Morgunblaðið - 16.08.1998, Side 11
V
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1998 E 11
ísafjarðarbær
— nær en þig grunar!
Grunnskóla- og leikskólakennarar,
sérkennarar og þroskaþjálfar!
Hvernig væri að kynnast hinni heillandi náttúru
Vestfjarða og taka þátt í blómlegu mannlífi
og menningarlífi?
ísafjardarbær og Svædisskrifstofa
málefna fatladra, Vestfjördum, óska eftir
þessum starfsstéttum til starfa í ísafjarð-
arbæ.
í ísafjarðarbæ starfa 4 grunnskólar og 6 leik-
skólar sem eru staðsettir á ísafirði, Suðureyri,
Þingeyri og í Önundarfirði. Á Vestfjörðum er
einnig starfrækt Svæðisskrifstofa málefna
fatlaðra með aðalskrifstofu á ísafirði. Þar vant-
ar þroskaþjálfa á sambýli og í þjónustu við
fatlaða sem búa í eigin húsnæði. Leitað er eftir
fólki sem getur unnið sjálfstætt, á auðvelt með
mannleg samskipti og er tilbúið til að taka þátt
í breytingum og uppbyggingu á þjónustu.
Laun er skv. almennum kjarasamningum.
ísafjarðarbær býður þeim sem starfa við
skólana upp á flutningsstyrk, hagstæða
húsaleigu og persónuuppbót.
Umsóknarfrestur er til 25. ágúst 1998.
Nánari upplýsingar gefa Rósa B. Þorsteinsdótt-
ir, skóla- og menningarfulltrúi í símum
456 7765 og 456 7665 og Laufey Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu í síma
456 5224.
Sölustörf
1. Framleiðslufyrirtæki á höfðuborgar-
svæðinu.
Sala til verslana og viðhalda viðskipta-
tengslum. Söluferðir út á land.
Vinnutími kl. 8-17.
2. Umboðs- og heildverslun í Reykjavík.
Sala á verkfærum, vélum og festingum.
Söluferðir út á land.
Vinnutími kl. 9-18.
3. Innflutningsfyrirtæki með heimilistæki
o.fl.
Sala bæði til fyrirtækja og verslana,
tiltekt pantana og útkeyrsla.
Vinnutími kl. 9-18.
í öllum tilvikum er um framtíðarstörf að
ræða hjá áhugaverðum og traustum
fyrirtækjum.
Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst n.k.
Umsóknareyðubiöð og nánari upplýsingar
eingöngu veittar á skrifstofu Liðsauka.
Einnig er hægt að skoöa auglýsingar og sækja um
störf á http://www.lidsauki.is
Fólk og jbekk/ng
Udsauki
Skipholt 50c, 105 Reykjavík sfmi 562 1355, fax 562 3767
Netfang: www.lidsauki.is
Tölvupóstur: lidsauki@knowledge.is
Lager/útkeyrsla
Heildverslun óskar eftir að ráða sem fyrst
starfsmann á lager og til útkeyrslu.
Um er að ræða framtíðarstarf.
Hæfniskröfur:
• Góð almenn menntun.
• Tölvukunnátta æskileg.
• Vera heiðarlegur.
• Vera heilsuhraustur.
• Hafa þjónustulund.
• Hafa létta lund.
• Vera reyklaus.
Umsóknum skal skilað til afgreiðslu Mbl. fyrir
fimmtudaginn 20. ágúst nk., merktum:
„H - 5717".
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Lögfræðingur
Ríkisskattstjóri óskareftirað ráða lögfræðing
til starfa á lögfræðisviði tekjuskattsskrifstofu.
Starfið felst aðallega í gerð umsagna í kæru-
málum fyrir yfirskattanefnd, afgreiðslu rann-
sóknarskýrslna frá skattrannsóknarstjóra ríkis-
ins, svörun fyrirspurna og túlkun laga og reglu-
gerða á sviði beinna skatta.
Ráðning miðast við 15. september næstkom-
andi. Umsækjendur skulu hafa lokið embættis-
prófi í lögfræði. Þekking á skattalegu umhverfi
fyrirtækja og einstaklinga og reynsla af tengd-
um störfum æskileg.
Launakjörtaka mið af kjarasamningum Stéttar-
félags lögfræðinga og aðlögunarnefndarsamn-
ingi við embætti ríkisskattstjóra.
Umsóknir, þar sem fram komi m.a. upplýsingar
um menntun, starfsreynslu og meðmælendur,
sendist embætti ríkisskattstjóra, Laugavegi
166, 150 Reykjavík, merktar starfsmannastjóra.
Umsóknarfrestur er til mánudagsins 31. ágúst
1998.
