Morgunblaðið - 16.08.1998, Qupperneq 10
10 E SUNNUDAGUR16. ÁGÚST1998
MORGUNBLAÐIÐ
Kennarar
Grunnskóli Eyrarsveitar í Grundarfirði óskar
eftir að ráða kennara í almenna bekkjakennslu,
íþróttir, handmennt (smíði og hannyrðir) á
næsta skólaári.
Hringid og kannið málin! Nánari upplýsing-
ar gefa Anna Bergsdóttir skólastjóri í síma
438 6511 og Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri
í síma 438 6630 og 438 6605
Leikskólakennarar
Leikskólinn Sólvellir í Grundarfirði óskar eftir
að ráða leikskólakennara til starfa sem fyrst.
Nánari upplýsingar gefur Sigríður Herdís
Pálsdóttir leikskólastjóri í síma 438 6645 og
438 6953
- Grundarfjörður er fallegt sveitarfélag á norðanverðu Snæfellsnesi,
í rúmlega 2ja stunda akstursfjarlægð frá Reykjavík.
- ibúar Grundarfjarðar teljast á tíunda hundraðið og hefur fjölgað
mikið síðustu ár.
- Grundarfjörður er vaxandi byggðarlag og þar er næg atvinna.
- í Grundarfirði starfar Grunnskóli Eyrarsveitar, með um 200 nemend-
ur næsta haust í 12 bekkjardeildum. Framkvæmdir standa yfir við
stækkun skólbyggingarinnar, en skólinn er nú þegar einsetinn. við
leitum að kennurum sem eru tilbúnir að gerast hluti af góðum hópi
og vilja taka þátt í að gera góðan skóla betri.
- Leikskólinn Sólvellir er tveggja deilda leikskóli með um 70 nemendur
með sveigjanlegan vistunartíma. Við leikskólann starfa fjórir leikskóla-
kennarar, einn fjarnámsnemi á fjórða ári, auk áhugasamra starfs-
manna sem vilja fá fleiri leikskólakennara til starfa.
Umsóknir sendist sveitarstjóranum í Grundar-
firði, Grundargötu 30, 350 Grundarfirði.
Sveitarstjórinn í Grundarfirði.
Barnaverndarstofa
Forstöðumaður Stuðla
Barnaverndarstofa auglýsir lausa til umsóknar
stöðu forstödumanns meðferðarstöðvar
ríkisins fyrir unglinga, Stuðla. Meðferðar-
stöðin Stuðlar starfar skv. reglugerð nr. 474/
1998. Hlutverk stöðvarinnar er að veita sér-
hæfða meðferð, þ.m.t. vímuefnameðferð,
skammtímavistun í neyðartilvikum og grein-
ingu á vanda unglinganna ásamt eftirmeðferð
að lokinni meðferðarvistun. Stöðin þjónarfyrst
og fremst unglingum á aldrinum 12-18 ára.
Forstöðumaður starfar skv. erindisbréfi og fer
með faglega og fjárhagslega stjórn stöðvarinn-
ar undir yfirstjórn forstjóra Barnaverndarstofu.
Forstöðumaður skal hafa háskólamenntun í
sálfræði, félagsráðgjöf, uppeldisfræði eða hlið-
stæðu námi með viðbótarmenntun. Hann skal
ennfremur að jafnaði hafa reynslu af meðferð-
arstarfi og/eða reynslu eða menntun í stjórnun-
arstörfum.
Laun eru skv. launakjörum opinberra starfs-
manna. Æskilegt er að nýr forstöðumaður geti
hafið störf sem fyrst.
Umsóknir skulu berast Barnaverndarstofu,
Pósthússtræti 7, pósthól 53, 121 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 7. sept. nk.
Nánari upplýsingar veitir forstjóri Barnavernd-
arstofu í síma 552 4100.
Bað- og laugarvörður
— Suðurbæjarlaug
Hafnarfjarðarbær auglýsir lausar stöður starfs-
manna við bað- og laugarvörslu kvenna og
bað- og laugarvörslu karla í Suðurbæjarlaug.
Umsækjandi þarf að standast hæfnispróf,
sbr. öryggisreglugerð fyrir sundstaði.
Launakjör eru samkv. kjarasamningi S.T.H.
og Hafnarfjarðarbæjar.
Nánari uppiýsingar veitir forstöðumaður
Suðurbæjarlaugar, Daníel Pétursson, í síma
565 3080 eða á staðnum. Umsóknir á þar til
gerðum umsóknareyðublöðum berist eigi síðar
en 24. ágúst nk. á bæjarskrifstofur Hafnarfjarð-
ar, Strandgötu 6, merktar íþróttafulltrúa.
íþróttafulltrúi Hafnarfjarðar.
Mötuneyti
Traustur aðili í miðborg Reykjavíkur
óskar eftir að ráða starfskraft í mötuneyti.
Helstu verkefni; framreiðsla matar og
umsjón með kaffiveitingum auk
hefðbundinna mötuneytisstarfa.
Hæfniskröfur; reynsla af
mötuneytisstörfum og góð framkoma.
