Morgunblaðið - 16.08.1998, Síða 16
16 E SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KOPAVOGSBÆR
Frá Skólaskrifstofu Kópavogs
Norskukennari óskast
Kennari óskast til aö sjá um norskukennslu
í grunnskólum Kpavogs og Garðabæjar skólaá-
rið 1998-1999.
Kennslustundir eru 9 á viku.
Nánari upplýsingar gefur Tómas Jónsson, sér-
kennslufulltrúi Kópavogsbæjar, í síma
554 1863 eða 554 1988.
Fræðslustjórinn í Kópavogi.
Dagmamma
Hefur þú áhuga á að starfa sem dagmamma?
Ef svo er og þú býrð í Bessastaðahreppi ertu
hvött til að leggja inn umsókn.
Upplýsingar veitirfélagsmálastjóri á skrifstofu
Bessastaðahrepps í síma 565 3130 frá þriðju-
degi til fimmtudags, kl. 10.00—15.00.
Félagsmálastjóri.
Lifandi starf
Vegna aukinna umsvifa í kjölfar sameiningar
viljum við ráða starfsfólk í afgreiðslu, fullt starf
(vaktavinna) og kvöld- og helgarvinna.
Lifandi og skemmtilegt starf fyrir brosmilda,
þjónustuglaða og kraftmikla einstaklinga.
Áhugasamir skili inn skriflegri umsókn ásamt
meðmælum í Mátt, Faxafeni 14, 108 Reykjavík
fyrir 20. ágúst.
Akranes — Akranes
Málmiðnaðarmenn
Þorgeir & Ellert hf. óska eftir að ráða járn-
iðnaðarmenn til starfa.
Allar upplýsingar gefur framkvæmdastjóri eða
framleiðslustjóri á skrifstofutíma í síma
430 2000.
r
&
1
4
bORGEIR 8. ELLERT HF.
Verkamenn
Loftorka óskar eftir að ráða menn til jarðvinnu
og malbikunarstarfa. Upplýsingar á staðnum
mánudaginn 17. ágúst.
Loftorka
Dalshrauni 8, Hafnarfirði,
Þú þarft ekki að borða
refakjöt til að...
...geta sinnt kennslu yngri barna og kennslu
í samfélagsgreinum á unglingastigi í Patreks-
skóla, Patreksfirði. Það sem þú þarft er áhugi
og metnaður til að taka þátt í uppbyggilegu
skólastarfi.
Upplýsingar veita: Guðbrandur Stígur, skóla-
stjóri, í símum 456 1257/456 1226 og
Valgarður Lyngdal, aðstoðarskólastjóri, í sím-
um 456 1637/456 1514.
Heilsugæslustöð Mosfellsumdæmis
Heilsugæslulæknar
Staða heilsugæslulæknis við Heilsugæsluna
í Mosfellsumdæmi er laus til umsóknar. Stöðin
er ný, glæsileg og vel búin tækjum. Stöðin
þjónar dreifbýli Þingvallahrepps, Kjalarog
Kjósarhrepp auk Mosfellsbæjar.
Umsóknir skulu sendar stjórn Heilsugæslu
Mosfellsumdæmis, Þverholti 2, Kjarnanum
270 Mosfellsbæ.
Nánari upplýsingar veita Þengill Oddsson og
Elísabet Gísladóttir í síma 510 0700.
í túnfætinum
hjá Guðrúnu og Bolla
stendur Laugaskóli í fögru umhverfi.
Okkur bráðvantar kennara til að annast sér-
kennslu (um 50% starf) og kennslu ýmissa
greina á mið- og unglingastigi (fullt starf).
í Laugaskóla eru um 50 nemendur í 1.—10. bekk. Skólinn er 20 km
frá Búðardal og til Reykjavíkur er um 2 klst. akstur um Hvalfjarðar-
göng. Á staðnum er íþróttahús og myndarleg sundlaug. I Búðardal
er öll almenn þjónusta, þ.á m. leikskóli.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 434 1262
eða 434 1268.
íslensk matvæli
Lagerstarf
Óskum eftir röskum starfskrafti. Æskilegur
aldur yfir 20 ára.
Framleiðslustörf
Vantar starfsfólk ekki yngra en 18 ára. Reynsla
æskileg.
Upplýsingar á staðnum.
Pharmaco — íslensk matvæli,
Hvaleyrarbraut 4—6,
Hafnarfirði.
Atvinna í Noregi!
Ca. 900 kr. á tímann!
Fiskvinnslufyrirtæki á vesturströnd Noregs
óskar eftir að ráða vant fólk í snyrtingu og
önnur fiskvinnslustörf.
