Morgunblaðið - 16.08.1998, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1998 E 7
Áhugaverð störf hjá rótgrónu
biffeiðaumboði
Verslunarstj óri varahlutaverslunar
Verslunarstjóri mun hafa umsjón með daglegum rekstri varahlutaverslunar ásamt því
að annast starfsmannahald. Jafhframt hafa umsjón með innkaupum, áætlanagerð,
auglýsinga- og kynningarmálum auk annarra ábyrgðarstarfa.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi haldgóða reynslu af stjómun. Tækni- og/eða
rekstrarleg menntun æskileg, en kostur ef iðnmenntun er einnig fyrir hendi.
Enskukunnátta nauðsynleg sem og þekkingánútímaupplýsingatækni.
Móttökustjóri
Móttökustjóri stýrir móttöku og hefurumsjón með þjónustuábifreiðaverkstæði.
Hæfniskröfur em að umsækjendur séu iðnmenntaðir á sviði bifvéla eða annarra véla.
Áhersla er lögð á skipulags- og stjómunarhæfileika, útsjónarsemi og hæfhi i
mannlegum samskiptum. Viðkomandi þurfa að hafa góða enskukunnáttu og reynslu af
notkuntölva.
Afgreiðsla í varahlutaverslun
Starfið felst í móttöku viðskiptavina, ráðgjöf við val og kaup á varahlutum og af-
greiðslu þar að lútandi. Unnið er með aðstoð tölvu.
Hæfniskröfur em haldbær þekking á varahlutum í bifreiðar. Áhersla er lögð á þægilega
framkomu, snyrtimennsku og þjónustulund. Kostur er ef sambærileg reynsla er fyrir
hendi.
Bifvélavirki
Starfið felst í almennum viðgerðum og viðhaldi á fólksbifreiðum.
Hæfniskröfur era að umsækjendur séu með ofangreinda menntun. Nemar í
bifvélavirkjun koma jafhffamt til greina. Áhersla er lögð á fagmennsku, nákvæmni í
vinnubrögðum, snyrtimennsku og góða samskiptahæfni.
Guðrún Hjörleifsdóttir og María Ósk Birgisdótttir veita nánari upplýsingar um
ofangreind störf. Viðtalstímar eru frá kl. 10-13. Umsóknareyðublöð eru
fyrirliggjandi á skrifstofunni, sem er opin frá kl. 10-16 alla virka daga.
Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst n.k. Ráðningarverða fljótlega.
STRÁ ehf.
STARFSRÁÐNINGAR
GUÐNÝ HARÐARDÓTTIR
Mörkinni 3,108 Reykjavík, sími: 588 3031, bréfsími 588 3044
Aðstoð óskast
á tannlækningastofu
Aðstoð óskast á tannlækningastofu miðsvæðis
í Reykjavík Ráðið verður í afleysningarstarf
í 6 mánaða barnsburðarleyfi starfsmanns.
Þó er möguleiki á framtíðarstarfi.
Starfið felst í aðstoð á klínik 36 stundir á viku.
Fjögurra daga vinnuvika. Ráðið verður í starfið
frá 1. september nk.
Góð almenn menntun og handlagni er æskileg.
Starfsmenntun og reynsla í klínik- eða þjón-
ustustörfum er kostur en ekki nauðsyn.
Starfsþjálfun ferfram á stofunni. Vinnudagur
hefst kl. 7.45. Hluti orlofs er tekinn um jól og
áramót.
Leitað er að heilsuhraustum, stundvísum og
snyrtilegum starfsmanni. í boði er krefjandi,
sjálfstætt og skemmtilegt starf á vinnustað
12 starfsmanna, þar sem allir hafa mikinn
starfsmetnað og vinna saman. Góð laun að
lokinni starfsþjálfun. Konur á öllum aldri eru
hvattartil að senda umsókn.
Reyklaus vinnustaður.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
fyrir föstudagskvöldið 21. ágúst nk., merktar:
„Karíus og Baktus."
