Morgunblaðið - 16.08.1998, Blaðsíða 9
MORGUNB LAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1998 E 9
HAMPIÐJAN
VttRHÞRtlN
Hampiðjan óskar eftir að ráða starfsmann til að hafa
umsjón með og stjórn á rannsóknarstofu þar sem
tveir starfsmenn vinna í dag.
Starfssvið
Á rannsóknarstofunni er fengist við vöruþróun og
framleiðslueftirlit fyrirtækisins. Jafnframt er gert ráð
fyrir að viðkomandi starfsmaður vinni náið með
framleiðslu- og sölufólki að hugmyndavinnu, sölu,
tæknilegum útreikningum og leiðbeiningum fyrir
viðskiptavini.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingi með
tæknimenntun á háskólastigi.
Þekking á vöruþróun og ISO gæðakerfum er
æskileg. Sjálfstæði í vinnubrögðum og lipurð í
samstarfi er skilyrði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Haraldsson hjá
Ráðgarði hf. frá kl. 9 -12 í síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs
fyrir 24. ágúst n.k. merktar:
“Vöruþróun”.
RÁÐGARÐUR hf
STJÓRNUNAR- OG REKSTRARRÁÐGJÖF
Furugerði 5 108 Reykjavík Sími 533 1800
Fax: 5331808 Netfang: rgmidlun@radgard.is
Heimasíða: http://www.radgard.is
— fyrir alla muni
Lagerstjóri
Óskum eftir að ráða lagerstjóra á vörulager
okkar.
Starfslýsing:
• Umsjón með skipulagi lagers.
• Umsjón með vörumóttöku og vöruafhend-
ingu.
• Umsjón með birgðastýringu.
• Mannaforráð.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af stjórnunarstörfum.
• Reynsla og/eða þekking á lagerstarfsemi.
• Góð tölvukunnátta.
• Grunn tungumálakunnátta.
• Eiga auðvelt með að vinna með fólki.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
IKEA er eitt stærsta fyrirtæki í heimi á sviði
húsbúnaðar. Markmið IKEA er að gera daglegt
líf fólks þægilegra. Það gerum við með því að
bjóða upp á breitt vöruúrval af vel hönnuðum
og hagnýtum húsbúnaði, á það góðu verði
að þorri fólks hefur efni á að kaupa hann.
Umsóknir sendist afgreidslu Mbl., fyrir
23. ágúst 1998, merktar: „SILO — 5751".
P E R L A N
Nemi í framreiðslu
Óskum efitr að ráða nema í framreiðslu
(þjóninn).
Upplýsingar gefur Þorkell á staðnum (5. hæð)
mánudaginn 17. ágúst frá kl. 13 — 19.
r
TRYGGINGASTOFNUN^? RÍKISINS
STARFSSVIÐ
► Greining og hönnun á nýjum verkefnum
við upplýsingakerfi stofnunarinnar
► Forritun
► Fjölbreytt verkefni
Tryggingastofnun leitar að
hugmýndaríkum manni í
tölvudeild stofnunarinnar.
Verkefnastjóri!
HÆFNISKRÖFUR
► Tölvunarfræðingur, kerfisfræðingur
eða verkfræðimenntun
► Sjálfstæð vinnubrögð
► Góð mannleg samskipti
Nánari upplýsingar veitir Agla Sigr. Bjömsdóttir
hjá Gallup.
Umsókn ásamt mynd þarfað berast til
Ráðningarþjónustu Gallupjyrir mánudaginn
24. ágúst n.k. merkt - „Tryggingastojhun 527".
GALLUP
RAÐNINGARÞJONUSTA
Smiöjuvegi 72, 200 Kópavogl
Sími: 540 ÍOOO Fax: 564 4166
Netfang: r a d n I n g a r © g a I I u p . i s
FRÆÐSLUR4Ð /VÚLMIÐmÐ/IRINS
Leiðbeinandi
málmsuðunámskeiða
Fræðsluráð og umsjónamaður (FM) starfar
að símenntun samkvæmt sérstöku samkomu-
lagi, frá 26.6.1987, milli Samiðnar, sambands
iðnfélaga og Samtaka iðnaðarins. Fræðslu-
ráðið er sameiginlegur vettvangur til stefnu-
mótunar og framkvæmda í fræðslu og starfs-
menntun málmiðngreina og netagerðar.
