Morgunblaðið - 16.08.1998, Síða 14
14 E SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
TILSÖLUSTARFA
Traust innflutningsjyrirtceki með mjög seljanlegan
tœknibúnað óskar eftir að ráða sölumann.
Starfssvið
• Ráðgjöf, samningar og sala til
viðskiptavina.
• Þátttaka í markaðs- og söluáætlunum.
• Stuðningur við innkaup.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Vélfræðingur, gjarnan vélvirki að auki.
• Reynsla af markaðs- og sölumálum kostur.
• Frumkvæði, góö þjónustulund og hæfni í
mannlegum samskiptum.
Með umsóknir og fyrirspurnir verður
farið sem trúnaðarmál.
Það er vel þess virði að skoða þennan
möguleika.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Haraldsson hjá
Ráðgarði hf. frá kl. 9 -12 í síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs fyrir 25. ágúst merktar:
„Vélfræðingur".
RÁÐGARÐUR hf
STJÓRNUNAR- OG REKSTRARRÁÐGJÖF
Furugerði 5 108 Reykjavík Sími 5331800
Fax: 5331808 Netfang: rgmidlun@radgard.is
Heimasíða: http://www.radgard.is
Hótel ísland
Starfsfólk óskast
Vegna mikilla anna framundan óskum við
eftir að ráða starfsfólk í eftirfarandi
stöður:
• Framreiðslumenn.
• Aðstoðarfólk á bar og í sal.
• Dyraverði.
• Starfsfólk í fatahengi.
• Aðstoðarfólk í eldhús.
• Ræstingar og uppvask.
Krafist er:
• Reglusemi og stundvísi.
• Snyrtimennsku.
• Reykleysis.
Tekið verdur á móti umsóknum á staðnum
í dag, sunnudag, frá kl. 16—18 og frá mán-
udegi til föstudags frá kl. 10—12.
BROADWAY,
Ármúla 9, sími 533 1100.
Úthlutun styrkja
úr IHM-sjóði
í samræmi við úthlutunarreglur IHM-sjóðs
Félags leikmynda- og búningahöfunda, sem
samþykktar voru á aðalfundi félagsins þann
7. maí sl.f auglýsir FLB hér með eftir umsókn-
um um fjárframlög úr IHM-sjóði félagsins.
Rétt til úthlutunar eiga allir leikmynda- og
búningahöfundar að verkum, sem flutt hafa
verið í sjónvarpi eða gefin út á myndbandi,
hvort sem þeir eru félagar í Félagi leikmynda-
og búningahöfunda eður ei.
Til úthlutunar eru nú kr. 200.000.
Úthlutað verður fjórum styrkjum að upphæð
kr. 50.000 fyrir miðjan október.
Umsókninni þarf að fylgja skrá yfir þau verk
umsækjanda, sem flutt hafa verið í sjónvarpi
eða gefin út á myndbandi.
Umsóknir þurfa að berast Félagi leikmynda-
og búningahöfunda, pósthólf 1603, 121
Reykjavík, fyrir 15. september 1998.
Stjórn Félags
leikmynda- og búningahöfunda.
Orkubú Vestfjarða
auglýsir
Orkubú Vestfjarða óskar eftir að ráða eftirfar-
andi starfsmenn í vinnuflokk Orkubúsins í
Vestur-Barðastrandarsýslu. Aðsetur vinnu-
flokksins er á Patreksfirði.
1) Óskað er eftir vélstjóra með 4. stigs réttindi.
2) Óskað er eftir lagtækum manni. Þarf ekki
að hafa fagmenntun. Til greina getur komið
að taka nema í rafveituvirkjun.
Umsóknir um ofangreind störf ásamt upplýs-
ingum um menntun og fyrri störf, sendist
Orkubúi Vestfjarða, Stakkanesi 1,400 ísafirði,
fyrir 25. ágúst nk.
Upplýsingar um störfin gefa Jakob Ólafsson
og Kristján Haraldsson, í síma 456 3211 og
Runólfur Ingólfsson í síma 456 1411.
Upplýsingar um Orkubú Vestfjarða má finna
á vefsíðum fyrirtækisins, http://www.ov.is/
ORKUBÚ VESTFJARÐA
Gorðcibær
Garðabær
Fræðslu-
og menningarsvið
Leikskólar Garðabæjar
Leikskólinn Hæðarból
Leikskólakennarar eða annað uppeldis-
menntað starfsfólk óskast til starfa frá og með
1. september nk. í leikskólanum er lögð áhersla
á lifandi starf og virkni barnanna.
Upplýsingar um starfið veitir aðstoðarleik-
skólastjóri, Ósk Fossdal, í síma 565 7670.
Leikskólinn Lundaból
Leikskólakennarar eða annað uppeldis-
menntað starfsfólk óskast til starfa frá og með
1. september nk. Lundaból er lítill notalegur
tveggja deilda leikskóli.