Stykkishólmsbær
Aðstoðar-
leikskólastjóri
— leikskólakennarar
Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir eftir aðstoð-
arleikskólastjóra, leikskólakennurum og leik-
skólasérkennara eða þroskaþjálfa til starfa.
í leikskólanum eru um það bil 70 börn í sveigj-
anlegum vistunartímum. Stykkishólmsbær
tók við rekstri leikskólans 1. ágúst sl. og hefur
starfið verið í mikilli þróun. Því er skapandi
og krefjandi vinna í boði fyrir áhugasamt fólk.
Áhersla er lögð á að leikskólinn er fyrir öll börn
og að börnin fái að njóta sín í leik og starfi á
þeirra eigin forsendum.
Upplýsingar um starfið gefur leikskólastjóri,
Sigrún Þórsteinsdóttir, í vs. 438 1028 og hs.
438 1085 og Róbert Jörgensen, formaður
Fræðslunefndar, í vs. 438 1128 og hs. 438 1410.
Umsóknarfrestur er til 1. september n'k.
Leikskólinn í Stykkishólmi.
VEGAGERÐIN
SKRIFSTOFUSTARF
REYKIAVÍK
Staða skrifstofumanns í þjónustudeild hjá
Vegagerðinni í Reykjavík er laus til umsóknar.
Um fullt starf er að ræða og æskilegt að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Laun skv. Kjarasamningi SFR.
Starfssvið
• Almenn skrifstofustörf, ritvinnsla, símsvörun,
póstdreifing, afgreiðsla og móttaka
viðskiptavina.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Reynsla af skrifstofustörfum æskileg.
• Kunnáttu í ensku og einu Norðurlandamáli
skilyrði.
• Góðir samstarfshæfileikar.
Nánari upplýsingar veitir Jón Birgir Guðmundsson
hjá Ráðgarði Akureyri frá kl. 9-12 í síma 461 4440
og Klara Gunnlaugsdóttir hjá Ráðgarði Reykjavík frá
kl. 9-12 síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs Akureyri
eða Ráðgarðs Furugerði 5,108 Reykjavík
fyrir 24. ágúst merktar:
“Vegagerðin- skrifstofustarf-Reykjavík”
RÁÐGARÐUR hf
STJÓRNUNAR- OG REKSTRARRÁÐGJÖF
SIJÓSEFSSPÍTALI5ÍÍ3
HAFNARFIRÐI
Hjúkrunarfræðingar
athugið
Skurðdeild
Staða hjúkrunarfræðings við skurðdeild spítal-
ans er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. september 1998 eða eftir
nánara samkomulagi. Við bjóðum upp á fjöl-
breytta starfsemi, góða starfsaðstöðu og nota-
legan vinnustað. Komið í heimsókn og kynnið
ykkur starfsemi deildarinnar.
Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Sigurð-
ardóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma 555 0000.
Meltingarsjúkdómadeild
Dagvinna
Laus er 60% staða hjúkrunarfræðings við melt-
ingarsjúkdómadeild spítalans (göngudeild)
frá 1. september 1998 eða eftir nánara sam-
komulagi. í boði er áhugavert starf á deild, sem
er í stöðugri þróun hvað varðar hjúkrun, rann-
sóknir og vísindavinnu. Gerðar eru rannsóknir
á sviði speglana, lífeðlis- og lífefnafræði.
Upplýsingar veita deildarstjórar, Kristín og
Ingigerður, í síma 555 3888 eða Gunnhildur
Sigurðardóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma
555 0000.
Handlækningadeild
Laus er hlutastaða hjúkrunarfræðings á hand-
lækningadeild spítaians frá 1. september 1998.
Fastar næturvaktir koma til greina. Við bjóðum
upp á fjölbreytta starfsemi á sviði skurðlækn-
inga, góða vinnuaðstöðu og notalegan
vinnustað.
Nánari upplýsingar gefur Gunnhildur Sigurð-
ardóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma 555 0000.
Laus er staða vid ræstingar og býtibúr á
lyflækningadeild spítalans frá 1. sept.
1998. Upplýsingar gefur Gunnhildur Sigurð-
ardóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma 555 0000.