Nánari upplýsingar veitir Friðgeir Sigurðsson,
deildarstjóri lögfræðisviðs og Ari ísberg, starfs-
mannastjóri, í síma 563 1100.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un hefur verið tekin um ráðningu.
0
HEKLA
BHvélavirki-
vélvirki
Vegna aukinna
umsvifa vill
Véladeild
Heklu ráða
STARFSSVIÐ
► Eftiiiit og viðgerðir á
Scania bifreiðum og
Caterpillar vinnuvélum
bifvélavirkja HÆFNISKRÖFUR
eða vélvirkja
m starfa á ► Fagmennska og nákvæmni
verkstxði ► Enskukunnátta
jyrirtxkisins.
► Snyrtimennska
► Góð þjónustulund
Nánari upplýsingar hjá Gallup.
Umsókn ásamt mynd þarfað
berast Gallup fyrir mánudaginn
24. ágúst n.k. - merkt
„Hekla - bijvélavirki/vélvirki".
GALLUP
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Smiöjuvegi 72, 200 Kópavogi
Sfm 1: 540 1000 Fax: 564 4166
Netfang: radningar@ga11 up . i s
RSK
ríkisskattstjOri
Gjaldasvið
Lausar eru til umsóknar tvær stöður hjá gjalda-
sviði virðisaukaskattsskrifstofu ríkisskattstjóra.
Undir gjaldsvið heyrir þungaskattur og áfeng-
isgjald.
Um er að ræða verkefni við álagningu, túlkun
laga og reglna, afgreiðslu mála og eftirlit með
framkvæmd.
Gert er ráð fyrir að umsækjendur hefji störf
15. september. Gerðar eru kröfur um háskóla-
menntun, helst á sviði lögfræði, hagfræði eða
viðskiptafræði.
Launakjör taka mið af kjarasamningum há-
skólamanna og viðkomandi aðlögunarnefndar-
samningum við embætti ríkisskattstjóra.
Umsóknir, þar sem fram komi m.a. upplýsingar
um menntun, starfsreynslu og meðmælendur,
sendist ríkisskattstjóra, Laugavegi 166,150
Reykjavík, merktar starfsmannastjóra.
Umsóknarfrestur er til mánudagsins 31. ágúst
1998.
Nánari upplýsingar veita Jón H. Steingríms-
son, forstöðumaður virðisaukaskattsskrifstofu
og Ari ísberg, starfsmannastjóri, í síma
563 1100.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un hefur verið tekin um ráðningu.
Reykjavík
Fjámiálastjóri
Búr ehf. óskar að ráða
fjármálastjóra til starfa.
BLR
Búr ehf. er innkaupa-
og birgðahaldsfyrir-
tæki í eigu kaup-
félaganna, Nóatúns,
Olíufélagsins o.fl.
Fyrirtækið varstofnað
1995og eríhröðum
og markvissum vexti.
Starfssvið:
• Yfirumsjón fjármála og bókhalds.
•Stjórnun á daglegu fjárstreymi.
• Áætlanagerð og kostnaðareftirlit.
•Afstemmingar og uppgjör.
•Umsjón með tölvumálum.
•Ábyrgð og umsjón með reikningsútskrift.
Menntun og hæfniskröfur:
Menntun í viðskipta- og/eða rekstrar-
fræðum æskileg.
Góð þekking og reynsla af fjármálum og
bókhaldi nauðsynleg.
Kunnátta f tölvuforritun s.s. Excel og Word.
Upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson í síma
550 5300.
Skriflegar umsóknir óskast sendar til
Ráðningarþjónustu PricewaterhouseCoopers
merktar „Búr" fyrir 22. ágúst nk.
PricewáíerhouseQopers (j§
ÖA GIGTARFÉLAG
ði) ÍSLANDS
Sjúkraþjálfari —
hópþjálfun
Gigtarfélag íslands vantar sjúkraþjálfara til
þess að hafa yfirumsjón með hópþjálfun
félagsins. Um er að ræða 30% starf. Vinnu-
tími er mjög sveigjanlegur. Mikilvægt er að
geta hafið störf sem fyrst. í byrjun er um ráð-
ningu að ræða til 1. júní 1999.
Upplýsingar um starfið eru gefnar á skrifstofu
Gl í síma 553 0760.
Umsóknarfrestur er til 19. ágúst nk.
an
ATVINNUMIÐSTÖÐIN
Atvinnurekendur!
Hlutastarfamiölun
Atvinnumiðstöðvarinnar hefur nú þegar
fjölda námsmanna á skrá
S. 5 700 888
an
ATVINNUMIÐSTÖÐIN
Stúdentaheimilinu v/Hringbraut
101 Reykjavík • fax 5 700 890
e-mail atvinna@fs.is