Upplýsingar um starfið veitir aðstoðarleik-
skólastjóri, Ragna Jóhannsdóttir, í síma
565 6176.
Laun skv. samningum launanefndar sveitarfé-
lag við viðkomandi stéttarfélag.
Leikskólafulltrúi.
Leikskólakennarar
athugið!
Laus er til umsóknar staða leikskólastjóra við
leikskólann Kiðagil í Glerárhverfi frá 1. október
nk. eða eftir samkomulagi.
Umsækjandi þarf að hafa lokið leikskóla-
kennaranámi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Félags ís-
lenskra leikskólakennara eða STAK við Launa-
nefnd sveitarfélaga.
Upplýsingar um starfið gefa deildarstjóri leik-
skóladeildar eða leikskólaráðgjafi í síma
460 1450. Upplýsingar um kaup og kjör veitir
starfsmannadeild í síma 462 1000.
Umsóknum skal skila til starfsmannadeildar
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, á eyðublöðum
sem þar fást.
Umsóknarfrestur er til 1. september 1998.
Starfsmannastjóri.
Kjósarhreppur
Kennarar — kennarar
Skólastjóri óskast til afleysinga frá 1. desember
1998—1. júní 1999 í Ásgarðsskóla, Kjósar-
hreppi (1.—7. bekkur).
Upplýsingar um starfið gefa Sigrún Bjarnadótt-
ir, skólastjóri, vs. 566 7001, hs. 566 7003, og
Guðmundur Davíðsson, oddviti, vs. 566 7100,
á miðvikudögum kl. 13—17, hs. 566 6834.
REYKJANESBÆR
SÍMI 421 6700
Skólaskrifstofa Reykjanesbæjar
Sérkennarar
— sálfræðingar
Skólaskrifstofa Reykjanesbæjar óskar ráða sér-
fræðing í fullt starf til ráðgjafar- og sér-
fræðiþjónustu sem fyrst. Úmsækjendur skulu
vera kennarar með framhaldsmenntun, sál-
fræðingar eða aðrir sérfræðingar á sviði upp-
eldis- og menntamála.
Umsóknir sendist Skólaskrifstofu Reykjanes-
bæjar, Hafnargötu 57, 230 Keflavík, Reykja-
nesbæ. Umsóknarfrestur er til 25. ágúst nk.
Laun skv. kjarasamningum Reykjanesbæjar
og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar veitir Eiríkur Hermannsson,
skólamálastjóri, í síma 421 6700.
Skólamálastjóri.
T
J;[ . Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Eftirtaldar stöður er lausar til umsóknar við
grunnskóla Hafnarfjarðar:
Engidalsskóli:
2 (V2) stöður stuðningsfulltrúa.
Upplýsingar gefur skólastjóri, Hjördís Guð-
björnsdóttir í síma 555 4433.
Lækjarskóli:
V2 staða studningsfulltrúa.
Forstöðumaður heilsdagsskóla.
Starfsfólk heilsdagsskóla (50% og 80%).
Upplýsingar gefur skólastjóri, Reynir Guðna-
son í síma 565 5185.
Æskilegt er að umsækjendur hafi uppeldis-
menntun.
Setbergsskóli:
Aimenn kennsla yngri nemenda.
Upplýsingar gefur skólastjóri,
Loftur Magnússon í síma 565 1011.
Umsóknarfrestur er til 24. ágúst en umsóknar-
eyðublöð liggja frammi á Skólaskrifstofu Hafn-
arfjarðar, Strandgötu 31.
Framkvæmdastjóri fræðslusviðs Hafnarfirði.
Starfsfólk
á leikskóla
Félagsstofnun stúdenta é og
rekur Sólgarð en rekur
Mánagarð samkvæmt
samningi við Reykjavikurborg.
Helstu markmið með starfinu
eru að börnin læri að virða
hvert annað, skoðanir,
langanir og þarfir hvers
annars, með þvíað hlusta, tjá
sig, framkvæma, sina
tillitsemi, virða reglur og leysa
deilur. Félagsstofnun stúdenta
er sjálfseignastofnun með
sjálfstæða fjárhagsábyrgð og
rekur sex deildir. Aðhenni
standa stúdentar innan
Háskóla íslands, HÍ og
menntamálaráðuneytið.
Félagsstofnun stúdenta óskar eftir
leikskólakennara og/eða öðru
áhugasömu starfsfólki á
Mánagarð, Leikskóla FS.
Mánagarðurer þriggja deilda
leikskóli fyrir börn á aldrinum eins
árs til sex ára.
Upplýsingar veitir leikskólastjóri
á Mánagarði í síma 562 4022, virka
daga kl.10-13.
isr
III l
Félagsstofnun stúdervta
KÓPAVOGSBÆR
Laus störf
við Smáraskóla
Óskað er eftir starfsfólki, körlum sem konum,
í hálf störf eftir hádegi við ræstingar og ganga-
vörslu.
Upplýsingar gefur húsvörður í síma 554 6100.
Starfsmannastjóri.