Fyrirtækið er staðsett í bæ sem heitir Málpy
og er miðja vegu á milli Bergen og Álasunds.
Nánari upplýsingar varðandi kaup og kjör eru
gefnar í síma 0047 5785 0690 og spyrjið um
Gunnar, sem ræðir málið við ykkur á íslensku.
Heilsugæslustöð Mosfellsumdæmis
Meinatæknir
Ný staða meinatæknis við rannsóknarstofu
Heilsugæslu Mosfellsumdæmis er laus til um-
sóknar. Um er að ræða 50% stöðu. Stöðin er
ný og vel búin tækjum.
Umsóknir skulu sendar framkvæmdastjóra
heilsugæslunnar Elísabetu Gísladóttur, Heilsu-
gæslu Mosfellsumdæmis, Þverholti 2, Kjarnan-
um 270 Mosfellsbæ. Einnig veitir hún allar nán-
ari upplýsingar í síma 510 0700.
Leikfélag Akureyrar
óskar að ráða leikhússtjóra frá og með næstu
áramótum.
Umsóknarfrestur er til 7. september.
Skriflegar umsóknir sendist formanni leik-
félagsins, Valgerði Hrólfsdóttur, pósthólf 522,
600 Akureyri, sem einnig veitir nánari upplýs-
ingar í síma 460 1462.
Auk þess má leita upplýsinga hjá leikhússtjóra,
Trausta Ólafssyni, í síma 462 5073.
Járniðnaðarmenn
— laghentir menn
Strókur ehf. óskar eftir að ráða menn til starfa
við gámaviðgerðir í Sundahöfn.
Mjög góð vinnuaðstaða og góð laun í boði.
Vinsamlegast sendið upplýsingar um nafn,
aldur, símanúmer og fyrri störf til afgreiðslu
Mbl., merktar: „J — 5731".
Öllum umsóknum verður svarað.
Utkeyrsla
— framtíðarstarf
Heildverslun með bíiavörur óskar eftir að ráða
starfsmann til útkeyrslu og lagerstarfa. Leitað
er að snyrtilegum, jákvæðum manni, sem hef-
ur réttindi til aksturs ökutækis allt að 5 tonnum
Æskilegur aldur er 25—50 ára.
Umsækjendur leggi inn tilboð á afgreiðslu
Mbl., merkt: „L — 5631", fyrir 24. ágúst.
íþróttakennari
(þróttafélagið Gerpla óskar eftir íþróttakennara
til að þjálfa byrjendur í fimleikum.
Upplýsingar gefur Pálmar í síma 557 4923
milli kl. 9.00-17.00.
Verkamenn
Verkamenn óskast í byggingavinnu.
Boðið er upp á góða starfsaðstöðu og góð laun
fyrir góða menn.
Upplýsingar í símum 566 6941 og 892 3349
Á I f t á r ó s
Verkamenn
Viljum ráða verkamenn í byggingavinnu.
Upplýsingar gefur Sverrir Gunnarsson í símum
854 6372 og 562 3577.
Ármannsfell m.
150 þúsund á mánuði
Heildverslun í Reykajvík óskar eftir hraustum
og samviskusömum starfsmanni til lagerstarfa.
Mikil vinna. Laun eru 150 þúsund á mánuði
fyrir 48 stunda vinnuviku.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun, fyrri störf
og símanúmer, sendist til afgreiðslu Mbl.
merktar: „150 þúsund".
Fiskvinnsla
Starfsfólk óskast í almenn fiskvinnslustörf
í frystihús okkar í Hnífsdal og rækjuvinnslu
í Súðavík.
Upplýsingar gefur Sveinn í Hnífsdal, sími
450 4616 og Kristinn í Súðavík, sími 456 4911.
Hraðfrystihúsið hf.,
Hnífsdal og Súðavík.
Skóverslun
í Kringlunni
óskar eftir starfsfólki í fullt starf og hlutastarf.
Þjónustulund og lipurð í samskiptum skilyrði.
Umsóknirsendist til afgreiðslu Mbl., merktar:
„Skóverslun — 5636", fyrir 20. ágúst nk.
Öllum umsóknum verður svarað.
Yfirvélstjóra vantar
á b/v Sigluvík SI-2
Sigluvíkin er gerð út frá Siglufirði og er á
ísrækju. Vélarstærð 1250 Kw.
Upplýsingar í síma 460 5500.
Þormóður rammi — Sæberg hf.
Ora- og
ska rtg ri pa versl u n
óskar eftir starfskrafti, ekki yngri en 35 ára.
Vinnutími frá kl. 13.30—18.30.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
21. ágúst, merktar: „P — 5671".