Morgunblaðið - 16.08.1998, Page 8
8 E SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Iðggiltur endurskoðandi
Okkur hefur verið falið að leita eftir löggiltum endurskoðanda í nýtt stjórnunarstarf
sem viðkomandi mun fá að móta.
Starfssvið
• Verkefnastjórnun.
• Mótun innra eftirlits og starfsreglna.
• Reikningshaldslegar úttektir o.fl.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Viðskiptafræði og löggiltur endurskoðandi.
• Haldgóð fagleg starfsreynsla.
• Skipulags- og stjórnunarhæfileikar.
Með umsóknir og fyrirspurnir er farið sem trúnaðarmál.
Hægt verður að bíða eftir réttum einstaklingi.
Það er um að qera að hafa samband oa kanna hvað er í boði!
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon frá kl. 9-12 síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs fyrir 29. ágúst n.k. merktar:
„Löggiltur endurskoðandi".
RÁÐGARÐUR hf
STJÓRNUNAR- OG REKSTRARRÁÐGJÖF
Furugerði 5 108 Reykjavík Sírai 533 1800
Fax: 5331808 Netfang: rgmidlun@radgard.is
Heimasíða: http://www.radgard.is
ARKIIIKT
LANDSPITALINN
.../' þágu mannúðar og vísinda...
Hjúkrunarfræðingar
óskast á eftirtaldar deildir:
1) Blódskilunardeild.
Starfið felst í hjúkrun einstaklinga með lang-
varandi eða tímabundna nýrnabilun. Skipu-
lagsform hjúkrunar er kjarnahjúkrun. Unnið
er á mislöngum vöktum alla daga vikunnar
nema sunnudaga. Einnig er unnið á bak-
vöktum. Boðið er upp á 3ja mánaða aðlög-
un. Á deildinni fer fram fræðsla í formi fyrir-
lestra og/eða stuttra námskeiða.
Upplýsingar veita deildarstjóri í síma
560 1281 og Bergdís Kristjánsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, í síma 560 1300.
2) Kvenlækningadeild
Deildin er sólarhringsdeild með 15 rúmum
og hjúkrunarformið er einstaklingshæfð
hjúkrun. Góð starfsaðlögun.
Upplýsingar veitir Ingibjörg Fjölnisdóttir,
deildarstjóri, í síma 560 1113.
3) Vökudeild Barnaspítala Hringsins.
Deildin er gjörgæsludeild fyrir nýbura. í boði
er námskeið/fræðsla um hjúkrun og með-
ferð veikra nýbura og einstaklingsbundin
aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðing-
um. Til greina kemur fullt starf eða hluta-
starf, helgarvaktir og/eða næturvaktir.
Upplýsingar veitir Ragnheiður Sigurðardótt-
ir, deildarstjóri, í síma 560 1040.
--------------------—------------------,
Laun samkv. gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags
og fjármálaráðherra.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannahaldi
Rikisspitala, Þverholti 18 og f upplýsingum á Landspítala.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
I V
Óskum eftir að ráða arkitekt í spennandi starf við undirbúning og umsjón verklegra framkvæmda.
Starfssvið
Starfið felst í áætlanagerð, undirbúningi og umsjón með framkvæmdum ásamt samningagerð við
verkkaupa og hönnuði. Arðsemismat og skýrslugerð er einnig hluti af starfinu.
Menntunar-og hæfniskröfur
Leitað er eftir arkitekt með frumkvæði, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. Viðkomandi þarf einnig að
hafa góða tungumála- og tölvukunnáttu auk þess að eiga auðvelt með samskipti.
Við hvetjum unga og áhugasama arkitekta til að sækja um.
Um er að ræða umfangsmikið og fjölbreytt starf fyrir drífandi einstakling
sem hefur áhuga á að nýta hæfileika sína.
Nánari upplýsingar veita Magnús Haraldsson og Auður Bjarnadóttir
hjá Ráðgarði hf. frá 9-12 í síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs fyrir 25. ágúst n.k. merktar:
“Arkitekt"
RÁÐGARÐUR hf
STJÓRNUNAR- OG REKSTRARRÁÐGJÖF
Furugerði5 108Reykjavík Sími 5331800
Fax: 5331808 Netfang: rgmidlun@radgard.is
Heimasíða: httpý/vvww.radgard.is
Járniðnaðarmenn
Óskum eftir að ráða í eftirfarandi störf.
Einungis réttindamenn koma til greina:
• Plötu- og ketilsmiði.
• Stálskipasmiði.
• Rafsuðumenn.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu,
Kaplahrauni 14.
Upplýsingar eru einnig veittar í síma 555 4199
á milli kl. 9.00 og 17.00.
Vélsmiðja
ORMS & VÍGLUNDAR sf
Vélsmiðja Orms og Víglundar sf. var stofnuð árið 1973. Hún hefur
verið sérhæfð í nýsmíði á tækjum og vélbúnaði fyrir iðnað og virkjanir.
Fyrirtækið er einnig í viðhaldi og þjónustu á skipum og bátum, þar
sem lögð er rík áhersla á vönduð vinnubrögð. Grunneiningar þess
eru plötuverkstæði, renniverkstæði, trésmíðaverkstæði, slippur og
flotkvíar.
Hrafnista Reykjavík
Hjúkrunarfræðingar
— sjúkraliðar
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga á
hjúkrunarvakt vistheimilisins, stöðuhlutfall
samkomulag. Einnig vantar hjúkrunarfræðinga
á helgar- og kvöldvaktir.
Sjúkraliðar, fastar stöður eru lausar til um-
sóknar í haust.
Starfsfólk vantar til aðhlynningar ýmist í
hlutastörf og í fulla vinnu.
Upplýsingar veita ída Atladóttir, hjúkrunarfor-
stjóri og Þórunn A. Sveinbjarnar í símum
568 9500 eða 553 5262.
Wurth á íslandi ehf.
Wurth verslar með rekstrarvörur og verkfæri fyrir
fagmenn. Vörunúmer á lager skipta þúsundum.
Aðalbókari óskast
Við óskum eftir að ráða aðalbókara.
Ábyrgð og verklýsing:
• Umsjón með fjárhagsbókhaldi og afstemmn-
ing á undirbókhaldi á lager, viðskiptamönnum
og lánadrottnum.
• Launaútreikningar.
• Umsjón með gæðakerfum.
Eiginleikar:
• Verslunarskólamenntun eða sambærileg
menntun.
• Vilji til að ná árangri.
• Samstarfsvilji og jákvæð viðhorf.
• Reynsla við bókhald er æskileg. Starfið gefur
góða möguleika, bæði faglega og persónu-
lega, fyrir viðkomandi aðila hjá fyrirtæki í örri
þróun.
Athugið: Reyklaus vinnustaður
Viljir þú vita meira um þetta starf, þá getur þú
hringt í síma 530 2004 á milli klukkan 12.30 og
17.00 og talað við Björn og fengið frekari upplýs-
ingar um starfið.
Ef þú hefur áhuga á slíku starfi, sendu þá skrif-
lega umsókn sem allra fyrst eða fyrir 29. ágúst
Wúrth á íslandi ehf.,
Vesturhrauni 5,
210 Garðabæ,
sími 530 2004,
fax 530 2001.