Um er að ræða 75%starf.
Ráðning verður sem allra fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 19. ágúst n.k.
Upplýsingar veittar á skrifstofu Liðsauka.
Einnig er hægt að skoða auglýsingar og sækja um
störf á http://www.lidsauki.is
Fólk og þtekking
Liósauki 0
Skipholt 50c, 105 Reykjavík sími 562 1355, fax 562 3767
Netfang: www.lidsauki.is
Tölvupóstur: lidsauki@knowledge.is
Áhugaverð störf eru laus
hjá hinum ýmsu fyrir-
tækjum í Reykjavík.
• Tollskjalagerð.
• Fjölbreytt ritarastörf.
• Krefjandi sölustörf.
• Störf í móttöku við síma og ritarastörf.
• Störf í bókhalds- og fjármáladeildum.
• Lagerstörf.
• Sérhæfð skrifstofustörf.
• Störf þar sem reynir á samskipti við
viöskiptavini í þjónustudeildum.
• Störf í þjónustudeildum - kvöld og
helgarvinna.
Vinsamlega sendu skriflegar umsókn til
Ráðningarþjónustu PricewaterhouseCoopers
fyrir 21. ágúst nk.
PrICEWÁTeRHOUsEQoPERS H
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Air Iceland
Flugvirkjar
Flugfélag íslands hf. óskar eftir að ráða flug-
virkja í eftirtalin störf í viðhaldsstöð félagsins
á Reykjavíkurflugvelli:
Verkstjóri. Dagleg stjórnun og umsjón með
verkefnum í viðhaldsstöð.
Flugvirki í innkaupadeild. Umsjón með var-
ahlutalager, svo sem innkaupum og móttöku
varahluta.
Flugvirkja á vaktir, unnið á 12 tíma vöktum.
Skriflegar umsóknir sendist starfsmannastjóra
félagsins á Reykjavíkurflugvelli fyrir 21. ágúst
nk. á eyðublöðum sem þarfást. Eldri umsóknir
óskast endurnýjaðar. Farið verður með allar
umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað.
Skrifstofustarf
I
Opinber stofnun óskar eftir að ráða starfs-
mann í afgreiðslu og móttöku og almenn
skrifstofustörf.
} Hæfniskröfur: Verslunarpróf eða
I sambærileg menntun æskileg. Góð
tölvukunnátta og undirstöðuþekking í
bókhaldi nauðsynleg.
Um er að ræða framtíðarstarf.
Vinnutími kl. 8-16.
Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst. n.k.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
eingöngu veittar á skrifstofu Liðsauka.
Einnig er hægt að skoða auglýsingar og sækja um
á http://www.lidsauki.is
Fólk ogr þekking
Lidsauki W
Skipholt 50c, 105 Reykjavík sími 562 1355, fax 562 3767
Netfang: www.lidsauki.is
Tölvupóstur lidsauki@knowledge.is
®
Veitingastaður
Óskum eftir að ráða starfskraft á veitingastað
IKEA í eftirfarandi starf:
Starfslýsing:
1. Almenn afgreiðsla á veitingastað.
2. Mismunandi vinnutími.
3. Aukavinna um helgar.
Hæfniskröfur:
• Vera áreiðanlegur, stundvís og reglusamur.
• Eiga auðvelt með að vinna með fólki.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
IKEA er eitt stærsta fyrirtæki I heimi á sviði húsbúnaðar. Markmið
IKEA er að gera daglegt líf fólks þægilegra. Það gerum við með því
að þjóða upp á mikið vöruúrval af vel hönnuðum og hagnýtum hús-
búnaði á það góðu verði, að þorri fólks hefur efni á að kaupa hann.
Nánari upplýsingar varðandi starfið veitir Ósk
í síma 520 2516 eftir kl. 14.00 alla virka daga.
Umsóknir og umsóknareyðublöð eru í upplýs-
ingum í verslun IKEA við Holtagarða.
Leikskólakennarar!
Nú er tækifærið til að láta drauminn um starf
á Húsavík rætast. Auglýstar eru lausartil um-
sóknar eftirtaldar stöður við Leikskólann
Bestabæ hér í bæ:
• Leikskólastjóri í 100% starf.
• Einnig vantar deildarstjóra og leik-
skólakennara á deild.
Húsavíkurkaupstaður aðstoðar við útvegun
húsnæðis og flutning búslóðar.
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst nk. og skal
skila umsóknum á bæjarskrifstofuna, Ketils-
braut 9, 640 Húsavík.
Frekari upplýsingar veita bæjarskrifstofa (Rein-
hard/Ása) í síma 464 1222 og leikskólastjóri
Guðrún Friðjónsdóttir í síma 464 1255 milli
kl. 13.00 og 16.00 virka daga.
Húsavík er vinalegur 2500 manna bær. Hér eru góðir skólar, allt frá
leikskólum upp I framhaldsskóla. Hér er veitt öll grundvallarþjónusta
og hér býr gott fólk. Húsavík er fjölskylduvænt samfélag.
Bæjarstjórinn á Húsavík
Reinhard Reynisson.