Fræðsluráð málmiðnaðarins óskar að ráða
leiðbeinanda til að sjá um málmsuðunámskeið
Fræðsluráðsins, bæði raf- og logsuðunám-
skeið. Um fullt starf er að ræða en hlutastarf
kemur einnig til greina. Við leitum að manni
með víðtæka þekkingu á sviði málmsuðu
(tæknifræðingi/verkfræðingi), eða manni með
mikla reynslu úr atvinnulífinu (málmiðnaðar-
manni). Áhugi á málaflokknum og símenntun
þarf að vera til staðar. Námskeið fræðsluráðs-
ins eru haldin víðsvegar um landið.
Verksvið: Kennsla á bóklegum og verklegum
námskeiðum, gerð námsgagna og uþþbygging
námskeiðahaldsins í samvinnu við fagnefndir.
Skriflegar umsóknir, þar sem fram kemur
starfs- og menntunarferill viðkomandi, skuiu
berast Fræðsluráði málmiðnaðarins, Hallveig-
arstíg 1, 101 Reykjavík, fyrir 1. september
1998.
Allar umsóknir og fyrirspurnir verður farið með
sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar varðandi starfið veitir
Steingrímur A. Jónsson, framkvæmdastjóri
Fræðsluráðs málmiðnaðarins, í síma 562 4716.
Tilvísun 04 04 001
Móttaka
og ritarastörf
Fjármálastofnun óskar að ráða starfskraft til
ritarastarfa, móttöku viðskiptavina og léttra
skrifstofustarfa. Góð íslensku- og tölvukunn-
átta æskileg. Við leitum að glaðlegum starfs-
krafti með hlýtt viðmót. Reyklaus vinnustaður.
Vinnutím frá kl. 8.00 — 16.00 á sumrin og frá
kl. 9.00—17.00 á veturna.
Laun samkomulagsatriði.
Umsókn, ásamt mynd og upplýsingum um
fyrri starfsreynslu, þarf að berast auglýsinga-
deild Mbl. eigi síðar en 1. sept. nk., merkt:
„Móttaka og ritarastörf"
Bolungarvíkurkaupstaður
íþróttakennarar
— enn og aftur!
Við Grunnskóla Bolungarvíkur er laus til um-
sóknar íþróttakennarastaða. Um er að ræða
bæði íþrótta- og sundkennslu á öllum aldurs-
stigum. Ýmis hlunnindi í boði.
Grunnskóli Bolungarvíkur er einsetinn skóli með um 200 nemendum
í 1,— 10. bekk og er ein bekkjardeild í árgangi. I Bolungarvík er gott
mannlíf og jákvæður andi ríkir gagnvart skólanum. Hér sameinast
allir um að gera góðan skóla betri.
Þá er einnig möguleiki á að íþróttakennari taki
að sér þjálfun yngri flokka í knattspyrnu á veg-
um Ungmennafélags Bolungarvíkur.
Forstöðumaður
Félagsmiðstöðvarinnar
Tópasar
Við félagsmiðstöðina Tópas er laust til um-
sóknar starf forstöðumanns. Starfið felst í
vinnu með unglingum við skipulagningu
félagsstarfs. Grunnskólinn og félagsmiðstöðin
vinna saman að þessum málum.
Krafist er uppeldismenntunar eða reynslu af
vinnu með unglingum.
Allar nánari upplýsingar um ofangreind störf
veita Anna G. Edvardsdóttir, skólastjóri, í síma
456 7429 (vinna) og 456 7213 ( heima) eða
Halldóra Kristjánsdóttir, aðstoðarskólastjóri
í síma 456 7129 (vinna) og 456 7372 (heima).