMSTARFSSAMNINGUR Vildarklúbbs Flug-
leiða og Vildarklúbbs bandaríska flugfélagsins
Trans World Airlines, TWA, Aviators, sem undir-
ritaður var í síðustu viku, mun, að sögn Helgu Þóru
Eiðsdóttur, forstöðumanns Vildarklúbbs Flugleiða,
hafa hagræði í för með sér fyrir þá félagsmenn
Vildarklúbbsins sem þurfa tengiflug innanlands í
Bandaríkjunum og vilja safna punktum í leiðinni,
ekki síst vegna þess hve leiðarkerfi TWA og Flug-
leiða passar vel saman, að hennar sögn.
Helga segist bjartsýn á að við-
skiptavinir TWA sem eru félags-
menn í Aviators, nýti sér þjónustu
Flugleiða í auknum mæli þar sem
með samningnum við Flugleiðir
opnast tengimöguleiki til borga
Skandinavíu en TWA flýgur ekki
þangað.
Vildarklúbbsfélagar Flugleiða
eru hátt í hundrað þúsund talsins
en félagsmenn Aviators eru 14
milljómr, þar af eru virkir félagar
2 milljónir.
TWA er íyrsta stóra bandaríska
flugfélagið sem Vildarklúbbur
Flugleiða gerir samstarfssamning
við en um tvö ár eru síðan sam-
vinna Eurobonus, Vildarkerfis
SAS, og Vildarklúbbs Flugleiða
hófst.
Hægt að taka út ferðir til
Hawaii og Mexíkó
Samstarfssamningurinn gerir,
að sögn Helgu Þóru, félögum Vild-
arklúbbs Flugleiða kleift að safna
punktum og taka út férðir á öllum
flugleiðum TWA innanlands í
Norður-Ameríku auk ferða til
Hawaii, Mexíkó og Karíbahafsins.
Flugfélögin hafa átt í viðræðum
í tæpt eitt ár. „Þetta er tiltölulega
stór áfangi því við þurftum að
semja við bandarískt flugfélag til
að félagsmenn okkar hefðu tæki-
færi til að ferðast í Bandaríkjunum
og safna punktum um leið auk
þess sem við náum á sama tíma til
fjölmenns markaðar í Bandaríkj-
unum. Samningurinn mun vonandi
einnig auka okkar sölu, því TWA
flýgur t.d. ekki til Skandinavíu en
við erum hins vegar með gott
leiðanet á mOli Bandaríkjanna og
Skandinavíu. Þetta styrkh- því
ekki bara vildarkerfið heldur líka
markaðsstöðu Flugleiða.“
Hún sagði að tO dæmis væri lík-
legt að farþegar TWA sem væru
félagsmenn í Aviators, myndu nú
nýta sé það að geta safnað punkt-
um, eða mílum eins og það er kall-
að í Bandaiákjunum, með því að
fljúga með Flugleiðum til þeirra
staða í Evrópu sem TWA flýgur
ekki á og jafnframt tekið út ferðir
hjá Flugleiðum á þessum leiðum.
Fengu J.D.
Power verðlaunin
Helga segir að mestar vonir séu
þó bundnar við tenginguna við
Skandinavíu og sagði hún að for-
svarsmenn TWA væru mjög
ánægðir með samninginn enda
hefðu þeir lagt mikla áherslu á að
koma honum í höfn.
Vildarkerfi TWA fékk, að sögn
Helgu Þóru, J.D. Power verðlaun-
in svokölluðu í ár fyrir góða þjón-
ustu við viðskiptavini. Þau verð-
laun þykja að hennar sögn mjög
mikilvæg í þessum bransa. „Þeir
erum með mjög sambærileg þjón-
ustustig og við og ef svo hefði ekki
verið er ekki víst að hlutirnir hefðu
smollið eins vel saman og raun ber
vitni.“
Til að komast í Vildarklúbb
Flugleiða nægir að sækja um inn-
göngu. Þjónustustigin eru þrjú og
þyrjandi í kerfinu fer fyrst í Saga
Bonus og eftir að hafa aflað sér
40.000 kortapunkta færast menn
upp í Saga Business Club. Saga
Business Gold bíður svo allra
bestu viðskiptavinanna sem safnað
hafa sér 80.000 kortapunktum en
að sögn Helgu Þóru fá þeir ýmsa
fría þjónustu og auk þess geta þeir
tekið út ferðir á flugleiðum félags-
ins og hjá samstarfsaðflum.
Einnig geta meðlimir Vildar-
klúbbsins safnað punktum með
greiðslukorti Visa og Flugleiða.
200 aðilar í verslun og þjónustu
hér á landi veita korthöfum afslátt
í formi punkta. „Þetta er stærsta
tryggðarkerfí á Islandi,“ sagði
Helga.
Hlutfall íslendinga og útlend-
inga er jafnt í Vildarklúbbnum og
flestir sem eru mikið á ferðinni
ski’á sig í slíka klúbba hjá flugfé-
lögunum, að sögn Helgu.
Hún segir að erfitt sé að átta sig
á því hve mikla fjölgun farþega frá
Ameríku samningurinn geti fært
þeim. „Við vitum að þetta þýðir
aukningu en hversu mikla er mjög
erfitt að segja til um. Við erum
hins vegar mjög bjartsýn."